Morgunblaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 55
Morgunblaðið/Ásdís
Í fyrra brá Gísli Rúnar Jónsson sér í gervi Björgúlfs Guðmundssonar.
ÁRAMÓTASKAUP Sjónvarpsins er
orðið jafn órjúfanlegur þáttur
jólahátíðar landsmanna og kerti og
spil. Jafnan hvílir mikil leynd yfir
efnistökum Skaupsins en nú er kom-
ið í ljós hverjir, eða réttara sagt
hverjar, skrifa og leikstýra verkinu í
ár. Það er þær Edda Björgvins-
dóttir, Helga Braga Jónsdóttir og
Kristín Pálsdóttir sem þessa dagana
horfa á atburði liðins árs með spé-
spegli og rita handrit að Skaupinu.
Þær munu jafnframt koma til með
að skipta leikstjórninni á milli sín en
Edda sér þó um stærstan hluta þess
verkefnis, að sögn Rúnars Gunn-
arssonar, deildarstjóra innlendrar
dagskrárgerðar hjá Sjónvarpinu.
Að sögn Rúnars eru upptökur
þegar hafnar á Skaupinu og má bú-
ast við að þar verði saman komnir
helstu gamanleikarar þjóðarinnar.
Sjónvarp | Áramótaskaup Sjónvarpsins
Þrjár konur við
stjórnvölinn
Aðalleikkonurnar í In Her Shoes þykja sýna góðan leik í vandaðri róm-
antískri gamanmynd, sem festist ekki í klisjunum.
KVIKMYNDIR
Smárabíó og Regnboginn
Í hennar sporum (In Her Shoes)
Leikstjórn: Curtis Hanson. Aðalhlutverk:
Cameron Diaz, Toni Collette, Shirley
MacLaine og Mark Feuerstein. Bandarík-
in, 131 mín.
MYNDINNI Í hennar sporum mætti
kannski best lýsa sem nokkurs konar
Beðmálum í borginni í innihaldsríkari
kantinum. Myndin er byggð á skáld-
sögu eftir Jennifer Weiner, einn
helsta metsöluhöfund á sviði svokall-
aðra gellubókmennta („Chick Lit“)
eins og þær hafa verið uppnefndar
fyrir þær sakir að fjalla um rómantík
og reynsluheim nútímakonunnar. Í
ákveðnum tegundum af bókum, kvik-
myndum og sjónvarpsþáttum er
þessi reynsluheimur nokkuð kunn-
uglega skilgreindur, hann sam-
anstendur af einhleypum og sjálf-
stæðum stórborgarkonum, sem eru
veikar fyrir dýrum skóm og deila tím-
anum milli þess að fara á stefnumót á
flottum veitingastöðum og að borða
rjómaís beint upp úr dollunni yfir
sjónvarpinu þegar þær eru á bömm-
er. Þetta eru örlögin sem bíða þeirra
allt þar til draumaprinsinn loksins
lætur sjá sig.
Í hennar sporum fer hættulega ná-
lægt klisjunni en það sem gefur henni
gildi umfram það er að hún er byggð
á sæmilega vönduðum skáldskap,
sem teflir m.a. fram áhugaverðu
systrasambandi. Þetta eru þær
Maggie (Cameron Diaz) og Rose
(Toni Collette) sem lifað hafa við
skrautlegt ástar-haturssamband frá
barnæsku. Maggie hefur ekki fundið
sig í lífinu og notar útlitið til þess að
sækja sér þá viðurkenningu sem
hana skortir. Rose er hins vegar
vinnuþjarkur, enda starfandi lög-
fræðingur hjá virtu fyrirtæki, en á
sér ekkert einkalíf og borðar ís beint
upp úr dollunni á kvöldin. Eftir að
þeim systrum lendir illilega saman
komast þær báðar upp úr hjólför-
unum sem þær voru fastar í, og viti
menn, draumaprinsar og draugar
fortíðarinnar taka að streyma að.
