Tíminn - 15.10.1970, Side 13
flMMTUDAGUR 15. október 1970
ÍÞRÓTTIR TIMINN ÍÞRÓTTIR
13
„Eins gott lið og ’68“
segír Örn Steinsen, þjálfari UL-liðsins í knattspyrnu, um íiðið, sem
lék gegn Wales og leikur við Skotland eftir hálfan mánuð.
„MiðafJ við undirbúningiifn, sem .
þetta lið fékk, er ég ánægður með
útkomuna úr leiknum við Walss“
sagði Öm Steinsen annar bjálfari
unglingalandsliðsins í knattspyrnu,
er við ræddum við hann \ gær.
— Það er ekki nema rétt mán-
u'ður síðan liðið var kallað sam-
an, og er það óiíkt minni t.ími,
sem það fékk, en UL-liðið 1968,
sem komst í úrslit í Norðurlanda-
mótinu hér. Það æfði í 5 mánuði
Örn Steinsen
og fór tvisvar sinnum í æfinga-
búðir þar að auki. Það lið var
gott lið, en þetta lið er ekki lak-
ara, það eina, sem það vantar er
meiri samæfing, og við þremenn-
ingarnir, sem stöndum í þessu ég,
Steinn Guðmundsson og Árni
lÁgústsson höfum mikla tirú á
því.
— Siðari leikurinn hér heima,
sem er við Skotland fer fram eft-
ir hálfan mánuð, og við stöndum
illa að vígi með undirbúing liðs-
ins fyrir þann leik.
— Strákarnir eru allir í Skóla,
og eiga erfitt með að fá frí úr
þeim til að æfa. Næsta helgi dett-
ur alveg niður hjá okkur, því bá
fa.ra fram úrslitaleikirnir í ís-
Jandsmótinu, svo og aukaleikir í
2. flokki. Og er meiri hlutinn
úr þessurn 25 manna hópi, sem
æfir með liðinu, úr þeim félög-
um, sem þar keppa.
— í næstu viku getum við þó
líklega verið með einar 2—3 æf-
ingar fyrir þá sem búa í Reykia-
vík og nágrenni, en Vestmanna-
eyingar.niir og Akurej'rin.gurinn
geta ekki mætt á þær æfingar.
— Við ætlum að reyna að fá
hópinn saman í lok næstu viku,
og æfa þá laugardag, sunnudag
og mánudag, en leikurinn við
Næstu
leikir
í bikar-
keppninni
Margir hafa verið að velta
þvi fyrir sér að undanförnu,
hvaða leikir séu næst í Bikar-
keppni KSÍ, og hvaðséeftir
af þgjrri keppni.
Ekki er það neitt merkilegt,
því hún er öll komin í rugl-
ing fyrir þá, sem ekki hafa
fylgzt með hvernig var dregið
í lokakeppnina.
Eins og málin standa. í dag,
er einn leikur eftir úr 1. um-
ferð milli Breiðabliks og Ár-
manns, en einum leik er lokið
í 2. utnferð milli ÍBV og ÍA, og
er ÍBV komið í undanúrslit.
Úr 2. umferð er eftir að
leika þrjá leiki, Keflávík —
Valur, Fr^un , — Hjörður,. jtsa-
firði og sigurvegarinn úr leik
Breiðabliks — Ánmanns, við
KR. Að þessum leikjum lokn-
um verða fjögur lið eftir í
keppninni ,og þá verður dregið
um hvaða lið lenda saman þar,
en sigurvegararnir úr þeim
leikjum leika síðan til úrslita.
Ekki er gott að segja um
hvenær keppninni lýkur, en
það verður í fyrsta lagi eftir
mánuð. Þrír leikir geta farið
fram um næstu helgi, Breiða-
blik—Ármann. ÍBK—Valur og
Fram—Hörður. Leikur KR við
Breiðablik eða Ármann, um
aðra helgi, undanúrslit urn
þriðju helgi héðan í frá, og
úrslit um þá fjórðu. Þetta er
þó með þeim fyrirvara að úr-
slit fáist úr þeim leikjum, sem
eftir eru.
— Klp.
