Tíminn - 24.09.1970, Síða 12

Tíminn - 24.09.1970, Síða 12
ÍÞRÓTTIR 12 TÍMINN ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 24. september 1970. SPARTA SKAUT ÍA í KA Þrátt fyrir 10 manna vörn urðu Akurnesingar að sækja knöttinn 6 sinnum í netið, í sínum 1. leik í Evrópukeppninni klp—Reykjavík. Hinn stórglæsilegi knattspyrnu- völlur Feyjenoord í Rotterdam í Hollandi þar sem nýlega var háð ur úrslitaleikurinn í lieimsmeist- arakeppni félagsliða milli Feyjen- oord og Estudiantes frá Argen- tínu, liefur ekki verið nein para- dís fyrir islenzka knattspyniu- menn til þess. Fyrir rétt einu ári síðan mátti KR þola þar eitt mesta tap, sem félagið hefur orðið fyrir í keppni við erlent lið á erlendri grund, er það tapaði fyrir Feyjenoorö í Evrópukeppni meistairaliða 12:2, og í gærkvöldi fékk Akranes þá verstu útreið, sem það hefur orð ið fyrir í mörg ár, er það tapaði fyrir Sparta 6:0 í Borgakeppni Evrópu. Það er ekki hægt að segja að útkoma íslenzku liðanna í Evr- ópukeppninni að þessu sinni, sé glæsileg, því eftir 4 leiki er marka talan 26:3 hinuim erlendu keppi- nautum í vil. Leikurinn í gær var dæmigerð- ur leikur áhugamanna við at- vinnumenn. Skagatnenn léku hreinan varn- ai'leik, með allt að 10 mönnum 1 vörn, og að sögn blaðamanns hjá Niewe Rolterdamse í Rotterdam, sem við, töluðum við í gærkvöldi, hefðu Íslendingarnir lítið getað sýnt vegna þess og tækifæri þeirra verið sárafá og heldur léleg. Þeir hefðu leikið tneð 10 manna vörn, en þrátt fyrir það þurfti að sækja kaöttinn þrisvar sinnum í hvorum hálfleik í netið. Mark- vörðurinn Einar Guðleifsson hefði verið langbezti maður liðs- ins og oft varið stórglæsilega. Hann hefði líka haft nóg að gera ásamt Þresti Stefánssyni, en sá síð arenfndi þó aðallega við að spyrna frá marki, því Spörtumenn hefðu verið óhittnir í meira lagi, enda óvanir því að standa allir fyrir utan vjtateig og geta skotið að vild. Þcgar á 2. mín leiksins skoraði annar bakvörður Spörtu með skoti af löngu færi, og síðan kom annað markið á 11. min. einnig með föstu skoti og iþað þriðja á 36.- mín. og auðvitað með þrumuskoti. f síðari hálfleik kom ekkert mark fyrr en á 25 mín. er- Daninn Jörgen Ohristiansen skoi-aði eftir einleik í gegnum vörnina, og 5 mín. síðar lék hann aftur eins í gegnum vörina en þá var honum brugðið innan vjtateigs og víta- spyrna dæmd, sem skorað, var úr, og þar með var staðan 5:0. Rétt fyrir leikslo'k skoi-uðu svo Spörtu- menn sjötta markið, og varð það jafnframt síðasta mark þeirra í lei'knum. Blaðamaðurinn, sem við töluð- um við vildi litið ræða um Afcur- nesingana — sagði að ekkert væri hægt að segja um lið, sem léki með 10 manna vörn, því enginn gæti hreyft sig í þeirri mann- mergð, og því ekkert hægt að dæma um getu einstakra leik- manna, en markvörðurinn hefði þó verið ábei-andi beztur. Á þriðjudaginn í næstu viku mætast Sparta og Akranes aftur, og þá á leikvelli ADO í Haag, en ADO oa Sparta hafa nú forystu í 1. deildarkeppninni í Hollandi, hafa bæði hlotið 10 stig eftir 5 leiki, en Feyjenooi'd 9 stig. NGREGUR SIGRAÐI Noregur sigráði Danmörku í landsleik í knattspyrnu, sem frdm fór á Idrætsparken í Kaupmanna- höfn