Tíminn - 17.10.1970, Qupperneq 1
*
*
*
*
*
*
*
*
-*■
*
*
*
*
*
-"•t ITT „ FRYSTIKISTUR
' q FRYSTISKAPAR
22/uii£cbWé£<xA. fir
RAFTÆKJADEILD, MAFNARSTRÆTI 23. SlHl 183S5
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*r
Unglingarnir, sem mótmælt hafa sýningum á Grænhúfunum, fyrir utan A usturbæjarbíó.
GILOHRIST
NÝTT STARF
EJ-Reykjavík, föstudag.
Brezka blaðið The Times
skýrði frá því á dögunum, að
Sir Andrew Gilchrist hafi verið
skipaður stjórnarformaður sér-
stakrar Þróun^rstofnunar fyrir
Skotland — „Highlands and Is
lands Development Board“, og
tekur hann við starfinu frá 1.
næsta mánaðar. Sir Andrew
Framhald á bls. 14
Frumvarp Framsóknarmanna um skattvísitöluna:
Eiga láglaunamenn aö borga í skatt
60% af launahækkunum þessa árs?
sú verður niðurstaðan, nema skattvísitalan fáist stór hækkuð
eða að skattaálagningu verði breytt á annan hátt
Sýna „Grænhúfurnar"
undir lögregluvernd
Átök við mótmælendur á
hverju kvöldi
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Kvikmyndin ,,Grænhúfurnar“, sem sýnd er í Austurbæjarbíói þessa
dagana, hefur verið sýnd undir lögregluvemd s.I. tvö kvöld. f fyrra-
kvöld fór hópur ungs fólks upp á svið, framan við kvikmyndatjaldið,
um það bil og sýning myndarinnar hófst, og fór að tala við gesti um
stríðið í Víetnam og hverjir séu hinir raunverulegu stríðsglæpamenn
þar. Tafðist nokkuð að sýning myndarinnar gæti hafizt, meðan lög-
reglumenn fjarlægðu fójkið út úr húsinu. f gærkvöldi voru átök milli
unglinga og lögreglumanna utan við og inni í kvikmyndahúsinu áður
en sýning myndarinnar hófst. Voru milli 20 og 30 ungmenni hand-
tekin og færð til yfirheyrslu og sleppt síðan. Það eru meðlimir í
Víetnamhreyfingunni, sem standa fyrir þessum mótmælaaðgerðum.
Mynd þessi fjallar um aðgerðir
bandarískrar herdeildar í stríðinu
í Víetnam, og hafa sýningar á
henni vakið mótmæli víða í Evr-
ópu, og hefur sýningum verið
hætt í nokkirum löndum vegna
óspekta.
Áður en sýningin, sem hefjast
átti kl. 9 í gærkvöldi hófst, safn-
aðist hópur ungmenna úr Víetnam
hreyfingunni við Austurbæjarbíó
Urðu mikil þrengsli í anddyrinu
og komust nokkrir inn miðalaust.
Lögreglumenn voru á staðnum og
urðu talsverðar stimpingar við
innganginn. Brotnuðu þrjár stór-
ar rúður, en lögreglan handtók þá
sem mest höfðu sig í framm.i
Seinkaði sýningu um 2C mínútur.
Árni Kristjánsson, forstjóri
kvikmyndahússins, sagði Tímanum,
að aðsókn að myndinni væri
sérstaklega góð, og væri allt með
friði og spekt í salnum meðan á
sýningu stendúr. Verður lögreglu
vörður hafður við húsið næstu
kvöld. Myndin er einnig sýnd kl.
5 á daginn, og gengur þá allt
þegjandi og hljóðalaust fyrir sig.
í gærkvöldi kom einn af for-
vígismönnum Víetnamhreyfingar-
Framhald á bls. 14
HERLOG SETT /
KANADA í GÆR
Hundruð manna handtekin
NTB—Ottawa, föstudag.
Pierre Trudeau tilkynnti i
dag, að hann hefði lýst hern-
aðarástandi í Kanada, og eru
þar með flest almenn mann-
réttindi numin úr gildi. Jafn-
fram hefur lögreglan handtek
ið á þriðja liundrað inanns,
sem hún telur að sé í tengsl-
um við öfgasinna meðal frönsku
mælandi manna í landinu, og
einkum þó tengdir samtökun-
um FLQ, sem undanfarna daga
liefur haft brezka sendiráðs-
starfsmanninn Cross og La-
porte, ráðherra í stjórn Que-
becks, í lialdi og krafizt mik-
ils launsargjalds fyrir þá auk
þess, sem þess er krafizt að
23 fangar verði látnir lausir.
Öflugur lögregluvörður er á
götum Quebeck e» ekki höfðu
borizt fréttir af átökum í
kvöld.
