Morgunblaðið - 17.11.2005, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Harmur stríðsins
Benjamin Britten ::: Sinfonia da Requiem
Dímítríj Sjostakovítsj ::: Sinfónía nr. 8
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
Rumon Gamba, fer fyrir hljómsveitinni þegar mögnuð
og dramatísk verk verða flutt.
gul tónleikaröð í háskólabíói
Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30Fít
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
0
2
8
Tónleikakynning Vinafélagsins hefst kl. 18.00 í Sunnusal Hótel Sögu.
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur kynnir efnisskrá kvöldsins.
Verð 1.000 kr. Súpa og brauð innifalið. Allir velkomnir.
Stóra svið
Salka Valka
Í kvöld kl. 20 Fi 24/11 kl. 20
Fö 25/11 kl. 20 Su 4/12 kl. 20
Su 11/12 kl. 20
Woyzeck
Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Lau 26/11 kl. 21 Su 27/11 kl. 21
Þr 29/11 kl. 20 UPPS Fi 1/12 kl. 20
Fö 2/12 kl. 20 Fi 8/12 kl. 20
Kalli á þakinu
Su 20/11 kl. 14 UPPS L au 26/11 kl. 14
Su 27/11 kl. 14 Su 4/12 kl. 14
Su 11/12 kl. 14 Má 26/12 kl. 14
Id - HAUST
Wonderland, Critic ´s Choice?
og Pocket Ocean
Su 20/11 kl. 20 Mi 23/11 kl. 20
Aðeins þessar sýningar!
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Fö 25/11 kl. 20 Lau 26/11 kl. 20
Lau 3/12 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Su 20/11 kl. 20 UPPSELT
Su 27/11 kl. 20 UPPSELT
Má 28/11 kl. 20 UPPSELT
Su 4/12 kl. 20 AUKAS.
Síðustu sýningar!
Manntafl
Í kvöld kl. 20 Fi 24/11 kl. 20
Mi 30/11 kl. 20
GJAFAKORT
GEFÐU EFTIRMINNILEGA
UPPLIFUN
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA
ENDALAUST
18. SÝN. FÖS. 18. NÓV. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
19. SÝN. LAU. 19. NÓV. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
20. SÝN. FÖS. 25. NÓV. kl. 20 nokkur sæti
21. SÝN. LAU. 26. NÓV. kl. 20 nokkur sæti
22. SÝN. FÖS. 02. DES. kl. 20
23. SÝN. LAU. 03. DES. kl. 20
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup
Fim. 17.nóv. kl. 20 AUKASÝNING UPPSELT
Fös. 18.nóv kl. 20 UPPSELT
Lau. 19.nóv kl. 19 UPPSELT
Lau. 19.nóv kl. 22 UPPSELT
Sun. 20.nóv kl. 20 AUKASÝNING UPPSELT
Fim. 24.nóv. kl. 20 AUKASÝNING Í sölu núna
Fös. 25.nóv. kl. 20 Örfá sæti
Lau. 26.nóv. kl. 19 UPPSELT
Lau. 26.nóv. kl. 22 Nokkur sæti
2/12, 3/12, 9/12, 10/12, 16/12, 17/12
Ath! Sýningum
lýkur í desember!
Miðasalan opin virka
daga frá 13-17 og allan
sólarhringinn á netinu.
BENJAMIN
BRITTEN
th
e turn of the screwef t i r
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
PARS PRO TOTO - DANSVERKIÐ VON
BOREALIS ENSABMLE - ÁRÓRA BOREALIS
Von, dansverk eftir Láru Stefánsdóttur, framleitt af Pars Pro Toto &
Áróra Bórealis, brot úr nýju verki á gömlum merg, framleitt af Borealis Ensemble.
Laugardaginn 19. nóv. kl. 20 & Sunnudaginn 20. nóv. kl. 17
Ath! Aðeins þessar tvær sýningarMiðaverð kr. 2.000.-
HLín Petursdóttir, sópran, og Kurt Kopecky, píanó
„Ástir og örvænting” - Hádegistónleikar 29. nóv. kl. 12.15
Miðaverð kr. 1.000.- (MasterCardhafar kr. 800.-)
Kabarett
í Íslensku óperunni
Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is
Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON
“Söngur Þórunnar
er í einu orði sagt
stórfenglegur...”
SH, Mbl.
Næstu sýningar
Fös. 18. nóv. kl. 20 örfá sæti laus
Fös. 25. nóv. kl. 20 aukasýn.
Lau. 26. nóv. kl. 20 ALLRA ALLRA SÍÐASTA AUKASÝN.
Geisladiskurinn er kominn!
Jólaævintýri
Hugleiks
- gamanleikur með
söngvum fyrir alla
fjölskylduna.
Frumsýning lau. 19.11.,
nokkur sæti laus
Mið. 23.11.
Fös. 25.11.
Fös. 2.12., uppselt
Lau. 3.12., nokkur sæti laus
Fös. 9.12., uppselt
Lau. 10.12. kl. 16, uppselt
Sun. 11.12.
Lau. 17.12., nokkur sæti laus
Sun. 18.12.
Fim. 29.12.
Fös. 30.12.
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR.
Sýnt í Tjarnarbíói,
sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir í síma 551 2525
og á www.hugleikur.is .
