Tíminn - 25.07.1970, Page 10
10
TIMINN
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1970
FULLT TUNGL
Sftir P G Wodehouse
48
að hann gerði neina vitleysu, bið
megið hafa mig f-rtr því að þetta
verður í síðasta sinn sem ég þið
paþba að gera mér greiða, enda
býst ég við að ef maður bæði
hann um að fara út að kaupa
epli, þá kæmi hann með fíl. —
Frú Hermione gaf frá sér hljóð
sem var eins og þegar feiti bull
sýður á pönnu, svo sagði hún:
— Þarna er Clarence lifandi
kominn. Mér hefur oft dottið í
hug, að það ætti að taka hann úr
umferð. — Galahad sagðist vera
systur sinni alveg sammála, og
Freddie konkaði kolli, sonarleg
virðing hafði hindrað Freddie í
að segja hið sama, en honum
hafði sannarlega dottið þetta í
hug, enda enginn efi á því að
stundum fannst manni að hið
rétta umhverfi jarisins væri
gúmmíklefi.
— Þetta eru svo mikil von-
brigði fyrir þig, elskan mín, —
sagði frú Hermione.
— Afleitt, sagði Gally.
— Ansas óheppni, Vee, sagði
Prudence.
— Ég samhryggist þér, ég get
ímyndað mér hvernig þér líður,
þú hlýtur að kveljast, sagði
Freddie.
Veronika var alltaf lengi að
skilia allt, hún var líka búin að
standa lengi þarna án þess að
skil.ia nokkuð, hún var alveg rugl-
uð, en þessi isamúðarbylgja sem
fór um st-QÍima varð til þess að
ýta undir hugsunarferil hennar.
Hún sagði:
— Meinarðu að ég megi ekki
eiga festina? — Freddie sagði að
það væri einmitt sannleikurinn í
hnotskurn.
— Má ég ekki vera með hana á
ballinu?
Nú létti frú Hermione, hún
eygði nú leið til að þessi ánægja j
yrði ekki aiveg tekin frá dóttur |
hennar, að vísu mundi hún ekki
fá að drekka þennan fagnaðarbik
ar í botn, en hún mundi þó geta
teigað einn eða tvo sopa.
— Auðvitað máttu það elskan
mín, sagði frúin.
— Stórfín hugmynd. Nú geta
allir aðilar verið ánægðir, haíðu
festina á ballið, og skilaðu henni
svo til Freddies, svo sendir hann
hana af stað, — samþykkti Gally.
— Þú verður alveg dásamleg
með hana Vee, auðvitað verð ég
ekki á ballinu til að dást að þér
með festina, því ég verð þá bú-
in að drekkja mér í tjörninni,
en ég veit að þú verður-yndisleg
með festina, sagði Prudenee.
Þó að Freddie væri óljúft að
beita skurðhnífnum aftur, þá varð
hann þó að gera það. Hann sagði.
með karlmannlegri meðaumkun,
sem fór honum vel:
— Ég er hræddur um að það
sé ekki hægt, mér þykir fyrir því
Vee mín, en þessi hugmynd er
líka úr sögunni. þessi skemmtun
sem þú ert að tala um verður
ekki fyrr en eftir hálfan mánuð,
og Agga vill fá festina strax, hún
hefur þegar sent fjögur símskeyti
út af festinni, og ég býst við að
fá það fimmta á morgun eða
hinn daginn. og ég get sagt þér
að ég býst við að það skeyti verði
vel kjarnyrt, mig skortir ímynd-
unarafl til að hugsa mér hvað
hún mundi segja ef hún þyrfti
að bíða í hálfan mánuð enn eftir
festinni.
Hinn æruverði Galahad gaf frá
sér fyrirlitningarhljóð, þar sem
hann var piparsveinn, var honum
fyrirmunað að skilja þessa lág-
kúrulegu smámunasemi frænda
síns, enda er vanalega óbrúanlegt
djúp í milli skoðana kvænts
manns og ókvænts.
— Ertu hræddur við konuna
þína? Ertu maður eða mús, hún
étur þig varla, — sagði Gally.
— Það mundi hún áreiðan-
lega reyna, sagði Freddie, — þú
gleymir því að Aega er dóttir
amerísks milljónamærings, og ef
þú hefðir nokkurn tíma hitt am-
erískan milijónamæring. . .
— O, ég hef kynnzt heilli tylft,
sagði Gally.
