Tíminn - 21.10.1970, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.10.1970, Blaðsíða 6
$ TIMINN MIÐVIKUDAGUR 21. október 1970 Anna Matthíasdóttir. " bifreida stjórar BARÐINNHF. ÁRMOLA 7. REYKJAVlK. SÍMI 30501. alfaraleiðar þeirra tíma, að fólkið fagnaði gesti setn að garði bar, Dálítið var um það, að út- róðrarmenn komu á vorin os höfðu aðsetur í Grimsey, eins og öðrum var beim vel tekið og dvöl þeiirra gerði lífsmynd- ina breytilegri. Annars er b.iargræðistimi Grímseyinga, vorið og sumar- ið, annasamur og störfin fjöl breytt. Ég hef áður minnzt á það hve heilsa mín var veil og ég þess vegna ekki bjaxtsýn á framtíðina. — Ég var kirtla- veikt barn, sílasin gelgjuleg- ur unglingur, fölleit ung stúlka, sem aldrei vissi hvort ég kæmist i skóia eða vinnu frá degi til dags. Um 16 ára aldur fór ég að heiman til kunningjafólks for- eldra minna og ætlaði að reyna að vinna fyrir mér og sjá mig um í heiminum. Eftir nokkrar vikur lagðist ég í rúm ið og var flutt á spitala. Spít- alalegan varð sex mánuðir, var ráðgert að ég færi á Vífils- staðahælj en af þvi varð bó ekki, því áðúr en pláss feng- ist var ég álitin nægilega frísk til þeimferðar. Ég fór til náms í kennara- s'feólann, en gat þó ekki treyst heilsu minni. Það fór lífea svo, að ég lagðist í rúm- ið, er ég átti ólokið prófi í nokkrum námsgreinum og varð að láta allt bíða næsta vors. Sú bið olli mér sárum vonbrigðum. Fyrst eftir prófið byrjaði ég að fást við kennslu, en fann fljótt, að vegna vanheilsu mundi ég ekki fullkomlega geta annað því starfi, réðst ég þá í þjónustu landsímans og hef nú unnið bar nær fjóra áratugi — þar af sjö ár við loftskeytastöðina. Eitthvað féfckst ég jafnframt við kennslu fyrstu árin. Ekki var þó útlit fyrir að ég myndi fá bót á vanheilsu minni og næstu 25 árin voru Eitt barna þeirra séra Matt- híasar Eggertssonar og konu hans frú Guðnýjar Guðmunds- dóttur er Anna. Húnn fæddist í Grímsey 24. ágúst 1905, ólst upp þar heima og dvaldi fram á fullorðins ár. - Ég man vel eftir æskuárun um heima í Grímsey. Þó hef ég sjálfsagt ekki notið þess að vera til í jafn ríkum mæli og Árið 1895, þegar sól ber hæst yfir sjónhring íslenzkra byggða, fluttu norður í Gríms- ey ung hjón, séra Matthías Eggertsson og Guðný Guð- mundsdóttir. Hann hafði þá fengið veitingu fyrir Miðgarða prestakalli og þjónaðj þar síð- an í 42 ár. Þegar þau komu til eyjarinnar voru þar 25 íbú- ar, en sú tala tvöfaldaðist í þeirra tíð. Vafalaust verður það ýms- um nútíma kirkjunnar þjón- um torráðin gáta, hvers vegna ung presthjón taka sig upp og flytja norður til Grimseyjar, nyrztu byggðar sem lítur ís- lenzfcri lögsögu, og þá ekCd síður áð dveljast þar í röska fjóra áratugi. Séra Matthías Eggertsson, var bróðursonur þjóðskáldsins og höfuðklerksins séra Matthi- asar Jochumsonar og þáði af honum uppeldi sitt. Ekki er ólíklegt, að samfara ættaxerfð- inni frá Skógum í Þorskafirði, hafi sambandið við frændann og leiðsögn hans orkað þann- ig á þennan ljúflynda unga mann, að hann hafi sem prestur, kosið að veita sína þjónustu, einmitt þar sem öðr um fannst fátt um að búa, en engu síður þurfti að veita lífcn og styrk í önn áranna. Þa séra Matthías og frú Guðný eignuðust 14 börn. Af þeim komust 11 til fullorðins ára. Á því leilcur varila vafi, að . saga þeirra Grímseyjarpxesb hjóna, er ein þeirra hetju- sagna, sem vafin er dulúð og lítt hefur verið á lofti haldið. En á þvílíkum stað sem Gríms ey er, geta tvær samhentar yf- irburðamanneksjur skapað byggðinni örlög. Þau hjón urðu leiðtogar þessa fámenna samfélags. Hann „einlægur, grandvar og góðviljaður“. Hún „gædd undraverðum hæfileikum til að hjúkra. Þegar hún birtist í dyrunum, var eins og kvíða og áhyggjum væri svipt burt“. ÞAÐ ER EKKI RÉTTU LEIÐINA önnur börn, því allt frá bernsku var ég mjög heilsu- veil og gat þess vegna ekki fylgzt fullkomlega með, hvorki í leik né starfi. En ég gat set- ið og notið þeirra náttúru- töfra, sem byggðin mín hefur að bjóða, þegar blítt lætur. Mér eru ógleymanlegar hin- ar síbjörtu sólnætur. Þegar óra vídd hafsins blikar undir mið- nætursól, og hrærist ekki meira en lygnt háfjallavatn. Kyrrðin og friðurinr er undur samlegt. í landsýn risu fjöllin eins og snjóhvítir pýramidar upp frá hafinu. Þegar ég var sjö ára gömul fékk ég í fyrsta skipti að fara til lands. Ég bað mömmu að vekja mig, þegar við kæmum að fjöllunum. Hún gerði það. „Nei, ég vil ekki þessi fjöll, heldur fjöllin, sem við sjáum að heiman". Kolmórauðir lækir runnu niður gráar og grýttar hlíðar. Ennþá er ég ekki fullsátt við þessa fyrstu nærmynd fjall- anna, sem vitund mín skynj- aði. Veturinn var þungbúinn, oft hvítur og kaldur, stundum dimmur, tröilslegur og ógn- andi. Þá gat orðið þröngt í búi á stóru heimilL En móðir mín kvartaði aldrei, þótt kost- urinn væri oft fábreytilegur, þegar ísinn hafði umkringt eyj- una, svo hvorki varð komizt til lands né út til miða. Foreldrar mínir og eins við börnin, voru virkir þátttakend ur í lífi eyjaskeggja, hvort sem vel gekfc ellegar móti blés. Ég held að ekki sé fjarri lagi að líkja GrLmseyingum þeirra tíma við eina stóra fjölskyldu, sem þoldi súrt og sætt saman. Ég veit ekki hvort við höf- um nokkurn tíma hugsað þá hugsun til enda að við vorum á eyju. Félagslífið var gott, bóbasafn og skóli, svo nóg var um að hugsa og við að vera. Auðvitað fannst okkur það há- tíð, þegar fólk kom úr landi, en var það ekki svo í hverri íslenztori byggð, sem lá utan

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.