Morgunblaðið - 18.11.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 35
Umhverfisþing, það fjórðaí röðinni, verður haldið ídag og á morgun. Þingiðer vett-
vangur til að ræða
umhverfis- og nátt-
úruvernd og sjálfbæra
þróun, eins og segir í
náttúruverndarlögum,
og að þessu sinni er
áherslan á sjálfbæra
þróun.
Á Umhverfisþingi
fyrir fjórum árum
voru kynnt drög að
nýrri stefnumörkun
um sjálfbæra þróun
sem ríkisstjórnin sam-
þykkti síðan árið 2002.
Stefnumörkunin var
kölluð Velferð til
framtíðar og henni er
ætlað að vera rammi
utan um starf stjórn-
valda á þessu sviði
næstu tvo áratugina.
Fyrir þinginu sem
hefst í dag liggja drög
í sautján liðum að
megináherslum
stjórnvalda um sjálf-
bæra þróun fyrir árin
2006–2009. Þessir
sautján liðir skiptast í
fjóra meginflokka sem
eru heilnæmt og
öruggt umhverfi,
verndun náttúru Ís-
lands, sjálfbær nýting
auðlinda og hnattræn
viðfangsefni.
Drögin sem nú liggja fyrir Um-
hverfisþingi verða til umræðu þar
auk þess sem samtök, stofnanir og
einstaklingar geta sent inn skrif-
legar athugasemdir við þau fyrir
15. janúar 2006. Drögin, sem ásamt
upplýsingum um Umhverfisþing
eru aðgengileg á vef umhverf-
isráðuneytisins, verða svo endur-
skoðuð með hliðsjón af þeim at-
hugasemdum sem fram koma og að
því búnu mun ég leggja þau fyrir
ríkisstjórn. Umhverfisþing og
næstu vikur á eftir veita þess vegna
öllum landsmönnum einstakt tæki-
færi til að koma að og hafa áhrif á
stefnumörkun Íslands á þessu mik-
ilvæga sviði.
Sjálfbær þróun
Hugtakið sjálfbær þróun felur í
sér tiltölulega einföld en skyn-
samleg viðhorf sem þó hefur stund-
um reynst erfitt að halda í heiðri.
Með sjálfbærri þróun er átt við að
ekki sé gengið svo á gæði náttúr-
unnar að komandi kynslóðir standi
verr að vígi en við gerum. Sjálfbær
þróun er því ein af meginforsendum
efnahagslegrar og félagslegrar vel-
ferðar. Við Íslendingar þekkjum
dæmi þess að gengið hafi á nátt-
úrugæði, svo sem með eyðingu
skóga og jarðvegs. Mikið verk hef-
ur verið unnið á síðustu áratugum,
sérstaklega á síðustu árum, til að
snúa þessari þróun við, bæði með
umfangsmikilli skógrækt og ann-
arri uppgræðslu lands. En betur
má ef duga skal og mikilvægt er að
halda áfram að auka við það starf
sem unnið er á þessu sviði.
Upplýsingar um endurheimt
landgæða eru meðal þess sem lesa
má um í lítilli bók, Tölulegar vís-
bendingar 2005, sem gefin hefur
verið út í tilefni Umhverfisþings og
verður kynnt þar. Í henni má finna
upplýsingar um þróun margra við-
miðana, eða vísa, sem falla undir þá
fjóra meginflokka sem nefndir eru
hér að ofan. Í Tölulegum vísbend-
ingum 2005 sést að flestir vísar
sýna mengun innan viðmið-
unarmarka og jákvæða þróun í
ýmsum umhverfismálum á und-
anförnum árum. Má þar sem dæmi
nefna loftgæði í Reykjavík, end-
urheimt votlendis, stærð friðlýstra
svæða, endurvinnslu og ábyrga
meðferð úrgangs og skólphreinsun,
svo nokkuð sé nefnt. Sumt annað
hefur ekki þróast með
jafn jákvæðum hætti,
svo sem magn úr-
gangs á íbúa. Með
landsáætlun um með-
höndlun úrgangs, sem
sett hefur verið fyrir
árin 2004 til 2016, er
unnið að endurbótum
í þessum málum og
stefnt að því að draga
markvisst úr myndun
úrgangs, auka end-
urnýtingu og end-
urnotkun og minnka
magn úrgangs sem
fer til endanlegrar
förgunar.