— Þá ættir þú að vita að þeir
ala dætur sínar þannig upp. að
þær vænj.a vissrar undirgefni af
karlkyninu. Agga var ekki nema
sex ára, þegar hún taldi orð sín
lög, og það er skoðun sem hún
hefur enn, enda hefur það alltaf
legið í loftinu, að maðurinn sem
húr. giftist, hoppaði í gegnum
gjarðir. Ég gerði allt sem hún
vildi, þetta er nokkurs konar fyr-
irfram ákveðið drengskaparbragð,
sem ekki stoðar að bregðast, að
vísu eru fáar ef bara nokkrar
indælli stúlkur til á jörðinni en
Agga, en ef þú spyrðir hvort hún
væri svolítið ráðrík á stundum, þá
mur.di ég svara hreinskilnings-
iega. að þú hefðir einmitt hringt
bjöllunni og unnið vindilinn og
hnetuna. Ég elska Öggu meira en
mannleg orð fá lýst, en ef þú
settir mér tvo úrslitakosti. hvort
ég vildi heldur hundsa hennar
minnstu óskir, eða ganga að götu-
lögregluþjóni og gefa honum ut-
anundir, þá mundi ég hiklaust
velja lögregluþjóninn, og það
þýðir ekkert að kalla mig auman
þræl, bætti Freddie við og sneri
sér að Gally, sem einmitt hafði
kallað frænda sinn — auman
þræl, — svona er ástandið og mér
fellur það vel, enda vissi ég vel
hvað ég var að fara útí, þegar
lögmaðurinn var að splæsa okkur
saman.
Þegar Freddie var búinn að
halda þessa tölu, þögðu allir um
hrið, svo sagði Vee:
— Þú gætir sagt Öggu að þú
hefðir lánað mér festina.
— Auðvitað gæti ég gert það,
og nnindi gera ef mig langaði til
að undirstöður vítis nötruðu og
eitthvað í líki við jarðskjálftana
í San Francisco brytist út. Ykk-
ur virðist öilum hafa sézt yfir
annað þýðingarmikið atriði, sem
ég get vel bent ykkur á, þó við-
kvæmt sé. þar sem hér er engin
viðstaddur nema ættingjar, ein-
hver fjárans asni hefur sagt Öggu
að við Vee höfum verið trúfofuð,
og síðan hefur hún tortryggt Vee
og allar hennar gerðir, sagði
Freddie.
— Hlæilegt, það var eins og
hver annar barnaskapur, sagði frú
Hermione.
— Og allt búið fyrir löngu,
sagði Gally.
—• Já, ég býst við því, en ef
j þetta mál kemur á dagskrá hjá
okkur Öggu, þá er á henni að
neyra, að trúlofun okkar Vee ha-fi
verið slitið daginn áður, svo það
er áreiðanlegt að ég lána þér
ekki festina, Vee, og bið þig um
að afhenda mér hana samstu-nd-
is, auðvitað finnst mér þetta leitt
og skil vel vonbrigði þín og allt
svoleiðis, sagði Freddie.
— Ó, Freddie, sagði Veronika.
— Já, mér finnst þetta leiðin-
; legt, en svona er lífið, sagði
Freddie.
Veronika rétti hægt út hendina,
varir hennar titruðu og fallegu
augun hennar voru rök, en hún
sem sagt rétti fram hendina. sem
i hélt á festinni, enda ekki furða.
því Freddie var orðinn fljúgandi
mælskur og talaði af miklum
krafti, það hafði hann lært í hin-
um erfiða skóla hjá Donaldson.
— Þakka þér fyrir, sagði
Freddie, en hann hafði verið of
fljótur á sér, því það var eins
og Veronika hefði séð sjálfa sig
á dansleik, og henni fannst hún
standa þar nakin eða svo til, ef
hún hefði ekki þessa skínandi
gimsteinafesti um hálsinn. Varir
hennar hættu að titra og úrðu
allt í einu eins og beint strik,
rakinn hvarf úr augum hennar, í
staðinn kom i þau trylltur sjálfs-
varnar giampi og hún dró að sér
hendina og sagði:
— Nei.
— E., sagði Freddie aumingja-
lega. Hann varð undarlega mátt-
farinn, þessu hafði hann ekki átt
von á, og hann velti fyrir sér
hvernig hann ætti að ráða fram
úr þessu. Tilfinninganæmur mað-
ur getur ekki ráðizt á stúlku og
tekið hálsfesti af henni með valdi.
— Nei. þú gafst mér festina í
afmælisgjöf og ég ætla mér að
helda henni, sagði Veronika.
— Halda henni? Þú meinar þó
ekki að þú ætlir aldrei að láta
mig fá hana?