Kvikmyndaaðlögunin á skáldsögu
Weiner sveiflast milli þess að ná flugi
í umfjöllun um alvörufólk með alvöru
tilfinningar og klisjukenndum þráð-
um úr rómanísku gamanmyndinni
þar sem leyst er fullsnyrtilega úr rót-
grónum samskiptavandamálum og
sálarkrísum fyrir sögulok. Það sem
gerir áhorfið hins vegar ánægjulegra
en ella er stórfínn leikur þeirra Toni
Collette, Cameron Diaz og Shirley
McLaine sem kemur óvænt inn í sög-
una í síðari hlutanum.
Þótt myndin sé fyrst og fremst
sniðin að markhópi kvenna er þess
gætt að láta karlmanninum sem
slæðst hefur með í för ekki leiðast,
enda striplast Cameron Diaz ýmist í
sundfötum, nærfötum eða ballkjólum
út í gegnum myndina. Það má hins
vegar ekki á milli sjá hvor leikkonan
gæðir persónu sína meiri sjarma, Di-
az nær t.d. að feta hárfínt jafnvægi
milli frekju og viðkvæmni og Collette
lætur sömuleiðis skína í sjálfsnið-
urbrjótandi hliðar persónu sinnar á
áhrifamikinn hátt. Í hennar sporum
leynir víða á sér og er rómantísk
gamanmynd í vandaðri kantinum.
Heiða Jóhannsdóttir
Drauma-
prinsar og
fortíðar-
draugar
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
FARÐU TIL HELVÍTIS!
Sýnd kl. 5.30 B.i. 16 ára
"FLOTTASTA HROLLVEKJA ÁRSINS"
KÓNGURINN OG FÍFLIÐ / X-FM
EMPIRE MAGAZINE. UK
Sýnd kl. 10.20 B.i. 16 áraSýnd kl. 5.30 og 8 B.i. 12 ára
hörku spennumynd frá
leikstjóra 2 fast 2 furious
og boyz´n the hood
Þeir voru leiddir í gildru...
nú þarf einhver að gjalda!
Sýnd kl. 5.30 og 10.20 B.i. 16 ára
MBL
TOPP5.IS
Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára
Kóngurinn og Fíflið, XFM
VJV Topp5.is
MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30 og 8
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sími 551 9000
Miðasala opnar kl. 17.00
Þetta var hið
fullkomna frí
þangað til
þau fundu
fjársjóðinn!
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
400 KR Í BÍÓ*
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAÐ SEM
KOM FYRIR
EMILY ROSE
ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ
SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Separate Lies • Sýnd kl. 6 Enskt tal / ísl. texti
The Aristocrats • Sýnd kl. 6 Enskt tal
Adams Æble • Sýnd kl. 8 Danskt tal
Lie With Me • Sýnd kl. 8 Enskt tal / ísl. texti
My Summer of • Love Sýnd kl 10 Enskt tal
Kung Fu Hustle • Sýnd kl 10 Enskur texti
Forsýnd kl. 10 B.i. 16 ára
miðasala opnar klukkan 5.30 tryggðu þér miða í tíma
553 2075Bara lúxus ☎
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 55
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Póstsendum
Helgartilboð!
Gallabuxur
háar í mittið
áður 5.990,
nú 3.990
Peysur 2 fyrir 1
30% afsláttur
af öðrum vörum
(nema síðkjólum)
LeikarinnGeorge Takei
sem er þekktastur
fyrir túlkun sína á
Mr. Sulu í Star Trek
sjónvarpsþáttunum,
lýsir því yfir í nýj-
asta tölublaði Fron-
tiers að hann sé kominn út úr skápn-
um. „Það er í sjálfu sér ekki eins og
ég hafi opnað einhverjar skápdyr og
gengið út, heldur er þetta líkara því
að ég sé að koma út úr mjög löngum
göngum.“ Takei sem er 68 ára gam-
all og lék í þremur Star Trek þátta-
röðum og sex kvikmyndum ræðir í
viðtalin u um æskuár sín í kyrrsetn-
ingabúðum japanskra Bandaríkja-
manna í seinni heimsstyrjöldinni,
erfiðleikana með að horfast í augu
við eigin kynhneigð og uppsetn-
inguna á leikriti Peters Shaffer,
Equus, sem sýnt verður í Los Angel-
es með Takei í hlutverki Dysart.
Fólk folk@mbl.is