Knattspyma í Keflavík
Að undanförnu hefur staðið yfir
í Keflavík knattspyrnumót Kefla
víkur og er það kcppni milli fé-
laganna tveggja þar, UMFK og
KFK, og Ieikin tvöföld umferð
í öllum flokkum.
í fyrri umferðinni urðu úrslit
þe«si:
Ársþing KKÍ
Ársþing Körfuknattleikssam-
bands íslands verður haldið í
Reykjavík dagana 26. og 27. októ
ber næstkomandi.
Tillögur sem leggja á fyrir þing
ið, verða að hafa borizt til Körfu-
knattleikssambands íslands, íþrótta
miðstöðinni, Laugardal. fyrir 20.
október.
Skotland fer fram á þriðjudag.
— Aðspurður sagði Örn, að ís-
lenzka liðið ætti að leika í Wales
og Skotlandi 23. og 25. nóvember.
— „Við sjáurn sjálfir um ijár-
hagshliðina á þeirri ferð, svo og
allan kostnað við þátttöku íslenzka
liðsins í þessari 'keppni, og er það
ekki minna starf fyrir okkur og
strákana, en að æfa, þjálfa og
leika.
— Við erum búnir að halda
eina 2 dansleiki, högnuðumst ör-
lítið á öðrum þeirra, en töpuð-
um á hinum, svo útlitið er ekki
beint gott í þeim efnum.
— Örn sagði að lokum að eft-
ir þeim upplýsingum, sem þeir j
hefðu fengið hjá hinum enska ;
dómara leiksins við Wales og ‘
Walesmönnum sjálfum, væri
skozka liðið og það welska mjög
áþekk, en þó hefðu Walesmenn
viljáð halda því fram að þeir
væru betri en Skotarnir. — klp.
Þessi mynd er ekki af ástfangnu pari, tekin á útiskemmtun í sumar,
heldur frá landsleik íslands og Wjiles í Evrópukeppni landsliða 18 ára og
yngri, sem fram fór á Laugardalsvellinum í fyrra dag. — ÞaS er einn af
hinum harðsnúnu sóknarmönnum Wales, Terry Hughes sem er fastur
maður í aðalliSi Shrewsbury, sem leikur í 3. deild I Englandi, sem þarna
er í „innllegum faðmlögum" við hinn síðhærða markvörð ísienzka liðsins,
Árna Stefánsson frá Akureyri. Effir hálfan mánuð leikur íslenzka liðið
við Skotland hér, en í lok nóvember leikur það ytra við bæði þessi lið.
(Tímomynd GÆ.)
M.fl. UMFK — KFK 4:1
3. flokkur UMFK — KFK 1:1
4. flokkur UMFK — KFK 1:1
5. flokkur UMFK — KFK 5:1
Fyrri leiknum í 2. flokki er ólok
ið, en hann fer fratn í þessari
viku, og síðari umferðin í næstu
viku.
— POSTSENDUM —
_ —_=■- : • -n. : - ~
Rjómaísterta -
eftirréttur
eða kaff ibrauð ?
Þér getið valið
Ef til vill vitið þér ekki, að yður býðst
12 manna Emmess ísterta, sem er með tveim
tertubotnum úr kransakökudeigi. — Sú er þó
raunin. Annar botninn er undir ísnum, en. hinn
ofan á. ísinn er með vanillubragði og íspraut-
aðri súkkulaðisósu. Tertan er því sannkallað
kaffibrauð, enda nefnum við hana kaffitertu.
Kaffitertan er fallega skreytt og kostar aðeins
250,00 krónur. Hver skammtur er því ekki dýr.
Reglulegar fstertur eru hins vegar bráð-
skemmtilegur eftirréttur, bæði bragðgóður og
fallegt borðskraut í senn. Þær henta vel við
ýmis tækifæri og eru nánast ómissandi ( barna-
afmælum.
Rjöma-ístertur
kosta:
6 manna terta
9 manna terta
12 manna terta
6 manna kaffiterta
12 manna kaffiterta
kr- 125.00.
— 155.00.
— 200.00.
— 150.00.
— 250.00.