Tíminn - 01.09.1970, Page 3

Tíminn - 01.09.1970, Page 3
TÍMINN r—"—-—-— —> Fundu annað dýnamitbyrgi KJ-Mývatnssveit, SB-Reykjavík, mánudag. Eftir ábendingu 80 ára gam- allar konu í Mývatnssveit í dag, var farið að athuga um annáð dýnamitgeymslubyrgi í landi Geirastaða. Eftir stutta leit, fannst þetta byrgi o<r er það skammt sunnan við byrg- ið, sem áður hefur verið sagt frá og birt mynd af í Tíman- um, og er eins með þetta byrgi og það fyrra, að mjög auðvelt er að komast inn í það. FréttamaSur Tíimans fór að þessu síðara byrgi í dag og skoðaði verksummerki. Þetta er gamall hellir, um 5x5 metrar að stærð, en hæð undir loft er um hálfur annar metri. Cröt eru á byrginu. bæði framan og aftan til, en tnálamyndahurð læst með göthlum og ryðguð- um lás, er á framhlið. Til sín hvorrar handar við þessa hurð, hefur verið hlaðið upp vegg, en hann er nú sums staðar hrun inn, svo auðvelt er að komast þar inn. í þessu byrgi mátti í dag sjá þrjá málmkassa, sem kunnugir segja, að hveUhettSir hafi verið í, og mun einn kass- inn hafa verið óupptekinn, en eitthvað af hvellhettum í hin- um. Ofan á málmkössunum var siðan trékassi, styrktur með járni úr oliudósum og skiptist kassinn í 10 hólf og á honum var sérstök ól. Mátti sjá í hólfunum hvell- hettuþræði, rauða að lit og segja þeir, sem til þekkja, að þetta sé hvellhettukassinn sem notaður var, þegar framkvæmd ir vóru við Mývatnsósa, í landi Geirastaða. Þess má geta, að venjulega eru hvellhettur og dýnamit geymt á sitt hvorum staðnum og kemur það hér heim og saman, að Laxárvirkjun hefur geymt dýnamitið í öðrum helli, nær Geirastöðum, en hvellhett urnar í þessum og frá því fram kvæmdum lauk við Miðkvísl, hefur greinilega ekki verið hreyft við þessum hellum af hálfu Laxárvirkjunar. Mývetningar tilkynntu yfir- völdunum um fund þennan í dag og mun þessi fundur sjálf sagt hafa sitt að segja í Mið- kvíslarmálinu svonefnda. Réttarhöld Framhald af bls. 1 sem skrýtin leið væri farin, þvi melð því að fara norður fyrir vatn- ið, fóru þeir um 30 km krók. Dóm- arinn skoðaði verksummerki við Miðkvisl með tilsögn Jóns Haralds sonar, en að lokiimi skoðun, var haldið til félagsheimiiisins í Skiól brekkn. Þar hófst eins og áður seg ir réttarhald í Miðkvíslarmálinu og kom fyrstur fyrir réttinn Jón Haraldsson, stöðvarstjóri £ Laxár- virkjun. Fyrir réttinn kom auk Jóns í dag, tveir lögreglumenn frá Húsavfk, sem komu á staðinn á þriðjudagskvöldið og sr. Örn Frið riksson, sóknarprestur á Skútu- stöðum, en hann tók myndir, er Mývetningar og aðrir Þingeying- ar hófa aðgerðir við Miðkvísl á þriðjudaginn Lögð var fram ein mynd fyrir réttinum, en sr. Örn mun leggja fram við réttarhöldin á morgun fleiri myndir af atburð inum. Þá voru í dag lögð fram nokkur skjöl við réttarhaldið og sagði Steingrímur Gautur Krist- jánsson, fréttamanni Tímans, sem staddur er í Mývatnssveit, að ann- að skjolið hefði verið undirritað af 88 mönnum, en hitt af 82. Það skjal, sem 88 menn rituðu undir, var á þá leið, að