Tölulegar upplýs-
ingar af því tagi sem
er að finna í Tölu-
legum vísbendingum
2005 eru mikilvægt
tæki og forsenda þess
að við getum sett okk-
ur mælanleg markmið
í umhverfismálum og
lagt hlutlægt mat á
árangurinn. Umhverf-
isráðuneytið mun
þess vegna halda
áfram að þróa slíka
vísa í samvinnu við að-
ila innan og utan
stjórnkerfisins.
Markviss
stefnumörkun
Umræða um umhverfismál og
sjálfbæra þróun á alþjóðavettvangi
einkennist oft af svartsýni og vissu-
lega er hægt að benda á margt sem
ógnar lífsgæðum komandi kyn-
slóða. Margt þróast þó einnig með
jákvæðum hætti. Í flestum ríkum
löndum hefur mengun til dæmis
farið minnkandi, sem er bæði já-
kvætt í sjálfu sér og gefur einnig
vonir um að eftir því sem fátækar
þjóðir verða ríkari geti þær hugað
frekar að umhverfismálum og dreg-
ið úr mengun. Samvinna þjóðanna
hefur einnig skilað árangri á ýms-
um sviðum, til að mynda í aðgerð-
um til verndar ósonlaginu. Þá gefur
alþjóðleg stefnumörkun um sjálf-
bæra þróun og loftslagsmál vonir
um að ríkjum heims muni í þeim
efnum einnig takast að vinna saman
að sameiginlegum hagsmuna-
málum sínum.
Á þessum sviðum hafa Íslend-
ingar staðið framarlega. Má þar
nefna að auðlindir hafsins eru nýtt-
ar með skynsamlegum hætti og
hvergi í heiminum er notkun end-
urnýjanlegrar orku jafn mikil og
hér á landi. Við munum áfram
leggja lóð okkar á vogarskálarnar
til að sem bestur árangur megi nást
á alþjóðavettvangi.
En þrátt fyrir að við Íslendingar
séum í samanburði við aðrar þjóðir
að mörgu leyti í öfundsverðri stöðu
í umhverfismálum ætlum við okkur
að gera enn betur í framtíðinni. Sú
markvissa stefnumörkun á sviði
sjálfbærrar þróunar sem unnin er
hér á landi er mikilvægt tæki til að
þetta markmið verði að veruleika.
Umræðan sem fram fer á Umhverf-
isþingi og í framhaldi þess með að-
komu almennings, opinberra aðila,
umhverfisverndarsamtaka og ým-
issa annarra aðila er veigamikill
þáttur í að markmiðin náist. Ég
bind miklar vonir við þá vinnu sem
framundan er og vonast til að sem
flestir landsmenn nýti sér þennan
lýðræðislega vettvang og taki þátt í
að móta stefnu Íslands til næstu ára
um sjálfbæra þróun.
Umhverfisþing –
lýðræðislegur
vettvangur til
stefnumótunar
Eftir Sigríði Önnu
Þórðardóttur
Sigríður Anna
Þórðardóttir
’Umhverfisþingog næstu vikur
á eftir veita þess
vegna öllum
landsmönnum
einstakt tæki-
færi til að koma
að og hafa áhrif
á stefnumörkun
Íslands á þessu
mikilvæga
sviði.‘
Höfundur er umhverfisráðherra.
ar sem
og al-
erða
verða
g tvær.
num
tt-
hnatt-
m sjón-
ið yfir
á landi
egum
verf-
erf-
ún mun
fjallar
um þróun umhverfisvísa á Ís-
landi í ljósi þess sem er að ger-
ast í Evrópu.
