Tíminn - 06.08.1970, Page 7
pemKMant 6. ágó*t 1970
TIMINN
UNNIÐ AÐ UNDIRBUNINGI
TVEGGJA NÝRRA FYRIR-
TÆKJA í BORGARNESI
Rætt viS Ólaf Sverrisson, kaupfélagsstjóra
Kaupfélag Borgfirðinga er
stærsti atvinnurekandinn í
Borgarnesi og sennilega á Vest
urlandi öllu utan höfuðborgar-
svæðisins- Félagssvæðið nær
frá Skarðsheiði norður í Breiðu
vík undir Jökli. Um fjögur
þúsund manns skipta við kaup-
félagið á þessu svæði en fé-
lagsmenn eru um 1200. Auk
þess hefur Kaupfélag Borgfirð-
inga reki'ð verzlun á Hellissandi
og í Ólafsvík í um 114 ár en á
þessum tveim stöðum búa um
1600 manns. Þessar verzlanir
hafa borið sig, sem og Kaupfé
lagið í Borgarnesi sjálft.
í haust og næsta lxaust táka
tvö ný fyrirtæki til starfa í
Borgarnesi, annað á vegum
kaupfélagsins cn hitt á vegum
Sambands íslenzkra samvinnii-
félaga og verða til húsa i
gömlu verzlunarhúsum kaupfé-
Iagsins. f samtali, sem blaða-
maður Tímans átti við Ólaf
Sverrisson, kaupfélagsstjóra, i
Borgarnesi nýlega skýrði hann
m. a. frá þessum framkvæmd-
um.
— Starfsfólk kaupfélagsins
er í sumar um 140 manns, en
fastir starfsmenn árið um
kring eru um 108, sagði Ólafur.
— í Si’áturtíðinni eru ráðnir til
okkar um 170 manns til við-
bótar, svo þá erum við um eða
yfir 300. Kaupfélagið rekur
verzlanir hér í Borgarnesi, að
Vegamótum, í Ólafsvík og á
Hellissandi. Þá er starfrækt
kjötiðnaðarstöð, brauðgerð, bif
reiðastöð, frystihús, sláturhús,
garnahreinsun, fóðurgeymsla
og kornmylla. Einnig rekur
kaupfélagið veitingahús að
Vegamótum á Snæfel’snesi.
Ólafur Sverrisson, kaupfélagsstj.
Stóraukin fóðurverzlun.
— Mesta breytingin, sem
orðið hefur hjá okkur nýlega,
er ‘■sú, að- fóðurvérzlun hefur
aukizt að mun. Við höfum bætt
aðstöðu okkár á þéssú sviði óg
í vetur hófst hér í Borgarnesi
kornmölun, fóðurblöndun og
dreifing á lausu korni. Getum
við nú boðið betri kjör en áður,
en einnig er lélegur heyskapur
undanfarin ár eflaust ástæðan
fyrir þessari söluaukningu. í
þessu skyni hefur verið komið
upp fóðurgeymslu, kornmyflu
og blöndunarvélum. Bændur í
nágrenni Búðardals og Borð-
eyrar eru nú jaínvel farnir að
kaupa fóðurvörur hjá okkur.
— Þá hefur kjötiðnaðurinn
aukizt, og getum við séð Mýra-
og Borgarfjarðarsýsiu ásamt
Snæfellsnesi fyrir kjötvörum.
Sláturhúsið er hið stærsta á
landinu, og er slátrað hér um
80.000 fjár á ári. Smíði slátur-
Ökukennsla
- æfingatímar
Cortina
Upplýsingar i síma 23487
kl. 12—13. og eftir kl 8 á
kvöldin virka daga
Ingvar Björnsson.
STIMPLAGERÐ
FÉLAGSPRENTSMIDJUNNAR
Jón Grétar Sigurðsson
héraðsdómslögmaSur
Austurstrætl 6
Símí 18783
Gmim' Stokábsson
HÆSTARÉTTARLÖGMADUk
AUSTUASTK.AU « SlUI 1*354
ENSKIR
RAFGEYMAR
fyrirliggiandi
LONDON BATTERY
Lárus Ingimarsson,
Beildverzlun
Vitastig 8 a Simi 16205
hússins var fokið 1967—68 og
kostaði það 50 milljónir.