í gærkvöldi með einu marki gegn engu. Sigurmarkið var skoráð á 1. mín. fyrri hálfleiks, og var það Odd Iversen, seni er nú atvinnu- maður með belgísku liði, sem skoraði markið. Handknattleiksvertíðin 1971 hafin: A og B landslið karla leika fyrsta leikinn klp—Rey kj av ík. f kvöld fer fram í íþróttahús- inu á Seltjarnarnesi fyrstu stór- leikir handknattleiksársins 1971, sem nú er að hefjast. Er það fyrst úrslitaleikur Gróttumótsins í handknattleik kvenna milli aVls og Fram, en þessi -sömu lið léku einnig til úrslita í því móti í fyrra, og þá sigi'áði .Fram, en síðan fer fram leikur cnilli A og B landsliðs karla. Landsliðsnefnd HSÍ valdi A lið- ið, en þeir Reynir Ólafsson og Pétur Bjarnason B liðið, og eru þau þannig skipuð: A liðið: Emil Karlsson, KR ; Birgir Finnbogason, FH Axel Axelsson, Fram Éinar Magnússon, Víking Bjarni Jónsson, Val Ólafur Jónsson, Val Páll Bjöx-gvinsson, Víking Viðar Símonai’son, Haukum Stefán Jónsson, Haukum Geir Hallsteinsson, FH Auðunn Óskarsson, FH Sigurbergur Sigsteinsson, Fram. B-lið. Guðjón Erlendsson, Fram Pétur Jóakimsson, Haukum Bergur Guðnason, Val Örn Hallsteinsson, FH Þórarinn Tyrfingsson, ÍR Ágúst Svavarsson. ÍR Björgvin Björgvinsson. Fram j Ólafur Ólafsson, Taukum Gunnsteinn Skúlason, Val Sigurður Jóakimsson, Haukum Guðjón Magnússon, Víking Hörður Kristinsson. Ármanni Af þeim leikmönnum íslenzka laijdsliðsins, sem léku í HM-keppn inni í Frakklandi s. 1. vetur eru 5 menn, sem eru með hvorugu þessara liða. þeir Þorsteinn Björnsson, Hjalti Einarsson. Ing ólfur Óskarsson, Sigurður Ein- ai'sson, sem var valinn en gat ekki leikið og Jón Hjaltalín, sem er erlendis. Það sem mesta athygli vekur í sambandi við valið á liðunum, er að Ingólfur Óskarsson skuli ekki vera valinn í hvorugt þeirra, og einnig að Hörður Kristíns son skuli vera valinn í B-liðið, en hann hefur ekkert leikið með íslenzkum liðum í mörg ár, en er nú sagður í mjög góðri æfingu. Búast má við skemmtilegum leikjum j kvöld, en fyrri leikur inn hefst kl. 20,00. Ársþing Ársþing Frjálsíþróttasam bands íslands 1970 fer fram í Reykjavík dagana 14. og 15. nóv. n. k. Þau mál og tillögur, sem sam bandsaðilar ætla að leggja fyrir þingið þurfa að berast tveimur vikum fyrir þing. Stjórn F.R.Í. Hörður Kristinsson, Ármanni leik ur með B-landsliðinu í kvöld. Handalögmál á götum úti milli Arsenal og Lazio Kjærbo & Co. í eldlínunni Keppa í HM í golfi, sem hefst í Madrid á Spáni í dag Eftir leik miili ítalska knatt- spyrnuliðsins Lazio og enska liðs ins Arsenal í Borgarkeppni Evr- FH Þróttur 0:4 klp—Reykjavík. Einn leikur fór fram í 2. deild i knaltspyrnu í gærkkvöldi. FH lék við Þrótt í Hafnarfirði og lauk leiknuni með sigri Þróttar 4:0. I hálfleik var staðan 2::0. Mörk Þróttar skoruðu Kjartan Kjartans son 1 og Helgi Þorvaldsson 3. Tveir leikir eru enn eftir í 2. deild. Selfoss—FH og IBÍ— Breiða blik og munu þeir fara fram ein- hverja næstu daga. rópu, sem frain fór í síðustu viku í Róm, endaði með jafntefli 2:2 En eftir veizlu, sem Lazio hélt leikmöunum Arsenal gerðist það, að leikmöunum beggja liða lenti saman í slagsmálum á götu úti, og þurfti að kalla út lögreglu til