Morgunblaðið - 18.11.2005, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÓKIN ER Í STÓRU BROTI OG PRÝDD HUNDRUÐUM LJÓSMYNDA
www.jpv.is
„Áberandi, ef ekki
framúrskarandi vel
úr garði gerð, til hennar
óspart vandað, augnayndi
frá einni síðu til annarrar
... um kjörgrip að ræða sem
ekkert menningarheimili getur
verið þekkt fyrir að vera án.”
Bragi Ásgeirsson / MORGUNBLAÐIÐ
„… verulegur fengur
að þessari miklu bók.“
Viðar Hreinsson / Kistan.is
KJÖRGRIPUR
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA er
heimilt samkvæmt úrskurði Hér-
aðsdóms Reykjavíkur að taka að
nýju til rannsóknar mál er varðar
Tryggingasjóð lækna en fyrr á
þessu ári vísaði Hæstiréttur mál-
inu frá héraðsdómi vegna ýmissa
vankanta á rannsókn málsins sem
og ákæru. Gunnar Örn Kristjáns-
son hafði áður verið sýknaður í hér-
aðsdómi en hann var kærður í mál-
inu m.a. fyrir brot á lögum um
endurskoðendur með því að hafa
vanrækt skyldur sínar sem löggild-
ur endurskoðandi með því að hafa
eftir endurskoðun á ársreikningum
Tryggingasjóðs lækna fyrir árin
1992–2000 áritað reikningana án
fyrirvara og án þess að hafa aflað
fullnægjandi gagna til að byggja
slíkt álit á.
Gunnar Örn krafðist þess nú að
héraðsdómur úrskurðaði að óheim-
ilt væri að hefja lögreglurannsókn
að nýju á þeim sakarefnum sem
voru grundvöllur ákærunnar sem
héraðsdómur sýknaði hann fyrir
árið 2004. Einnig að óheimilt væri
að taka lögregluskýrslu af Lárusi
Halldórssyni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Tryggingasjóðs
lækna, sem vitni að þeim sakarefn-
um. Jafnframt var þess krafist að
úrskurðað yrði að Gunnar Örn
hefði ekki réttarstöðu sakbornings
vegna þeirra sakarefna sem voru
grundvöllur ákæru í hæstaréttar-
málinu. Af hálfu varnaraðila, rík-
islögreglustjóra, var gerð krafa um
að öllum kröfum Gunnars Arnar
yrði hafnað sem var og niðurstaða
dómsins.
Í niðurstöðu dómsins kemur
fram að ætla verði að með því að
vísa málinu frá héraðsdómi á sínum
tíma hafi Hæstiréttur verið að gefa
lögreglu og ákæruvaldi færi á að
bæta úr tilgreindum ágöllum sem
vörðuðu bæði lögreglurannsókn og
ákærusmíð, enda hefði rétturinn
að öðrum kosti sýknað ákærða.
Heimilar endurupptöku
máls Tryggingasjóðs lækna
FLUGVÉLAR sem bandarísk stór-
blöð hafa sagt að séu í eigu leppfyr-
irtækja bandarísku leyniþjónust-
unnar hafa oft lent hér á landi eða
flogið um íslenska flugstjórnar-
svæðið, samkvæmt upplýsingum frá
Flugmálastjórn Íslands og Flug-
málastjórn á Keflavíkurflugvelli. Sú
sem lenti á Reykjavíkurflugvelli á
miðvikudag er farin af landi brott,
hún hélt áfram til St. John’s á Ný-
fundnalandi snemma í gærmorgun.
Þær upplýsingar sem Morgun-
blaðið hefur frá flugmálayfirvöldum
ná frá ársbyrjun 2001 til 1. nóv-
ember sl. Í skrám frá flugmála-
yfirvöldum eru tiltekin kallnúmer
flugvéla sem samkvæmt New York
Times eða Chicago Tribune eru í
eigu leppfyrirtækja CIA og sam-
kvæmt skránum hafa 13 flugvélar í
eigu fyrirtækjanna lent hér á landi
í samtals í hátt í 30 skipti. Ein hef-
ur aðeins flogið yfir en ekki lent
hér. Flestar lendingarnar voru árið
2004 eða 12. Fleiri vélar sem aðrir
hafa bent á að gætu tengst fanga-
flutningum hafa lent hér eða flogið
um flugstjórnarsvæðið.