Mynd af þróun mála
Að sögn Huga Ólafssonar, skrif-
stofustjóra í umhverfisráðuneyt-
inu, munu á þriðja hundrað
manns sækja Umhverfisþingið,
víðs vegar að úr samfélaginu.
„Þarna verður mjög fjölbreytt
dagskrá og vonandi forvitnileg
fyrir ýmsa, en megintilgang-
urinn er að reyna að gefa mynd
af þróun mála á Íslandi, bæði
hvað varðar umhverfismál og
auðlindanýtingu og annað sem
viðkemur sjálfbærri þróun,“ seg-
ir Hugi og bætir við að bæði sé
reynt að gefa sæmilega glögga
mynd af ástandinu nú og skapa
umræðu um forgangsverkefni á
næstu árum. „Megintilefni þings-
ins er umfjöllun um stefnumörk-
un stjórnvalda um sjálfbæra þró-
un, sem sett var fram árið 2002
og gildir til 2020. Í því felst ekki
að við teljum að við getum séð
þróun mála og skilgreint öll
verkefni fram til þess tíma,
heldur er þetta tímabil hugsað
sem rammi, en við höfum skil-
greint sautján markmið í því
skyni.“
Hugi segir hér í fyrsta sinn
farið yfir þessi markmið, en
ráðuneytið gefi út ritið „Tölu-
legar vísbendingar 2005“ til að
gefa yfirlitsmynd af ástandinu.
„Þar eru sextíu vísar um ástand
umhverfisins og álag á náttúru
og auðlindir og viðbrögð stjórn-
valda,“ segir Hugi. „Þarna reyn-
um við að gefa sæmilega skýra
mynd um stöðu mála nú og
hvernig þróunin hefur verið á
síðastliðnum árum, svo við
sjáum hvort okkur miðar í rétta
átt eða ekki og hvort við séum
að ná settum markmiðum. Þarna
verða líka lögð fram drög að
megináherslum stjórnvalda inn-
an þessara sautján markmiða
fyrir árin 2006–2009.“
g á morgun
um tekin og stefnan kynnt
lægð í kjölfar hryðjuverkanna
ber 2001 og voru þeir yfir
ð 2004. Að sögn umhverfisráðu-
r þessi fjölgun í senn vísbending
arafl íslenskrar náttúru og
m mikilvægi þess að búa svo í
helstu náttúruperlur landsins
ki vegna aukinnar umferðar
Þetta má sjá þegar skoðaðar
yfir heildarfjölda gistinátta eftir
m, en langstærstur hluti ferða-
ir á höfuðborgarsvæðinu, Norð-
tra og Suðurlandi. Ójöfn dreif-
anna getur leitt til mikils álags á
rðamannastaði og gefur þetta
endingu um vannýtta möguleika
ustu á öðrum svæðum. Þá hefur
m landvarða og sjálfboðaliða á
hverfisstofnunar fjölgað gríð-
ðustu árum, enda hefur upp-
rið mikil og áhersla verið lögð á
dvörslu.
vaxandi en lúða hverfur
má skýrsluna hefur umfang end-
votlendissvæða vaxið mjög á
m, eða úr nokkrum tugum hekt-
96 í tæpa 500 hektara árið 2005.
hlutfall votlendis nemur um
votlendi sem var á íslandi við
Á tilteknum stöðum hefur verið
ndurheimt votlendis með því að
framræsluskurði. Þá kemur
pnastofninn náði lágmarki árið
fur síðan vaxið mjög og veiðiþol
t verulega. Er ástand rjúpna-
ú, að mati umhverfisráðuneyt-
ræmi við þær væntingar sem
gerðar voru til tímabundinnar friðunar árið
2003. Þá hefur haförninn dafnað vel síðustu
árin og eru nú talin um 65 fullorðin pör við
strendur landsins.
