Tíminn - 19.08.1970, Page 14
ffiyViKtJM^UR 19. ágást 1970. j
físrael
; Frainhald af bls. 16
>' Jerúsalem látum við
<
aldrei af hendi
— í borgunum verða menn
; efcki varir viS nokkrar merki
■ styrjaldaruinar, sagði Naschitz,
• er fta-rm var spurður um ástand
i ið í landinu, — en úti á landi,
! einkum í nánd við Súezskurð-
; inn fundu íbúarnir fyrir því að
; þeir lifðu á stríðstímum meðan
enn var barizt. Við höfum
| misst 700 unga menn í styrjöld-
1 inni og yfir 2000 hafa særzt.
> Nær hver f jölskylda í landinu
; hefur hlotið áfall af völdum
i stríðsins, misst son, eiginmann
i eða nákominn ættingja.
; — Við stofnun Ísraelsríkis 1048
> var landið 20.000 ferkm- að flatar
j máli, og þar búa 2.900.000 manns,
j þar af Vz milljón Araba. Yfir-
■ ráðasvæðið, sem við höfum náð
j í styrjöldinni, — við viijum ekki
! nota orðið hernumda svæðið, —
í er hins vegar 68.000 ferkm., og
j þar eru íbúarnir eingöngu Arabar.
í Hluta af þessu landsvæði eru
i ísraelsmenn fúsir til að láta af
j hendi við friðarsamninga, ég get
i ekii sagt um hve mikinn hluta,
I um það veit enginn að svo komnu
j máli. en Jerúsalem látum við
! aldrei af hendi. *
i Nasohitz er mikill málamaður,
[ talar sjö tungumál. Aðaláhuga-
j mál hans eru bókmenntir og tóa-
i list. Hann er ljóðskáld og ljóða-'
j þýðandi og hefur skrifað mikið
; um bókmenntir. Heima fyrir er
j hann mjög virkur í félaginu ís-
i land—ísrael, sem heldur samkom
1 ur a.m.k. tvisvar í mánuði, og eru
í þ4 ÝlP'st sýndar kvikmyndir, flutt
j erindi eða annað íslenzkt efni á
j dagskrá.
i
Menningarleg og við-
l skiptaleg tengsl
— ísland og ísrael hljóta að
i vera vinaþjóðir sakir sögu þjóð-
! anna, sem er um margt lík. Báðar
‘ þjóðimar eru ungar og án fast-
; mótaðra venja, báðum þjóðunum
’ er í brjóst borin virðing fyrir
f einstaklingnum og mannlegu lífi,
r samstarfsandi og ást á friði. Þessi
I vinátta hefur verið, er og verður
I staðfest með gagnkvæmum skiln
! ingi, andlegum, menningarlegum
l og efnahagslegum tengslum.
Þjóðirnar háfa skipzt á heim-
sóknum bæði stjórnmálamanna,
listamanna. Og nokkrar ungar ís-
lenzkar stúlkur hafa unnið sjálf-
boðavinnu á samyrkjubúum í
fsrael.
Forystumena íslenzkra stjórn-
mála hafa heimsótt ísrael. Ásgeir
Ásgeirsson, fyrrum forseti kotn í
opinbera heimsókn 1966 fyrstur
þjóðhöfðingja í Evrópu og fór
þá víða um landið. Við það tæki-
færi var honum veittur sá heið-
ur að ávarpa ístaelsþing fyrstur
allra erlendra þjóðhöfðingja,
vegna hinnar einstæðu sögu þings
ykkar.
Gylfi Þ. Gíslason, menntamála-
ráðherra heimsótti fsrael fyrstur
íslenzkra stjórnmálamanaa vegna
10 ára afmælis ísraelsríkLs 1958.
