Tíminn - 24.09.1970, Síða 16
Fimmtudagur 24. sep+ember 1970.
Höfuðborg Búlgaríu - sjá bls. 6
Sjómannafélag Reykja
víkur og Eimskip með
fyrstu samstarfs-
nefndina
EB—Reykjavík, miðvikudag.
Nýskipuð samstarfsnefnd Eim
skipafélags íslands og Sjómanna
félags Reykjavíkur kom saman á
fyrsta fund sinn í morgun í húsi
Eimskipafélagsins, en samþykkt
var í heildarsamningum sem und
irritaðir voru 25. júní s. 1. milli
skipafélaga, sem 2 skip ciga eða
fleiri, að stofnaðar skyldu slíkar
nefndir, sem a.m.k. væru skipaðar
þremur fulltrúum frá hvorum
aðila. Verður fleiri samstarfs-
nefndum komið á laggimar nú á
næstunni.
Á fundinum í dag sátu af
hálfu Sjómannafélagsins: Pétur
Sigurðsson alþingismaður, en
hann er formaður nefndarinnar,
Sigfús Bjarnason framkvæmda-
stjóri Sjómannafélagsins og Pét
ur Ólafssan, sjómaður. — Af
hálfu Eimskipafélags íslands sátu
fundinn þeir Valtýr Hákonarson.
skrifstofustjóri hjá Eimskip, Sig
urður Jóhannsson skipstjóri og
Jón H. Magnússon lögfræðingur.
Á fundinum mun m. a. hafa ver
ið rætt um yfirvinnu undirmanna
í erlendum höfnum og á frídög
um þeirra, en hlutverk samstarfs
nefndanna verða m. a. að taka til
meðferðar ýmis konar hagsmuna
mál, leysa ágreiningsatriði margs
konar, stuðla að bættu starfs-
öryggi bæði til sjós og lands o.
s. frv. — Hins vegar geta sam
starfsnefndirnar ekki fengizt við
mál, er varða heiidarsamninga,
gerð þeirra, framlengingu, upp-
Framhald á bls. 3
íslenzkir
jarðfræðingar
farnir til
Jan Mayen
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Tveir islenzkir vísindamenn
fóru með norskri herflugvél til
Jan Mayen í dag. Þeir eru Guð-
mundur Sigvaldason, jarðeðlis-
fræðingur og Sigurður Þórarins-
son, jarðfræðingur. Fara þeir
norður til að rannsaka gosið á
eyjunni. Sigurður er væntanleg-
ur til fslands aftur á morgun,
en Guðmundur mun dvelja f viku
tíma á Jan Mayen. Hafa Norð-
menn beðið hann að taka sýnís-
horn af gasi á gosstöðvunum.
Norska flugvélin kom til Akur-
eyrar í morgun frá Noregi. Tók
vélin eldsneyti þar. Þeir Guðmund
ur og Sigurður flugu frá Reykja-
vík. og norður flugu þeir áleiðis
til Jan Mayen upp úr hádegi. Sig-
urður mun að öllum iiíkindum
koma með sömu flugvél til þaka
aftur í fyrramálið. Guðmundur
dvelur aftur á móti á Jan Mayen
í um það þil viku. Fengu Norð-
menn hann til- að gera vísindleg-
ar rannsóknir á gosstöðvunum. að-
al.'ega að safna gasi, en Guðmund-
ur er vanur þeim störfum og hef-
ur tæki til gossöfnunarinnar.
Það er ekki á hverjum degi,
sem ungviðinu úr borginni gefst
tækifæri til að skreppa á hest
bak, enda leynir sér ekki. að
þetta er stórkostlegt, í þau fáu
skipti, sem það er hægt. Þessar
ungu dömur virðast ekki vera
mikið hræddar við hestinn. enda
er hann ósköp vinalegur á svip
inn og svo er líka alltaf einhver
tilbúinn að grípa í taumana, ef
brosið skyldi hverfa skyndilega
af litlu andlitunum. Myndin var
tekin við Hafravatnsrétt í gær,
en þangað flykkjast foreldrar úr
Reykjiavik með börnin sín á
hverju hausti til að gefa þeim
kost á að sjá kindurnar. hundana
og hestana, sem jafnan er að hitta
í réttunum.
(Tímamynd Gunnar)
Kaupir Reykjavíkurborg
Skíðaskálann í Hveradölum?
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Komið hefur til tals að Reykjavíkurborg kaupi Skíðaskál-
ann í Hveradölum en ekkert hefur verið ákveðið um kaup-
in enn sem komið er. Kaupi borgin ekki skálann eru allar
líkur á að honum verði lokað, og húsið rifið eða grotni nið-
ur. Búið cr að bjóða borginni skálann til kaups og var málið
rætt á borgarráðsfundi í gær, en engin ákvörðun tekin.