— Jú einmitt.
— En Agga á hana.
— Hún getur keypt áðra. Þessi
snjalla lausn varð til þess að frú
Hermione jafnaði sig alveg og
sagði:
— Auðvitað, elskan mín, þetta
er snjallt hjá þér, ég er bara
alveg hissa að þér skyldi ekki
detta þetta í hug Freddie.
— Mér lízt ágætlega á þessa
lausn, maður getur alltaf ráðið
fram úr örðugleikum ef maður
leggur heilann í bleyti, sagði
Gally.
1 Fredde var nú farinn að slaga,
en það hafði hann ekki gert síð-
an hann var með Tipton Plimsoll,
áðúr én hann fór til Jimpson
Murgatroyd laiknis, en samt
reyndi Freddie að láta þetta fólk
skilja kringumstæðurnar, en það
furðaði hann mest að enginn virt-
er laugardagur 25. júlí
— Jakobsmessa
Tungl í hásuðri kl. 7.02.
Árdegisháflæði í Rvík kl. 12.28.
HEILSUGÆZLÁ
Slökkviliði. i”krah!t>í-tðlr.
Sjúkrabifreið i Hafnarfirði
stina 51336
fVT. vkja-ík ig ROpavog
simt 11106
Slvsavarðstofan i Horgarspttalannin
ei opln alian sftlarhrlnElnn 5ð
elns móttaka slasaðra Stmt
8121Í.
Köpavogs-Apötek og Keflavikui
Apötek ert optn vlrka daga kl
9—19 laugardaga ki. n—M hele*
daga kl. 13—15
Almennar uppiýsinga: um ækni
0-jónusi.u 1 oorginn: eru aetnai
sunsvara t æknafé)ag‘ Rerkiavtfc
ur, sim) 18888
Fi garhr * i KOpavogl
Hlíðarveg) t-0 simi *2p4s
Fópavogs-apótefc og ÁeflavUiur
apótek eru opir virka dag* icl
—19 taugardaga fcl 9—1A nelgi
daga kL 13--lft.
Apótek Hafnarfjarðai opið ailii
virka daga frá kl 9—7 é Laugai
döguro kl 9—2 og í sunnudögum
og ððrum helgidögum er opið i.á
kl 2—4
Tannlæknavaki er ' Heósuvemd
arstöðinnl (þar *em alysavarð
stofan var) og er opin laugardag'
og sunnudaga kl 5—6 e h Siml
22411
Kvöld- og helgarvörziu Apóteka
í Reykjavík vikuna 25. — 21. júlí
annast Ingólfs Apótek og Laugar
nes Apótek.
Næturvörzlu í Keflavík 25. og
26. 7. annast Arnbjörn Ólafsson.
Næturvörzlu í Keflavík 27. og
28. 7. annast Guðjón Klemenzson.
KIRKJAN
Kópavogskirkja:
Guðsþjónusta kl. 10,30. Guðný
Guðmundsdóttir leikur einleik á
fiðlu. Séra Gunnar Árnason.
Hallgrímskirkja:
Messa kl. 11. Ræðuefni. Viðureign
in við samtíðina" Dr. Jakob Jóns-
son.
Neskirkja:
Messa fcl. 11. Séra Frank M. I-Iall
dórsson.
LanghoUsprcstakall:
Guðsþjónusta kl. 10.30. Séra Sig.
Haukur Guðjónsson.
Hallgrímskirkja í Saurbæ.
Guðsþjónusta kl. 2. Séra Bragi
Benediktsson fríkirkjuprestur í
Hafrarfirði predikar. Séra Jpn
Einarsson.
Dómkirkjan:
Messa kl. 11 Séra Óskar J. Þor
láksson.
Mosfellskirkja:
Barnamessa kl. 11 Séra Bjarni
Sigurðsson.
Hafnarfjarðarkirkja:
Mesaa kl 10,30. Garðar Þorsteins-
son.
FLUGÁÆTLANIR
Loífleiðir:
Eiríkur rauði er væntanlegur frá
NY k). 04.30. Fer til Luxemborg
ar kl. 05.15. Er væntanlegur til
baka frá Luxemborg kl 14,30. Fer
til NY ki. 15.15.
Þorfinnur karlsefni er væntanleg
ur frá NY kl. 07 30. Fer til Lux-
emborgar kl. 08,15. Er væntanleg
ur til baka frá Luxemborg kl.
