Tíminn - 25.07.1970, Page 16
Laugardagur 25. hilí 1970
íslandsblað
í Danmörku
FB Reykjavík, föstudag.
Eins og kunnugt er fara forseti
íslands og frú hans, í opinbera
hsimsókn til Danmerkur 3- tiJ 7.
sentember næstkomandi. Verða
Hu þar gestir dönsku konungs-
hmnanna og dönsku ríkisstjórn-
arinnar. í þvi tilefni hefur Kriste
legt Dagblad ákveðið að tileinka
íslandi nokkrar síður í blaði sinu.
Er ætlunin, að segja þar frá ís-
landi og vekja áhuga lesendanna
á ísi'enzkri framleiðslu og íslandi
sem ferðamannalandi.
SKIPBROTSMENN
Myndin var tekin í Santa Cruz
De Tenerife á Kanaríeyjum er far
þegar á norska skemmtiferðaskip-
inu Fulvia gengu frá borði á
franska skemmtiferðaskipinu Ang
erville, en farþegum Fulviu var
bjargað um borð í franska skipið
eftir að cldur kom upp í Fulviu.
Farþegar og áhöfn, alls 719
manns, (eða álíka margir og allir
íbúar á Fáskrúðsfirði), björguðust
allir ómeiddir, en skipið sökk
rúmum sólarhring eftir að eldur-
inn kom upp í vélarrúmi skips-
ins. (UPI-mynd).
Útlit fyrir metár í laxveiðinni í sumar
Aukið laxeldi og góð skil-
yrði í s jó valda þar mestu
EB—Reykjavík, föstudag.
• Allt útlit er nú fyrir að
metár verði í laxveiðinni þetta
ár, ef sama góða veiðin og ver
ið hefur undaitfarið, heldur
áfram út veiðitímabilið. Ljóst
er, að aukið fiskeldi er orsök
þessarar góðu veiði, en nú eru
rúmlega 10 aðilar í landinu sem
halda starfandi klakstöðum.
Einnig eru það hin góðu skilyrði
sem haldizt hafa í sjónum, talin
orsök hinnar góðu laxveiði.
• Sem við mátti búast eru
það Norðurá og Þverá í Borgar
firði, Laxá í Kjós og Laxá j
Suður-Þingeyjarsýslu þær ár,
þar sem flestir laxar hafa veiðzt
á stöng, það sem af er veiðitím
anunt. Einnig hefur stangaveið
in gengið vel í ám eins og t.d.
Laxá í Dölunt, Víðidalsá, Ölfus
á, Laxá í Leirársveit og Stóru-
Laxá í Hreppum.
• Þá hefur ntikil laxagenffd
upp í klakstöðina í Kollafirðj
vakið athygli, en j dag
var búið að taka alls 1553 laxa
úr kistunni þar, en sem kunn-
ugt er gengu aðeins 263 laxar
upp í stöðina í fyrra.
Það er í nær öllum laxveiði
ám landsins sem veiðin hefur
gengið betur, en á sama tíma
í fyrra, hvort sem það er á
stöng eða í net, og því útlit
fyrir að meira veiðist úr mörg
um ám en nokkru sinni fyrr.
Norðurá með 1120 laxa,
Þverá 1045.
Það eru árnar tvær í Borgar
firði, Norðurá og Þverá þar
sem mest hefur veiðzt á stöng
það sem af er. Á hádegi í dag
höfðu veiðzt 1120 laxar úr
Norðurá í Borgarfirði, en _á
sama tíma í fyrra um 700. Úr
Þverá var búið að veiða 1045
laxa á hádegi í dag, en þar hef
ur veiðin verið jöfn síðan áin
var opnuð, en þó mun heldur
hafa dregið úr veiðinni þar nú
síðustu daga, að sögn Péturs
Kjartanssonar starfsmans við
veiðihúsið við Þverá. Telur
Pétur orsök þess vera hitann
og þá miklu birtu, sem verið
hefur undanfama daga. Munu
laxarnir sem veiðast úr Þverá,
vera yfinleitt nokkru vænni en
þeir er veiðast úr Norðurá.
Þá voru í fyrrakvöld komhir
707 laxar úr Laxá í Kjós, en
það mun vera álíka veiði og
á sama tíma og í fyrra, enda
veiddist mjög vel úr ánni það
veiðitímabil.
Laxá í S-Þing. með
þyngstu laxana.
Búið er að veiða um
700
laxa úr Laxá í Suður-Þingeyj
arsýslu, en eins og vanalegt
er, veiðast oft mjög stórir lax
ar úr ánni. Munu ma-rgir laxar
yfir 20 pund hafa veiðzt úr
henni á sumrinu, en sá þyngsti
26 punda.
Þá hefur veiðin gengið vel
það sem af er í Ölfusánni, og
hefur veiðzt mikið af stórum
löxum úr henni.
Eins og kunnugt er, er
mikið vteitt í net í Ólfusá, mun
um 90 prósent af aillri veiðinni
úr henni vera veitt í net. Hins
vegar er mjög erfitt að fá tæm
andi upplýsingar um, hvað mik
ið veiðist úr ánni þar eð svo
margir einstablingar veiða þar.
