Tíminn - 15.10.1970, Page 10

Tíminn - 15.10.1970, Page 10
ÍO FEVIMTUDAGUR 15. október 197« TÍMINN Prestkosning í Ólafsvíkurprestakalli á Snæfellsnesi fer fram sunnudaginn 18. október n.k. Kosið verður á eftirtöldum stöðum: í Ingjaldshólssókn í skólanum á Hellissandi. í Ólafsvíkursókn í Safnaðarheimili kirkjunnar. í Brimilsvallasókn á kirkjustaðnum. Kjörfundur hefst á Hellissandi og í Ólafsvík kl. 10 árdegis, en í Fróðárhreppi kl. 2 e.h. Staðarstað 13. október 1970. Þorgrímur Sigurðsson, prófastur Snæfellinga. Tilboð óskast í stækkun á barnaskóla Vestmanna- eyja. Steypa skal húsið frá neðstu gólfplötu og skila því tilbúnu undir tréverk innanhúss, frá- gengnu að utan og með fullgerðum pípu- og raflögnum. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn kr. 3.000,00 skilatryggingu. Tilboð verða opnuð mánudaginn 2. nóv. n.k. kl. 2 e.h. er fimmtudagur 15. okt. — Heiðveig Tungl í hásuðri kl. 1.18. Árdegisháflæði í Rvík kl. 6.18. REILSUGÆZLA Slysavarðstofan i Borgarspítalan- um er opin allan sólarhringinn. Aðeins mðttaka slasaðra. Sími 81212. Kópavogs Apótek og Keflavíkur Apótek eru opin virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—14, helgidaga k,'. 13—15. Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir fyr- ir Reykjavík og Kópavog, sími 11100. Sjúkrabifrcið í Hafnarfirði, sírni 51336. Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu í borginni eru gefnar i símsvara Læknafélgs Reykjavík- ur, sími 18888. Fæðingarheimilið i Kópavogi, Hlíðarvcgi 40, sími 42644. Tannlæknavakt er í Hcilsuverndar- stöðinni, þar sem Slysavarðss an var, og er opin laugardaga og sunnudaga kl. 5—6 e. h. Sími 22411. Apótek Hafnarfjarðar er opið alia virka daga frá k'. 9—7, á laug- ardögum ki. 9—2 og á sunnu- dögum og öðruim helgidögum er opið frá kl. 2—4. Kvöld- og helgidagavörzlu apóteka í Reykjavik, vikuna 10. til 16. okt., annast Vesturbæjar apótek og Háaleitisapótek. Næturvörzlu í Keflavík 15. 10. annast Kjartan 6,'afsson. SIGLINGAR Skipaútgerð ríkisins. Hekla er í Reykiavik. Herjólfur er í Reykjavík. Herðubreið er á Austfjarðarhöfnum á suðurieið. Skipadeild SÍS. Arnarfell er i Svendborg. fer það- an til Rostock, Rotterdam og Hull. Jökulfeil væntanlegt til Sauðár- króks í dag. Dísarfell losar á Aust- fjörðum, fer þaðan til Norður- lands- og Faxaflóahafna. Litlafell er j Reykjavík. Helgafell er á Blönduósi, fer þaðan til Hólma- víkur. Stapafell fór í gær frá Rotterdam til Reykjavíkur. Mæli- fell losar í Hollandi. Cool Girl fór í gær frá Grimsb.v til Bremer- haven. Keppo fer væntanlega ' dag frá Hornafirði til Grimsby. flugáætlán!r~~~ Flugfclag íslands h.f.: MiIHlandaflug. Gullfaxi fór ti,'Oslo og Kaupmanna hafnar kl. 08:30 í morgun og er væntanlegur aftur til Kef'.avíkur kl. 16:55 í dag. Gul.'faxi fer til Glasgow og Kaup- mannahafnar kl. 08:30 i fyrramá'.ið. Innanlandsflug. I dag er áætlað að fijúga til Akur eyrar (2 ferðir) ti,' Vestmannaeyja (2 ferðir) til isafjarðar, Fagur- hólsmýrar, Hornafjarðar og Egils staða. Sebastien