Tíminn - 06.08.1970, Blaðsíða 1
I
I
I
¥72. fbl. — Fimmtudagur 6. ágúst 1970. — 54. árg.
Birgðageymslan í nýju bækistöSvum ÁTVR. Jón Kjartansson forstjóri, sýnir fréttamönnum dýrðina, en
þarna mun vera verðmætasti vörulager á landinu. Áfengiskössum er staflað allt upp undir loft og hefur
hver tegund sinn ákveðna stað í geymslunni. (Tímamynd GE)
941 þús. lítrar aí sterkum
vínum drukknir hér í fyrra
ÁTVR skilaði 917 milliónum í ríkiskassann á s.l. ári
0Ó—Reykjavík, miðvikudag.
Nettóliagnaður Áfengis og
tóbaksverzlunar rikisins nam á
síðasta ári kr. 729,652 þúsund
kr. Tollagreiðslur til ríkissjóðs
voru kr. 93.10 þús. Söluskattur
nam kr. 89.357 þús. Urðu beinar
greiðslur til ríkissjóðs því
917,114 þús. kr. Árið 1968 voru
beinar greiðslur til ríkissjóðs
kr. 829,713 þús.
Auk beinna greiðslna til ríkis-
sjóðs greiddi ÁTVR til Gæz.\i-
vistarsjóðs kr. 7.500 þús, lands-
útsvar til Reykjavíkur o'g sex
kaupstaða, þar sem útsölur eru
kr. 37.005 þús. og til ÍSÍ o.fl.,
kr. 12,086 þús. Urðu því greiðsl-
ur ÁTVR til ríkissjóðs og fleiri
aðila samtals kr. 973.705 þús.
Samsvarandi tala árið áður var
kr. 885.035 þús.
Sa.’a að frádregnum sö'uskatti
tillögum til styrktarfélaga o.fl.
varð eftirfarandi á s.l. ári.
Áfengi kr. 649.197 þús. eða
54% af veltu fyrirtækisins,
Tóbak kr. 531.165 þús-, eða
44,1% af veltunni, iðnaðarvör-
ur kr. 22.945 þús. eða 1,9% af
veltunni samtals gerir þetta kr.
1.203 307 þús. 1968 var samsvar-
andi tala kr. 1.022.873 þús.
TiL veitinga húsa nam áfeng-
issafan á s.l. ári kr. 78,019 þús.
á s.l. ári en var 73.802 þús. ár-
ið áður Allar áfengisflöskur
sem nú eru seldar til veitinga-
húsa eru merktar með bókstöf-
unum VH, og er veitingahúsun-
um •'kki heimilt að kaupa beint
úr útsölunum, heldur úr birgða-
geymsi'unni.
Útsölurnar þrjár í Reykjavík
seldu á s.í. ári fyrir kr. 442.219
þús. að meðtöldum söluskatti,
en árið áður fyrir kr. 367.781
þús. Útsölurnar úti á landi
seldu áfengi á s.l. ári fyrir
kr. 161,604 og tóbak fyrir kr.
140.587 þús.
Þá er eftir að vita hvað vi@-
skiptavinirnir fengu fyrir alla
þá peninga sem þeir verzluðu
fyrir hjá ÁTVR. En það voru
941 þúsund fítrar af sterkum
Framhald á bls. 14.
Enn er leitað
að sovézku
risaflutninga-
flugvélinni
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
í dag, átján dögum eftir að
sovézku flugvélarinnar Antonov 22
var saknað, var enn leitað að henni
á hafinu milli Grænlands og fs-
lands. Bandarísk flugvél frá Kefla,
víkurflugvelii, var við leit í dag,
en sovézku vélarnar tvær, sem
aðsetur hafa á Keflavíkurflugvelli :
Framhald á bls. 14.
BOAC boðar 100 punda
lækkun á fargjöldum
á leiðinni London — New York
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
Með tilkomu risafarþegaþotanna
hafa viðhorfin hjá hinum voldugu
flugfélögum breytzt, og nú hefur
t.d. brczka flugfélagið BOAC til-
kynnt, að það muni fara fram á
að lækka fargjöld um meira en
helming, á fargjaldaráðstefnu í
Honolulu í sept. n.k.
