Tíminn - 24.10.1970, Qupperneq 1

Tíminn - 24.10.1970, Qupperneq 1
241. tbl. — Laugardagur 24. október 1970. — 54. árg. - »TT777r ^ FRYSTIKISTUR * Ik. —- ff ~ • O iI-r rDVCTlWÍBAD # * * * * * * * * * * * * * * JO/itíífnStA^éjLa/i* A/ y. RAFTÆKJADEILD, HAFNARSTRÆTI 23, SlMl 1SS0S 25 ára afmælis minnzt Standa háskólamenn að hópuppsögnum á næstunni fái þeir ekki tafarlaust SB—Reykjavík, föstudag. Á morgun, laugardag, verður 25 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna haldið hátfðlegt um allan hehn. Edward Hambro núverandi forseti allsherjarþingsins og U Thant, að- alritari Samcinuðn þjóðanna flytja allsherjarþinginu afmælisboðskap sinn á morgun, en auk þess verð- ur send út yfirlýsing til að leggja áherzlu á aðalatriði sáttmála SÞ, Hérlendis verður afmælis sam- takanna minnzt með hátíðarsam- komu í Hátíðarsal Háskólans, sem Félag Sameinuðu þjóðanna á ís- landi gengst fyrir. Hefst samkom an kl. 17 á morgun, laugardag. Á samkomunni vedður minnzt stefnu og starfs samtakanna. Stutt ávörp flytja forseti fslands, Emil Jóns son, utanríkisráðherra og Gunnar G. Schram, formaður félags Sam einuðu þjóðanna. Yfirlýsing sú, sem send verður út frá fundi Sameinuð þjóðanna í aðalstöðvunum í New York á morgun, er í 12 liðum. Allmiklar deilur urðu um orðalag hennar og neituðu fulltrúar einstöku aðild arlanda að skrifa undir yfirlýs- inguna. 16 skíöa- lyftur keyptar fyrir forgöngu Skíðasambandsins klp-Reykjavík, föstudag. Á undanförnum mánuðum hef ur Skíðasamband íslands unnið ötullega að því að fá til landsins ódýrar og hentugar skíðalyftur, sem koma mætti fyrir með litl um tilkostnaði víða um land. Fyrir ári rákust forráða- menn Skíðasambandsins á mynd í svissnesku blaði af skíðalyftum, sem heita „Borer-Star“ og hófu þegar að grennslast fyrir um þær. Kom í l.iós að þær voru bæði ódýrar og hentugar og er nú búið að gera samning við fyrirtækið, sem framleiðir þær, um kaup á 16 lyftum. Verða þær settar_ upp víðsvegar um land, 7 þeirra í ná- grenni Reykjavíkur, 2 fara til Siglu fjarðar og 1 til Neskaupstaðar, Seyðisfjarðair, Húsavíkur, Bol ungarvikur, Ólafsfjarðar, Egils- staða og í Mývatnssveit. Lyftur þessar eru rennilyftur, þ.e.a.s. maður grípur í handfang og rennur síðan upp á skíðunum. Þær eru færanlegar og er hægt a@ flytja þær úr stað á einum degi án mikillar vinnu Er það hentugt við okkar aðstæður, því stundum vill koma fyrir á þeim stöðum, sem lyftur eru, að eng inn snjór sé á þeim bletti, en Framhald á bls. 14. Myndln er af höfuðstöðvum Samelnuðu þjóðanna i New York. EB—Reykjavík, föstudag. Verði ekki tafarlaust fallizt á kröfur Bandalags háskólamanna, þess efnis, að bandalagið fáj full- an samningsrétt um kaup og kjör bandalagsmanna, kann svo að fara að þeir háskólamcnntaðir menn sem eru í ríkisþjónustu segi upp störfum sínum. Háskólamenn vilja ekki að B. S.R.B. fari með samningsrétt sinn, og krefjast jafnréttisaðstöðu við B.S.R.B., en sem kunnugt er standa nú yfir samningar um kjör starfsmanna ríkisins. Eru háskólamenntaðir ríkis- starfsmenn mjög óánægðir með kjör sín og segja að miðað við útreikninga sem gerðir eru á grundvelli starfsmats og launa- kjara á frjálsum markaði nú, hafi þeir nú allt að 10% minni Iaun en þeim ber. 1600—1700 háskólamenn erfx i BHM og er um helmingur þeirra í ríkisþjónustu. Fari svo að þeir segi upp störfum sínum hjá ríkinu, segjast þeir ætla að koma á fót vin imiðlun fyrir aðildarmenn samtakanna sem annist þá ráðn ingu þeirra jafnt hér heima og erlendis. Bandalag háskólamanna efndi lil fundar í dag með fréttamönn um þar sem þessar upplýsingar komu fram. Háskólamenn eiga enga aðild að B.S.R.B., heldur hafa þeir stofnað með sér sín eigin samtök. Vegna þess að sam- tök þeirra hafa ekki samningsrétt um kaup og kjör,; telja háskóla- menn sig ekki njóta mannréttinda á við aðra þjóðfélagsþegna. Segja þeir fulltrúa sína hafa, fyrir ná'ð ríkisvaldsins, fengið að fylgjast með undirbúningi nýrra samn- inga, þ. á.m. starfsmati. Sú sam- vinna mun yfirleitt hafa gengið vel, þar til nú fyrir skömmu, að fram komu drög að samningum eftir starfsmenn Kjararáðs og samninganefndar ríkisins. Segja háskólamenn þessi drög hafa komið eins og þrumu úr heiðskíra lofti yfir fulltrúa sína. Framhald á 14. síðu. Liggur milli heims og helju eftir hnífsstungu Eldri maður úrskurSaður í 40 daga gæzluvarðhald eftir atburðinn OÓ—Reykjavík, föstudag. Ungur maður liggur þungt hald inn á Borgarspitalanum eftir hnífs stungu, sem hann hlaut í gær- kvöldi. Síðar um kvöhlið var hand- tekinu fullorðinn maður, sem við- urkenndi að hafa stungið piltinn, sem er 18 ára að aldri, en hann segist hafa veitt honum áverkann í nauðvöni, og að pilturinn hafi ot- að að sér hnífi að fyrra bragði. Var maðurinn úrskurðaður . 40 daga gæzluvarðhald. Enn er ekki hægt að yfirheyra piltinn. Hann er ekki úr Iífshættu. Rétt fyrir kl. 6 í gærkvöldi skjögraði pilturinn upp planið framan við útsölu Áfengisverzlun arinnar við Lindargötu. Áður en hann komst að dyrunum féll hann niður. Viðstaddir sáu strax að maðurinn var illa særður á kviði. Var lögreglu og sjúkraliði þegar gert viðvart. Var pilturinn fluttur á slysavarðstofuna og baðan beint á skurðarborð í Borgarsjúkrahús- inu. en hann var mikið skorinn á kviðnum. Þegar pilturinn kom að útsöl unni blæddi honum mikið og var orðinn svo aðframkomin„, að hann gat ekki staðið lengur á fótun um, enda var hann særður hol- sári. Hné hann niður við vestari dyr verzlunarinnar. í fyrstu var ekkert vitað hvernig pilturinn fékk áverkann, en rann sóknarlögreglan komst fljótlega Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.