sögn Stein gríms að þeir, sem undir rituðu hefðu verið viðstaddir athurðinn á þriðjudagskvöld og segja iafn- fram, að mannvirkin við Mið- kvísl hafi verið reist án leyfis. Þá segir í yfirlýsingunni, að allt framferði Laxárvirkjunarstj órnar í þessu máii, sé lagabrot. Síðar í yfirlýsingunni segir, að þeir telji það fráleitt, að fyrirskipa ouinbera rannsókn í máli þessu, en vísa beri því til skipaðra sátta- semjara, sem eru Jóhann Skapta- son, sýslumaður á Húsavík og Ófeigur Eiríksson, bæjarfógeti á Akureyri. í seinna skjalinu, sem undirrit að er af 82 mönnum, Mývetning um og öðrum Þingeyingum og fólki annars staðar að af landinu, segir orðrrétt: — „Við undrrituð studdum framkvæmd þess verkn- aðar, er framinn var við Miðkvisl, 25. áa'úst 1970 og veittum því lið- sinni í orði eða vt;i'ki.“ Þá sagði Steingrímur Gautur, að fleiri vitni yrðu leidd á morg un og mun hann þá hafa átt við, að það sé vitni, sem aðild áttu að atburðinum við Miðkvís.’ á þriöju- daginn. Aðspurður sagði Stein grímur Gautur, að rannsoknin í sambandi við dýaamitið, beindist að því hvar dýnamitið hefði feng; izt. Hætt kominn Framhalo af bls. 8 f inn mun hafa losnað, án þess að félagarnir yrðu þess varir, en bátinn fyllti og hvolfdi honum. Jóni tókst að ná landi, en Markús barst niður Stórafoss og hlaut höfuðhögg og skrámur. Neðan við fossinn voru menn að veiða og höfðu þeir tiltækan bát, rerci út og náðu Markúsi, setn síða-n var fluttur á sjúkrahúsið á Húsavík. Talið er að vöðlur miklar, sem hann var í og náðu upp undir hendur, hafi komið í veg fyrir, að hann sykki. ti ^ Flugvél Flugfragts affermd á ftugvellinum viS Sauðárkrók. HEIMILISTÆKI FLUTT BEINT ÚT Á LAND I inn vafi á því að hér er mjög I og samgöngumálum fyrir dreif- I merk tilraun að ræða í flutninga I býlið. GAMLIR RUGGU- STÓLAR BEZTA SÖLUVARAN GÓ-Sauðárkróki. Flugvél frá fyrirtækinu Flug- fragt, kom hingað til Sauðárkróks s.l. laugardag. Vélin flutti farm af heimilistækjum frá A.E.G. í Vestur-Þýzkalandi. Bræðurnir Ormsson h.f., sem hafa umboð fyrir A.E.G. á íslandi, gerðu tilraun með þessa flutninga nú fyrir skömsnu. Var þá flogið beint til Reykjavíkur. Sú tilraun gaf géða raun. Verðið reyndist svipað, og stafar það af minni um búðakostnaði og ýmiskonar hag- ræðingu sem leiddi til verðlækk unar hjá framleiðendum. Líkur á skemmdum eru mikið miuni en í skipafragt. En þessar vörur eru mjög viðkvæmar í flutningi. f þessari ferð. sem nú var farin var farið með fisk út. og síðan fullfermi af vörum frá A.E.G. í Niirnberg og Rotenbiirg beint til Egilsstaða, Akureyrar, Sauð- árkróks. Hingað flutti vélin eldavélar, þvottavélar, kæliskápa og frysti- kistur til Kaupfélags Skagfirðinga. Hugmyndin er að framhald verði á þessum flutningum. Er þetta í fyrsta skipti, sem vöruflutningaflugvél kemur hing- að með vörur beint frá framleiðslu fyrirtækinu erlendis, og er eng- SYNIR A MOKKA FB-Reykjavík, mánudag. Sigurþór líiríksson hefur opnað sýningu á Mokka. Á sýningunni eru 18 