Morgunblaðið - 18.11.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 27
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Undanfarnar vikur
hafa verið mjög fjörlegar í nám-
skeiðahaldi hjá Fræðsluneti
Austurlands og samstarfsaðilum
þess. Segir á vefsvæði FNA að
annríki sé hjá fjarnemum við
hina ýmsu háskóla og námskeið
af ýmsum toga í gangi víðast
hvar á Austurlandi. Íslensku-
námskeið fyrir útlendinga, sem
haldin eru á Hornafirði, Fá-
skrúðsfirði, Reyðarfirði, Eski-
firði, Norðfirði, Héraði og Seyð-
isfirði, hafa verið feiknavel sótt,
en þau stunda á annað hundruð
nemenda frá þrjátíu þjóðlönd-
um.
Fjöldi nemenda á námskeið-
unum hefur tvöfaldast á árinu.
Athygli vekur að ekki er nema
lítill hluti nemenda á Íslandi við
störf að virkjunar- og álvers-
framkvæmdum, heldur er þetta
fólk sem sinnir ýmsum öðrum
störfum í fjórðungnum.
Kannar möguleika sína
Svokallaðar framtíðarsmiðjur
eru á vegum FNA á Héraði,
Seyðisfirði og Stöðvarfirði.
Markmiðið með þeim er að
kynna fyrir Austfirðingum fjöl-
breytt tækifæri til menntunar
og atvinnu í umsvifunum sem nú
eiga sér stað á Austurlandi.
Framtíðarsmiðjan hefst á
ókeypis námskeiði þar sem þátt-
takendur skoða stöðu sína, taka
áhugasviðspróf og átta sig á því
hvaða möguleika þeir hafa. Í
framhaldinu er boðið upp á röð
námskeiða þar sem fólk getur
bætt við almenna hæfni sína og
aukið þar með möguleika sína á
vinnumarkaði.
FNA býður einnig upp á nám-
skeið í tölvum, tungumálum og
ýmsum tómstundastörfum og
eru þau haldin víða um fjórðung-
inn.
Aðsóknarmet í Háskólasetri
Nýtt aðsóknarmet var slegið
fyrir nokkrum dögum í Háskóla-
setrinu á Vonarlandi á Egils-
stöðum, en þá voru yfir 60
manns í húsinu á námskeiðum
og í verkefnavinnu. Það sama
kvöld voru í gangi námskeið á
vegum Fræðslunetsins í Nes-
kaupstað, á Eskifirði, Reyðar-
firði, Seyðisfirði og Stöðvarfirði.
Ætla má að sum kvöld séu vel á
annað hundrað manns á nám-
skeiðum af ýmsum toga. Svo
virðist sem atvinnurekendur
bjóði starfsfólki sínu í auknum
mæli að sækja námskeið
Fræðslunets Austurlands og
greiði fyrir það þátttökugjöld.
Á næstu þremur árum verður
hundrað og ellefu milljónum
króna af opinberu fé varið til
Þekkingarnets Austurlands,
sjálfseignarstofnunar sem stofna
á utan um endurskipulagt
Fræðslunet Austurlands. Stofn-
unin skal vera framsækin og
leiðandi á sviði menntunar,
rannsókna og samfélagsþróunar
í fjórðungnum og renna stoðum
undir háskólanám, rannsóknir,
þróun og símenntun.
Á stofnunin að reka þrjár
menntastöðvar; á Egilsstöðum, í
Neskaupstað og á Hornafirði.
Mikill námsáhugi
á Austurlandi
Eiðar | Það hljóðnaði yfir 68
skólabörnum í Grunnskólanum á
Eiðum, þegar Páll Ólafsson skáld
og Ragnhildur kona hans riðu
árla morguns í hlað á fráum fák-
um á degi íslenskrar tungu.
Hjónakornin námu staðar á
skólahlaðinu og Páll kvað vísu að
römmum sið og Ragnhildur
ljóðaði. Svippuðu þau sér að því
búnu af baki og héldu með nem-
endum til stofu, þar sem sex ára
bekkurinn kvaðst á við Pál og sjö
ára börnin fjölluðu um líf og
skáldstarf hans. Í hlutverkum
hjónanna frá Hallfreðarstöðum
voru þau Charles Ross og Áslaug
Kjartansdóttir.
Á Eiðum starfa tvær yngstu
skóladeildir Grunnskólans á Eg-
ilsstöðum og Eiðum og var dagur
íslenskrar tungu haldinn hátíð-
legur með pomp og prakt; skáld-
skap og súkkulaðiköku.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Ljóðað á skólabörn Charles Ross og Áslaug Kjartansdóttir í hlutverkum Páls skálds og Ragnhildar konu hans.
Skáld ríður í hlaðið