Japrisot: Kona, bíll, gleraugu og byssa 16 þetta, máttu fara í rassgat fyrir mér. Ég átti við Pacaud-fólkið. Paucaud-fólkið rak veitinga- stofu í þorpinu. Mamman og ttengdadóttirin voru alltaf snemma á ferli til þess að opna fyrir mönnunum, sem unnu við þjóðveginn ti'l Auxerre. Þangað hafði Manuel vísað stúlkunni í hvíta kjólnum, þegar hún spurði. hvar hýn gæti fengið sér morgun verð. Óneitanlega hafði hann ver- ið soldið hissa: Einn einasti kven maður á bíl um hánótt, kona, sem ók með dökk gleraugu í kolniða- myrkri, (hann vissi ekki þá, að hún var næirsýn og reyndi að dylja sjóngalla). Raunar hafði hann verið svo hissa, að hann tók ekki eftir sárabindinu, sem hún hafði um vinstri höndina, fyrr en hún kvaddi. Hann sá þetta greinilega fyrir sér: Hvít grisja og móskugrár morgunn. — Ég kennj svo til, sagði stúik an. — Loíið mér að fara. Ég verð að komast til læknis. — Andartak, sagði Manuel. Fvr irgefðu, madame, en þú fóst á veitingastofuna hjá Pacaud. Mæðg urnar munu áreiðanlega kannast við þig. Ég ætla að hringja í þær. — Er hún við aðalstrætið? — Einmitt. — Þær hafa líka á röngu að standa. Nú ríkti þögn um hiið. Stúlk- an sat hreyfingarlaus og horfði á þá. Hún var þrálelkin á svip. Manuel þóttist ekki lengur í nein um vafa um, að hún væri galin. Hún vildi honum ekkj illa. Hún var bara eitthvað skrýtin. Hann sagði við hana blíðlega. — Þú varst með sárabindi um höndina í morgun. Það er alveg hreina satt. — Ég var ekki með sárabindi, þegar ég kom hingað rétt áðan. — Var það ekki? Manuel leit spyrjandi á mennina tvo, sem ypptu öxlum. — Við tókum ekki eftir því. Þetta er heilagur sann- leikur. Nú, og hvað þá? Það var bundið um höndina á þér í morg un. — Það var ekki ég. — Hvers vegna komstu þá aft ur? — Ég veit _það ekki. Ég kom ekkert aftur. Ég 'veit það ekki. Niður vangann runnu tvö tár. — Lofið mér að fara. Ég verð að finna lækni. — Ég skal aka þér til læknis- ins, sagði Manuel. — Þarftðessekki. — Mig langar að heyra, hvað þú berð í hann, sagðj Manuel. — Þú ætlar þó ekki að stofna til vandræða hérna á heimilinu, er það? Hún hristi höfuðið. og í þetta sinn hörfúðu þeir undan, þegar hún reis á fætur. —Þú segir, að ég hafi á röngu að standa, að Pacaud-fólkið hafi á röngu að standa, að allir hafi á röngu að standa. Hvað á þetta eiginlega að þýða? — Láttu hana í friði, sagði Baulu. Þau gengu út úr skrifstofunni. stúlkan fyrst, þá fasteignasalinn, Baulu og Manuel. Hjá dælunum biðu nokkrir bílar, og Miette, sem aldrei þótti rösk til verka, vasað- ist á millj þeirra og hafði ekki við. Telpan var að leika sér ásamt öðrum börnum í sandhrúgu á brautarbrúninni. Þegar hún sá föður sinn setjast í gamla Frégat- ann og konuna frá París við híið- ina á honum, hljóp hún að bjln- um, vingsandi höndum og kámug 1 andliti. — Farðu aftur að leika þér, sagði Manuel. — Ég ætla að skreppa í þorpið. Ég kem strax aftur. En telpan stóð þögul við bíl- hurðina, meðan hann volgraði vél ina. Hún hafði ekki augun af kon unni, sem sat á hlið honum. Þeg- ar hann