Morgunblaðið - 17.11.2005, Page 41
ir meira um hann en mörg orð. Það
þótti öllum vænt um Bigga. Hvað
sjálfan mig varðar á ég góðs vinar að
sakna og græt innra með mér nú við
fráfall hans. Við vorum samstarfs-
félagar í Múlalundi í 20 ár, hann sem
sendill og ég sem sölumaður. Á okkar
samstarf féll aldrei skuggi.
Birgir hafði mjög gaman af að
ferðast og þrátt fyrir oft og tíðum lé-
lega heilsu lagði hann það á sig að
fara inn á hálendi Íslands og naut
þess í góðra vina hópi. Birgir var
mikil félagsvera og naut samvista við
fólk í ríkum mæli og ósjaldan var
hann hrókur alls fagnaðar.
Þegar ég nú kveð þennan góða vin
minn þakka ég einlæga vináttu hans
árin sem við áttum saman. Ég bið
Guð að blessa foreldra hans og aðra
ástvini. Við hjónin biðjum Guð að
blessa þeim og okkur minningarnar
um Birgi.
Baldvin Steindórsson.
„Blessuð, ég ætla að skrá mig í
ferðina.“ Þannig hljómuðu orðin
hans Birgis ævinlega þegar hann
pantaði sér ferð með ferðaklúbbnum
Flækjufæti. Birgir fór í allar ferðir
með okkur alveg frá 1994, bæði inn-
anlands og utan. Hans verður sárt
saknað af ferðafélögum. Það sem ein-
kenndi Birgi í öllum ferðum var hvað
hann var ljúfur og hjálpsamur. Ef
einhver þurfti aðstoð var hann alltaf
tilbúinn að rétta hjálparhönd. Það
var dásamlegt að heyra hann tala við
foreldra sína þegar hann hringdi
heim til að láta þau vita af sér og
segja þeim hvar hann hefði verið og
hvað hann hefði gert þann daginn.
Mér er minnisstætt þegar Flækju-
fótur var á ferðalagi norður á Strönd-
um og hann frétti af því að fjölskylda
hans væri á tjaldstæðinu. Hann gat
ekki beðið eftir því að vera keyrður
þangað heldur lagði hann af stað
gangandi því hann ætlaði ekki að
missa af þeim. En leiðin var lengri en
hann hafði búist við svo að hann varð
að snúa við og fá bílstjórann okkar til
að keyra sig, sem var auðsótt mál.
Það urðu fagnaðarfundir þegar hann
hitti þau. Þannig var ræktarsemi
þessa dugmikla ljúflings, sem nú er
kvaddur með söknuði og þökk fyrir
allar ljúfu samverustundirnar. Hann
endaði jafnan samtöl sín á orðunum:
„Allt í lagi, vinan,“ – orðum sem lýstu
æðruleysi og jafnaðargeði. Þau
kveðjuorð hljóma í eyrum okkar sem
síðasta kveðjan á vegferð hans hér á
jörð.
F.h. Ferðaklúbbsins Flækjufótar,
Sigríður og Helga.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 41
MINNINGAR
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÍÐUR JÓELSDÓTTIR
fótaaðgerðafræðingur,
Laufskógum 19,
Hveragerði,
sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands mánudaginn
7. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 18. nóvember kl. 11.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna.
Þórhallur B. Ólafsson,
Þórdís Þórhallsdóttir,
Halla Þórhallsdóttir,
Ingiríður B. Þórhallsdóttir, Kristberg Óskarsson,
Guðríður Þórhallsdóttir,
Vilborg Þórhallsdóttir, Egill Jón Kristjánsson,
Björgvin Þór Þórhallsson, Sigrún Björk Cortes,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför ástkærrar eiginkonu minnar og systur,
MARGRÉTAR HAFSTEINSDÓTTUR,
Húnabraut 42,
Blönduósi,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blöndu-
ósi mánudaginn 7. nóvember sl., fer fram frá
Blönduóskirkju laugardaginn 19. nóvember og
hefst kl. 13.00.
Jarðsett verður í heimagrafreit á Gunnsteinsstöðum.
Þeim, sem vilja minnast Margrétar, er bent á Félag krabbameinssjúkra
barna.
Kjartan Hörður Ásmundsson,
Stefán Hafsteinsson,
Erla Hafsteinsdóttir
og aðrir ættingjar og vinir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
GUÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
áður til heimilis
á Nýlendugötu 15a.
Jón H. Þórarinsson, Marilou Suson,
Guðlaug Kristófersdóttir,
Jónína S. Kristófersdóttir, Kjartan L. Pálsson,
Ingólfur Kristófersson, Hildur Guðmundsdóttir,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar konu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSGERÐAR THEODÓRU JÓNSDÓTTUR,
Hrísholti 12,
Selfossi.
Gunnlaugur Briem Vilhjálmsson,
Kolbrún Svavarsdóttir, Heiðar Bjarndal Jónsson,
Erla Gunnlaugsdóttir, Þórhallur Bjarnason,
Unnur Gunnlaugsdóttir, Sigurður Birgir Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
BJÖRN KJARTANSSON
verktaki,
Fitjakoti, Kjalarnesi,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 15. nóvember.
Svala Árnadóttir,
Hallgrímur Þór Björnsson
og aðstandendur.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
RANNVEIG SIGURÐARDÓTTIR,
Smárabraut 15,
áður Svanahlíð,
Höfn, Hornafirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt
miðvikudagsins 16. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðrún Eiríksdóttir, Erlingur Friðgeirsson,
Rannveig Eir Erlingsdóttir,
Þórdís Erlingsdóttir,
Eiríkur Erlingsson.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
ÞORBJÖRG SVEINSDÓTTIR
frá Vík í Mýrdal,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðju-
daginn 15. nóvember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
25. nóvember kl. 15.00.
Sveinn Rúnar Arason, Ragnhildur Hreiðarsdóttir,
Sæbjörg Snorradóttir,
Halla Aradóttir Loveday, Martin Loveday,
Lára Aradóttir, Sveinn Halldórsson,
Guðni Arason.
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýnduð okkur
samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
SIGURÐAR KARLSSONAR
bónda,
Laufási.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkradeildar Heil-
brigðisstofnunar Austurlands, Egilsstöðum, fyrir frábæra umönnun.
Sigfríð Jóhanna Guðmundsdóttir,
Kristbjörg Sigurðardóttir, Halldór Sigurðsson,
Guðmundur Karl Sigurðsson, Sólveig Björnsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
BÁRA HÓLM,
Hátúni 11,
Eskifirði,
lést á heimili sínu aðfaranótt miðvikudagsins
16. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristinn G. Karlsson,
Einar Hólm, Lilja Berglind Jónsdóttir,
Súsanna Kristinsdóttir, Halldór Árnason,
Þórunn Kristinsdóttir, Skúli Jónsson,
Pétur Karl Kristinsson, Gunnhildur Ósk Sæbjörnsdóttir,
Guðrún Björg Kristinsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar,
GUÐBJÖRN FRÍMANNSSON,
Heiðarvegi 8,
Selfossi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 15. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
María Guðbjörnsdóttir,
Sigurður Óli Guðbjörnsson.
Lokað
verður í söludeild Múlalundar eftir hádegi í dag, fimmtudaginn
17. nóvember, vegna jarðarfarar BIRGIS KORNELÍUSSONAR.
Múlalundur, vinnustofa SÍBS,
Hátúni 10C.