Tíminn - 15.10.1970, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.10.1970, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 15. október 1970 3 TÍMINN Verkfræömgafélagið um lögbrof Framhald af bls. 1 berra starfsmanna sbr. 1. gr. lag- anna. Samkvæmt 5. gr. er skylt að auglýsa lausa stöðu og skal það venjulega gert með 4ra vikna fyr- frvara. Ljóst er af framangreindu, að um brot er að tefla gegn þessu ákvæði, því að Jón E. Vestdal lét af störfum 31/8 1968, en stað- an hefur ekki verið auglýst enn. Ýmsir munu telja, að eigi hafi verið skylt að auglýsa stöðuna fyirr en Ijóst var orðið, hvort Jón E. Vestdal tæki til starfa á ný eða ekki, og það varð ljóst fyrri hluta janúar 1970. Þá hafði allt verið í vafa um stöðuna uim sex- tán mánaða skeið og var því ríkt tiilefni til þess að bregða skjótt við, einkum er um svo þýðingar- mikla stöðu var að ræða. Benda má á í því sambandi, að verð- mæti steinsteyptra mannvirkja, sem hafa verið byig-gð í landinu að undanförnu úr íslenzku se- menti, svara um 3500 milljón krónum á ári, en sementið er það -efni, sem ræður einna mestu um varanleik mannvirkjanna. Einnig er vinnsla sements og véla- kostur til þeirrar starfsemi vanda samt og mangþætt viðfangsefni, sem naúðsynlegt er að fram- kvæmdastjóri verksmiðjunnar hafi glöggan fræðilegan skilning á. Samkvæmt 5. gr. laga nr. 35, 1/4 1948 um Sementsverksmiðju ríkisins ræður verksmiðjustjórn- in framkvæmdastjóra og skal hann hafa „verkfræðileg-a mennt- un“. Þetta ákvæði á við hvort heldur framkvæmdastjóri er fast- ráðinn eða ráðinn til þess að gegna starfinu um stundarsakir. Vafalaust er, að -hvorugur þeirra manna, sem annazt hafa fram- kvæmdastjórn síðan Jón E. Vest- dal lét af starfi, fullnægir þessu skilyrði. Stjórn Verkfræðingafé- lags fslands telur, að hér sé um að ræða brot 'gegn 5. gr. 1. nr. 35/1948. Refsiákvæði, sem hér koma m. a. til greina, eru i XIV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19 12/2 1940. Tií athugunar má eink um benda á 135., 138., 140. og 141. gr. Aðalábyrgðin á misferli því, sem hér hefur orðið, hvílir á stjór,n Sementsverksmiðjunnar, ef-tir atvikum allri eða einstökum stjórnarmönnum. Hvort fleiri koma til greina skal ósagt látið. Sam'kv. framangreindu er það krafa stjórnar Verkfræðingafé- lags fslands, að mál þetta verði tekið til rannsóknar og ábyrgð verði komið fram á hendur þeim, er sekir kynnu að reynast. Virðingarfylist, Stjórn Verkfræðingafélags íslands Guðmundur Einarsson, form. (sign.) Ágúst Valfells. (sign.) Halldór Jónsson. (sign.) Eyvindur Valdimarsson. (sign.) Bárður Daníelsson. (sign.) Loftur Þorsteinsson. (sign.) Jón Bergsson. (sign.) Hinrik Guðmundsson, frkvstj. (sign.) Bréf þe-tta er dagsett 2. októ- ber, og samkvæmt upplýsingum frá embætti saksóknara ríkisins í dag, þá hefur saksóknari sent iðn aðarráðuneytinu mál þetta til um- sagnar, áður en ákveðið verður hvað gert skuli í málinu. Þá má geta þess, að í fyrra mánuði sendi stjórn Sementsverkjunnar bréf til iðnaðarráðuneytisins, þar sem farið er fram á að fram- kvæmdastjórastarfi Sementsverk- smiðjunnar verði skipt, og ef skipt ingin samrýmist ekki núgildandi lögum um verksmiðjuna, verði borið fram á Alþingi frumvarp til. laga um breytingu á lögum verksmiðjunnar. Um þetta síðara bréf sögðú for- svarsmenn verkfræðingafélagsins á þá leið, að hér væri um að ræða áskorun á iðnaðarráðuneytið og ef um lagabrot hefði verið að ræða áður, þá væri farið fram á að lögunu-m yrði breytt. Biðu sex mánuði eftir svari Verkfræðingafélagið skrifaði stjórn Sementsverksmiðjunnar bréf 13. marz, og spurðist fyrir um hvort starf framkvaemdastjóra Sementsverksmiðjunnar yrði aug iýst, en það var fyrst 12. ágúst að svarbréf barst, en