myndir, aðallega vatnslita myndir, og eru þær allar til sölu. og verðið frá 1000 í 2500 króniir. Sigurþór er skrúðgarðameistari, en hefur lagt stund á málaralist sér til dægrastyttingar og ánægju. Hann hefur ekki áður haldið einka sýningu ,en hins vegar einu sinni tekið þátt í samsýningu Frístunda mðlara. — Myndin er af einu lista verkanna. (Tímacnynd — GE) SB-Reykjavík, mánudag. Verzlunin Antik-húsgögn, sem opnuð var fyrir ári I Síðu múla 14, er nú flutt í Nóatúns- húsið. Jafnframt hefur fjöl- breytni vörunnar þar aukizt tals vert, því að nú fást þar ásamt gömlum gripum, blóm og minja gripir. Eigandi Antik-húsgagna er Gunnar Jóhannsson, en í ráði er að stofna á næslunni hlutafélag um verzlunina. Antik-húsgögn er fyrsta fyrir tækið, sem flytur í 3ja áfanga Nóatúnshússins, en væntanlega munu verða þar 10 fyrirtæki til viðbótar þeim 15, sem þeg- ar eru í fyrri áföngunum tveim ur. Nóatúnshúsið verður þá orðið eins konar alhliða þjón- ustumiðstöð. Þar eru skóvinnu stofa, fatahreinsun. hárgreiðslu stofa, auk fjölda sérverzlana og kjörbúðar. Antik-húsgögn hafa fengið þarna 150 fermetra húsnæði, og þar er vel fullt inni, af ; gömlum dýrgripum og blómum, en þarna verður einnig útibú frá Blómaverzluninni Dögg i Álfheimum. Gunnar Jóhanns- son, eigandi Antik-húsgagna, sagði í dag á fandi með frétta- mönnum, að þetta nýja hús- næði væri í alla staði mun hag kvæmara en hið fyrra, þar sem það var á annarri hæð og flytja varð öll húsgögn upp og niður stiga. Þarna er verzlunin hins vegar á jarðhæð og meira mið svæðis í bænum. Þá sagði hann, \ að áhugi á gömlu húsgögnun- ! um færi vaxandi. sérstaklega [ meðal ungs fólks. og nú vildi það helzt hluti, sem væru raun verulega gamlir, en e'kki eftir- líkingar. Fólkið kemur hérna oft til að fylgjast með, hvort komið hefur eitthvað „nýtt“ gamalt. Þetta er mikið sama fólkið, sem skiptir við okkur. Gunnar sagði og, að hlutirnir væru mestmegnis úr Reykja- vík, en þó svolítið utan af landi. ALlt er tekið í umboðs- sölu og aðeins eslt gegn stað- greiðslu. Það er eins gott að hafa með sér nóg í buddunni, þegar maður verzlar í svona verzlunum, því dýrgripir eru að sjálfsögðu dýrir. Nýlega seldi Gunnar danskar borðstofu mublur, borð og sex stóla, fyrir 190 þús. kr. Þarna getur að líta fagurlega útskorna skápa með speglum, margs konar stóla og smáborð, vasa og kaffi- stell, veggteppi og myndir, allt gamalt, en auk þess selur Gunnar nýsmíðuð húsgögn frá Trésmiðjunni Kvisti. Töluverð hreyfing er alltaf á þessu, sagði Gunnar, — og alltaf kæmi nýtt í hverri viku og alltaf seldist. Mesta eftirspurnin er eftir gömlum ruggustólum, og þá gömlum í „alvörunni" en ekki þeim sem líta bara þannig út. Einstakir útskornir stólar eru líka alltaf vinsælir og standa sjaldan lengi við. Verzlunin Antik-húsgögn i Nóatúnshúsinu. Hátúni 4a, verð ur opin alla virka daga frá k’. 10,00—18,00, laugardaga frá kl. 10,00—22,00 og sunnudaga frá kl. 13,00—22,00. Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.