Tíminn - 25.07.1970, Síða 16

Tíminn - 25.07.1970, Síða 16
Laugardagur 25. hilí 1970 íslandsblað í Danmörku FB Reykjavík, föstudag. Eins og kunnugt er fara forseti íslands og frú hans, í opinbera hsimsókn til Danmerkur 3- tiJ 7. sentember næstkomandi. Verða Hu þar gestir dönsku konungs- hmnanna og dönsku ríkisstjórn- arinnar. í þvi tilefni hefur Kriste legt Dagblad ákveðið að tileinka íslandi nokkrar síður í blaði sinu. Er ætlunin, að segja þar frá ís- landi og vekja áhuga lesendanna á ísi'enzkri framleiðslu og íslandi sem ferðamannalandi. SKIPBROTSMENN Myndin var tekin í Santa Cruz De Tenerife á Kanaríeyjum er far þegar á norska skemmtiferðaskip- inu Fulvia gengu frá borði á franska skemmtiferðaskipinu Ang erville, en farþegum Fulviu var bjargað um borð í franska skipið eftir að cldur kom upp í Fulviu. Farþegar og áhöfn, alls 719 manns, (eða álíka margir og allir íbúar á Fáskrúðsfirði), björguðust allir ómeiddir, en skipið sökk rúmum sólarhring eftir að eldur- inn kom upp í vélarrúmi skips- ins. (UPI-mynd). Útlit fyrir metár í laxveiðinni í sumar Aukið laxeldi og góð skil- yrði í s jó valda þar mestu EB—Reykjavík, föstudag. • Allt útlit er nú fyrir að metár verði í laxveiðinni þetta ár, ef sama góða veiðin og ver ið hefur undaitfarið, heldur áfram út veiðitímabilið. Ljóst er, að aukið fiskeldi er orsök þessarar góðu veiði, en nú eru rúmlega 10 aðilar í landinu sem halda starfandi klakstöðum. Einnig eru það hin góðu skilyrði sem haldizt hafa í sjónum, talin orsök hinnar góðu laxveiði. • Sem við mátti búast eru það Norðurá og Þverá í Borgar firði, Laxá í Kjós og Laxá j Suður-Þingeyjarsýslu þær ár, þar sem flestir laxar hafa veiðzt á stöng, það sem af er veiðitím anunt. Einnig hefur stangaveið in gengið vel í ám eins og t.d. Laxá í Dölunt, Víðidalsá, Ölfus á, Laxá í Leirársveit og Stóru- Laxá í Hreppum. • Þá hefur ntikil laxagenffd upp í klakstöðina í Kollafirðj vakið athygli, en j dag var búið að taka alls 1553 laxa úr kistunni þar, en sem kunn- ugt er gengu aðeins 263 laxar upp í stöðina í fyrra. Það er í nær öllum laxveiði ám landsins sem veiðin hefur gengið betur, en á sama tíma í fyrra, hvort sem það er á stöng eða í net, og því útlit fyrir að meira veiðist úr mörg um ám en nokkru sinni fyrr. Norðurá með 1120 laxa, Þverá 1045. Það eru árnar tvær í Borgar firði, Norðurá og Þverá þar sem mest hefur veiðzt á stöng það sem af er. Á hádegi í dag höfðu veiðzt 1120 laxar úr Norðurá í Borgarfirði, en _á sama tíma í fyrra um 700. Úr Þverá var búið að veiða 1045 laxa á hádegi í dag, en þar hef ur veiðin verið jöfn síðan áin var opnuð, en þó mun heldur hafa dregið úr veiðinni þar nú síðustu daga, að sögn Péturs Kjartanssonar starfsmans við veiðihúsið við Þverá. Telur Pétur orsök þess vera hitann og þá miklu birtu, sem verið hefur undanfama daga. Munu laxarnir sem veiðast úr Þverá, vera yfinleitt nokkru vænni en þeir er veiðast úr Norðurá. Þá voru í fyrrakvöld komhir 707 laxar úr Laxá í Kjós, en það mun vera álíka veiði og á sama tíma og í fyrra, enda veiddist mjög vel úr ánni það veiðitímabil. Laxá í S-Þing. með þyngstu laxana. Búið er að veiða um 700 laxa úr Laxá í Suður-Þingeyj arsýslu, en eins og vanalegt er, veiðast oft mjög stórir lax ar úr ánni. Munu ma-rgir laxar yfir 20 pund hafa veiðzt úr henni á sumrinu, en sá þyngsti 26 punda. Þá hefur veiðin gengið vel það sem af er í Ölfusánni, og hefur veiðzt mikið af stórum löxum úr henni. Eins og kunnugt er, er mikið vteitt í net í Ólfusá, mun um 90 prósent af aillri veiðinni úr henni vera veitt í net. Hins vegar er