Úrgangsverksmiðja
Nú vantar okkur verksmiðju
til að vinna úr úrganginum,
en öllu innvolsi, löppum o. fl.,
er hent. Ákveðið hefur verið
að þyggja slíka verksmiðju, en
við bíðum eftir tæknilegum
upplýsingum og tilboðum um
vélar frá útlöndum varðandi
hana. Þessi verksmiðja verður
ekki tekin til starfa fyrr en
haustið 1971. Þar verður úr-
gangurinn bræddur, malafður
og skilinn í eggjahvítuauðugt
mjö! og feiti. Þessar afurðir
verða síðan notaðar í íóður og
sápu.
Sláturhúsarekstur er r-aunar
miklum erfiðleikum bundinn
hér á landi, þar sem sláturtíðin
er aðeins hálfur annar mánuð-
ur. Með því lagi fæst eðlilega
aldrei eins vel þjálfað starfs-
fólk og æskilegt væri. Eins er
erfiðara með sölu til útlanda.
Að sjálfsögðu vei'ður nýting
húsnæðis einnig mjög óhag-
stæð. í sumum löndum er slátr-
að alit árið og alls staðar leng-
ur en hér, þar horfir þetta allt
öðru vísi við.
— Útflutningur? Meiri hlut-
inn af kjötinu hððan er selt til
Laugavegí 38
op
Vestmannaeyjum
M A R l l Ó oevsur
Néjai seodingai
Kallecai
Vandaðai.
7
Tveir starfsmanna fóöurvörudeildar, t, h. er Sveinn Eiðsson, en því mióur
höfum viö ekki nafn starfsfélaga hans.
útlanda, og koma opinberir að-
ilar frá þeim löndum, sem
kaupa af okkur af og til hingað
tii að ganga úr skugga um að
sláturhúsið uppfylli þau skil-
yrði, sem þeir setja. Þá flytjum
við út hreinsaðar garnir og í
vetur fluttum við út verulegt
magn af beinlausu kjöti til
Færeyja.
15 konur fá atvinnu í húfu-
verksmiðjunni.
— Þá er Samband íslenzkra
samvinnufélaga í þann veginn
að setja hér á stofn húfuverk-
smiðju, og venður hún í gömlu
verzlunarhúsum kaupfélagsins.
Ætlunin er að framleiða 20.000
kuldahúfur fyrir karlmeinn,
börn og unglinga fyrsta árið.
Vonazt er til að fyrirtækið
stækki síðar meir og miðað
við að selja framleiðsluna einn-
ig til annarra landa.Útflutnings
markaður hefur þegar verið
kannaður og talinn álitlegur.
Finnskir sérfræðicigar setja
upp vélar verksmiðjuinnar nú í
haust og munu leiðbeina við
framleiðsluna í byrjun. Gert er
ráð fyrir að við húfugerðina fái
atvinnu um 15 konur, sem ela
hefðu tæpast unnið utan heim-
ilis.
Vi@ þökkum Ölafi fyrir sam-
talið.
S- J.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja um 300 rúmmetra stein-
steyptan vatnsgeymi í Borgarnesi fyrir Borgarnes-
hrepp.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Borgarnes-
hrepps, Svarfhóli, Borgarnesi og á Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen s.f., Ármúla 4, Rvík, gegn
1000,— króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Borgarnes-
hrepps, Borgarnesi kl. 11, þriðjudaginn 11. ágúst
n.k.
Bílakjör - Bílakjör
Höfum opnað bílasöluskála i Hreyfilshúsinu á
horni Grensásvegar og Miklubrautar undir nafn-
inu BÍLAKJÖR. Tökum allar tegundir bifreiða,
búvéla og þungavinnuvéla í umboðssölu. Höfum
rúmgott innihúsnæði, einnig stórt útisýningar-
svæði.
, Allar bifreiðar og vélar í sal eru tryggðar fyrir
öllum skemmdum. Munum kappkosta að veita
góða þjónustu. Komið og skoðið bílaúrvalið hjá ,
okkur.
Ef þér viljið kaupa eða selja, þá hafið samband
við BÍLAKJÖR í Hreyfilshúsinu við Grensásveg.
Símar 83320 og 83321.
MATTHÍAS V. GUNNLAUGSSON,
ÞÓRÐUR PÉTURSSON.