Tíminn - 06.10.1970, Síða 8
TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 6. október 1970
Sóðaskapurinn er viða áberandi og skolpræsi víða opin á götum, eins og sést á þessari mynd, sem er frá
höfuðborginni Kabul.
AFGHANISTAN
- land hinna mörgu óleystu verkefna
8
Hjúpur leyndardómanna ligg-
ur enn þá yfir Afghanistan.
Þetta mikla fjallaland í
hjarta Asíu, hefur ekki enn
verið „uppgötvaö" af ferða-
mönnum, en það eru líka ekki
nema átta ár síðan landið var
opnað fyrir almenning. — En
hvað finnur maður svo í fand-
inu milli Kína og Persíu? — Jú,
14 milljónir manna, og meðal
þessa fólks kynnist maður ó-
hugnanlega mikilli fátækt.
Sé farið í flugvéf frá Teher-
an, og lent á flugvelli í Kabul-
dalnum, sem er rétt við höfuð-
borg landsins, er farið úr birtu
í skugga. Það fyrsta sem mað-
ur sér, þegar gengið er úr flug-
vélinni, er óhreint fófk vafi®
inn í ullarteppi — óhreint fólk
sem skelfur af kulda. Það er
kalt í Kabuldalnum yfir vetrar-
tímanna og liggur dafurinn 2000
m yfir sjávarmáli. Stór hluti
fólksins þarna, á hvergi heima,
en í fjallshlíðunum er þó hægt
að finna röð af frumstæðum
steinhúsum og jarðhúsum.
Það er eðlilegt, að land sem
ekkert er nema fjö.l og aftur
fjöll, sé eigi frjósamt. Sauð-
fjárræktin er mikilvægust í lifs
baráttu Afghanistamanna, en
námugröftur er sífellt að verða
þýðingarmeiri. Námugröftur er
þó mjög takmarkaður enn sem
komið er, og fer einkum fram
nyrzt í landinu og við bak þess
atvinnurekstrar styður fjár-
magn frá Sovétríkjunúm. Eig-
inlega verður maður '-því ekki
undrandi yfir þeirri vitneskju,
að yfirleitt eru daglaun alþýðu-
manna í Afghanistan ekki nema
sem svarar 20 ísl. kr. En er
hægt að fifa á svo litlu? Þegar
kröfurnar eru litlar er þaö
hægt, og allt er svo ódýrt í
Jandinu, að útlendingar verða
undrandi yfir því. Til dæmis
kostar næturgisting á hótefum
í Afghanistan varla meira en
20 ísl. kr. En þá verður líka að
minna á, að aðbúnaðurinn er
mjög slæmur á hótelunum, og
maður verður að vera afar var-
kár vilji maiður ekki fá kóleru,
eða aðra hættulega sjúkdóma.
Farsóttir er mörg tíðar í land-
inu, og þar deyja margar þús-
undir manna árlega í farsótt-
um. Þsð ?r ('i'iknm kóiúran og
bólusóttin, stím herjar á fólk-
ið, einnig valda tarí3v-:k g
berklar dauösföiium ruargra.
Barnadauði er afar mikill, jafn-
vel mun meiri en í Indlandi.
Kona sem ég átti tal við, hafði
fæt* tólf börn, en aðeins eitt
þeirra var á lífi. Slíkt er ekk-
ert einsdæmi í Afghanistan.
Auðvitað er það sóðaskapur-
inn, sem veldur þessum miklu
dauðsföllum. I öllum bæjum
landsins standa göturæsin op-
in, og aflir geta hugsað sér
hváð mikinn sóðaskap þetta fyr
irkomulag hefur í för með sér.
Vatnið sem fólkið drekkur er
óhreinsað yfirhorðsvatn eða
brunnvatn — alls staðar aug-
ljós skortur á öllu er nefnist
hreinlæti. En vatnið er ef til
viL’ mesta vandamál þjóðarinn-
ar. Og í miklum þurrkatímum,
vtrðist þetta vandamál vera
með öllu óleysanlegt.
Matarskorturinn er einnig
mjög mikill, og það er mikið
um horaða Afghanistanbúa —
margir ganga um eins og lif-
Fólkið lifir
aöautíga a Le og þurru brauði —
næringarrík er ekki sú fæða.
Þeir eru margir Afghanistan-
búarnir, sem deyja úr sulti, og
margir deyja þeir á götunum.
Aud Svinland, norskur lækn-
ir og eiginkona hans, hafa í
þrjú ár búið í Afghanistan. Þau
segja læknaskortinn .í landinu
lireint út sagt ægilegan. íbúar
landsins eru eins og fyrr sagði
14 miL’jónir, en í landinu eru
ekki sjúkrarými fyrir fleiri en
eitt þúsund manns.
Danska hjúkrunarkonan Ell-
en Rasmussen, sem hefur stund
að hjúkrun í Afghanistan frá
1927, setti upp fyrsta sjúkra-
skýlið úti á landsbyggðinni.
— Þeir voru margir erfið-
leikarnir sem við þurftum að
yfirstíga þegar við héldum
1966 í baráttuferð út á lands-
byggðina. Við vorum fjögur
saman, tveir bandarískir lækn-
ar, innfæddur ,’æknir og svo ég,
sem var eina hjúkrunarkona,
segir Ellen Rasmussen. Við
fórum um mikinn hluta lands-
ins og margs konar lyfjum var
dreift og alls staðar blasti við
þörfin eftir læknum. Þá virtist
fólkið samt vera óvinveitt í okk
ar garð, en nú er þessu öðruvísi
farið. Þegar ég ferðast nú um,
kemur svo mikið af fófki til
a mín sem vill fá lækningu, að-
ég get varla 'nnt því öllu. Nú
hafa amerískar hjálparsveitir
komið til landsins, til þess að
,’eysa vandamálið, en þörfin cyr
ir hjúkrunarkonur og sjúkra-
liða er enn þann dag í dag
hræðilega mikil. Hér er mikið
verkefni fyrir okkur Norður-
landabúa, segir Ellen a® lokum.