Þessi kostakjör verða í boði fyr-
ir þá farþega, sem panta far og
staðfesta það með fjögurra mán-
aða fyrirvara, og verður farseðill-
inn ekki endurgx-eiddur, eða breytt
undir neinum kringumstæðuni, að
bví er segir um mál þetta í síðasta
hefti af brezka ritinu The Econo-
mist. BOAC-flugfél. hefur þegar
fengið fyrstu Boeing 747 þotuna,
sem tekur 360 farþega, en félagið
hefur ekki enn getað hafið starf-
rækslu hennar, vegna launadeilu
við flugmenn þá, sem fljúga eiga
þotunni. Félagið á 12 slíkar þotur
í i’öntun, og auk þess mun það
hafa í huga fjórar til viðbótar.
Sem dæmi um fargjöld með
þessum kjörum má nefna, að far-
gjald á leiðinni London — Syd-
ney er nú 424 sterlingspund, en
yrði 212 pund, ef IATA samþybk-
ir þessa skilmáia. ,
Fargjald á leiðinni London —
Toronto er nú 158 sterlingspund,
en yrði 79 pund og fargjald á leið
inni London — New York er nú
175 pund, en yrði aðeins 75 pund.
Talið er líklegt að BOAC fái þessi
fargjöld samþyfckt á IATA-ráðstefn
unni í Honolulu í september, seg-
ir í The Economist.
Verðbólgan mest hér
Óeðlilegt að hafa 2 verk-
fræðinga sem meðdómendur
— segir Sigurður Gizurarson lögm. Laxárbænda
í Evrópu segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
NTB—Wshington, miðvikudag.
Verðbólga á fslandi hefur auk-
izt meira en í nokkru öðru landi
í Evrópu á s.l. ári, að því er seg-
ir í skýrslu frá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum, sem gefin var út fyrir
skömmu. Skýrslan tckur yfir verð
á neyzluvamingi í 64 löndum. í
öðru sæti í Evrópu er Noregur,
en þegar farið er út fyrir Evrópu,
er Suður-Víetnam efst og síðan
Chile og Brasilia.
Verðhækkun á neyzluvöru í
flestum Evrópulöndum á árinu
var frá 3—7%. Á íslandi námu
hækkanii-nar hins vegar 12% —
og í Noregi 10%. Skýrslan bygg-
ist á tölum frá þessum löndum á
tímabilinu 1 apríl 1969 til 31.
marz í ár. Á tímabilinu hefur
verð á neyzluvörum í Suður-Víet-
naai hækkað um 41%, í Chile 30%
og Brasilíu 22% og 16% í Uru-
guay.
í flestum Mið-Áusturlöndum
voru hækkanirnar undir meðal-
lagi, eða aðeins 3% í fsrael og
5% í Jórdaníu.
Þegar litið er á sex ára tíma-
bil frá 1963—1969, hefur verð
neyzluvaimings hækkað langmest
í Uruguay, 1600%, þá kemur
Bi-asilía með 638%. Á því tímabili
eru Malaysía og Sýrland neðst,
með aðeins 4%. Danmörk er þá
með 44%. Svíþjóð 26% og Nor-
egur 28%, en ísland er þá ekki að
finna á listanum.
OÓ—Reykjavík, miðvikudag
— Við liöfum enn ekki séð úr-
skurðinn um að lögbannsgerðinni
væri synjað, heldur aðeins sagt að
úrskurðurinn hafi fallið á þann
veg, sagði Sigurður Gizurarson,
Iögmaður landeigenda við Laxá,
Tímanum í dag. Við bíðum nú eft-
ir aS’fá endun-it af úrskurðinum og
þá verður málinu sjálfsagt áfrýj-
að.
Okkur finnst þetta yfirleitt frá-
,'eitt. Tveir verkfræðingar voru
=kipaðir meðdómendur. en í lögum
er engin heimild til að skipa með-
dómendur í fógetamálum, og er
dómurinn því afskaplega vafasam-
ur, þegar af þeirri ástæðu.
En fyrst verið er að skipa með-
dómendur, þá er óeðlilegt að skipa
tvo verkfræðinga í máli sem þessu,
það væri kannski stætt á að skipa*
einn verkfræðing, þvi þáttur af
þessu máli er tæknilegur, en það
er síður en svo að einungis sé um
verkfræðileg atriði að ræða. Það
er líka tif náttúrufræði og búnað.
arfræði.
Aftur var stefnt í Laxárvirkjun-
armálinu fyrir norðan í gær. Er
það um sama sakarefni, en það er
Framhald á bls. 14.