Það var snemma ; morgun
að ísl. tíma, sem kanádíska rík
isstjórnin tilkynnti um ákvörð
un sína. Sagði þar. að FLQ
væri hópur öfgamanna, sem
hyggðust steypa stjórn lands-
in með vopnum, og se.m fremdi
alvanlega glæpj, mannrán og
morð. Herlög þau, sem nú eru
í gildi, leyfa yfirvöldum lands-
ins að handtaka fólk og halda
því í gæzluvarðhaldi í allt að
90 daga, að gera húsleit án
séirstakrar hemildar og að
handtaka og halda fólki í fang
elsi í 21 dag án þess að það
komi fyrir dómstóla.
Þessar reglur gilda aðal.'ega
um félagsmenn eða grunaða fé-
lagsmenn í FLQ, en einnig um
alla þá sem hjálpa þeim sam-
tökum eða gefa yfirlýsingar
fyrir hönd þeirra.
Allar tilraunir til þess að
semja við FLQ um gíslana tvo
virðast hafa farið út um þúf-
ur, en FLQ krafðist þess að 23
fangar yrðu látnir lausir, og
jafnframt að samtökunum væri
greiddar um 500 þúsund dal-
iir.
Lögreglan í Quebeck-héraði
höfðu síðdegis í dag handtek-
ið 238 manns. Þar á meðal
verkalýðsleiðtogann Michel
Framhald á bls. 14
TK—Reykjavík, föstudag.
f fyrradag var lagt fram á AI-
þingi af fimm Framsóknarmönn-
um Þórarni Þórarinssyni, Halldóri
E. Sigurðssyni, Jóni Skaftasyni,
VilhjáJmi Hjálmarssyni og Ey-
steini Jónssyni frv. um þá breyt-
ingu á skattalögum, að skattvísi-
talan fylgi framfærsluvísitölunni.
I greinargerðinnj kemur fram, að
að fáist ekki þessi eða önnur hlið
stæð breyting á skattalögunum,
mun láglaunafólk þurfa að greiða
á næsta ári í skatt um 60% af
þeim launahækkunum, sem það
fær í ár.
f greinargerð frumvarpsins seg-
ir svo;
„Frumvarp þetta fjallar um þá
breytingu á tekjuskatts- og eign-
arskattslögum, að persónufrádrátt
ur einstaklinga og hjóna, frádrátt-
ur vegna barns og frádráttur
vegna heimilisstofnuuar, og svo
þrepin í skattstiganum, skuli breyt
ast til hækkunar eða lækkunar
í samræmi við framfærsluvísitölu.
Nú ákveður fjármálaráðherra breyt
ingar á skattvísitölunni, án þess
að vera bundinn af nokkrum
ákveðnum reglum.
Skattvísitala mun fyrst hafa
komið hér til sögu á árinu 1953.
Þá beitti þáv. fjármálaráðherra.
Eysteinn Jónsson, sér fyrir því, að
það ákvæði var sett í lögin um
tekju- og eignarskatt, áð tekjutöl-
ur skattstiga skyldu breytast í
samræmi við kaupgjaldsvisitölu,
sem þá var í reynd hin sama og
framfærsTuvísitalan. Laun höfðu
þá hækkað á undanförnum árum
vegna dýrtíðarbóta og skattgreið-
endur því greitt síhækkandi skatta
án tilsvarandi hækkunar á raun-
tekjum. Þótti því rétt og nauð-
synlegt að veita skattgreiðendum
þá tryggingu, sem fólst í setningu
umrædds lagaákvæðis.
Rétt er að geta þess, að á þing-
inu 1952 höfðu tveir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, Jóhann Haf-
stein og Magnús Jónsson, flutt
frumvarp um breytingu á skatta-
lögunum, þar sem m. a. var lagt
til, að skattar breyttust til hækk-
unar og lækkunar í samræmi við
kaupgjaldsvísitöluna. Jóhann Haf
stein mælti fyrir frurmvarpinu,
og sagðist honum m. a. á þessa
l’eið:
„Það, sem menn hafa ekki gert
sér nægjanlega grein fyrir á und-
anförnum árum, er, að enda þótt
Alþingi hafi ekki með nýrri skatta
löggiöf lagt nýja skatta á einstakl-
ingana í þjóðfélaginu, þá hafa
skattarnir stöðugt verið áð hækka
stórkostlega, og það er vegna þess,
að dýrtíðin í landinu, hin sívax-
andi dýrtíð, hefur gegnt hlutverki
vaxandi skattpíningar ár frá ári.“
(Alþt. 1952, C. 474).
Ljóst er það einnig af þessari
ræðu Jóhanns, að fyrir flutnings-
Framhaid á bls. 3