Átta leppfyrirtæki
Þessar vélar eru í eigu átta mis-
munandi fyrirtækja, m.a. Devon
Holding & Leasing sem á flugvélina
sem lenti á Keflavíkurflugvelli á
miðvikudag. Sú vél virðist hafa
komið til landsins a.m.k. þrisvar áð-
ur og alltaf lent á Reykjavíkurflug-
velli. Þrjár aðrar vélar í eigu sama
fyrirtækis hafa lent hér á landi.
Bandarísk dagblöð hafa fjallað um
öll þessi fyrirtæki í tengslum við
fangaflug CIA, þ.e. flug með fanga
til landa þar sem þeir mega eiga
vona á að sæta harðræði eða pynt-
ingum en slíkt brýtur í bága við al-
þjóðlega sáttmála. Eins og kannski
mátti búast við hafa hvorki banda-
ríska leyniþjónustan né bandarísk
stjórnvöld viljað segja nokkuð um
hvort stofnunin stundi ólöglegt
fangaflug.
Misjafnt er hversu miklar vís-
bendingar eru um að þessar til-
teknu vélar sem fóru um Ísland
hafi verið notaðar til ólöglegs
fangaflugs en í sumum tilvikum eru
þær þó býsna afgerandi, t.d. er
varðar tvær flugvélanna, þeirra
með kallnúmerin N379P og N168D.
Ekkert hefur heldur verið staðfest
um að flugvélarnar 14 hafi verið að
flytja fanga þegar þær lentu hér
eða flugu yfir. Líkt og flest annað
varðandi fangaflugin er erfitt að
staðfesta það með óyggjandi hætti.
Geta farið framhjá yfirvöldum
Flestar fyrrnefndra véla hafa
lent á Keflavíkurflugvelli. Að sögn
Jóhanns R. Benediktssonar, sýslu-
manns á Keflavíkurflugvelli, er mis-
jafnt hvort einkaflugvélar sem fara
um flugvöllinn séu tollafgreiddar og
það fari m.a. eftir því hvort þær séu
á leið inn á eða út af Schengen-
svæðinu. Þegar vélarnar lendi til
þess eins að taka eldsneyti en eng-
inn fari frá borði, sé ekki farið um
borð í vélarnar nema einhver sér-
stök ástæða gefist til þess. Jafnvel
þótt vélar séu tollafgreiddar sé
heldur ekki sjálfgefið að tollverðir
fari um borð í flugvélarnar, þótt
það sé gert í flestum tilvikum. Að-
spurður sagði Jóhann að því væri
ekki hægt að útiloka að fangar
væru fluttir með þessum flugvélum
án þess að yfirvöld á flugvellinum
yrðu þess vör.
Aldrei neitt grunsamlegt
Vélar sem lenda á Reykjavíkur-
flugvelli eru afgreiddar af Flug-
þjónustunni ehf., þar með talin sú
sem lenti á vellinum á miðvikudags-
kvöld. Ari Kolbeinsson, starfsmaður
Flugþjónustunnar ehf. á Reykjavík-
urflugvelli, sagði að tollverðir færu
ávallt um borð í flugvélar sem
kæmu frá útlöndum og aldrei hefði
nokkuð grunsamlegt komið í ljós.
Varðandi vélina sem lenti á mið-
vikudag sagði hann að hún hefði
verið að koma frá verkstæði fram-
leiðanda vélarinnar á Spáni þar
sem hún hefði verið í allsherjar yf-
irhalningu. Aðspurður sagði Ari að
flugmenn vélarinnar hefðu ekki
verið ánægðir með að blaða- og
fréttamenn hefðu tekið á móti þeim
á flugvellinum. Þá væri það ljóst að
einhver hefði brotið trúnaðareið
með því að greina frá því að von
væri á flugvélinni.
