Tíminn - 24.10.1970, Side 13
LAUGARDAGUR 24. október 1970.
13
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
tMih,Vi.ii M
Á PAPPlRNUM ER
FRAM STERKARA
- MEÐ SÍNA 6 LANDSLIÐSMENN 0G 3 NORÐURLANDAMEIST-
ARA - EN FRAKKARNIR KUNNA EINNIG SITT FAG
ldlp-Reykjavík.
í dag kl. 16.00 hefst í Laugar
dalshöllinni fyrri leikur íslands
meistaranna 1970, Fram og Frakk
landsmeistaranna 1970 US Ivry í
Evrópukeppninni í handknattleik.
Bæði li'ðin stilla upp sínu sterk
asta liði, og á pappírnum virðist
Fram sterkara. Af 12 leikmönn-
um liðsins hefur helmingurinn leik
ið með íslenzka landsliðinu á und
anfömum árum, og bar af 5 í
síðustu HM-keppni, sem fram fór
í Frakklandi s. 1. vetur, en þar
léku þeir m. a. við franska lands
liðið, sem skipað var leikmönnum
er leika með US Ivry.
Þessir HM-leikmenn Fram eru,
Þorsteinn Björnsson, Ingólfur
Óskarsson, Sigurður Einarsson,
Biörgvin Björgvinsson og Sigur
bergur Sigsteinsson, en auk þeirra
hefur Guðjón Jónsson einnig leik
ið með landsliðinu. Samanlagður
landsleikja'fjöldi þessara manna
er 194 leikir, þar af hefur Ingólf
ur leikið 45 leiki, Sigurður 43 og
Þorsteinn 39.
Fyrir utan þessa 6 menn eru 3
Noírðurlandameistarar í handknatt
leik frá síðasta ári í liðinu, þeir
Guðjón Erlendsson, Axel Axels
son og Pálmi Pálmason og til við
bótar þeirn, tveir fyrrverandi UL
menn, þeir Arnar Guðlaugsson og
Gylfi Jóhannsson. Þjálfari þeirra
er heldur enginn nýgræðingur í
landsliði því þáð er Gunnlaugur
Hjálmarsson, sem lék m. a. 44
landsleiki.
US Ivry, er talið bezta félags-
lið Frakklands í dag, oa með
því leika fjórir HM-leikmenn
Frakklands. Þekktastur þeirra er
René Richard með um 80 lands
leiki að baki en hann er 27 ára
gamall. Bróðir hans Miehael Rich
ard, sem er 24 ára, hefur 30
landsleiki að baki og er talinn
mjög svipaður bróður sínum á
leikvelli. Þá kemur Rachid Agg-
oune, sem er tvítugur og hefur
leikið 15 sinnum í landsliði og
loks risinn Jacques Brunet, sem
er 190 á hæð og hefur 45 lands-
leiki að baki. Fyrir utan þessa
landsleiki hafa þeir allir tugi fé-
lagsleikja að baki eins og leik-
menn Fram.
Leikurinn hefst kl. 16.00 og
verður hann dæmdur af norskum
dómurum, sem hér hafa báðir
dæmt áður og eru með þeim
beztu, sem hér hafa sézt. Ekki
mun veita af góðum dómurum,
því þetta franska lið er að sögn
kunnugra mjög ákveðið og fast
lið, sem ekki lætur í minni pok-
ann fyrir nokkrum hlut, og það
gerir Framliðið ekki heldur.
Leika í hádegim
klp—Reykjavík.
Nú hefur verið ákveðið að
leikur íslands og Skotlands í
^ Evrópukeppninni í knatt-
spyrnu 18 ára og yngri, sem
fram á áð fara n.k. þriðjudag,
fari fram á Laugardalsvellin-
um og hefjist kl. 12.15.
Verður ,það í fyrsta sinn
sem landsleikur fer fram svo
snemma dags hér á landi, og
áreiðanlega fyrsti landsleikur-
inn, sem fram fer í Evrópu, sem
leikinn er í hádeginu.