Maður fellur sannarlega ekki
ve,’ inn i umhverfið, þegar mað-
ur sem Evrópubúi gengur í
hvítri skyrtu með bindi o.s.frv
eftir óhreinum götum Kabul-
borgar. Á götuinum lyktar allt
af saur og öðrum óhreinindum.
Víða situr fólkið í allri
eymd sinni og starir á mann.
En það bet.’ar ekki, jafnvel þótt
það hafi ríka ástæðu til þess.
Aðeins þegar það er aigjört
lífsspursmál, leggur Afglianist-
anbúi sig niður við að betla.
Hins vegar fjölgax stöðugt
betlurum frá Evrópu á götum
borgarinnar. Það eru svonefnd-
ir hippar, sem þangað hafa ferð
azt á puttanum, til þess að
fá hash keypt á ódýran hátt.
Þeir eru sem sé pen-
ingalausir og skammast sín
ekki fyrir að bet.’a frá fólki,
sem ef til viJl er það fátækasta
í heimi. Hipparnir hafa valdið
vandræðum þeim fáu Evrópu-
mönnum, sem hafa atvinnu í
landinu. Kabulbúar eru nefni-
lega farnir að líta á alla hvíta
menn, sem hippa og eru af
þeim ástæðum farnir að ,’íta
niður á Evrópubúa. Það er hægt
að kaupa hash á götum úti og
það er ekki dýrara, en tóbak
hér í Reykjavík. Hashkaupmenn
irnir eru alls ekki hræddir við
að bjóða varning sinn á götum
úti — hver má sjá það sem vill.
í gegnum miðja höfuðborgina
rennur á, sem sama nafn ber og
borgin, Kabul. Það er leysing-
arvatn frá jöklunum í Hindu-
kusjfjöllunum, þar sem hæsti
tindurinn er 7700 metrar. Þeg-
ar þetta vatn er komið al.’a leið
úr þeim miklu fjöllum, er það
orðið anzi óhreint, og áin er
skolpræsi Kabulborgar. — En
samt er þafð í ánni, sem fólkið
þvær klæði sín, fæðu sína og
sig sjálft. Það mundi líklega
hneyks.'a Íslending, þegar
hann stæði í fyrsta sinn við
ána og sæi mann gera þarfir
sínar í hana — og rétt hjá þeim
síðamefnda, annan mann að
baða sig í ánni, en þetta er
ósköp algeng sjón í höfuðborg
Afghanistan.
Það er mikið ferðazt í hest-
vögnum í Afganistan, en það er
líka hægt að ferðast þar um í
vögnum, sem dregnir eru af
mönnum. Stundum er nauðsyn-
legt að ferðast um Kabulborg í
vagni, því að oft kemur fyrir,
a® skolpvatnið flæðir yfir a.lar
göturnar.
Fyrir ferðamenn, sem koma
til landsins og ekki vilja hætta
á að eyðileggja maga sinn,
er matur mikið vandamál. Á
hótelinu Spinzar í Kabu-,’ er
hægt að fá góðan mat, en einn-
ig mat, sem valdið getur mjög
slæmum niðurgangi. Ef manni
þykir steiktur matur góður er
þó líklegt að öryggi magans
sé tryggt. — í útjaðri höfuð-
borgarinnar, hefur á þessu ári,
skotið upp kollinum fyrsta
flokks hóteli og var það byggt
með bandarísku fjánnagnL
Hótelið er svo fínt að ,’ægra
settir starfsmenn þess, sem yf-
irleitt eru innfæddir, þorðu
varla í fyrstu, að ganga á tepp
um hótelsins, og þeim fannst
víst „svolítið'1 einkennilegt að
horfa á alla fátæktina út um
hina stóru glugga. — Tekið ska.’
fram, að hótelið er byggt fyrir
bandaríska ferðamenn, einkum
fyrir milljónamæringafrúr í
heimsreisu.
Jafnvel þótt landið hafi ver-
ið opnað fyrir átta árum,
er það eftir sem áður, frum-
stætt land þar sem lífshættir
fólksins eru mörg rundruð ár-
um á eftir tímanum, sé borið
saman við okkur hér á Vestur-
,’öndum. — í hinum mörgu
fjalladölum landsins, finnst
manni jafnvel lífshættir fólks-
ins vera heilld ö.’d á eftir tím-
anum, og oft kemur þar til
óeinða milli einstakra ætta. Ný
lega vora fimm þúsund manns
drepnir í slíkum óeirðum í ein-
um dalanna. Eru það oftast
rógberar, sem valda þessum ó-
eirðum. Líf hins óbreytta manns
í Afghanistan er ,’ítið sem ekk-
ert virt, og lendi maður í slags-
máfum og takizt að drepa and-
stæðinginn, er litið á mann sem
hetju. Það er því ekki undra-
vert þó að Norðurlandabúar,
sem fara til landsins geri
ýmsar öryggisráðstafanir áður..
Margir hafa með sér schæfer-
hund, og æfa sig í meðferð skot
vopna. Það er ekki erfitt að
bera skotvopn, og allur er var-
inn góður. — Taki maður til-
lit ti! siða íbúa landsins, á mað-
ur -ð geta komizt heill að búfi
frá hinu frumstæða ^fghanist-
an.
Einar Lyngar
Sauðfjárrækt er mikilvægasta atvinnugrein Afghanista.