Álíka veiði úr Elliðaánum
og á sama tima í fyrra
S.l. þriðjudag var búið að
Framhald á bls. 14.
Fyrsta læknamiðstöðin
mun rísa á Egi/sstöðum
JK—Egilsstöðum, föstudag.
í dag hófust framkvæmdir við
byggingu læknamiðstöðvar á Egils
stöðum, með því að Helgi Gísla-
son á Helgafelli, formaður sjúkra
húsnefndar, tók fyrstu skóflustung
una. Að þvj loknu hófst jarðýtu-
vinna. í fyrsta áfanga verður
byggingin gerð fokheld. Þetta er
fyrsta læknamiðstöðin á íslandi,
sem byggð er samkvæmt breytingu
þeirri á læknaskipunarlögum, sem
samþykkt voru á Alþingi 22. apríl
1969. Að minnsta kosti þrjú lækn
ishéruð munu standa að læknamið-
stöðinni. Það er Austur-Egilsstaða-
læknishérað, N orður-Egilsstaða-
hérað og væntanlega Bakkagerðis
hérað, Borgarfjörður eystri.
í lögunum segir, að þegar liðin
séu fimm ár frá því að læbnamið-
stöð tók ti? starfa, verði svæði
það, sem stöðin þjónar, eitt lækn
ishérað, og ákveði ráðherra nafn
hins nýja héraðs. Á fjárlögum
Framh á ols. 2
Sparisjóður Sauðárkróks gaf
225 þús. til menningarmála
GO—Sau ðárkr óki.
Föstudaginn 10. júlí var haldinn
| aðalfundur Sparisjóðs Sauðár-
króks í Félagsheimilinu Bifröst á
Sauðárkróki.
Á fundinum var ákveðin úthlut
un úr Menningarsjóði Sparisjóðs
ins af rekstrarafgangi s. 1. árs,
að upphæð kr. 225,000,00. sem
skiptist þannig:
150,000,00 til Sauðárkrókskaup-
staðar til að koma upp útilistaverki
í tilefni af 10 ára afmæli staðar
ins 1971._______________
HÉRAÐSMÓT
í SKAGAFERÐ!
Héraðsmót Framsóknarmanna í
Skagafirði verður haldið í félags-
heimilinu Miðgarði laugardasinn
22. ágúst Karlakórinn Vísir á
Sigðlufirði s.vngur Onnur skemmti
atriði verða tilkynnt síðav
40.000,00 til Byggðasafnsins í
Glaumbæ til vaxtar og viðgangs
safnsins eftir nánari ákvörðun
safnstjórnar.
35.000,00 til Lúðrasveitar Sauð
árkróks til hlióðfærakaupa. En
þetta er í þriðja sinn, sem veitt er
úr sjóðnum til ýmissar menningar
starfsemi i héraðinu.
Á fundinum var einnig veitt fé
úr Menntasjóði Sparisjóðsins til
könnunar og friðunar á þingstað
Skagfirðinga að Litla-Garði )
Hegranesi.
Stefán Ólafur Stefánsson póst
meistari. sem verið hefur for
tnaður sparisjóðsstjórnar undan-
farin ár baðst undan endurskosn
ingu. í stjórn voru kosnir Björn
Daníelsson skólastjóri os Kári
■lónsson. póstmaður. Þriðji mað
urinn í stjórn er kosinn af sýslu
riefnd ^kagafiarðarsýslu. og er
bað Sæmundur Hermannsson.
siúkrahússrúðsmaður.
Með áburð
og fræ á
Auðkúluheiði
KK—Blönduósi, föstudag.
í gær, fimmtudag, fóru félag
ar úr þrem ungmeanafélögum
í Austur-Húnavatnssýshi, inn
á Auiðkúluheiði undir stjórn
Árna Vigfússonar, formanns
ungmennafélagsins Húna í
Torfulækjarhreppi, til að ann
ast dreifingar á grasfræi og
áburði, en Landgræðsla rikis
ins, útvegaði ungmennasam-
bandinu fræ og áburð til dreif
ingar í ár.
Þetta er þriðja sumarið í
röð er félagar úr uagmenna-
félögunum dreifa fræi og
áburði á Auðkúluheiði og er
árangur þessa starfs mjög góð-
ur. Allt er nú grænt yfir að
líta þar sem sáð var síðustu
tvö ár og fjö.'gar búpeningi á
þessu svæði. er áður voru
sandar og auðn. Sýnir þetta
ljóslega gildi þessa starfs og
eiga ungmennafélögin vissu-
lega skilið hrós fyrir sitt braut )
ryðjendastarf í uppgræðslu J
landsins, sem þau hafa innt svn '
myndarlega af hendi. með J
góðri aðstoð Landeræðslunnar \
I þessari ferð á Auðkú.'u J
heiði var dreift fjórum tonn- J
um og fimm hundruð kiíóum 1
af grasfræi. |
i