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Þau tíðindi hafa borist fráBretaveldi að sumum þar-lendum finnist orðið nóg um
uppgang erlendra glæpasagnahöf-
unda og vilji hefta framgang þeirra
með öllum tiltækum ráðum. Eitt af
því sem rætt er í kjölfar veitingar
Gullna rýtingsins á dögunum er að
framvegis verði verðlaunin ein-
ungis veitt höfundi sem hefur
ensku að móðurmáli en ekki ein-
hverjum útlenskum höfundi sem
ekki er einu sinni hægt að bera
fram nafnið á án þess að verða sér
til skammar og svelgjast á í leið-
inni. Segir þetta auðvitað meira um
heimóttarskap breskra bókmennta-
frömuða en nokkuð annað.
Breski gagnrýnandinn MarcelBerlins gerir þetta að umtals-
efni í dálki sínum í The Guardian í
gær og hefur mál sitt með því að
segja að Gullni rýtingurinn sé svo
eftirsótt verðlaun fyrir hinar
„myrðandi stéttir“ að jafngildi Man
Booker verðlaununum í bókmennt-
um. Síðan rifjar hann upp að ný-
bakaður verðlaunahafi heiti því
sérkennilega nafni Arnaldur Indr-
iðason og spyr í kjölfarið hvort les-
andinn taki eftir einhverju óvenju-
legu við nafnið. „Einmitt. Hann er
útlenskur. Nánar tiltekið íslenskur
og skrifaði bókina sína á íslensku.
Þar að auki voru þrír af þeim sex
sem tilnefndir voru einnig jafnút-
lenskir.“
Svo rifjar Berlins upp að fyrir
þremur árum hafi Gullni rýtingur-
inn fallið Spánverjanum José Carl-
os Somoza í skaut og árið þar áður
hreppti Svíinn Henning Mankell
þau, en nú sé hreinlega komið nóg
af útlendingadekrinu að mati CWA
(Crime Writers Association) og það
hafi tilkynnt að framvegis verði
einungis gjaldgengar til verðlaun-
anna bækur skrifaðar á ensku.
Engan Erlend í hóp umsækjenda
takk!!
Frumkvæðið að þessum sinna-skiptum kemur að sögn frá
kostunaraðila (hvílíkt orðskrípi)
verðlaunanna sem mun vera ein
helsta bókaverslunarkeðja Bret-
lands, sem að sjálfsögðu vill heldur
kosta verðlaun til handa líklegum
metsöluhöfundi enskumælandi en
til einhvers sem ekki er einu sinni
hægt að bera fram nafnið á vand-
ræðalaust.
„Auðvitað hafa heyrst mótmæli,
aðallega frá útgefendum sem
leggja á sig að leita uppi, þýða og
gefa út það besta sem skrifað er af
glæpasögum í Evrópu – Harvill sér-
staklega (útgefandi Arnalds) en
einnig smærri en áhugasama útgef-
endur á borð við Serpent́s Tail og
Bitter Lemon Press,“ segir Berlins.
Hann spyr síðan þeirrar spurn-
ingar sem hlýtur að brenna á
glæpasagnalesendum breskum.
„Fer breskum og bandarískum
glæpasögum hnignandi? Eru löndin
tvö að tapa meira en aldarlöngum
yfirburðum sínum í greininni? Eru
ítalskir, franskir, þýskir, spænskir
og norrænir höfundar að skrifa
betri glæpasögur? (takið eftir að ég
sagði ekki skandinavískir höfund-
ar, vegna þess að þá hefði Ísland
ekki talist með)“
Fyrir þessa yfirburða landa-
fræðiþekkingu hlýtur Berlins ótal
prik.
Hann kveðst hafa fjallað umglæpasögur í meira en tvo
áratugi og meginvandi breskra
glæpasagnahöfunda sé einfaldlega
hár aldur og skortur á yngri höf-
undum. „P.D. James er á níræðis-
aldri og Ruth Rendell er komin yfir
áttrætt. Flestir hinna eru á sjötugs-
aldri. En hvar eru góðir yngri höf-
undar til að halda uppi merkjunum.
Þeir eru auðvitað til nokkrir en
staðreyndin stendur að England er
að tapa forystuhlutverkinu. Það er
engin tilviljun að glæpasögur evr-
ópskra höfunda skipa efstu sætin á
metsölulistum og verðlaunapöllum.
Þær bestu þeirra eru sannarlega
mjög góðar. Það dapurlega við
þetta eru viðbrögð CWA, að vísu
undir þrýstingi frá markaðnum,
sem eru fólgin í því að ef við getum
ekki unnið verðlaunin í sanngjarnri
keppni, þá útilokum við bara þá
sem eru hugsanlega betri en við.
Þetta gerir ekkert annað en draga
úr vægi verðlaunanna sem hingað
til hafa verið álitin önnur af tveim-
ur virtustu alþjóðlegu viðurkenn-
ingunum sem veitt eru fyrir glæpa-
sögur.“
Kannski verður þetta til þess aðArnaldur Indriðason er síðasti
„útlendingurinn“ sem hreppt hefur
Gullna rýtinginn eða að næsti
„kostunaraðili“ hafi minni áhyggj-
ur af „frummálinu“ en sjái sér hag í
því að verðlauna eingöngu höfunda
sem skrifa jákvætt um trefjar eða
morgunkorn, jógúrt, salernis-
pappír eða innihurðir.
Engan Erlend takk!
’Eru ítalskir, franskir,þýskir, spænskir og
norrænir höfundar að
skrifa betri glæpasögur
en breskir og banda-
rískir? ‘
AF LISTUM
Hávar Sigurjónsson
Verður Arnaldur síðastur „útlend-
inga“ til að fá Gullna rýtinginn?
havar@mbl.is