Morgunblaðið - 17.11.2005, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 B.i. 12 ára
Africa United
S.V. Mbl.
TOPP5.is
Ó.H.T. Rás 2
S.k. Dv
Sýnd kl. 4 og 6 Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára
SÁ BESTI Í BRANSANUM
ER MÆTTUR AFTUR!
hörku spennumynd frá leikstjóra 2
fast 2 furious og boyz´n the hood
Sýnd kl. 5.45 b . 16 ára
Sýnd kl. 8 og 10.20 bi. 14 ára
Sýnd kl. 10.15
MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
MMJ Kvikmyndir.com
MBL
TOPP5.IS
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
Þetta var hið fullkomna frí
þangað til þau fundu fjársjóðinn!
Þetta var hið
fullkomna frí
þangað til
þau fundu
fjársjóðinn!
Miðasala opnar kl. 15.30
Sími 564 0000
Sjóðheit spennumynd með ofurtöffaranum Paul
Walker og hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
TOPP MYNDIN Á ÍSLANDI Í 2 VIKURkl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR
ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Forsýnd kl. 8 bi. 16 ára
MBL
TOPP5.IS
Sýnd kl. 5.30 bi. 12 ára
LEIKKONAN og söngkonan Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir sendi á
dögunum frá sér plötuna Mann-
söngvar. Jóhanna eða Hansa eins og
hún er oftast kölluð hefur verið ein
af okkar fremstu leik- og söng-
konum síðan hún útskrifaðist úr
Leiklistarskóla Íslands vorið 1999.
Hún hefur mikið látið að sér kveða í
söngleikjum og skemmst er að
minnast hennar í söngleiknum Chic-
ago þar sem hún var í burð-
arhlutverki og hlaut fyrir túlkun
sína tilnefningu til Grímunnar.
Á Mannsöngvum flytur Hansa
fjórtán lög sem öll eru þekktari í
flutningi karlmanna. Af uppruna-
legum flytjendum má nefna Tom
Waits, Megas, Hauk Morthens,
Luccio Dalla, Egil Ólafsson, Leon-
ard Cohen og Nick Drake.
Hansa segir að hún hafi farið
marga hringi í að velja lögin á plöt-
una en í fyrstu hafi karlmanna-
hugmyndin ekki verið uppi á borð-
inu. „Það var ekki fyrr en við vorum
komin með flest lögin að við sáum að
þau áttu það öll sameiginlegt að
vera sungin af karlmönnum. Þá
kviknaði sú hugmynd að gera karl-
mannslög að einskonar þema plöt-
unnar.“
Það vekur athygli blaðamanns að
á plötunni er að finna tvö Tom Wa-
its-lög, „Tom Traubert’s Blues
(Waltzing Mathilda)“ og „Invitation
to the Blues“ og Hansa er spurð
hvort hún sé sérstakur aðdáandi
tónlistarmannsins. „Já, ég er mikill
aðdáandi. Hann er svo skemmtilega
dramatískur og leikhúslegur og
hentar mér mjög vel – þó að ég botni
nú ekki alltaf í textunum hans.“
Aðspurð þá hvort treginn sé
nokkuð leiðarstef á plötunni þegar
litið er til laga á borð við „Til eru
fræ“, „Tvær stjörnur“ Megasar,
„Famous Blue Raincoat“ eftir Leon-
ard Cohen og fyrrnefndra Waits-
laga, segir Hansa að hún og hljóm-
sveitin hafi á móti smíðað útsetning-
arnar eftir eigin höfði og á plötunni
sé til dæmis enginn drungi yfir
Megasi. „Þau eiga það frekar öll
sameiginlegt að vera einlæg og það
er ekkert óþarfa prjál á þeim.“
Hönsu til halds og trausts á plöt-
unni eru engir byrjendur: Karl O.
Olgeirsson stjórnar upptökum auk
þess sem hann spilar á píanó en aðr-
ir hljóðfæraleikarar eru Sigtryggur
Baldursson á trommum og slag-
verki, Valdimar Kolbeinn Sig-
urjónsson á kontrabassa og Pétur
Þór Benediktsson sem spilar á gítar
en allir sáum þeir um að leggja hönd
á plóg þegar að útsetningunum kom.
„Þeir eiga ekki síður mikið í þess-
um diski en ég og þegar við komum
saman og byrjuðum að æfa þá gerð-
ist eitthvað stórkostlegt. Til dæmis
urðu til nokkrar útgáfur af laginu
„Caruso“ áður en við tókum upp og
þar fram eftir götunum.“
Hansa syngur það lag á frummál-
inu, en einnig er tvö frönsk lög að
finna á Mannsöngvum, „La Mer“ og
„Les Moulins De Mon Coeur“. Hún
er spurð hvort hún tali bæði ítölsku
og frönsku.
„Ég tala frönsku en ekki ítölsku
en ítalski framburðurinn í „Caruso“
er víst ekki fjarri lagi. Hann Leone
[Tinganelli] hlustaði á lagið og var
víst mjög ánægður með framburð-
inn þannig að ég er ekkert voðalega
smeyk yfir frammistöðu minni í lag-
inu.“
Hansa er að lokum spurð hvar
hún myndi staðsetja sjálfa sig sem
söngkonu.
„Ætli ég hafi ekki svolítið drama-
tískt yfirbragð. Mér finnst til dæmis
skemmtilegast að spila á tónleikum
fyrir framan áhorfendur og það má
vera að það hafi eitthvað með leik-
listina að gera. Þetta er alltaf spurn-
ing um að fanga augnablikið.“
Það er 21 12 CC sem gefur
Mannsöngva út.