Í skýrslunni er einnig farið yfir lifandi
auðlindir hafsins. Þar kemur fram að við-
miðunarstofn þorsks hefur stækkað úr
600.000 tonnum í 760.000 tonn síðustu
fimm ár. Þá hefur áhersla á netaveiðar
minnkað en botnvarpa og lína gegna nú
meginhlutverki í þorskveiðum. Grálúðuafli
á sóknareiningu er hins vegar í sögulegu
lágmarki og gefur það til kynna afar slæma
stofnstærð grálúðunnar.
Sauðfé hefur fækkað úr rúmum 800.000
fjár árið 1980 í um 450.000 fjár árið 2002.
En á sama tíma hefur hrossum fjölgað.
Þótt hross séu enn margfalt færri en
sauðfé, eða innan við 100.000, geta þau hins
vegar gengið afar nærri landi vegna þess
hve þung þau eru og hversu naumt og
mikið þau bíta. Þá má í skýrslunni sjá
gríðarlega aukningu í gróðursetningu trjáa
á níunda áratugnum og eru nú gróð-
ursettar í kringum fjórar milljónir trjá-
plantna á ári.
Landgræðslusvæði eru mörg og vinnur
Landgræðsla ríkisins að því að end-
urheimta, varðveita og bæta við þær auð-
lindir sem fólgnar eru í jarðvegi og gróðri
landsins og tryggja sjálfbæra nýtingu
þeirra. Niðurstöður rannsókna á jarðvegs-
rofi sýna hraðfara jarðvegsrof á um 17%
landsins. Verkefnið „Bændur græða land-
ið“, sem er samvinnuverkefni Landgræðsl-
unnar og bænda um uppgræðslu heima-
landa, fór af stað um árið 1990 og hafa
bændur tekið mjög virkan þátt í því. Eru
þátttakendur nú rúmlega fimm hundruð
talsins.
Innlend orka atkvæðamikil
Orkunotkun á hvern íbúa á Íslandi er mikil
í samanburði við aðrar þjóðir. Þar má m.a.
nefna orsakaþætti eins og kalt loftslag og
dreifða byggð, sem krefjast mikillar orku
til húshitunar og samgangna. Þó skiptir
einnig verulegu máli að sumir atvinnuvegir
þjóðarinnar, s.s. fiskveiðar og stóriðja eru
mjög orkufrekir. Innlend orka, þ.e.a.s.
jarðvarmi og vatnsorka nema um 70% af
heildarorkunotkun landsmanna og hefur
notkun hennar farið mjög vaxandi undan-
farið með tilkomu aukinna umsvifa áliðn-
aðar. Að sama skapi hefur notkun inn-
fluttrar orku aukist stöðugt, en þó hefur
hægt á henni undanfarin ár. Jarðhiti hefur
vaxið mest sem orkugjafi frá árinu 1990, en
nú eru um 54% allrar orku sem Íslendingar
nota fengin úr jarðvarma. Olía er um 25%
og vatnsorka 18%. Þá eru kol um 3% af
orkunotkun Íslendinga. Olíunotkun hefur
minnkað um sjö prósentustig frá 1990. Um
tveir þriðju af raforku Íslands fara til stór-
iðju.
Í skýrslunni er enn fremur rakin batn-
andi meðhöndlun úrgangs, en endurvinnsla
hefur tvöfaldast frá árinu 1995. Urðun
skipar þó enn langstærstan sess í förgun
úrgangs. En þótt urðaður úrgangur hafi
ekki minnkað mikið, hefur verið gerð mikil
bragarbót á meðhöndlun þess úrgangs sem
er urðaður. Stöðum þar sem brennsla er
opin hefur verið næstum útrýmt, enda hef-
ur slík brennsla í för með sér myndun afar
óheilnæmra efnasambanda.
sar segja
góðar fréttir
Morgunblaðið/RAX