sveigði hjá dælunum, voru Baulu og fasteignasalinn að skýra nokkrum viðskiptavinum frá at- burðinum. f speglinum sá hann, að allir horfðö eftir honum aka á burt. Sólin var í hvarfi bak við ás- ana, en brátt mundi hún birtast á ný, og verða annað dagsetur hinum megin við þorpið. Manuel þótti þögnin í bílnum óþægileg og sagði því stúlkunni, að þetta með sólina væri víst ástæðan fyr- ir því, að þorpið hét Deux-Soirs- les-Avallon. Honum fannst ein- sætt, að hún hlustaði ekiki á hann. Hann fór með stúlkuna ti'l Gar- at læknis, sem hafði stpfu í hús- inu gegnt kirkjunni. Garat var há vaxinn, gamall maður. nautsterk- ur, og í fjölda ára hafði hann gengið í sömu ullarfötunum. Man uel og læknirinn voru góðir kunn ingjar. Garat var snjall veiðimað- ur, sósíalisti eins og Manuel og fékk stundum Frégatann að láni A morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir) til Vest- mannaeyja, Húsavíkur, ísafjarðar. Patreksfjarðar, Egilsstaða og Sauð árkróks. Loftleiðir h.f. Eiríkur rauði er væntanlegur frá New York kl. 0730. Fer til Luxem- borgar kl. 0815. Er væntanlegur til baka frá Luxemborg kl. 1630 Fer til New York kl. 1715. Leifur Eiriksson er væntanlegur frá New York kl. 0830. Fer til Oslóar, Gautaborgar og Kaup- mannahafnar kl. 0930. Ei væntan- legur til baka frá Osló. Gautaborg og Kaupmannahöfn kl. 0030. Fer til New York kl. 0130. FÉLAGSLÍF Kvenfélag Grensássóknar heldur aðalfund sinn mánudaginn 19. okt. kl. 8.30, í safnaðarheimil inu Miðbæ. Venjuleg aðalfundar- störf. Rætt um námskeið i smeiti og fl. Frá Guðspckifélaginu. Aðalfundur Reykjavikurfélagsins verður haldinn n.k. föstudag kl. 8.30, s.d. Kl. 9 hefst almennur fundur, erindi flytur Ú.'fur Ragn- arsson iæknir er hann nefnir: „Framtíð lífsins á jörðinni" Kvenfélag Neskirkju. Fundur fimmtudaginn 15. okt. kl. 8.30, í félagsheimilinu Rætt um vetrarstarfið. Skemmtiatriði. Kaffi. Stjórnin. Orlofskonur Kopavogi. Myndakvöldið verðm fimmtudag inn 15. okt. kl. 8,30 í félagsheim- ilin-u 2. hæð. Kvenfélag Hallgrímskirkju. Fundur fimmtudaginn 15. októ- ber kk 8.30 i Félagsheimilinu. Rætt vetrarstarfjð. Egill Sigurðs son sýnir myndir frá fögrum stöðum innanlands. Dr. Jakob Jóns son segir frá starfi norrænna sjúkrahúspresta. Kaffiveitingar. Nýir félagar ve.'komnir. Kvenfélag Óháða safnaðarins. sýnikennsla í blómaskreytingu a fimmtudagskvöld 15. b.m. kl. 8.30. Takið með ykkur gesti. Kaffiveit- ingar. ORÐSENDING Mænusóttai'bólusetning fyrir full- orðna fer fram í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, á mánudögum kl. 17.—18. Inngangur frá Barónsstíg yfir brúna. ÁRNAD HEILLA Fimmtugur er í dag, 15. október, Magnús J. Kristinsson, rafvirkja- meistari frá Akureyri, nú til heim- ilis að Fjaitðarstræti 57, ísafirði. Gul.'brúðkaup eiga í dag 15 okt. hjónin Valgerður Brynjólfsd 'tir og Ingvar J. Björnsson, Hverfis- götu 9, Hafnarfirði. Þau vcrða stödd í dag að' hcimili dóttur sinn- ar og tengdasonar að Móabarði 14, Hafnarfirði.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.