Morgunblaðið - 18.11.2005, Qupperneq 60
60 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HERRA Ísland 2005 fer sem fyrr
fram í Broadway en að þessu sinni
verður sigurvegarinn valinn í síma-
kosningu sem lýkur í beinni sjón-
varpsútsendingu á Skjá einum hinn
24. nóvember.
Keppendur í ár eru nítján talsins
og koma þeir víðs vegar af landinu.
Þeir munu koma fram í fatnaði frá
Next í Kringlunni og Oroblu-
boxerum, en það er eins og oft áður
Yesmine Olson sem er listrænn
stjórnandi keppninnar. Í frétta-
tilkynningu segir að strákarnir hafi
undanfarnar vikur æft í World
Class, látið lita og klippa hár sitt á
Mojo/Monroe, farið í brúnku-
meðferð á snyrtistofunni Fegurð og
svo hafa förðunarfræðingar frá
Gasa séð um að farða strákanna.
Herra Ísland 2004, Páll Júlíus
Kristinsson, mun afhenda arftaka
sínum Herra Ísland-sprotann til
varðveislu í eitt ár, en þetta er 10.
árið sem þessi glæsilegi farand-
gripur frá Jens í Kringlunni er af-
hentur. Auk verðlaunasætanna
verða Zirh-herrann og Next-
herrann valdir, auk þess sem strák-
arnir velja þann vinsælasta í hópn-
um.
Áhorfendur kjósa
Fólk | Herra Ísland 2005
www.ungfruisland.is
HINN alíslenski balkanhópur Stór-
sveit Nix Noltes hélt í Evróputúr með
hinni nafntoguðu bandarísku ný-
rokkssveit Animal Collective hinn 8.
þessa mánaðar og voru fyrstu tón-
leikarnir haldnir í Frankfurt. Hinn
10. lék sveitin svo hér í Berlín í kumb-
aldanum Volksbühne, voldugu leik-
húsbákni í dólgakommúnískum stíl
eins og svo margar byggingar í Aust-
ur-Berlín. Tónleikarnir voru vel sóttir
og á að giska þrjátíu Íslendingar í
áhorfendahópnum. Röðuðu þeir sér á
fremsta bekk og hvöttu svo sitt fólk
til dáða, meðal annars með húsvíska
herópinu „Meira pönk, meira helvíti!“
Stórsveitin náði upp góðri stemningu
og fór á flug, sérstaklega undir það
síðasta er hún leyfði sér að toga og
teygja laglínur eftir því sem hentaði.
Þessi íslenska framreiðsla á búlg-
arskri þjóðlagatónlist svínvirkaði líkt
og framreiðsla Hjálma á jamaískri
tónlist. Ég var hins vegar ekki sáttur
við Animal Collective og skil hrein-
lega ekki þessa gríðarlegu hömpun
pittsfork-nörda á téðri sveit
(www.pitchforkmedia.com, sem er
gagnleg en gríðarlega sjálfsupphafin
tónlistarsíða).
Stórsveit Nix Noltes hefur á að
skipa tíu til fimmtán manns, allflestir
lærðir tónlistarmenn eða þá í námi,
og í haust kom út plata með hópnum,
Orkídeur Havaí. Platan fékk lofsam-
lega umsögn í Morgunblaðinu á dög-
unum, fimm stjörnu dóm. Einn með-
lima er Ólafur Björn Ólafsson og eftir
að blaðamaður og Ólafur, einatt kall-
aður Óli Björn, náðu að fara á mis
hvor við annan í eftirápartíi sló blaða-
maður á þráðinn til hans nokkrum
dögum síðar. Þá var hann staddur í
matsölu í Stokkhólmi og svaraði
nokkrum spurningum góðfúslega.
Hrein tónlist
Óli segir sveitina hafa langað til að
klára reisuna heima með ærlegum
stuðtónleikum í Iðnó en reisan hefur
gengið vel.
„Okkur hefur verið vel tekið og
stundum gerir fólk meira að segja til-
raunir til að dansa. Við erum vön því
heima við en það hefur ekki verið of
algengt þegar við spilum úti.“
Eins og áður segir er Animal Col-
lective sjóðandi heitt nafn í neðan-
jarðarheimum og því ekki amalegt að
komast í túr með henni. Óli segir að
nokkrir meðlimir Nix Noltes hafi
komist í kynni við sveitina í fyrra en
þá hitaði Animal Collective upp fyrir
múm. Kristín Anna Valtýsdóttir
múmliði er og í Nix og leikur hún á pí-
anó á nýjustu afurð Animal Collec-
tive, Feels. Animal Collective bauð
svo Stórsveitinni að spila með sér í
New York í febrúar á þessu ári. Stað-
urinn var hinn frægi Bowery Ball-
room og voru áhorfendur um 600.
