Tíminn - 10.10.1970, Side 1

Tíminn - 10.10.1970, Side 1
h ALÞINGI SETT í DAG EB—Reyk.javík, föstudag. Alþingi kemur saman á morgun. Þingsetningin hefst með guðsþjón ustu í Dómkirkjunni kl. 2 e. h., prestur verður séra Friðrik Á. Friðriksson. Síðan hefst þingfund ur í Alþingishúsinu og setur dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands, þingið. Sigurvin Einarsson alþing ismaður, aldursforseti þingsins, verður forseti þess unz þingfor- seti verður kjörinn, og mun hann í upphafi minnast átta þingmanna, sem látizt hafa eftir að Alþingi var slitið s. 1. vor. Hörö árás á Solsjenitsyn í málgagni Sovétstjörnar Talin upphafið að harðvítugri herferð gegn honum í sovézkum fjölmiðlum Alexander Solsjenitsyn NTB—Moskvu, föstudag. — Það er af pólitískum ástæð- um, sem sænska akademían hefur veitt Alexander Solsjenitsyn bók- menntaverðlaun Nobels, og ber að harma, að sænska akademían hef- ur látið nota sig til slíks, — segir í grein f Izvestia, málgagni so- vézku ríkisstjórnarinnar, í dag. Þessi neikvæða afstaða var hið Dómur kveðinn upp í SANA-málinu: FORRAOAMENN FYRIRTÆKISINS FENGII70 ÞdSUND KRÖNA SEKT Öl og flöskur fyrir 208 þúsund krónur gert upptækt SB—Reykjavík, föstudagur. Dómur í hinu margumtalaða Sana-máli var kveðinn upp á Akureyri í dag. Þrír stjórnar- menn fyrirtækisins, verksmiðju stjóri og framkvæmdastjóri voru dæmdir til að greiða sam- tals 70 þúsund krónur í sektir og auk þess voru þær ölbirgð- ir, sem lagt var hald á í vor, gerðar upptækar, en verðmæti þeirra mun vera um 208 þús- und krónur. Forsaga þessa máls er sú, að í byrjun apríl s.l. voru inn- siglaðar í birgðageymslu Sana á Akureyri allar birgðir af Thule-öli, sem þar voru, eða um 500 kassar, þar sem grunur hafði komið upp um að of mik- ið áfengismagn væri í því. Dag- inn eftir tók síðan sakadóm- araembættið í Reykjavík í sína vörzlu allt Thule-öl í birgða- geymslunni í Reykjavík, rúm- lega 400 kassa. Sýnishorn voru tekin af ölinu og rannsökuð hjá Rannsóknarstofnun iðnaðar ins og einnig send til rannsókn- ar til Þýzkalands og kom í ljós, að áfengismagnið var 2.67%, en leyfilegt er að það sé 2.25%. Nokkru síðar kom í ljós, að alkóhólmælir Sana-verksmiðj- unnar var bilaður, en nýr var fenginn og framleiðsla hafin á nýjan leik. Dómurinn í dag féll þannig, að Eyþór Tómasson, formaður stjórnar Sana, var dæmdur til að greiða 20 þúsund króna sekt, eða sæta 20 daga varð- haldi. Jón M. Jónsson, stjórn- armaður fékk 15 þúsund króna sekt, Gunnar Ragnars, stjórn- armaður fékk 10 þúsund króna sekt, Magnús Þórisson verk- smiðjustjóri Sana, fékk 10 þús- und króna sekt Áuk þessa vora ölbirgðirnar, sem áður hafði verið lagt hald á, gerðar upptækar. Voru það aíls 911 kassar. eða alls 21864 flöskur, en glerin voru einnig gerð upptæk. Verðmæti ölsins og glerjanna er 208 þúsund krónur. Kostar þetta allt sam- an Sana því 278 þúsund krón- ur, fyrir utan málskostnað. Bogi Nílsson, fulltrúi bæjar- fógeta á Akureyri, kvað upp dóminn, en verjandi Sana- manna var Páll S. Pálsson. Rækjan fyrir vestan: FJÖLDI KVENNA MISSIR A TVINNU VEGNA AUKINNAR VÉL VÆDINGAR fyrsta, sem kom frá opinberum að- ilum í Sovétríkjunum um veitingu N ob els verðlaunanna, og eykw hún ótta manna um, að Solsjenit- syns bíði sömu örlög «g Boris Pasternaks árið 1958. Pastemak fékk að vclja milli þess að fara til Stokkhólms til að taka við Nobelsverðlaununum og koma aldrei til Sovétrikjanna aftur, eða að taka ekki við verðlaununum, og leiddi það til þess, a® Pastemak hafnaði þeim. Þá var einnig full- yrt í sovézkum blöðum, að sænsba akademían hefði veitt verð.'aunin af hugmyndafræðilegum og and- sovézkum ástæðum. í föstudagsútgáfu Izvestia er birt yfirlýsing frá sovézku rithöf- undasa-mtökunum, sem Solsjenit- syn var rekinn úr, og þar með gert ókleift að lifa sem rithöfund- ur í föiðurlandi sínu. Lítur út fyrir, að yfirlýsingin sé komin frá fram- kvæmdastjóm sambandsins, en í dag neitaði stjórnm eða talsmenn hennar að segja nokkuð