Það er Skíðafélag Reykjavjkur I farin ár hefur hann verið leigður,
sem á skálann, en mörg undan-1 og sjáifur veitingareksturinn ver-
ið Skíðafélaginu óviðkomandi.
Skiðafélaa Reykjavíkur er gamalt
félag, en er nú orðið fámennt og
starfsemin reyndar ekki verið
önnur í mörg ár en að leigja skál-
ann. Nú er svo komið að á Skíða-
skálanum hvíla 2,5 millj. kr. skuld
ir. Húsið er illa farið og þarfnast
mikillar og kostnaðarsamrar við-
gerðar. Mun Skíðafélag Reykjavík-
ur ekiki geta staðið undir skuld-
um né viðgerðarkostnaði, og því
Framhald á bls. 14.
Settar nýjar
reglur um
feröakostnað
opinberra
starfsmanna
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Settar hafa verið nýjar reglur
um greiðslur kostnaðar vegna
ferðalaga á vegum ríkisins, og
gilda þær frá 1. september síð-
astliðnum. Samkvæmt þessum
reglum eru hæstu dagpeningar,
sem greiddir eru vegna ferðalaga
á vegum ríkisins erlendis 45
Bandaríkjadalir.
Dagpeningar skiptast í þrjá
flokka eftir því í hvaða launa
flokki sá opinberi starfsmaður,
sem við á, er.
Hæstu dagpeningar eru fyrir
starfsmenn í 25. launaflokki eða
þar fyrir ofan, en það eru ráðu
neytisstjórar, ambassadorar og
forstjórar ríkisstofnana eða fyrir
tækja. Eru dagpeningar þeirra
45 dollarar í Ameríku en 15
sterlingspund í Evrópu og annars
staðar erlendis.
Dagpeninga samkvæmt mið-
flokki skal greiða þeim, sem taka
laun samkvæmt 21. launaflokki
eða þar yfir, og eru þeir 35
dollarar í Ameríku en 13 sterlings
pund annars staðar. Aðrir starfs
menn fá síðan 30 dollara í dag
peninga í Ameríku, en 11 sterl
ngspund í Evrópu.
Um ferðalög erlendis gilda
annars eftirfarandi reglur:
Fargjöld skulu greiðast eftir
reikningi sem hér segir. Far með
flugvélum skal miðast við venju
legt farrými flugvélar, þ. e.
ferðamannafarrými. Heimilt er
þó að greiða far á 1. farrými flug
vélar, þegar sérstaklega stendur
á. skv. ákvörðun hlutaðeigandi
ráðuneytis. Far með skipum, lest
um eða langferðabifreiðum greið
ist eftir reikningi miðað við
far á 1. farrými, ef við á. Beri
nauðsyn til að ferðast með öðr
um og kostnaðarsamari hætti en
áður er greint, greiðist slíkur
kostnaður eftir reikningum, sem
hlutaðeigandi ráðuneyti úrskurð
ar, enda fylgi reikningi greinar-
gerð um nauðsyn þessa auka-
kostnaðar.
Ferðakostnaður greiðist ein-
göngu fyrir þann, sem ferðast
;1 útlanda á vegum ríkisins, en
ekki fyrir maka hans eða skyldu
lið. Sé um að ræða opinbera heim
sókn, alþjóðlega venju eða al-
Framhaíd á bls. 3
SKATTURINN AÐVARAR ÞÁTTAKENDUR
I .PENINGAKEÐ JUBRÉFAVELTU* ‘
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Mjög hefur dregið úr keðju
bréfafaraldrinum undanfarna
daga þótt eitthvað kuin.i enn að
vera í umferð af peningakeðju
bréfum. En cftir því sem mátt
inn dregur úr peningaveHuiini
færast yfirvöld í aukana. Verið
er að rauasaka keðjnlu éfastarí
semi i Reykjavík, Ilafnarfirði og
Akureyri. Saksóknari bíður niður
staðna og dómsmálaráðuneytið
'nefur gefið lit tilkynningu um
að dómstólar muni fjalla um
máiið fyrr en síðar. Ekki liefur
komið til þess eim og ekki er
hægt að 'will þ.er atliuganir seni
iui eru gerðar a málunum dóms
rannsóknir, þvj yfirvöldum geng
ur illa að átta sig á hvort pen-
ingakeðjuhréfastarfsemin er ó-
iögleg eða ekki. Vegna þess
hiks sem er á yfirvöldum í sam
bandi við málið hafa menn geng
ið á það lagií að stofna til nýrra
k •‘ðinhréf afvvirtækja eftir að
vitað var að saksóknari bað um
rannsókn, eins og á Akureyri fyrir
og um síðustu helgi og eins í Haln
arfirði á sinum tíma.
Nú er enn einn aðili kominn í
spilið og það vonum seinna. Rann
sóiknardeild ríkissikatitstjóra gaf
í dag lit tilkynningu um að hvort
sem athæfið væri löglegt eða
Framhald á bls. 3