Tíminn - 02.10.1970, Blaðsíða 1
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
±
m FRYSnKISTUR
'~Ií} a-'± FRYSTISKARAR
mPMwmmwi B. anHHBsrngn a. slp -am
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
■5^
*
*
ikill hlátur í
Dómkirkjunni
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Menntaskólinn í Reykjavík
(MR), var settur við hátíðlega
athöfn í Dómkirkjunni í dag,
og setti það nokkum kátínu-
svip á athöfnina, að hinn nýi
rektor skólans uppgötvaði það,
er hann var kominn í ræðustól,
að hann hafði gleymt ræðunni.
Hljóp hann úr kirkju og náði
í ræðuna, en Dómkirkjan ætl-
aði að rifna af hlátri þeirra
fjölmörgu, sem viðstaddir voru
athöfnina.
Atkvæðatölur
hinna föllnu
— í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík
TK—Reykjavík, fimmtudag.
f fyrstu lotu birtu Sjálfstæðis-
menn í Reykjavík aðeins atkvæða-
tölur og röð 12 efstu manna í
prófkjörinu, sem fram fór um
síðustu helgi. Nú hafa þeir, sem
næstir komu þessum 12 knúið
Mbl. til að birta atkvæðatölur
niður í 16. sætið. Lengra virðast
Sjálfstæðismenn ekki vilja ganga,
Og opna prófkjörið er sem sagt
aðeins opið í annan endann. Tím-
inn hleypur hér undir bagganna
og birtir atkvæðatölur alira, sem
þátt tóku í þessu prófkjöri. Taln-
anna varð þó áð afla eftir króka-
leiðum. Byrjað er á 13. sæti:
13. Gunnar J. Friðriksson, iðin-
rekandi, 2231 atkvæði.
14. Þorsteinn Gíslason. skipstjóri,
2200 atkvæði.
15. Páll S. Pálsson, hrl. 1985 at-
kvæði.
Framhald á bls. 3
GEIMFARARNIR BEINT OR ÞOTUNNI
Á SINFÚNlUTÚNLEIKA I REYKJAVlK
OÓ-Reykjavík, fimmtudag.
Geimfararnir af Appolo 13,
James Lovell, Fred Haise og John
Swigert, ásamt eiginkonum hinna
fyrrnefndu, komu til Keflavíkur-
flugvallar rétt fyrir kl. 7 í kvöld.
Hér mun þau dvelja fram á sunnu
dagsmorgun, en ferð þeirra til
nokkurra Evrópulanda er farin
a'ð ósk Nixons Bandaríkjaforseta.
Strax eftir komuna til Keflavíkur-
flugvallar ávarpaði Gylfi Þ. Gísla-
son, menntamálaráðherra, gestina
og bauð þá velkomna. Síðan héldu
geimfararnir þrír stutt ávörp, og
síðan var ekið til Reykjavíkur, og
haldið beint á tónleika Sinfóníu-
hljómsvetarinnar í Háskólabíói.
Geimfararnir komu í þotu sem
tilheyrir bandaríska forsetaem-
bættinu. Þegar flugvélin stöðvað-
ist við flugstöðvanbygginguna
opnuðust dyr á henni og við
blasti merki Appolo 18. Þegar
geimfararnir og konur þeirra
gengu niður tröppurnar úr flug-
véliniji, klapipaði mannfjöldinn,
James Lowell fyrirliSi geimfaranna flytur ávarp á Keflavíkurflugvelli. Hægra megin er eiginkona hans. Á
miðr! myndinni eru Haise ásamt eiginkonu sinni og til hægri er Swigert, en hann er ókvæntur. (Tímam. Gunnar)
Setja EBE-ríkin lágmarksveri á
innfíuttan físk á næstunni?
Ætla strax að setja reglur, sem Bretar, Norðmenn,
Danir og írar verða að samþykkja
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
Þær þjóðir, sem sótt hafa um
aðild að Efnahagsbandalagi Evr
ópu, hafa nú vaxandi áhyggjur
af þeirri fyrirætlan núverandi
EBE-ríkja að ganga frá sameigin
legri sjávarútvegsmálastefnu frá
1. nóvember næstkr-mandi, en það
mun vera ætlun EBE-ríkjanna
að hin nýju aðildarríki verði síð-
an að fallast á þær reglur ef þau
gerast aðilar. Ýmis ákvæði, sem
nú eru til athugunar hjá EBE-
ríkjunum, munu skapa vandkvæði
fyrir ýmsar þjóðir, bæði þær sem
nú hafa sótt um aðild og hinar,
sem ekki hyggja á aðild að banda
laginu.
Að sögn brezka blaðsins The
Times. hafa EBE-ríkin ákveðið,
að stefnan í sjávarútvegsmálum
skuli ákveðin fyrir 1. nóvember
næstkomandi, og er þegar vitað
um ýmis meginatriði þeirra stefnu.
Það sem veldur Bretlandi, Nor
egi, Danmörku og írlandi mest-
um áhyggjum, er það ákvæði. sein
EBE-ríkin hyggjast samþykkja, að
eftir fimm ár skuii sérhverjum
fiskimanni heimilt að veiða inn-
an fiskveiðilögsögu allra aðildar-
ríkja bandalagsins. IJpphaflega
voru Frakkar þessu andvígir en
hafa nú snúið við blaðinu. og nú
■ óttast ríkin fjögur, sem sótt hafa
| um aðild, að innan nokkurra ára
• streymi togarar Frakklands og
annarra ríkja inn i fiskveiðilög-
sögu sína og veiði bar að vild.