Þá heimsóttu Guðmundur í. Guð-
mundsson, Emil Jónsson og Bjarni
Benediktsson einnig fsrael. Birgir
Finnsson var gestur við vígslu
nýrrar byggingar hins ísraelska al-
þingis, Knesset, í ágúst 1966, og
var hann einn erlendra gesta frá
44 þjóðum fenginn til að flytja
ræðu við vfgsluathöfnina sem
fulltrúi elzta þings í heimi.
ísraelskir stjórnmálamenn hafa
einnig komið hingað. Golda Meir
1961, Ben Gurion 1962 og Abba
Eban skömrnu fyrir sex daga
stríðið.
Goldu Meir var fagnað hér vel,
að því mér er sagt, bæði vegna
þess.'að þið eins og aðrar þjóðir,
eruð óvön því að kona komi í
slíkum opinberum erindagjörðum,
en ekki síður vegna hins sterka
persónuleika hennar.
Halldór Laxness var í fsrael í
þrjár vikur sem gestur stjórnarinn
ar og rithðfundasamtakanna og
flut^i þá fróðlega ræðu á samkomu
hjá þeim síðarnefndu. Einnig höf-
um við skipzt á tónlistarmönnum,
hingaið kom t.d. ísraelskur hljóm
sveitarstjóri og Róbert Ottósson
kom 'til okkar. Jóhann Briem og
Ferró hafa haldið myndlistarsýn
ingar í fsrael og var þeim vel
tekið. Sýning Ferrós hlaut > feiki-
vinsældir, og seldi hann allar sín-
ar myndir. Séra Sigurður Einars-
son og Hendrik Ottósson hlutu
námsstyrki til ísraels og þannig
mætti lengi telja.
— Þótt langt sé á milli þjóða
okkar mælt í kílómetrum, sagði
iNaschitz, — er vinátta þeirra byggð
á bræðarlagsitilfinningu smábjóða,
sem þurfa stöðugt að berjast fyr-
irf tilvem sinni í heimi stórbióð
anna. fsland sannaði okkur órjúf-
andj vináttu með því að stuðla að
stofnun Ísraelsríkis á þingi Sam-
einuðu þjóðanna og veita okkur
lið á annan hátt á alþjóðavettvangi.
Og þið eigið líka samúð og þakk
læti ísraelsku þjóðarinnar. Um það
fékk ég órækasta sönnun, nú fyr-
ir skömmu þe.gar fólk úr öllum
stéttum kom á ræðismanusskrif-
stofuna í Tel Aviv til að votta ís-
lenzku þjóðinni samúð vegna frá-
falls forsætisráðkerrahjónanna
Bjarna Benediktssonar og frú Sig-
ríðar nú í sumar og rita nöfn sín
og samúðarkveðjur þar á bók.
Viðbrögð fólksins við það tækifæri
sýndu glöggt tilfinningu ísraels-
manna gagnvart íslenzku þjóðinni.
S.J.
Jarðstrengir
Framhald af Ols. 1.
unartækjum, þegar þess er óskað
og er oft gripið til slíknar leitar
sérstaklega þar, sem um gamlar
lagnir er að ræða og kort af þeim
ónákvæm. Leit að strengjum með
Mustuinartækj.um getur verið vand
fcvæðum bundin, einfcum þar sem
aðrar lagnir, svo sem vatnslagn-
ir, liggja í nágrenni strengja og
verður þá að finna strengina með
handgreftri áður en unnt er að
beita stórvirk-um vélum við fram-
fcvæmdirnar.
Við framkvæmdir á framlóð
Hótel Esju, sem gerðar voru að
umtalsefni í gi-eininni, urðu
skemmdir á lágspennustreng, sem
rekja má til ónákvæmni í korti
Rafmagnsveitunnar.
Það er sameiginlegt hagsmuna-
mál verktaka, Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og“ rafmagnsnotenda
að komizt verði hjá því, að
skemmdir verði á jarðstrengja-
-lögnum við framkvæmdir ouin-
berra a'ðila og einstaklinga. Raf-
magnsveitan er ávallt reiðubúin
að veita upplýsingar um legu
strengja og aðstoðá við leit að
þeim með hlustunartækjum, ef
óskað er, og vonast til, að sú
góða samvinna, sem tekizt hefur
við verktaka í þessu efni, megi
haldast.