Tónlist | Jóhanna Vigdís sendir frá sér plötuna Mannsöngva
Að fanga augnablikið
Á Mannsöngvum gerir Hansa lög karlmanna að sínum.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Útgáfutónleikar verða í Fríkirkj-
unni sunnudaginn 2. des. Miðasala
hefst næsta mánudag en frekari
upplýsingar er að finna á www.
2112.is.
og hittir sjálfsagt naglann á höfuðið.
Það er kærleikslítil veröld sem slíkir
menn lifa í.
Einna átakanlegust er saga
manns sem búinn er að vera í eitri
og afbrotum allt sitt líf en Reynir
hittir hann þegar ljósið leikur um
hann um stund. Hann eignast kær-
ustu og honum fæðist sonur en fyrr
en varir hefur eitrið sogað hann nið-
ur á botninn á ný.
Blaðamaðurinn og rithöfundurinn
Reynir Traustason er sögumaður og
aðalhöfundur Skuggabarna, afrakst-
ur nokkurra ára vinnu undir sléttu
og felldu yfirborði höfuðborgarinnar
og er samnefnd bók um viðfangs-
efnið að koma út þessa dagana.
Reyni stendur ekki á sama um þessi
börn, myndin hans er mjög persónu-
leg, hann fléttar m.a. heimilislífi
sínu, einkum sambandi hans við
dóttur sína, inn í viðbjóðinn. Það er á
vissan hátt áhrifarík aðferð, minnir
okkur á að öll vorum við einhvern
MANNLÍFSMYNDIRNAR sem
dregnar eru upp í Skuggabörnum
eru ömurlegar, enda fjallar hún um
þjóðfélagsböl eiturlyfja og fylgifiska
þeirra: Fórnarlömbin, aðstandend-
urna, handrukkarana, glæpina, nið-
urlæginguna, sorgina. Við höfum séð
aðra hlið á þessum undirheimi í frá-
bærum myndum eins og Hlemmi og
Lalla Johns, hér snúa að okkur ung
og falleg stúlkubörn, einstaklingar
sem koma ekkert síður frá góðum
heimilum en slæmum og fylgst er
með handrukkara að störfum. Hann
segist vera handbendi andskotans
tíma börn í viðsjárverðum heimi.
Frásagnaraðferðin setur einnig
skorður, það dylst engum að Reynir
er einlægur í því sem hann er að
gera en þegar upp er staðið er hann
engu að síður full fyrirferðarmikill,
boðskapurinn verður óskýrari í per-
sónulegum frávikum, tóbaksmökk-
urinn truflar athyglina frá viðfangs-
efninu. Skuggabörnin hans Reynis
eru yfirleitt sjáanleg, það þarf ekki
að kafa djúpt eftir þeim í undirheim-
ana, hinsvegar skellum við yfirleitt á
þau blinda auganu og látum sem
ekkert sé. Reynir og félagar vekja
okkur til umhugsunar um þeirra
nöturlegu tilvist og þar með er
ákveðnum tilgangi náð. Það er aftur
á móti erfiðara að koma auga á höf-
uðpaurana í þessum Niflheimi sam-
tímans, peningamennina, hvít-
flibbabófana sem stjórna
eiturlyfjatraffíkinni, þeir hafa verið
og eru Hinir ósnertanlegu. Vonandi
á Reynir eða einhver annar skelegg-
ur heimildarmyndagerðarmaður eft-
ir að komast í tæri við þá, þar liggja
rætur vandans. Það er reyndar vikið
að uppsprettunni, innflutningnum
og sýnt hversu auðvelt er að koma
eiturlyfjum inn í landið. Við blasir
enn ein sönnun þess að efnin sem
tollgæsla og lögregla ná að finna eru
ekki nema toppurinn á ísjakanum,
aðeins einn tíundi þess magns sem
smyglað er til landsins.
„Reynir og félagar vekja okkur til umhugsunar um þeirra nöpurlegu tilvist
og þar með er ákveðnum tilgangi náð,“ segir meðal annars í umsögn.
Innsýn í skuggaveröld
KVIKMYNDIR
Skuggabörn Heimildarmynd. Leikstjórn: Þórhallur
Gunnarsson og Lýður Árnason. Handrit
og sögumaður: Reyni Traustason.Tónlist-
arstjórn: Pétur Hjaltested. Framleiðandi:
Í einni sæng. 50 mín. RÚV 15. nóv. Ísland
2005.
Sjónvarpið
Sæbjörn Valdimarsson
EIN vinsælasta söngkona landsins,
Ragnheiður Gröndal, heldur útgáfu-
tónleika í Íslensku óperunni í kvöld
en Ragnheiður sendi á dögunum frá
sér plötuna After the Rain. Platan er
sú fyrsta þar sem Ragnheiður kemur
fram með sitt eigið efni, lög og texta
en áður hefur hún gefið út tvær sóló-
plötur.
Á tónleikunum í kvöld kemur
Ragnheiður fram ásamt tólf manna
hljómsveit, sem samanstendur af
þeim tónlistarmönnum sem komu að
upptökum á plötunni auk strengja-
kvartetts og bakraddasöngvara.
Vinsældir Ragnheiðar hafa aukist
jafnt og þétt undanfarin misseri og til
marks um það skaust After the Rain í
þriðja sæti Tónlistans fyrstu viku
sína á listanum og er platan nú í
fjórða sætinu.
Miðaverð á útgáfutónleikana er
2.000 kr. og forsala er í verslun útgef-
andans, 12 Tóna við Skólavörðustíg.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.
Ragnheiður flytur sín eigin lög á
After the Rain.
Tónlist | Ragnheiður
Gröndal með útgáfu-
tónleika í Óperunni
Á eigin
vegum