mjög erfitt að fá tæm andi upplýsingar um, hvað mik ið veiðist úr ánni þar eð svo margir einstablingar veiða þar. Álíka veiði úr Elliðaánum og á sama tima í fyrra S.l. þriðjudag var búið að Framhald á bls. 14. Fyrsta læknamiðstöðin mun rísa á Egi/sstöðum JK—Egilsstöðum, föstudag. í dag hófust framkvæmdir við byggingu læknamiðstöðvar á Egils stöðum, með því að Helgi Gísla- son á Helgafelli, formaður sjúkra húsnefndar, tók fyrstu skóflustung una. Að þvj loknu hófst jarðýtu- vinna. í fyrsta áfanga verður byggingin gerð fokheld. Þetta er fyrsta læknamiðstöðin á íslandi, sem byggð er samkvæmt breytingu þeirri á læknaskipunarlögum, sem samþykkt voru á Alþingi 22. apríl 1969. Að minnsta kosti þrjú lækn ishéruð munu standa að læknamið- stöðinni. Það er Austur-Egilsstaða- læknishérað, N orður-Egilsstaða- hérað og væntanlega Bakkagerðis hérað, Borgarfjörður eystri. í lögunum segir, að þegar liðin séu fimm ár frá því að læbnamið- stöð tók ti? starfa, verði svæði það, sem stöðin þjónar, eitt lækn ishérað, og ákveði ráðherra nafn hins nýja héraðs. Á fjárlögum Framh á ols. 2 Sparisjóður Sauðárkróks gaf 225 þús. til menningarmála GO—Sau ðárkr óki. Föstudaginn 10. júlí var haldinn | aðalfundur Sparisjóðs Sauðár- króks í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Á fundinum var ákveðin úthlut un úr Menningarsjóði Sparisjóðs ins af rekstrarafgangi s. 1. árs, að upphæð kr. 225,000,00. sem skiptist þannig: 150,000,00 til Sauðárkrókskaup- staðar til að koma upp útilistaverki í tilefni af 10 ára afmæli staðar ins 1971._______________ HÉRAÐSMÓT í SKAGAFERÐ! Héraðsmót Framsóknarmanna í Skagafirði verður haldið í félags- heimilinu Miðgarði laugardasinn 22. ágúst Karlakórinn Vísir á Sigðlufirði s.vngur Onnur skemmti atriði verða tilkynnt síðav 40.000,00 til Byggðasafnsins í Glaumbæ til vaxtar og viðgangs safnsins eftir nánari ákvörðun safnstjórnar. 35.000,00 til Lúðrasveitar Sauð árkróks til hlióðfærakaupa. En þetta er í þriðja sinn, sem veitt er úr sjóðnum til ýmissar menningar starfsemi i héraðinu. Á fundinum var einnig veitt fé úr Menntasjóði Sparisjóðsins til könnunar og friðunar á þingstað Skagfirðinga að Litla-Garði ) Hegranesi. Stefán Ólafur Stefánsson póst meistari. sem verið hefur for tnaður sparisjóðsstjórnar undan- farin ár baðst undan endurskosn ingu. í stjórn voru kosnir Björn Daníelsson skólastjóri os Kári ■lónsson. póstmaður. Þriðji mað urinn í stjórn er kosinn af sýslu riefnd ^kagafiarðarsýslu. og er bað Sæmundur Hermannsson. siúkrahússrúðsmaður. Með áburð og fræ á Auðkúluheiði KK—Blönduósi, föstudag. í gær, fimmtudag, fóru félag ar úr þrem ungmeanafélögum í Austur-Húnavatnssýshi, inn á Auiðkúluheiði undir stjórn Árna Vigfússonar, formanns ungmennafélagsins Húna í Torfulækjarhreppi, til að ann ast dreifingar á grasfræi og áburði, en Landgræðsla rikis ins, útvegaði ungmennasam- bandinu fræ og áburð til dreif ingar í ár. Þetta er þriðja sumarið í röð er félagar úr uagmenna- félögunum dreifa fræi og áburði á Auðkúluheiði og er árangur þessa starfs mjög góð- ur. Allt er nú grænt yfir að líta þar sem sáð var síðustu tvö ár og fjö.'gar búpeningi á þessu svæði. er áður voru sandar og auðn. Sýnir þetta ljóslega gildi þessa starfs og eiga ungmennafélögin vissu- lega skilið hrós fyrir sitt braut ) ryðjendastarf í uppgræðslu J landsins, sem þau hafa innt svn ' myndarlega af hendi. með J góðri aðstoð Landeræðslunnar \ I þessari ferð á Auðkú.'u J heiði var dreift fjórum tonn- J um og fimm hundruð kiíóum 1 af grasfræi. | i

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.