Af öðrum atriðum. sem EBE-
ríkin hyggjast samþykkja, er að
felldar verði niður allar hömlur
á viðskiptum með fisk og fisk-
afurðir innan bandaiaigs’ins, og
jafnframt, að sett verði lágmarks
verð á innfluttan fisk til þess að
eiga ekki á hættu innflutning á
ódýrum fiski eða fiskafurðum.
Einnig er ætlunin að komast
að samkomulagi um fjármögnun
á endurnýjun fiskiflota aðildar-
ríkjanna, en slík endurnýjun er
sögð mjög brýn, einkum í Frakk
landi og á Ílalíu.
EBE-ríkin virðast. hafa há a1
stöðu, að það sé þeirra að ákveða
þessa stefnu, en væntanlegra að-
i'ldar.ríkja að fallast á hana í einu
og öllu.
Hins vegar er á það bent, að
þetta sé ekki réttlátt, því sú
stefna í sjávarútvegsmálum, sem
kunni að hæfa núverandi EBE-
ríkjum. geti engan veginn hæft
10-ríkja-bandalagi. M. a er bent
á það, að núverandi EBE-riki þurfa
að flytja inn um 500 þúsund tonn
af fiski áriega, en ef ríkin 4 verða
aðilar að þandaiaginu, þá mun
það freniur þurfa að flytja út
fisk en inn.
Fyrir íslendinga kann það einn
ig að skipta verulegu máli. hvað
F!BE i'íkin gera í þessu á næsi
unni.
sem safnazt hafði þarna saman.
Á móti þeim tóku Gylfi Þ. Gísla-
son og frú, Replogle ambassador
og frú og Pétur Tlhorsteinsson,
ráðuneytisstjóri og fleiri embætt
ismenn. Gengið var frá flugvélinni
í flugstöðvarbygginguna og þar
fór fram sfcutt athöfn. Gylfi Þ.
Gíslason, ávarpaði geimfaranna og
bauð þá velkomna í nafni rikis-
stjórnarinnar og íslenzku þjóðar-
innar, sem hann kvað mikimi heið
ur sýndan með þessari heimsókn.
Lovelf, sem var fyrirliði Appolo
13 og er einn reyndasti geimfari
heims, sagiðist vera glaður yfir að
vera kominn hingað í heimsóbn á
vegum Bandaríkjaforseta og vænti
þess að heimsóbn þeirra mætti
vera til að efla vináttubönd þjóð-
anna, og þabbaði hlýjar móttöbur.
Þá talaði Haise, en hann og
Swigert dvöldu hér á lamdí með
fleiri geimförum árið 1067 við
jarðfræfðirannsóbnir við Ösbju og
víðar. Sagðist hann minnast þeirra
stunda með gleði, sem hann dvaldi
hér á landi til að undirbúa för til
og að leysa verbefni
dar sagði hann, að ebbi
hann þurft á þeirri jarðfræði
þekbingu að halda í för Appolo
13, því þeir lentu aldrei á mán-
anum, eins og bannugt er.
Swigert sagðist sömuleiðis veira
mjög ánægður með að vera kominn
til íslands aftur, enda ætti hann
ánægjulegar minningar frá dvöl
sinni hér fyrir þrem árum.
Fjötlmenni þyrptist að er mennta
málaráðherra og geimfaramir
fluttu ávörp sín, en athöfnin fór
fram í þeim hluta flugstöðvar-
byggingarinnar, sem eingöngu er
ætlað farþegum. Bar þarna vel
í veiði hjá farþegum sem staddir
voru í Keflavík. Er flugvél geim-
faranna lenti, var flugvél frá Pan
Amercan á vellinum og rétt á
eftir lenti Loftleiðavél, sem var
að koma futlfermd farþegum frá
Luxemiborg og var á leið til New
Yorb. Vantaði því sízt áheyrend-
ur, eða öllu heldur áhorfendur
er móttöbuathöfnin fór fram.
Voru farþegarnir, sem auðsjáan-
lega voru flestir Biandarík.ja-
menn yfir sig hrifnir að komast
í námunda við svo fræga menn
og sjá konur þeirra eigin augum.
og var mibið klappað eftir ávörp-
in, og þúsundir mynda teknar.
Þegar geimfararnir gengú út úr
byggingunn voru ótal hendur á
lofti að reyna að ná dýrmætu
handtaki eða að minnsta kosti
að koma við het.jurnar.
Að athöfninnj Iokinni stigu
geimfarar, embættismenn og frúr
upp í bíla og var ekið í lögreglu
fylgd til Reykjavíkur. Var fyrst
haldið að Hótel SögKi, en þax
munu geimfaramir n« eiginkonur
þeirra búa meðan á dvölinni hér
stendur. Á hótelinu rétt gafst
tímí til að skipta um föt og síð-
an hlupu gestirnir út í Háskóla-
bíó til að hlusta á fyrri hluta
tónleika Sinfóníuhlj ómsveitarion-
ar._
Á sunnudagsmorgun kl. 10 fara
eeimfararnir áleiðis til Sviss.