Eins og fyrr segir hefst leik-
urinn kl. 12.15 og honum lýk-
ur kl. 13.50. Þurfa menn því
ekki að fá frí úr vinnu eða
skólutn nema í einn tíma. Það
er aðsóknarinnar vegna, sem
leikurinn er látinn fara fram
svona snemma. Memn eiga betra
með að komast á leikinn á
þessum tíma en kl. 15 eða 16,
og margir hafa áhuga á að sjá
hann, og er þarna komið á
móts við þá.
Unglinganefnd KSÍ hefur val
ið liðið sem leika á gegn Skot-
landi, og er það þannig skiþáð:
Árni Stefánsson, ÍBA
Gunnar Guðmundsson, KR
Helgi Björgvinsson, Val
Þórður Hallgrímsson, ÍBV
Róbert Eyjólfsson, Val
Björn Pétursson, KR
Árni Geirsson, Val, fyrirliði
Snorri Rútsson, ÍBV
Örn Óskarsson, ÍBV
Ingi Björn Albertsson. Val
Ólafur Danívaldsson. FiH.
Framhald á bls. 14
Unga Í A átti í erfið-
leikum með gamla ÍA
íslandsmeistararnir í handknattleik 1970, Fram, sem í dag mæta Frakklandsmeisturunum 1970, US Ivry, í fyrrl
leik iiðanna í Evrópubikarkeppninni í handknattleik. (Tímamynd Gunnar)
fslandsmeistararnir í knattspyrnu
1970 frá Akranesi, áttu í miklum
vandræðum með íslandsmeistar-
ana frá 1960, sem einnig eru frá
Akranesi, í fyrra kvöld, er þessi
lið mættust við vígslu nýju flóð
ljósanna á Akranesi.
„Gömlu karlarnir“ léku með
fuílt lið eins og það var 1960, en
þá léku þeir ekki með Ríkharður
og Donni. Ingvar Elísson var
með þeim þá og hann lék einnig
imeð í fyrra kvöld, en í meistara
liðið 1970, vantaði Matthías, Guð-
jón og Einar markvörð, en í
þeirra stað léku, Davíð. Andrés
og Björn Lárusson.
Þeir „gömlu“ komust fljótlega
í 2:0 og skoraði Skúli Hákonarson,
sem nú er bóndi uppi í Borgar-
firði, bæði mörkin. Eyleifur jafn-
aði fyrir hálfleik 2:2 en þeir
„gömlu“ komust í 4:2 (Sveinn
Teitsson og Þórður Jónsson). Ey-
leifur minnkaði bilið aftur í 4:3
og Teitur jafnaði leikinn 4:4.
Á síðustu sekúndu skoraði svo
Björn Lárusson sigurmark „ungl-
inganna" 5:4.
Var mikill hasar í leiknum,
sem var 2x35 mín. Gáfu þeir
„gömlu“ hinutn ekkert eftir og
léku skínandi knattsp. á köflum.
Voru hinir nýbökuðu meistarar
heldur óhressir yfir þessu öliu
saman og var einum þeirra vís-
að af leikvelli fyrir að láta skapið
hlaupa með sig í gönur í þessum
„bræðraleik".
Breiðablik bakkaði
KR mótmælti vellinum í Kópavogi. — Leikurinn fluttur til Reykjavíkur
ÍÞRÓTTIR
um helgin
LAUGARDAGUR:
Knattspyrna:
Melavöllur kl. 13.45. /E:kar-
keppni KSÍ, Breiðablik — KR.
Framvöllur kl. 15.00. Bikarkeppni
1. flokks, Fram — ÍBK (undanúr-
slit).
Vestmannaeyjavöllur kl. 14.00.
Bikarkeppni I. flokks, ÍBK —
Þróttur (undanúrslit).
Akranesvöllur kl. 15.00. Bikar-
keppni 2. flokfcs, ÍA — ÍBV
(undanúrslit).
Hamlknattleikur:
Laugardalshöll ki. 16.00. Evrópu-
keppnin í handknattleik, Fram —
US Ivry.