Rafmagnsveita Rr. ...víkur“.
Palme
Framhald af bls 1
menn eiga að hafa mikla, almenna
efnahagsþekkingu og vera þjóðfél.-
lega sinnaðir. Þeir skulu búa við
sömu þagnarskyldu og aðrir stjórn
armenn fyrirtækjanna. Þetta skal
1 reynt í fimm ár ti! að byrja með
en þá á að endurskoða þetta kerfi.
Nú þegar hefur ríkissitjórnin
ákveðið að ríkisskipaðir stjórnar-
menn skuli sitja í bankastjórnum
viðskiptabankanna, en nefndin vil?
að til viðbótar verði slíkir ríkis-
fulltrúar skipaðir í stjórnir ýmis; i
fjárfestingafélaga og svipaðra
stofnana.
2) Ríkisstjórnin skipi fulltrúa
sína í stjórnir 15—20 stærstu sjálfs
eignarstofnana. Er þetta rökstutt
með því, að þessar stofnanir njóti
skattfríðinda.
3) Ríkisstjórnin skipi opinbera
endurskoðendur í 20 hlutafélög og
stórfyrirtæki. Ska' bn*ta fyrirkomu
lag reynt i fimm ár.
4) Hlutafélög og önnur atvinnu-
frirtæki, sem hafa 500 launþega
f þjónustu sinni eða fleiri, skulu
skylduð til að gera mun frekar
en hingað til grein fyrir fjármál-
um sínum Þetta mun ná ti! um
500 fyrirtækja i Svíþjó? Jafn-
framt er fyrirtækjuaum skylt að
gefa reglubundið skýrslur um
ýmsa þætti starfsemi sinnar, svo
sem vörubirgðir á hverjum tíma,
fjárfestingu og fleira
5) Öll fyrirtæki. sem hafa yfir
50 manns í þjónustu =inni skulu
gefa fylkisstjórn skýrslu tvisvar
á ári. í þessari skýrslu skal útskýrt
hvemig fyrirta>kið 'itur á framtfð
sína —- þ. e. hvort það hvggst
fækka eða fjö.'ga starfsfólki. hefja
frekari fjárfestingu, breyta fram-
leiðslu eða framleiðsluháttum o.
s. frv. Jafnframt skal rökstyðja
niðurstöðu þá, sem stjórnendur
fyrirtækisins komast að varðandi
hvern lið — þótt ekki sé krafizt
nákvæmra talna í öllum atriðum.
Skýrslurnar sendist síðar hagstofu
landsins, sem geri á grundveöi
þeirra spár um væntanlegir breyt-
ingar innan hvers landsvæðis og
hverrar atvinnugreinar.
6) Þá skulu sveitastjórnir, hér-
aðsstjómir og ríkisstofnanir, a. m.
k. einu sinni á ári, tilkynna öllum
fyrirtækjum, sem hafa yfir 50
manns í þjónustu sinni, um þau at-
riði í skipulagningu og áætlunar-
gerð hins opinbera, sem snertir
þau fyrirtæki.
7) Loks er tillaga um viðbótar
upplýsingar. Það þýðir, að t. d.
sveitarfélag getur neytt fyrirtæki
til viðræðna og samninga, ef fyrir-
tækið hafnar slíku.
Eins og þetta ber með sér, er
þarna um mjög aukin áhrif hins
opinbera, bæði ríkis og sveitarfé-
laga, á atvinnufyrirtækin.
Laxármálið
Framhald aí bls. 1
fylgja enn fastar eftir, vegna
nýrra upplýsinga sem oss hafa
borizt, um skaðsemi fyrirhug-
aðrac- virkjunar fyrir fiskrækt
í efri hluta Laxár og á Mý-
vatnssvæðinu.
