Tíminn - 19.08.1970, Síða 16
i i I / il
Hvað tefur haf narf r amkvæmdir ?
MiSvikudagur T9. ágúst 1970.'
Fundur í
Fulltrúaráðinu
Fundur verður haldinn í Full-
trúaráði Framsóknarfélaganna í
Reykjavík rf.k. fimmtudag 20.
þ.m. í Framsóknarhúsinu við
Fríkirkjuveg, uppi, kl. 20.30.
Fundarefni: Undirhúningur
kosninganna. Áríðandi að full-
trúaráðsmenn mæti.
— Stjórnin
BÆNDAHÁTÍÐ
I HÚNAVERI
BúnafSarsamband Austur-Hún-
^etninga gengst fyrir bændahátíð í
iHúnaveri á laugardaginn og hefst
fiún kl. 3 með sameiginlegri kaffi-
tírykkju. Til skemmtunar verða,
íkórsöngur og upplestur, og flutt
[verður erindi. Gautar leika síðan
fyrir dansi og lýkur hátíðinni kl.
8 um kvöldið.
Örin til vinstri bendir á .KeriS, en örin tít hægri bendir á hótinn þar sem braut hefur veriS rodd upp, og vestan í þessum hól hefur farjS fram
gjalltaka í sumar. Hinsvegar mun ekki hafa fariS fram gjalltaka uppi á hólnom í sumar, eins og áður hefur átt sér stað.
(Tfmamynd Kári)
Framleiðslan í Kísiliðjunni
er 1700 lestir á mánuði
•Samkeppninnar vegna eru pokarnir ekki merktir verksmiðjunni
SB-Reykjavík, þriðjudag.
FramleiSsla Kísilgúrverk-
smiðjunnar við Mývatn gengur
fyUilega eftir áætlun. f haust
bætast við ný tæki og kemst
þá verksmiðjan upp í fuUnaðar
afköst. Tékkóslóvakía hefur
bætzt í hóp þeirra ríkja, sem
kaupa íslenzkan kísilgúr. Sam-
keppninnar vegna eru kísilgúr-
pokarnir ekki merktir fslandi,
síðan farmur skemmdist í flutn
ingum í fyrra.
í viðtali við blaðið, sagði
Vésteinn Guðnrandsson, forstj.
verksmiðjunnar, að nú væri
framleiðslan um 1700 lestir á
mánuði, sem svaraði til 21000
lesta á ári. í október éða núv-
ember verða sett upp viðbótar
tæki í verksmiðjuaa. þannig
að afiköstin aukast enn cneir,
upp í 24000 lestir. Öllum bygg-
ingutn er nú lokið og í haust
verður verksmiðjan því full-
nýtt.
Alls starfa 46 manns hjá Kís-
iliðjunni allt árið, en á sumrin
er bætt við 13—15 manns, sem
vinna við dælingu kísilsins upp
úr Mývatni. Tveir stórir bílar
aka kísilgúrnum til Húsavíkur
og eru þeir stanzlaust í ferðum.
Framleiðslan selst yfirleitt eft-
ir hendinni og stendur ekki við,
nema þegar tafir eins og verk-
föll koma upp á. Kísilgúrinn er
síðan fluttur frá Húsavík með
skipum Eimskipafélagsins og
Hafskips og helztu kaupendunn
ir eru Þýzkaland, Frakkland og
Bretland. Einnig kaupa Hol-
land, Beligía, Norðurlöndin,
Austurríki og Ungverjaland
kísilgúrinn og nýlega bættist
Tékkóslóvakía við.
Síðan óhappið varð og farmur
skemmdist, hafa pokarnir ekki
verið merktir íslandi og sagði
Vésteinn að það væri vegna
þess, að samkeppni væri hörð
og keppinautarnir reyndu, ef
þeir vissu, að þetta væri ísfenzk
ur kísilgúr, að koma því
'inn hjá kaupendunum, að hann
sé lakari vara.
Vésteinn kvað kvartanir ekki
berast umfram það sem eðlilegt
megi teljast, og engar, sem hafi
kostað Kísiliðjuna fjárútlát.
Skógræktin leyfir
gjalltökuna við
Kerið í Grímsnesi
EB-Reykjavík, þriðjudag.
— Þess hefur ekki verið farið
á leit við okkur, af náttúruvernd
arsamtökunum, að við tökum fyrir
gjalltöku í landi okkar vi'ð Kerið
í Grímsnesi, en í sumar hefur
Vegagerðin eins og undanfarin ár,
tekið' gjall í landi okkar þar, og
verður því lialdið áfram, sagði
Ólafur Jónsson, formaður Skóg-
ræktarfélags Árnessýslu Tímanum
í kvöld. En í sumar hefur Vega-
gerðin tekið gjall úr þrem litlum
hólum vestan við Kerið, og hefur
það verið mörgum náttúruunn-
endum þyrnir í augum, þar sem
Kerið er einn af gimsteinum ís-
lenzkrar náttúru.