um málið. og færðu þau rök fyrir neit- un sinni, að Solsjenitsyn vaeri ekki lengur félagi í samtökunum og þeim því óviðkomandi. í yfirlýsingunni segir m. a.: „Eins og þegar er kunnugt, hafa verk þessa rithöfundar verið flutt til útlanda á ólöglegan hátt, og gefin út þar. Verk hans hafa um langan tíma verið notuð af aftur- hafdsöflum á Vesturlöndum til að . svívirða Sovétrikin. Sovézkir rithöfundar hafa marg- sinnis lýst skoðun sinni í fjölmiðl- um á Alexander Solsjenitsyn, verkum hans og hegðun, sem — eins og lögð hefur verið áherzla á, hjá rithöfundafélagi rússneska so- vétlýðve.;disins — er andstæð því hlutverki, sem samtökum sovézkra rithöfunda er ætlað. Sovézkir rit- höfundar hafa rekið Solsjenitsyn Framhald á bls. 14. Ceausescu dvelur hér í tvær stundir en framleiðslan verður mun meiri og afköst stöðvanna stóraukast EB—Reykjavík, föstudag. Vegna aukinnar sóknar á rækju- miffin í ísafjarðardjúpi og mikils kostnaðar við handpillun i rækjunni, hafa rækjuvinnslu stöðvar við ísafjarðardjúp aukið stórlega vélakost sinn. Er nú að- eins eitt fyrirtæki þar, sem enn- þá notar handpillunar- aðferðina. Allar Iiinar, sex að tölu, hnfa fengið pillunarvélar, og veld- ur það stórkostlega minnkandi þörf á verkafólki við rækjuvinnsl- una. ifminn náði i dag tali af for- ráðamönnum finim þessara fyrir- tækja og bar þeim öllum saman um, að ckki væri viðlit að nota handpillun lengur við rækju- vhmsluna, ef fyrirtækin ættu að bera sig, og ef auka ætti fram- leiðsluna. Sókn á rækjumiðin í Djúpinu hefur aukizt um 40% frá síðustu vertíð. Böðvar Sveinbjarnarson, sem rekur Niðursuðuverksmiðjuna h.f. á Torfnesi við ísafjörð, sagði, að hann væri nú búinn að fá rækjupillunarvél frá Bandaríkjun- um. Sagði hann. að hún afkastaði 300 kg. á klst., sem svarar afköst- um 40 stúlkna við handpillun, en sp fjöldi hefur yfirleitt unnið við vinnsluna áður hjá fyrirtækinu. Hins vegar hafa fjórir karlmenn unnið áður við vinnsluna hjá fyr irtækinu, og er þörf fyrir þá i áfram, þrátt fyrir tilkomu pillun- arvélarinnar. Sigurður Sv. Guðmundsson, forstjórj Rækjuverksmiðjunnar h. f í Hnífsda.1, hafði svipaða sögu að segja. Vinnuaflið hjá honum var áður 15 —' 20 konur og 2 karlmenn. Vegna tilkomu pillun arvélarinnar, sem hann er einnig nýbúinn að fá firá Bandaríkiunum, vinna nú hjá fyrirtækinu 10 manns, 6 karlmenn og 4 konur og sagði Sigurður að fækkun væri fyrirsjáanleg á næstunni. Á síð- ustu vcrtíð lögðu 2 bátar upp hjá Rækjuverksmiðjunni, en 7 munu legsia þar upp á þessari vertíð. Ilaukur Ilelgason er fram- kvæmdastjóri Rækjustöðvarinnar h.f. á ísafirði, en fyrirtækið er nýstofnað og stanfla að því eig endur 7 rækjubáta þar og Kaup félag ísfirðinga. Sagði Haukur. að rækjuvinnslan hjá fyrirtækinu myndi hefjast n. k. þriðiudag, en verið er að koma pillunarvél fyr- ir. Vélin mun aíkasta um 350 kg af hrárækju á klst. 20 manns koma til með að vinna hjá fyrir tækinu við ræk.juvinnsluna, og mun kvenfólkið, sem er í meiri- hluta, annast pökkun og hreins- un. Sagði hann verkafólk á ísa- firði dálítið uggandi vegna vél- væðingarinnar. en á hitt bæri að lita, að þörf væri á iafnmörgum karlmonnum, eða jafnvel fleiri, við tilkomu ræk.iupillunarvélanna. Framhafd ft 14. slðu. SB—Reykjavík, föstudag. Ceausescu, forseti Rúmeníu, kemur hingað til lands á mánu- daginn og hefur tveggja stunda viðdvöl, en hann er á leið vestur um haf, á þing Sameinuðu þjóð- anna. Með honum í förinni er ut- anríkisráðherra Rúmeníu. Þeir koma hingað með rúm- anskri flugvél kl. 14,30 á mánu- daginn. Meðal þeirra, sem taka á móti þeim á flugvel/inum, eru forseti íslands, dr. Kristján Eld- járn, og frú, forseti Hæstaréttar, ambassador Rúmeníu á ísfandi, ráðuneytisstjórar utanríkis- og for- sætisráðuneytisins og fulltrúar, lög reglustjóri og erlendir sendiherr- ar. Síðan verður móttaka á Bessa- stöðum, og þar verða, auk framan- taldra, menntamálaráðherra og formenn þingflokkanna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.