3. Fari svo að framkvæmd-
um við Laxá verði enn hald-
ið áfram, samningslaust, gegn
lögum og rétti og hagsmunum
alls al-mennings, lýsum vér
fullri ábyrgð á hendur Laxár-
virkjunarstjórnar á afleiðing-
unum og heitum á alla fslend-
inga að veita o.s stuðning í
1 varnarbaráttunni til verndar
Laxá og Mývatni."
Bréfið frá Bæjarráði
Akureyrar:
„Bæjarráð Akurevrar leggur
áherzlu á mikilvægi beirra
virkjunarframkvæmda. sem
hafnar eru við Laxá, og telur
æskilegt. að endanlegt sam-
komulag um virkjun árinnar ná
ist og vill fyrir sitt leyti greiða
fyrir því.
Þar sem Iðnaðarmálaráðu-
neytið hefur fram til bessa
haft forgöngu um samkomu-
lagsumleitanir i málinu. telur
Bæjarráð eðlilegt. að ráðnevt-
ið hafi frumkvæði að viðræð-
um milli Laxárvirkjunar st.iórn
ar og stiórnar Landeigendafé
lags Laxár og Mývatns. er það
hefur ástæðu til”.
Bréf þetta .ar sent Landeig
endafélaginu og Iðnaðarmála-
ráðuneytinu á föstudaginn
Á VÍÐAVANGI
vilja þeir fá 4ja ára umboð
út á það, að allt sé í lagi á
haustnóttum. svo halda megi
áfram gengisfellingarstarfinu
að afloknum kosningum. Þetta
er svo augljóst öllum þorra
manna, að blekkingarlpikurvin
frá 1967 verður varla endur-
tekinn að þessu sinni. Kannski
finna forráðamenn stjórnar-
flokkanna það — eða hver er
ástæðan til þess að það böggl-
ast svo fyrir brjóstinu á þeim
að tilkynna þingrofið og kosn
ingarnar? Er það ekki opinbert
og yfirlýst að það er ,,ein-
dreginn vilji“ forvstumanna
Sjálfstæðisflokksins að efna til
’austkosninga? Voru ekki krat-
ar að steita görn í vor og
heimta kosningar. Eru beir
á móti því nú? Eða verður nið-
urstaðan af öllum viðræðunum
kannski sú. að hætt verði við
ailt saman — og þá kannski
þvt borið við. að stjórnarand-
staðan hafi verið á móti því
að kjósa?!!
Engu ska) um framhaldið
spáð, en eitthvað stendur þettaj
samt í þeim blessuðum. Við-;
ræður þeirra Jóhanns og Gylfa;
eru að taka á sig svip barna-;
leiks, þar sem treyjuhnappar
eru taldir að ofan og niður
eftir og ieitað niðurstöðu:
Kosningar — ekki kosningar
— kosningar — ekki kosning-
ar — kosningar . . .
TK.
íbróttir |
Framhald af bls. 13
Ólafur Unnsteinsson, HSK 36.75
Sleggjukast
Erlendur Valdimarsson, ÍR 56.15,
Óskar Sigurpálsson, Á 49.76:
Þórður B. Sigurðsson. KR 43.20!
Sveinn J. Sveinsson, HSK 36,90;
Hafsteinn Jóhannesson, UMSK
30.52!
Stangarstökk
Valbjörn Þorláksson, Á 4.20;
Elías Sveinsson, ÍR 3.45'
Magnús Jakobsson, UMSK 3.29,
Robért Maitzland, HSK 3.18|
Bjarni Guðmundsson, KR 2.73[
Þrístökk
Karl Stefánsson, UMSK 14.68 ■
Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR • 14.63
Borgþór Ragnarsson, KR 13.38-
Guðmundur Jónsson, HSK 13.32
Hróðmar Helgason, Á 12.79;
4x100 m. boðhlaup
Sveit KR 44.2.