Meintar flug-
vélar CIA oft
lent á Íslandi
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
UM 100 börn, sem duttu úr inn-
kaupakerrum eða veltu þeim yfir sig
í fyrra, slösuðust það mikið að þau
voru flutt á slysadeild. Sum þeirra
slösuðust mjög alvarlega og dæmi
eru um að börn hér á landi hafi beðið
varanlegan skaða af slíku falli, að
sögn Herdísar L. Storgaard, verk-
efnastjóra Árvekni, hjá Lýð-
heilsustöð. Talið er víst að mun fleiri
börn en 100 hafi dottið úr inn-
kaupakerrum í fyrra, án þess að
skaðast svo mikið að þau væru flutt
á sjúkrahús.
Í gær kynntu Lýðheilsustöð-
Árvekni og Slysavarnafélagið
Landsbjörg átak sem miðar að því
að auka öryggi barna í inn-
kaupakerrum. Reynt verður að
beina því til forráðamanna barna að
nota innkaupakerrurnar rétt og
þann búnað sem börnum er ætlaður.
Þá er höfðað til verslana að sjá til
þess að nóg sé til af innkaupakerrum
með búnaði fyrir börn, að starfsfólk
leiðbeini fólki um notkun örygg-
isbúnaðarins, að kerrurnar séu í lagi
og nánasta umhverfi verslananna
greiðfært fyrir innkaupakerrur. Sett
verða upp veggspjöld í verslunum og
upplýsingar sendar leikskólum svo
nokkuð sé nefnt.
Öryggisbelti í kerrum
Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sviðs-
stjóri slysavarna hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg, sýndi örygg-
isbúnað sem nota á fyrir börn í
innkaupakerrum. Annars vegar er
um að ræða kerrur með sérstaka
barnastóla og 5-punkta öryggisbelti
fyrir börn að 9 kg þyngd, sem eru þá
innan við eins árs. Þær kerrur eiga
að vera með bremsu. Hins vegar eru
kerrur með útfellanlegu barnasæti
og með því á að nota öryggisól svo
barnið geti ekki klifrað upp úr sæt-
inu. Þessi búnaður er ætlaður börn-
um að 15 kg þyngd, eða 3–4 ára.
Hættan á að börn slasist í inn-
kaupakerrum er mest þegar þau eru
eftirlitslaus, barnið er ekki með ör-
yggisól og stendur upp í kerrunni,
það er haft í vöruhluta kerrunnar,
hangir eða situr á brún kerrunnar.
Efnt til átaks sem miðar að auknu öryggi barna í innkaupakerrum
Dæmi um varanlegan skaða
Eftir Guðna Einarsson
gudn@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sigrún Þorsteinsdóttir sviðsstjóri festir Freyju Friðfinnsdóttur í inn-
kaupakerru með öryggisól. Hulda Magnadóttir læknir er lengst til vinstri.
FORSETI Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, og Dorrit
Moussaieff forsetafrú, hafa
þegið boð um að vera viðstödd
embættistöku Alberts II fursta
af Mónakó. Hátíðarhöldin hefj-
ast í dag, föstudag, og lýkur
þeim á sunnudaginn. Ýmsir
þjóðarleiðtogar víðs vegar að
úr Evrópu verða einnig við-
staddir embættistökuna.
Upphaf hátíðarhaldanna
verður kvöldverður í kvöld í
boði furstans af Mónakó en
embættistaka Alberts II mun
fara fram í dómkirkjunni í
Monte Carlo fyrir hádegi á
morgun. Að henni lokinni verða
gestir viðstaddir hersýningu til
heiðurs hinum nýkrýnda
fursta. Síðdegis fer fram fót-
boltaleikur í tilefni embættis-
tökunnar. Um kvöldið verður
hátíðarkvöldverður í fursta-
höllinni en hátíðarhöldunum
lýkur svo á sunnudag.
Forseta-
hjónin til
Mónakó