Tíminn - 04.09.1970, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 4. september 1970.
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
KR fær liðsauka
Hinn ungi og brá'ðefnilegi
kröfuknattleiksmaður úr Ár-
manni og unglingalandsliðinu,
Magnús Þ. Þórðarson, sonur
Þórðar B. Sigurðssonar sleggju
kastara úr KR, hefur tifkymnt
félagaskipti til KKR.
Hans nýja félag er KR, en
fyrir það félag hefur hann
keppt í frjálsum íþróttum und-
anfarin ár.
Kemur hann áreiðanlega til
að styrbja KR-liðið mikið í vet
ur. en hann mun verða einn
hæsti maður liðsins 198 cm
á hæð.
Á sunnudag fer fram á
velli golfklúbbs Leyais á Akranesi
fyrsta opna golfkeppnin þar
Keppnin hefst kl. 10,30 f.h. og
verða leiknar 18 holur með og
án forgjafar. í báðum flokkum er
keppt um veglega verðlaunagripi
sem gefnir hafa verið af Sements-
verksmiðju ríkisins.
Golfáhugamenn á A'kranesi hafa
lagt mikið á sig til að vinna upp
skemmtilegan golfvöll og hefur
þeim tekizt það með ágætum. Er
vonandi að sem flestir golfmenn
taki þátt í þessari fyrstu opnu
keppni þeirra.
★ í dag verður vígður nýr
golfvöllur að Laxnesi í Mos-
fellssveit. Er það 6 holu völlur,
sem verður stækkaður næsta sum
ar í 9 holúr.
Staðurinn, þar sem völlurinin er,
er mjög vel falSnm til að gera góð-
an golfvöll, og eflaust verður hann
íbúum sveitarinnar kærkomin
upplyfting.
Hinn nýi klúbbur mun bera nafn
ið Golfklúbbur Laxness og verður
hann í nánum tengslum við hesta
mennskuna, en þar eru einnig
Til hamingju með sigurinn
Þetta eru hinir nýbökuöu sigurvegarar í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu, BreicSablik úr Kópavogi, sem
leika í 1. deild næsta ár. BreiSablik er vel aS sigrinum í deildinni komið, því þar hefur liðið borið af og ekki
tapað leik, en gert 2 jafntefli. Markatalan er mjög hagstæð, en liðiS hefur skorað 32 mörk í 12 leikjum og að-
eins fengið á sig 4.
Enska knattspyrnan
leigðir út hestar. Það má því
segja að hér sé kominn vísir að
hinum vinsælu „Country Clubs“
sem víða eru þekktir erlendis.
Vígslan í dag hefst kl. 17,00
með 9 holu keppni, og eru allir
golfmenn, er áhuga hafa, vel-
komnir til hennar.
LEIÐRÉTTING
Á íþróttasíðunni í gær rugl-
uðust myndatextar með tveim
myndum af hinum ungu golf-
leikurum. sem taka þátt í af-
rekskeppni FÍ. sem fram fer
á Ness-vellinum á laugardag.
Undir mynd af Lofti Ólafs-
syni stóð að þetta væri Björgv-
in Þorsteinssom, en átti að vera
öfugt. Eru hlutaðeigendur beðn
ir velvirðingar á þessu.
Coventry keypti í vikunni ung-
lingalandsliðsmanninn Wilf Smith
frá Sheff. Wed., og var kaupverðið
100 þúsund sterlingspund, sem er
mjög hátt verð fyrir bakvörð, en
þeir eru í heldur lægra verði en
framlínumennirnir.
Smith, sem af mörgum er talinn
einn efnilegasti bakvörður Eng-
lands, fékk fyrir skömmu tilboð
frá Chelsea, en hann þáði þáð
ekki, því hrifning hans af London
var takmörkuð, og mikið dýrara
að lifa þar en annars staðar í
Englandi.
Hann lék í gær sinn fyrsta leik
með Coventry á móti Derby á
heimavelli hinna síðarnefndu. en
varð að yfirgefa völlinn fljótlega
vegna meiðsla. Coventry sigraði
í þeim leik 4:3.
Önnur úrslit í 1. deild í Eng-
landi í vikunni urðu þessi:
West Ham — Southamt. 1:1
Arsenal — Leeds 0:0
Burnley — Chelsea 0:0
Huddersfield — Tottenham 1:1
Ipswich — Wolves 2:3
Christal P. —- Blackpool 1:0
Manch. Utd. — Everton 2:0
Stoke — Nott For. 0:0
West Brom. — Newcastle 1:2
Everton tapaði þarna fyrir
Manch, Utd. og hefur ebki sigrað
í leik í 1. deild það sem af er
keppnistímabilinu, og Leeds tap-
aði sínu fyrsta stigi á móti Arse-
nal.
