Tíminn - 24.10.1970, Side 16

Tíminn - 24.10.1970, Side 16
Laugardagur 24. október 1970. Frá æfingu á leikritinu Hitabylgju. LR FRUMSYNIR HITA- BYLGJUÁ MIÐVIKUDAG SJ—Reykjavík, föstudag. Á miðvikudagskvöld frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur leikritið Hitabylgju eftir brezkan höfund Ted Willis að nafni. Verða þá fimm leiksýningar í gangi á sama tima hjá félaginu, og er þetta met haust hvað sýningafjölda og aðsókn snertir. Leikritið verður sýnt fimm sinnum í Iðnó, síðan nokkr um sinnum í Hafnarfirði, þá á öðrum stöðum hér sunnanlands og vestan, en jafnframt öðru hverju í Iðnó. Gefist þessi ný- breytni vel, hyggjast l'eikfélags menn halda áfram á sömu braut og jafnvel ganga feti framar og hafa frumsýningu annars staðar en í leikhúsinu við Tjömina og þá utan höfuðborgarinnar. Þetta er í fyrsta sinn, sem félagið efnir til sýninga úti á landi á aðalleik tímabilinu. Leikritið Hitabylgja fjallar á Sambandsráðsfundur Ungmennafélagsins haldinn um helgina OÓ—Reykjavík, föstudag. Sambandsráðsfundur Ungmenna félags fslands verður haldinn í félagsheimilinu Stapa i Ytri-Njarð vlk á sunnudaginn. Verður lögð íram og rædd skýrsla stjórnar um starfsemina á yfirstandandi ari og framtíðarverkefni sam- takanná. A fundinum mæta formenn allra héraðssambandanna og munu milli 40 og 50 manns sitja fund inn, að gestum meðtöldum. ytra borði um verkalýðspólitík og kynþáttavandamál, en undir niðri um mannleg samskipti almennt. Það hefur notið mikilla vinsælda í Bretlandi og er að sögn mjög aðgengilegt, raunsætt og mann- eskjulegt að efni. En vandamálin, sem tekin eru fyrir, eru ofarlega á baugi í Bretlandi og víða ann ars staðar. Stefán Baldursson hefur þýtt leikritið. Leikstjóri er Steindór Hjörleifsson, sem nú stjórnar í fyrsta skipti leikriti fyrir Leik félag Reykjavíkur þótt hann sé fyrir löngu reyndur leikstjóri. Jón Þórisson er leikmyndateiknari. Með hlutverk fara Jón Sigurbjörns son, Sigriður Hagalín, Anna Kristín Arngrimsdóttir, Jón Aðils, Þorsteinn Gunnarsson, Margrét Magnúsdóttir og Jón Hjartarson, sem jafnframt er aðstoðarleik- stjóri. Næsta viðfangsefni LR er Veg urinn til Rómar eftir Robert Sher wood og verður Helgi Skúlason leikstjóri. Leikfélagið vinnur nú að fræðslusýningum fyrir barna- og gagnfræðaskóla, m. a. um meng un og umferðarmenningu. Þá er í ráði að efna til fræðslusýningar um Reykjavík fyrir skóla og almenning. Féiagsmáiaskóiinn settur á mánudaginn Fól agsm álaskólli Fnamsólknar- flokksins verður settur mánudag ínn 26. október kl. 20,30 í Glaum bæ, uppi. Formaður skólastjórnar, Jónatan Þórmundsson, flytur setningarávarp. Einar Ágústsson varaformaður Framsóknarflokks ins flytur stutita ræðu. Skólinn verður í tveimur deildum í vet- ur — undirbúningsdeild og fram- haldsdeild. Væntanlegir þáttitak endur ern beðnir að tilkynna þátt íslendingum gengur vel í Portúgal NTB-Estoril, föstudag. Eftir sjöundu umferð á Bridge mótinu í Portúgal eru íslending ar enn í þriðja sæti. Síðast spil uðu þeir við Tyrki og unnu með 15:5t í sjöttu umferð spiluðu þeir við Grifcki og unnu 18:2. f dag spila fslendingarnir við Spán- verja, sem hafa mínus 2, samtals úr 7 umferðum, og við Líbanon, sem hefur fengið 51 stig. ísland er komið með 103 stig eftir sjö umferðir. Aðalfundur FUF í Reykjavík Aðalfundur FUF í Reykjavílc verður haldinn laugardaginn 24 októher n.k. í Glaumbæ og hefst .1. 