í millitíð- inni skrifaði Verkfræðingafélag- ið tvö bréf, og rak auk þesu á ef-tir svari í síma. Meirihlutj stjórnar Semcnts- verksmiðjunnar felldi tillögu um að auglýsa starfið. í þessu sambandi er rétt að Fiskiðnskóli Framhald af bls. 1 in í verstöðvum landsnis, eftir því sem við verður komið. Skólatími, inntökuskilyrði, námsefni Skólatími ska! vera full 2 ár, þar af 6 mánuðir verkleg þjálfun í starfandi fiskiðjuveri eftir regl- um, er skó.’anefnd setur. Verkleg þjálfun fari fram að sumri til, þrír mánuðir í upphafi skólatím- ans og þrír mánuðir á milli bekkja. Umsækjendur séu fullra 17 ára og hafi gagnfræðapróf eða hlið- stæða bók'ega menntun. — Skóla- stjóra skal heimilt að veita u '-’an- þágu frá inntökuskilyrðum og verk legri þjálfun innan takmarka sem skólanefndin setur. Helztu bókfegar námsgreinar skulu vera: — Fiskvinnslufræði, sem nái yfir greinar fiskiðnðar- ins og vélbúnað hans, gæðaeftirlit og fiskmat, reikningur og rekstr- arbókhald, efnafræði, eðlisfræði, fiskifræði, ger.’afræði, vinnurann- sóknir, verzluinarlandafræði, lög og reglur um fiskvinnslu og fisk mat, og að auki aðrar námsgrein- að geta bess, að tveir stjó'rnar- menn þeir Daníel Ágústínusson og Hafsteinn Sigurbjörnsson höfðu beitt sér fyrir því að starf fram- kvæmdastjóra yrði auglýst laust til umsóknar, en tillögur þeirra fengu ekki hljómgrunn hjá öðrum stjórnarmönnum verksmiðjunnar. Forsvarsmenn Verkfræðingafé- lagsins lögðu snjög mikla áherzlu á að tæknimenntaður maður væri framkvæmdastjóri verksmið.junn- ar, bæði vegna daglegs reksturs hennar, og svo líka með tilliti til framþróunar i framleiðslunni. Sérstaklega væri nauðsynlegt að verkfræðingur væri framkvæimda- stjóri, þar sem í stjórn verksmiðj unnar væri enginn verkfræðingur. Tveir verkfræðingar starfa nú ar, sem skólanefnd telur ástæðu ti’ að kenna. Helztu verklegar námsgreinar skulu vera: — Meðferð á nýjum fiski, ísun, flökun, frysting, sölt- un, síldarsöltun, herz.'a, reyking, niðursuða, framleiðsla fiskrétta, lifrarbræðslu, fiskmat, vinnurann- sóknir, og að auki aðrar náms- greinar sem skói’anefnd telur '- stæðu til að kenna. Nánari ákvæði um starfsemi skólans skulu sett með reglugerið. Áhugaleysi ríkisstjórnariniiar Greinargerðin með frumvarpinu sýnir vel fram á það áhugaleysi sem rikisstjórnin hefur sýnt þessu máli, og er gireinargerðin svo hi’jóðandi: „Liðin eru full 10 ár síðan Hutn- ingsmenn þessa frumvarps hreyfðu því á alþingi með flutningi þings- ályktunartillögu, að nauðsynregt væri að stofna fiskiðnskóla hér á landi. Eftir margra ára endurflutn ing var loks hinn 30. apríl 1964 samþykkt þingsá.ýktun frá flm. frv. og tveim öðrum þingmönnum um skipun nefndar til þess að semja tillögur ,,um stofnun og starfstilhögun alme.nns fiskiðnskóla í landinu". Skyldi nefndin fjúka störfum fyrir 10. október 1964. HANDAVINNA HEIMILANNA HUGMYNDABANRINN Hugmyndabankinn efnlr á ný til samkeppni um beztu tillögur a8, ýmsum handunnum vörum úr fslenzku ullarbandi og lopa frá Gefjun og að margs konar föndurvörum úr íslenzkum loðgærum frá Iðunni á Akureyri. Verðlaun eru því veitt I tveim flokkum: 1. Prjónles og hekl 2. Skinnavörur hverskonar úr langhærðum eða klipptum loðgærum. 1. verðlaun í hvorrl grein eru 15 þúsund krónur. 2. verðlaun kr 10 þúsund. 