Millilillllllllllllllllllillllllllilllllllllllll!llllllilllllilllllllll!llllilllllll!llll!lllilillllinillllllllilli!!lll!!llllllllllllllllllllllllíllllllllll!llllllllll!lllllllll(||||||||||^
ss — Varaðu þig, Watts. Fljótur. Silfri.
— Hlauptu til mín, Watts, og gríptu í
hendina á mér! — Brad, þessi reiðmað-
ur . . . — Hann nær ekki nógu fljótt til
mælingamannsins.
(— Eg var allan daginn á ströndinnil — Allt í lagi, Joy. — Gæti ég fengið fröken. Faðir yðar sagði því lausu.
(— Það var nærri dimmt, þegar ég kom lykilinn minn. Ég man ekki herbergis- — Það getur ekki verið. Hvert fór hann? —
heim á liótelið). — Sé ykkur á morgun- númerið. — Þér hafið ekkert herbergi, — Hann sagði ekkert um það. ~
ímiiiiuiiuiuiiimmsiiiuiumiiilluiiiituiiiiiiiiuuiUlilinilulllllllttllillllllttUIUIIUIUaUIIUHUiliilllimSHilfilllllliilllliilliiliilllIlllillSliilllllllinitllfrH
9
SJÓNVARP
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20-30 Varmi og vitamín
Mynd þessa lét Sjónvarpið
gera í Hveragerði í sumar.
Kvikmyndun Sigurður Sverr-
ir Pálsson.
Umsjónarmaður Markús Örn
Antonr on.
21.15 Skelegg skötuhjú
(The Avengers)
Tígrisdýr í leynum.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.05 Erlend málefni
Umsjónarmaður Asgeir
Ingólfsson.
22-30 Dagskrárlok.
HLJÓÐVARP
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir. Tónleikar.
7.30 Fréttir. Tónleikar. 7.55
Bæn. 8.00 Morgunleikfimi.
Tónleikar. 8.30 Fréttir og
veðurfrengir. 8.55 Spjallað
við bændur. 9.00 Frétta-
ágrip og útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morgunstund barnanna:
Sigríður Eyþórsdóttir les
söguna: „Heiðbjört og and-
arungarnir“ eftir Frances
Duncombe (11) 9.30 Tilkynn
ingar. Tónleikar.
Fréttir. Lög unga fólksins
(endurt. þáttur/G.G.B.)
12.00 Hádegisútvarp.
Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar. 12.25 Fréttir og
veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.00 íiúsmæðraþáttur.
Dagrún Kristjánsdóttir talar.
13.15 Lesin dagskrá næstu vibu.
13.30 Eftir hádegið.
Jón Múli Árnason kynnir
ýmiss konar tónlist.
14.40 Síðdegissagan: „Katrín“ aft
ir Sheilu Kaye-Smith.
Axel Thorsteinsson þýðir og
les (10).
15.00 Miðdegisútvarp.
Fréttir. Tilkynningar. Klass-
ísk tónlist:
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
(17.00 Fréttir).
17.30 Til Heklu.
Haraldur Ólafsson les kafla
úr ferðabók Alberts, Eng-
ströms í þýðingu Ársæls
Árnasonar.
18.00 Fréttir á ensku.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagsbrá
bvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Daglegt mál.
Magnús Finnbogason rnagist
er talar.
19.35 Efst á baugi.
Rætt um erlend málefni.
20.05 Létt músík frá Rúmeníu
20.30 Ríkar þjóðir og snauðar. _
Björn Þorsteinsson og Ólaf
ur Einarsson taka saman
þáttinn.
20.55 Strengjakvartett eftir Benja
min Britten.
21.30 Útvarpssagan: „Brúðurin“
eftir Fjodor Dostojefskij.
Málfríður Einarsdóttir
þýddi, Elías Mar les (4).
22.00 Fréttir.
21.„J Hanna Bjarnadóttir syngur
þrjú lög eftir Skúla Hall-
dórsson:
22.15 Veðurfreignir.
Kvöldsagan: „Lifað og leik
ið“
Jón Aðils les úr endurminn
ingum Eufemíu Waage (5).
22.35 Frá hollenzka útvarpin.
Hollenzka útvarpshljómsveit
in leibur „Tokötu fyrir
píanó og hljómsveit“
23.25 Fréttir í stuttu máli.