Laugardalshöll kl. 18.00. Reykja-
víkurmótið, meistarafl. kvenna,
Fram — Ármann, 2 leikir í 1. fl.
og 7 leikir í yngri flokkunum.
SUNNUDAGUR:
Knattspyrna:
Melavöllur kl. 14.00. Bikarkeppni
KSÍ, ÍBV — ÍBK (undanúrslit).
Melavöllur kl. 15.45. Haustmót 4.
fl. B, Valur — Víkingur (úrslit).
Háskólavöllur kl. 16.00. Haustmót
1. fl., KR — Ármann.
Framvöllur kl. 15.00. Firmakeppn-
in, Sláturfélagið — Vífilfell, (úr-
slit).
Handknattleikur:
Laugardalshöll kl. 20.00. Landslið-
ið 1964 — „Pressa“, Landsliðið
1970 — US Ivry.
Laugardalshöll kl. 17.00. Reykja-
víkurmótið, 2 leikir í 1. fl. karla
og 7 leikir í yngri flokkunum.
klp—Reykjavík.
Það fór cins og við spáðum sl.
þriðjudag, að KR léki ekki mögl-
unarlaust á hinum litla og vara-
sama velli Breiðabliks í Kópavogi,
í bikarkeppninni.
KR tilkynnti Breiðablik og nið-
.urröðunamefnd með skeyti í vik-
unni, að það léki leikirin í Kópa-
vogi með fyrirvara, þar sem völl-
urinn þar uppfyllti ekki þau skil-
yrði, sem gehð eru um lengd og
breidd vallar, samkvæmt reglugerð
KSÍ, og mun það vera rétt hjá
þeim.
Tif að forðast að leikurinn yrði
leikinn upp aftur, ef Breiðablik
sigraði í honum, samþykktu for-
ráðamenn Breiðabliks, að leikur-
færi fram á MelaveUinum í stað-
inn, en það er álíka mikill „I.cima-
völlur" beggja liðanna. Fer leik-
urinn fram í dag og hefst kf. 13,45.
Breiðabliksmenn eru í góðri æf-
ingu um þessar mundir. í vikunni
léku þeir æfingaleik við Keflvík-
inga á flóðlýstum velli í Keflavík
og sigruðu 4:0.
KR-ingar hafa ekki leikið opin-
Framhald á bls. 14
PRESSAN" GEGN
ÞEIM „GÖMLU
//
r//
//
íþróttafréttamenn hafa valið
„pressuliðið“ sem mætir HM-liði
íslands frá 1964 í Laugardalshöll
inni á sunnudagskvöldið kl. 20,00
en þá leika þessi |ið forleik að
leik landsliðsins ’70 og US Ivry
frá Frakklandi.
„Pressuliðið" verður þannig
skipað:
Emil Karlsson, RR
Pétur Jóakimsson, Haukum
Sigurður Jóakimsson, Ilaukum
Ólafur Ólafsson, Haukum
Þórarinn Tyrfingsson, ÍR
Magnús Sigurðsson, Viking
Guðjón Magnússon, Víking
Einar Magnússon,, Víking
Arnar Guðlaugsson, Fram
Björgvin Björgvinsson, Fram
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Bergur Guðnason, Val, (fyrirl.)
Stjórnandi liðsins utan vallar
verður Pétur Bjarnason þjálfari
Hauka, en dómarar í leiknum
verða Óli Ólsen og Reynir
Ólafsson. Leikinn á eftir dæma
þeir Björn Kristjánsson og Karl
Jóhannsson, en þeir eiga að dæma
leik í Evrópuikeppninni, sem fram
f er í Osló í næstu vi'ku.
Guðmundur ÞórSarson, aSaimark-
skorari BreiSabliks, er alinn upp hjá
KR, og lék m. a. sem markvvörSur
i 2. flokki félagsins og varS þá ís-
lándsmeistari. í dag fær hann aS
glíma í fyrsta sinn viS sína gömlu
félaga, og þá mest við „þingmann-
inn" EHert Schram