Tíminn - 01.09.1970, Blaðsíða 6
6
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 1. september 1970.
UMSJÓN: ÞORSTEINN EGGERTSSON OG EINAR BJÖRGVIN
250 erlendir og innlendir
listamenn á pop-festival
- PLATAN RENNUR ÚT SEM
HEITIR HAMBORGARAR
Pop festivalplatan sem Tónaútgáfan gaf út fyrir skömmu, og svo
mikið hefur verið um rætt, hefur selzt mjög vel það sem af er. Við
náðum 8.1. fimmtudag tali af Jóni Ármannssyni, framkvæmdastjóra
Tónaútgáfunnar og var gott hljóð í honum. Platan var í fyrstu gefin út
í tvö þúsund eintökum, en nú virðist allt benda til þess, að það verði
að auka eintakafjöldann.
Það er engin furð-a þótt þeir
em unna góðri pop-músík sæk-
st eftir að eignast þessa plötu.
'ins og raunar var gert ráð fyrir
r hér um vandaða og fjölbreyti-
SÍN
AllsherjarfriSur á jörðu er
stórt og göfugt takmark, en
enn eru margar hindranir, sem
ryðja þarf úr vegi, áður en
það næst: Nýlega lentu tveir
litlir strákar í hörkuslagsmál-
um. Þetta var á mótmælafundi
gegn atómsprengjum og tilefni
slagsmálanna var rifrildi þeirra
um, hvor ætti meiri friðar-
sinna fyrir föður.
ÖGNIN
Hin vinsæla útvarpsstöð
„liadio Luxemburg" er nú í
mikluim vanda stödd, ásamt
fleiri „POP-útvarpsstöðvum“,
vegna þess að Brezka Ríkisút-
varpið (BBC) hefur nú í hyggju
að taka upp auglýsingar til út-
varpsfi’utnings.
Ef til þess kemur, spá sumir
Radio Luxembórg hry’lilegum
dauðdaga.
AF
Ung borgarstúlka var uppi í
sveit og gaf sig á tal við
bónda. — Hvað áttu margar
kýr og hænsni? spurði hún.
Bóndinn reyndi að leika svo-
litið á stúlkuna og svaraði, að
kýrnar sínar og hænurnar
hefðu til samans 36 hausa og
iöö fætur. Stúlkan fór að
reikna og fann svarið eftir svo
litia stund. Hvað getið þið ver
ið fliót?
HVERJU?
Sex sinnum sjö eru fjörutíu og
tveir.
lega LP-pJötu að ræða og;þá at-
hyglisverðustu, sem gefin hefur
verið út hér á landi að öðrum
ólöstuðum. Þrátt fyrir góða múáík
skal þess fyrst getið hér, hvað
plötuumslagið er smekklega unn-
ið. Eiga þeir sem að stóðu, heiður
skilinn fyrir framtak sitt.
Það að gagnrýna þessa pJötu
fellur ekki undir verksvið þessa
báttar, það verður gert í öðrum
þætti í blaðinu. Hins vegar er |
ekki úr vegi að spjalla lítillega!
um hana. Ef við byrjum á hlið
A heyrum við þann kunna Björg-
vin Halldórsson syngja lagið
Komdu í kvöld ástin mín, við
AHt virðist nú benda
til þess að Btlarnir séu ekki
hættir fyrir fullt og allt, þótt
áhugamál þeirra hafi beinzt
sitt í hverja áttina.
Paul McCartney gerði sér
fulla grein fyrir því, þegar
hann sagði upp stöðunni, að
hann gæti ekki sagt skilið við
Bítlana fyrir fullt og allt, þar
sem hann er samningsbundinn
við plötusamsteypuna EMI
(Apple tilheyrir þeirri sam-
steypu á pappírunum) nokkur
ár ennþá.
George Harrison er meira að
segja svo bjartsýnn, að hann
hefur látið hafa eftir sér eftir-
farandi: „Þegar Bítlarnir byrja
upp á nýtt, eiga þeir eftir að
vinna sinn stærsta sigur hing
að til“.
Að Ringó Starr undantekn-
um hafa allir Bítlarnir áhuga
á því að koma einhverntíma
fram aftur opinberlega, en
hvort að af því verður nokk-
urntíma, getur tíminn einn
skorið úr um.
John Lennon hefur nú stofn-
að eigið plötufyrirtæki ásamt
konu sinni Jóku Ónæðis. Fyrir-
tækið heitir einfaldlega BAG
(poki) og fyrsta platan, sem
þau hjónin hljóðrituðu þar var
í hæsta máta nýstárleg: tveir
simpansar (Bugsy og Rosie)
spiluðu á píanó en hjónin
sungu undir — eitthvað, sem
þeim datt í hug um leið.
Yoko 09 John Lennon
Ekki veit ég hvort upptakan
hefur heppnazt vel, en ég hef
ekki heyrt plötuna auglýsta
ennþá.