Sveit HSK 45.2!
Sveit Á 45.8!
Sveit ÍR • 46.6.
Sveit UMSK 47.0
1000 m boðhlaup
Sveit KR 2:02.6
Sveit Á 2:07.0.
Sveit UMSK 2:07.2,
Sv*. ÍH 2:09.0!
Sveit HSK 2:10.5'
KONUR:
100 m hlaup
Kristín Jópsdóttir. UMSK 12.7'
Sigríður Jónsdóttir. UMSK 13,0
Sigurborg Guðmundsd., Á 13.4
Maria Martin ÍR 13.8
KrUtbuir? Magnúsd.. KI? 13.8
Spjótkast
Arndís BjÖrnsdóttir, UMSK 36.80:
Guðrún Jónsdóttir. KR 31.00■
Fríða Proppé. ÍR 27.23:
Særún Jónsdóttir. IISK 26.18'
Arnþ-úður Karlsdóttir. Á 19.30!
Kúluvarp
Alda Helgadóttir. UMSK 10.15
Kristín Guðimundsdóttir HSK
10.00
Guðrún Jónsdóttir. KR 9.33
Fríður Guðmundsdóttir. ÍR 8.62
Arnbrúðnr Karlsdóttir. Á 7.92'
Hástökk
Anna Lilja Gunnarsdóttir Á 1 55 ■
Kristín Björnsdóttir UMSK ! 4tf!
Sigríður Skú.adóttir HSK I 40
Guðrún Garðarsdótt.ir ÍR 1,35
Ánústa Gunnarsdp'tir KR 1.20!
100 m grindahiaup
Ragnhildur Tonsdóttir ÍR 17 6-
Kristín Biörnsdóttir UMSK 17.9,
Sigurborr Guðmundsdóttir Á 18 1:
Þuríður Jónsdóttir. HSK 20.1;
Ágústa Gumarsdóttir KR 26.2!
200 m nlaup
Kristín Jónsdóttir. UMSK 27.7
Sigríður Jónsdóttii HSK 28.5'
Sigurborg Guðmundsdóttir. Á 28.6
Guðrún Jónsdóttir. KR 29,7;
Ragnhildur fónsdóttir. ÍR 30.4
Langstökk
Kristín Bjfirnsdóttir. UMSK 5.25]
Þuríður Jonsdóttir, HSK 5.20 i
Sigurborg Guðmundsdóttir. Á 5.05:
Guðrún Jónsdóttir KR 4.64
Herdfs Hallvarðsdóttir. ÍR 4.39 !
Kringlukast
Ingibjörg Sigurðardóttir. HSK
29 75
Arndís Björnsdóttir. UMSK 28.63
Arnþrúður Karlsdóttir, Á 27 48
Fríður Guðmundsdóttir ÍR 27.08
Hjördís Sigurjónsdóttir. KR 24.80
4x100 m ooðhlaup
Sveit UMSK * 51.8
físlandsmet
Sveit HSK 53.2
Sveit Á 53.7
Sveit ÍR 56.6
Sveit KR 57,5
Innllegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
vlð andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
Ragnheiðar Oddsdóttur,
Holtsgötu 20.
Ásgrímur Guðjónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Alúðarþakkir fyrlr auðsýnda samúð við fráfall og útför
Skafta Sigurfinnssonar
frá Meyjarlandi, Skagaflrði.
F. h. vandamanna,
Kristín Sigurðardóttlr.
Systlr okkar.
Sigríður Guðmundsdóttir
frá Efri.Brú,
lézt þrlðjudaginn 18. ágúst.
Guðmundur Guðmundsson
Tómas Guðmundsson.
Innilegar þakkir sendum við öllum, naer og fjær, sem auðsýndu
samúð og hlýhug við andlát og jarðarför
•Kjartans Einarssonar,
Þórisholti, Mýrdal.
Þorgerður Einarsdóttlr,
börn, tengdabörn og barnabörn.