Er þess skemmst að minmast, að
ferðamaður, sem átti leið þar um
Nær hver fjölskylda í ísrael orðið
fyrir áföllum af völdum stríðsins
Rætt við aðalræðismann íslands í Tel Aviv
Fritz Naschitz
— Ég vil ekki tala um stjórn
mál. f fyrsta lagi er ég ekki
stjórnmálamaður, og í öðru
lagi stendur nú yfir vopnahlé
og friðarsamningar milli ísra-
elsmanna og Egypta, og ég hef
ekki heimild til a@ spá um ár-
angur þeirra. En ég fullvissa
fslendinga um, að ísraelsmenn
eru mjög friðsöm þjóð. Em við
viljum aðeins frið með þeim
skilyrðum, að hann verði sam-
inn þannig, að örugg og verjan
leg landamæri verði ákve'ðin,
og þau verði ekki áfram orsök
nýrra árása og vopnaviðskipta.
Það verður þjóð minni ánægja
að semja um varanlegan frið
með ofangreindum hætti.
Þetta var svar Fritz Nasehitz,
aðalræðismanns íslands’ í Tel
Aviv, við einni af fyrstia spurn-
ingum blaðamanns Tímans í við
tali í dag. Naschitz hefur verið
ræðismaður ok'kar í ísrael í 21
ár og hefur komið hingað 26
sinnum. Soaur hans, Pétur, er
nú einnig ræðismaður íslands
í ísrael. Náschitz er hér að
þessu sinni fyrst og fremst
vegna verzlunarsamninga milli
landanna, en viðskipti okkar
og ísraelsmanna eru nú að auk
ast á ný og munu aema um
V2 milljón Bandaríkjadala á
þessu ári. Þangað verða væntan
Iega seld um 300—500 tn. af
frosnum fiskflökum á árinu
og góður markaður er einnig
fyrir saltsíld. þegar hún er
fáanleg héðan.
Naschitz fluttist til Palestínu
frá Vín í Austurríki 1040 og
hefur tekið þátt í uppbyggingu
hins nýja Ísraelsríkis. Hana
segir landa sína vera glaðvært
fólk og bjartsýnt, einkum
yngstu kynslóðina, sem fædd
er í landinu, og er ekki háð
gömlum og ólíkum venjum eins
og foreldrar hennar, sem komn
ir eru frá um 70 þjóðlönd-jm.
Um 45.000—50.000 manns
flytja nú til ísraels á ári
hverju, eiakum frá Vestur-Ev
rópu, Ameríku og Afríku. Tala
útflytjenda er hins vegar óveru
leg, aðeins nokkur hundruð ár-
lega. Naschitz kvað marga Gyð
inga í Rússlandi og víðar hafa
áhuga á að flytja til ísrael, en
þeir fengju ekki útflytjenda-
leyfi. PYamhalri * bls 14
á dögunum, vakti athygli á þeirri '
hættu, sem Kerinu stafar af gjall-
tökrj þessari, í Landfaradálkum -
Tímans. _ '
Sagði Ólafur Jónsson f viðtalinu !
við blaðið. að gjalltakan væri
tekjuöflun, sem skógræktarfélagið ■
mætti ekki missa. Væri Vega-
gerðin búin að taka gjall þarna
vestan við Kerið frá því vegur
var lagður um Grímsnesið fyrir
30—40 árum, og eins og áður hef-
ur komið fram er svæðið þar sem
gjalltakan fer fram í landi Skóg-
ræktarfélags Ásnesinga.
— Við viljum fá eitthvað fyrir
okkar snúð. Skógræktarfélagið
kaupir mikið af plöntum til niður
setningár ár hvert. Við getucn
ekki án þessarar tekjuöflunar ver
ið, sagði Ólafur og lagði á það
sérstaka áherzlu.
Þá taldi Ólafur að Kerinu staf-
aði ekki hætta af gjalltökunni
sem er andstætt áliti margra,
er telja heildarsvipinn umhverfis
Kerið skaddast mikið vegna gjall-
tökunnar, og benda í því sambandi
á afdrifaríkar afleiðingar slíkrar
töku Vegagerðarinnar, t.d. eins:
og þegar litli gíghóllinn við Grá-.
brók í Norðurárdal var eyðilagð-
ur.
Fulltrúaráðs-
menn F.U.F.:
Fundur í kvöld
Stjórn FUF í Reykjavík
boðar Fulltrúaráðsmenn sína,
aðalmenn ng varamenn. tfi um l
ræðufundar í kvöld kl. 26,30
í Framsóknarhúsinu við Frí-
kirkjuveg, uppi. Rætt verður
um skipulagsmál og fleira.
Aðrir Fulltrúaráðsmenn, sem
áhuga hafa. eru velkomnir á
fundinn.
FUF.