3. verðlaun kr. 5 þúsund. Flmm aukaverðiaur kr. 1.000,00 I hvorrl grein. Allt efni til keppriinnar: garn, lopi og skinn margskonar, fæst I Gefjun Austurstræti en þar liggja elnnig frammi nánari upplýsingar um keppnlna, matsreglui dómnefndar o.fl., sem elnnlg er póstlagt eftlr beiðni. Verðlaunamunir og vinnulýsingar verða eign Hugmyndabankans tll afnota endurgjaldslaust, en vlnna og efni verður greitt sérstaklega eftir mati dómnefndar. Áski'inn er réttur til sýningar á öllum keppnismunum I 3 mánuði eftir að úrslit eru birt. Keppnismunl skal senda með vlnnulýsingu til Hugmyndabankans Gefjun, Austurstræti merkta númeri, en nafn höfundar með sama númerl skal fylgja i lokuðu umslagi. Skilafrestur er ti! 10. desember n. k. Dómnefnd sklpa fulltrúar frá Heimiltslðnaðarfélagi fslands, Myndllstar- og handíðaskóla islands og Hugmyndabankanum. Ligglð ekki á liði ykkar. Leggið i Hugmyndabankann. GEFJUN AUSTURSTRÆTI við Sementsverksmiðjuua, efna- verkfræðingur og vélaverkfræð- ingur, en alls eru starfandi hér á landi 189 erkfræðingar hjá opin berum fyrirtækjum (bæ og ríki) og 184 hjá öðrum. Eins Og að framan greinir, þá hefur saksóknari ríkisins nú feng ið mál þetta til meðferðar,— eða að við ráðningu í starf fram- kvæmdastjóra Sementsverksmiðj- unnar hafi ekki verið farið að lögum, og saksóknari síðan sent málið til iðnaðarráðuneytisins, og óskað umsagnar þess um málið. Er því bæði beiðni stjórnar Sements verksmiðjunnar um skiptingu starfs framkvæindastjórans, og lagabreytingar, ef þörf krefur, og beiðni stjórnar Verkfræðinga- félagsins um rannsókn á starfi framkvæmdastjórans í höndum Jóhanns Hafsteins, forsætis- og iðnaðarráðherra. Ríkisstjórnin lét undir höfuð leggj ast að skipa nefnd þcssa í tæka tíð, og það var ekki fyrr en 27. nóvember 1964, sem þáverandi sjávarútvegsmálatóðherra skipaði 8 menn í fiskiðnskólanefnd, síðar var bætt við tveimur, þannig að alls sátu í nefndinni 10 fui’ltrúar, sem allir voru í nánum tengslum við hagsmunasamtök fiskiðnaðar, rannsóknarstofnanir atvinnuveg- anna og fiskmatsyfirvöld. Formað ur nefndarinnar var Hjalti Einars son efnaverkfræðingur, einn fremsti sérfrasðingur þjóðarinnar í fiskvinnsiufræðum. Aðrir nefnd- armenn voru: Bergsteinn Á. Berg- steinsson fiskmatsstjóri, Jón Árna- son a,’þm., Jón Skaftason alþm.. Margeir Jónsson útgerðarmaður, dr. Sigurður Pétursson gerlafræð ingur, dr. Þórður Þorbjarnarson forstjóri Rannsóknarstofnunar fisk iðnaðarins, Tryggvi Jónsson for- stjóri. niðursuðuverksmiðjunnar Ora í Kópavogi, Leó Jónsson síld- armatsstjóri og Sveinn Björnsson framkvæmdastjri Iðnaðarmálastofn unar íslands. Álit fiskiðnskólanefndar. Fiskiðnskólanefnd sat að st'örf- um um tveg'gja ára skeið. Skilaði hún áliti tii ríkisstjórnarinnar í desember 1966, og var það aðal- niðurstaða nefndarinnar að leggja til við ríkisstjórnina, að stofna skyldi sérstakan fisðiðnskóla, er hefði það aðalmarkmið að veita fræðslu í fiskiðngreinum og út- skrifa fiskvinnslufræðinga. Því miður hefur ríkisstjórnin haft tillögu fiskiðnskólanefndar að engu og viriðst staðráðin í að iáta sitja við fullkomið aðgerða- leysi. I fræðslumálum fiskiðnað- arins nú sem endranær. Brýnasta hagsmunamálið. Má slíkt þó furðu'legt heita, þar sem fullvíst er, að ekki er ágrein- ingur um meðal áhuga- og kunn- áttumanna á sviði sjávarútvegsins og fiskframleiðslu, a'ð aukin starfs þekking og skólamenntun sé nú brýnasta hagsmunamál fiskiðnað arins. Þess þarf varla að minnast, að fiskafurðir eru aðalútflutnings- vörur íslendinga og standa að langmestu leyti undir beinni gjald eyrisöflun þióðarinnar. Vanræksla á sviði fræðslumála fiskiðnaðar- ins jafngildir því að vanrækja að- alatvinnuveg landsmanna. Flm. þessa frv. líta svo á, að ekki verði lengur við aðgerðar- leysi unað í fiskiðnskólamálinu, og vilja nú freista þess a'ð taka upp hugmynd fiskiðnskólanefndar frá 1966, eins og hún kemur fram í tillögu nefndadnnar til frum- varps til laga um fiskiðnskóla. sbr. fjölritað nefndarálit, dags. í des. 1966. Er frv. nefndarinnar flutt hér óbreytt, ásamt skýring- um hennar á greinum frum- varpsins.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.