að skilja þá. ítalarnir hafa nú hótað að mæta ekki í síðari leikinn, ef Arsenal leikmennirnir biðji ekki opinbei’lega afsökunar á fi'am- ferði sínu, og þeim ummælum, sem þeir létu falla um liðið. leik menn þess og ítalska knattspyrnu. Ritari Arsenal, Bob Wall, seg ir að Lazio mæti til leiksins, en ekkert verði af bví að Arsenal leikmennirnir biðjist afsökunar, því þessi slagsmál hafi alveg eins verið leikmönnum Lazio að kenna. f dag hefst í Madrid á Spáni heimsmeistarakeppnin í golfi, eða „Eisenhowerkeppnin“ eins og hún hefur verið nefnd frá uppliafi. og mun hún standa yfir í fjóra daga. í keppninni taka þátt að þessu sinni 39 þjóðir, og sendir hver þjóð fjögurra manna sveit og er ísland meðal þeirra. Fyrirkomu- lag hennar er þannig áð bezta skor (eða fæst liögg) þriggja manna í hvei-ju liði er lagt sam- an eftir hvern dag, en leiknar eru 18 holur á dag, og það lið sigr- ar, sem fer á fæstum höggum. Keppnin fer fram á Puei'to de Hirro go.'fvellinum i Madrid, sem er 18 ho!u völlur 6340 metra lang ur, og er gefinn upp, sem par 72, en með þvj er átt við að góður golfleikari geti leikið hann á 72 höggum Þcssi keppni hefur verið haldin annað hvert ár, o.g.hafa úrslit orð- ið þau í siðustu keppnum ,að blandað lið £rá Eng.'andi og Ir- landi sigraði 1964 á Spáni, Astr- alía vann 1966 í Mexícó og Banda- í’íkin 1968 í Ástralíu. Mai-gir heimsfrægir golfleikarar hafa hafið sinn atvinnumannsfer- il eftir þessa keppni og einn þeii'ra er Jack Nicoklaus, sem árið 1960 bar af öllum öðrum keppendum, og ,'ék þá 72 holur á 20 höggum undir pari. í keppninni í ár eru Banr.aríkja menn taldir sigurstranglegastir, en ensk-írska liðið er talið geta veitt þeim harða keppni. Varla er hægt að búast við góð- um árangri hjá íslenzka liðinu í þessari keppni, en það er að þessu sinni skipað þeir Þorbirni Kjær bo, GS, Jóhanni Benediktssyni, GS, Gunnlaugi Ragnarssym, GR og Þórarni B. Jónssyni GA. Lsland hefur nokkruni sinnurn tekið þátt í þessari HM-keppni en xetíð ver •* meðal öftustu liðanna. og a þvi verður ,'iklega engin breyting hjá Kjæi'bo & Co. í þetta sinn. Verði liðið ekki aftar en í 30. sæti má teija árangur þess góðan. Svíþjóð er talin fremsta golf- þjóið á Norðuriöndum og hefur sent n:jög gott lið . þessa keppni, en Sviar teija sig samt góða ef þeir komast framar en í 15. -æti. Þeir hafa unnið narkvisst að uppbyggingu golfíþrottarinnar í landinu, og um leið hafið víðtæka unglingastai'fsemi með það fyrir augum að eiga gott ,’andslið í fi-amtí'ðinni, enda hafa Svíar nú tvívegis oi'ðið Evrópumeistarar unglinga, og er einn unglinganna með liðinu í þessari keppni Fræg- astur Svíanna er Sven TÚmba, sem jafnfratnt ei einn bezti ts- knatt’.eiksmaður Svíþjóðar riann hóf að leika golf fyrir 5 árum, og náði þá strax mjög góðum töa- um á þessari íþrótt eins og „hokk íinu” og varð Norðurlandameist- ari nú 1970. — Klp— ÍÞRÓTTAFÓLK! Nýkomnir innlendir og erlendir félagsbúningar í miklu úrvali. Útvegum félögum, skólum og starfshópum bún- inga. — Póstsendum. Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar, Klapparstíg 44. — Sími 11783.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.