2 e.h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar störf. — Stjórnin. FUF Kópavogi Aðalfundur félagsins verður haldinn sunnudaginn 1. nóv. kl. 1,30. Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Dagskrá nánar auglýst síðar. Stjórnin. KEFLAVÍK Aðalfundur Félags ungra Fram sóknarmanna í Keflavík verður haldinn mánudaginn 26. okt. kl. 20,30 að Vífc, Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf, Stjórn FUF. töku sína á skrifstofu Framsóknar flokksins, sími 24480, eða til stiórnarmanna Félagsmálaskól ans, en þeir eru Jónatan Þór- mundsson, sími 17842 og 18460 Sveinn Herjólfsson, sími 14602 og Gunnar Gunnarsson sími 35120. Jónatan Einar Karl O. Runóifs- son sjötugur KJ—Reykjavík, föstudag. Á morgun laugardaginn 24. október verður hið góðkunna tón skáld Karl Ottó Runólfsson sjö tugur. Karl fæddist í Reykja- vík og foreldrar hans voru þau hjónin Runólfur Guðmundsson og Guðlaug Margrét Guðmundsdóttir. Karl lærðj prentiðn ög stundaði hana fram til ánsins 1925, en sneri sér þá að tónlistarnámi bæði hér í Reykjavík og í Kaupmanna höfn. Hann var í Lúðrasv. Reykja víkur frá stofnun og stjórnandi 1941—42, hefur auk þess verið stj. Framhald á/ bls. 14 Barbara Hutton borgar danskar ríkisveizlur SB—Reykjavík, föstudag. Síðan árið 1956 hefur danska utanríkisþjónustan átt sér hauk í homi, þar sem er „leynisjóðurinn“ svonefndi. Úr þessum sjóði hefur utanríkis þjónustan fengið allt að hálfri fimmtu niilljón ísl. kióna ár- lega og notað peningana til að halda veizlur, kaupa mál- verk handa sendiráðum og flcira, sem danski ríkiskassinn vill ekki borga. Nú er hins vegar komið f ljós, hver stend ur að baki „leynisjóðnum" og það er cngin önnur en Wool- worth-milljónafrúin Barbara Hutlon. Nú eru danskir hrauld ir um áð frúin hætti að senda þeim peninga, því skilyrði var, að nafni gefandans yrði haldið leyndu. Barbara Hutton giftist sjö sinnum og einn eiginmanna hennar var danskur greifi, Reventlow að nafni og áttu þau einn son saman. Barbara býr nú í Tanger og ferðast á dönsku vegabréfi. Frúin stofnaði „leynisjóðinn'' í maí 1956, þegar H. C. Han- sen var utanríkisráðherra. Síð an hafa þeir Jens Otto Krag. Ilans Tabor og Per Hækkerup verið utanríkisráðherrar jg ei álitið, að þeir hafi allir þekkt uppruna sjóðsins. I ákvæðum sjóðsins segir að hann skuli notast til þeirra hluta, sem utanrikisþjónustan þarf á að halda, en ríkissjóður borgar efcki. Eina skilyrðið var, að nafni gefanda skyldj haldið leyndu. Peningarnir hafa fram til þessa verið notaðir til að kaupa verðmæt málverk í dönsk sendiráð, styrkja sendi- ráðsfólk til frekara náms og fleira. Framhaid á bls. 14 Barbara Hutton me8 einum eig- inmanna sinna, Michaei Kennie. i.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.