„Allt þrasið um framtíð Bíti-
anna byrjaði með plötunni
REVOLUTION (það þýðir „bylt
ing“ og befur tvisvar verið
sett á hljómplötur af Bítlun-
um — og í mismunandi útsetn-
ingum). í mínum augum var
það lag ekki bara bakhliðin
af plötunni „Hey Jude“, held-
ur annað og meira“, segir John.
Það er mjög ólíklegt að
John og Paul muni aftur vinna
saman sem laga- og textahöf-
undar, en ennþá eru til nokkr
ar uppptökur af lögum, sem
aldrei hafa komið á mark-
aðinn með Bítlunum.
Hver veit nema þau verði
sett á markaðinn innan tíðar?
Björgvin Halldórsson
undirleik brezkrar hljómsveitar.
Þetta lag er farið að heyrast við
og við i hljóðvarpinu og á eftir
að heyrast oftar. Næstir koma
sv« Blues Company og Erlendvr
Svavarsson með annan ástaróð.
Lagið er fyrir þá sem unna „frum-
lagheitum", neita öllu „commer-
cial“. Þá koma Heiðursmenn næst
ir með enn einn ástaróðinn, síð-
an að mörgu leyti kollegar þeirra
Júdas og fjalia um vonleysi ást-
arinnar. Sá horfni-af-sviðinu Jónas
R. Jónsson, núverandi verzlun-
stjóri, kemur vel fyrir með
Kanntu að læðast, undirleikinn
annast brezk hljómsveit, en text-
inn rammíslenzkur, enda eftir
Birgi Marinósson — og Guðmund-
ur Haukur syngur að lokum óð
Til hafsins.
Snúum við svo þessari ágætu
plötu við, hlustum við fyrst á
Þú gafst mér svo mikla gleði með
hinum horfnu Dúmbó — að sjálf-
sögðu annast Guðmundur Haukur
sönginn. Ef við hlustum á LP-
plötu nr. 2 með því ameríska
„Blóði sviti og hár“, hljómar sama
lagið. Þá er Rúnar Trúbrotsaðili
Júlíusson þarna með söng við und
irleik brezkrar hijómsveitar. nefn
ist lagið á íslenzku „Takmörk“
— og þess má geta að textinn
sem er „uppreisn móti íhaldinu",
er eftir Rúnar kappann sjálfan
og svo Þorstein Eggertsson, sem
nú mun dveljast í þeirri umræddu
V-Berlín. Þá syngur Bjarki
Tryggvason einnig við undirleik
brezkrar hljómsveitar, lagið Ást
við fyrstu sýn og að lokum eru
hinir gamalkunnu Pónik og Einar
með lagið Mundu þá mig.
Þá eru lögin á plötunni upp-
talin. „Tilgangurinn með þessari
hljómplötu er að kynna vandaða
og fjölbreytta poptónlist, flutta af
þekktum listamönnum, erlendum
og innlendum, um 250 talsins“.
Þetta ritar Jón Ármannsson m.
a með plötunni Tilgangurinn hef
ur tekizt. Sá sem ekki hlustar á
þessa plötu fer á mis við ýmis-
legt sem er að gerast í pop-tón-
listinni hérlendis.
Ernir hrista af sér rykið
Nýjar hljómsveitir skjóta oft
upp kollinum hérlendis, en marg-
ar þeirra iognast fljótlega útaf.
Að þessu sinni hefur þó skotið
upp kollinum hljómsveit, sem ef-
laus mun halda veUi fyrst um
sinn. Sú sem hér um ræðir,
nefnir sig ERNIR. Eflaust kann-
ast margir við þetta hljómsveit-
amafn, enda var hljómsveit undir
þessu nafni, í góðu gengi fyrir
nokkrum árum. Nú hafa þrír að-
ilar þessarar hljómsveitar komið
saman á nýjan leik, ásamt einum
í viðbót.
Þeir, sem hér um ræðir, eru Ingvi
Guðjónsson, sem er aðalsöngvari
hljómsveitarinnar og leikur jafn
framt á rytmagítar. Ingvi lék fyr
ir þrem árum með hljóm-
sveit, er nefndi sig „Flintstones“
Síðan koma fyrrverandi Ernir:
Jón Garðar Elísson, sem leik
ur á bassa og tekur oft undir
með Ingva, Haraldur Bragason,
sem leikur á sólógítar og syngur
einnig — og að lokum trommar-
inn Gunnar Þór Kárason.
EQjómsveitin hefur nú æft í
rúman mánuð, og kom fyrst fram
á KeflavíkurflugveUi s. 1. mið-
vikudagskvöld, þar sem góður
rómur var gerður að tónlistar-
flutningi þcn.a.
Á fimmtudagskvöldið hlustuðum
við smátíma á þá félagana þegar
þeir voru að æfa í Breiðfirðinga-
búð, Kváðust þeir taugaóstyrkir
við komu blaðamanna með gagn-
rýnendasvir. Sar-.t léku þeir fyrir
okkxu- nokkur nýjustu lögin, og
sannast að segja tókst sá flutning
ur mjög vel hjá þeim félögunum.
OG ENNÞÁ NÝJAR FURÐU-
SÖGUR AF BÍTLUNUM