16.30 Fer ti! NY kl. 17,15.
Snorri Þorfinnsson er væntanleg
ur frá NY kl. 09.00 Fer til Lux-
emborgar kl. 09.45. Er væntanleg
ur til baka frá Luxemborg kl.
18.00. Fer til NY kl. 19.00.
Leifur Eii’íksson er væntanlegur
frá NY kl. 08,30. Fer til Oslóborg
ar Gautaborgar og Kaupm.hafn-
ar kl. 09,30. Er væntanlegur ti!
baka kl. 00.30. Fer til NY kl.
01,30
FLUGFÉLAG ÍSLANDS hf.
Gullfaxi fór til Lundúna kl. 08,
00 í morgun og er væntanlegur til
Keflavíkur kl. 14,15 í dag. Vélin
fer til Kaupmannahafnar kl. 15.15
í da.e og er væntanleg þaðan aft
ur tii Keflavikur kl. 23.05 í kvöld.
Gullfaxi fer til Lundúna ki 08.00
í fyrramálið og til Osló og Kaup
mannahafnar kl. 15.15 á morg
un.
Innanlándsflug.
I dag er áætlað að fljúga til Akur
eyrar (3 ferðir) til Vestmanna
eyja (2 ferðir) ti! Egilsstaða (2
ferðir) til Hornafjarðar. ísafjarð
ar og Sauðárkróks.
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar 3 ferðir) til Vestmanna
ey.ia (2 ferðir) tii ísaf.iarðar.
Egilsstaða. Fagurhólsmyrar og
Hornafjarðar.
SIGLÍNGAR
Ríkisskip:
Hekla er á Akureyri og fer það
an kl. 12.00 á hádegi á morgun
(sunnudag) til Siglufjarðar, Vest
fjarða og Reykjavikur.
Herjólfur fór frá Hornafirði kl.
17.00 í gær til Þorláksbafnar, það
an kl. 10,00 fyrir hádegi i dag til
Vestmannaeyja. Síðan fer skipið
frá Vestm. kl. 14,30 í dag til Þor
lákshafnar, þaðan aftur kl. 19,
30 til Vestmannaeyja Á sunnu
dag fer skipið frá Vestm. kl. 12,
00 á hádegi til Þorlákshafnar,
paðan aftur kl. 17,00 til Vest-
mannaeyja. Frá Vestm. kl. 21,00
um kvöldið til Reykjavíkur.
Kerðubreið fer frá Reykjavík
þriðjudaginn 28. þ. m. austur um
iand í hringferð.
Skipadeildin:
Arnarfell er væntanlegt til Rvík
ur í kvöld. Jökulfell fór 20. þm. frá
Rvík til New Bedford. Dísarfell
fór frá Antwerpen í gær til Brem
en, Liibeck og Svendborgar. Litla
fell er í Reykjavík. Helgafell fer
frá Ventspils í dag til Svendborgar
Stapafell fór frá Hafnarfirði í gær
til Akureyrar. Mælifell er væntan
•egt til La Spezia 30. þjn.
Bestik er í Reykjaví’k.
fSlagsOf
Félagsstarf eldri borgara.
Sunnudaginn 26. júlí verður far-
ið í Arbæjarsafn.
Dagskrá: Safnið skoðað, Færeysk-
ir þjóðeansar, leikþáttur, -glímu-
sýning, dans á palli. Lagt verður
af stað frá Austurvelli kl. 1.30 e.h.
Þáttökugjald kr. 50. Uppí. í sírna
18800 kl 1 — 4 föstudag.
Ásgrímssafn, Bergstaðastrætj 74
er opið alla daga nema laugard.
frá kl. 1.30—4.
Lárétt:
1 Vaxtasvindlari. 5 Fljóta- 7 Hrein.
9 Söngfólk. 11 Hreyfing. 12 Jarm.
13 Óþrif. 15 Svefnrof- 16 Dýr. 18
Eldstæði.
Krossgáta
Nr. 588
Lóðrétt: 1 Mjólkurmatinn. 2
Pípur. 3 Korn. 4 Dreif. 6
Agengar. 8 Kast. 10 Þvotta-
efni. 14 Má’. 15 Vei'ðistaður.
17 Fljót.
Ráðning á gátu nr. 587:
Lárétt: 1 Fýldur. 5 Áls. 7
Ofn. 9 Sel. 11 Ká. 12 TU. 13
Kró. 15 Man. 16 Snú. 18
Skorpa.
Lóðrétt: 1 Flokks. 2 Lán. 3
DL. 4 Uss. 6 Blunda. 8 Fár.
10 Eta- 14 Osk. 15 Múr. 17
Nn.