„Það var alveg ný reynsla þar sem
við vorum vön að spila fyrir u.þ.b. 50
manns á Grand Rokk eða á Kaffi
Kúltúr. Á þessum túr er þetta svolítið
sérstakt þar sem fólk veit ekkert
hverju það á von á. Animal Collective
spilar súrt tilraunarokk og við kom-
um á undan með okkar túlkun á búlg-
arskri tónlist. Sumir halda að þetta sé
bara flipp.“
Óli Björn segir að diskasala á túrn-
um nái slétt upp í bensínkostnað.
Sveitin ferðast um á ellefu sæta
Mercedes Benz sem kallast Highway
Tiger og hefur hann verið sem annað
heimili Nix-liða undanfarið. Gist er á
sem ódýrustum hótelum og þetta er
meira hark en þegar ferðast er með
minni sveitum að mati Óla.
„Þetta er mikil rútína, tónleikar á
hverju kvöldi og við þurfum að halda
þétt á spöðunum. En þetta virkar
mjög vel tónlistarlega séð að hafa
þetta svona samanþjappað og svona
hraða keyrslu á þessu.“
Stefnt er að upptöku á nýrri plötu á
næstu mánuðum og segir Óli að í
túrnum hafi nýtt efni verið að fæðast
og þau hafi verið að keyra það til og
vinna með það á tónleikunum.
„Þetta er allt frekar ólíkt fólk sem
er í sveitinni og það gerir lögunum
gott, við kunnum þetta tuttugu til
þrjátíu lög og við leyfum okkur að
spinna þau að vild. Segja má að þessi
búlgarska þjóðlagatónlist sé grind ut-
an um þær hugmyndir sem við viljum
koma á framfæri hvað tónlist varðar.“
Óli segist hrifinn af þeirri hug-
mynd að fólk úr einum menning-
arheimi leiki sér með tónlistarhefðir
annars, oft komi eitthvað nýtt og
spennandi út úr þess háttar stefnu-
mótum. Þjóðlagatónlist sem slík sé
„hrein“ í vissum skilningi, hún snúist
um þá þörf að tjá sig, koma saman og
gleðjast eða syrgja. Þar liggi rætur
hennar og þessi eiginleiki sé heillandi.
Óli segir að lokum að líklega verði
farið í annan túr með Animal Collec-
tive í mars á næsta ári og þá um
Bandaríkin. Byrjað yrði á South by
Southwest-tónlistarhátíðinni virtu í
Austin í Texas og eftir það yrði leiðin
þrædd upp til New York, heimaborg-
ar Animal Collective.
Tónlist | Stórsveit Nix Noltes með balkanstuð í Iðnó á laugardag
Tilraunir til að dansa
Morgunblaðið/Árni Torfason
Oft kemur eitthvað spennandi út úr því þegar fólk úr einum menningarheimi leikur sér með tónlistarhefðir annars.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Stórsveit Nix Noltes verður með
tónleika núna á laugardaginn í
Iðnó. Gleðin byrjar klukkan 23 og
það kostar 700 kr. inn.
NÝ MYNDASÖGUBÓK sem eftir
Hugleik Dagsson kemur út næst-
komandi föstudag hjá JPV útgáfu.
Bókin nefnist Bjargið okkur og er
seld í forsölu hjá Nexus við Hverf-
isgötu. Verður höfundurinn sjálfur
að árita í versluninni milli kl. 15 og
19.30 í dag. Ennfremur verða til sölu
á staðnum upprunalegar teikningar
listamannsins.
Í bókinni er að finna yfir 200 nýjar
myndasögur Hugleiks. Bjargið okk-
ur er fjórða myndasögubók hans, en
áður eru útkomin verkin, Elskið-,
Drepið- og Ríðið okkur sem JPV gaf
út í haust í einni bók sem ber heitið
Forðist okkur. Leikrit byggt á Forð-
ist okkur var frumsýnt í október og
var uppselt á allar sýningar.
Hugleikur
áritar í
Nexus
Morgunblaðið/Ásdís
Teikningar Hugleiks verða einnig
til sölu og sýnis í dag.