Tíminn - 24.10.1970, Blaðsíða 16
Laugardagur 24. október 1970.
Frá æfingu á leikritinu Hitabylgju.
LR FRUMSYNIR HITA-
BYLGJUÁ MIÐVIKUDAG
SJ—Reykjavík, föstudag.
Á miðvikudagskvöld frumsýnir
Leikfélag Reykjavíkur leikritið
Hitabylgju eftir brezkan höfund
Ted Willis að nafni. Verða þá
fimm leiksýningar í gangi á sama
tima hjá félaginu, og er þetta met
haust hvað sýningafjölda og aðsókn
snertir. Leikritið verður sýnt
fimm sinnum í Iðnó, síðan nokkr
um sinnum í Hafnarfirði, þá á
öðrum stöðum hér sunnanlands
og vestan, en jafnframt öðru
hverju í Iðnó. Gefist þessi ný-
breytni vel, hyggjast l'eikfélags
menn halda áfram á sömu braut
og jafnvel ganga feti framar og
hafa frumsýningu annars staðar
en í leikhúsinu við Tjömina og
þá utan höfuðborgarinnar. Þetta
er í fyrsta sinn, sem félagið efnir
til sýninga úti á landi á aðalleik
tímabilinu.
Leikritið Hitabylgja fjallar á
Sambandsráðsfundur
Ungmennafélagsins
haldinn um helgina
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Sambandsráðsfundur Ungmenna
félags fslands verður haldinn í
félagsheimilinu Stapa i Ytri-Njarð
vlk á sunnudaginn. Verður lögð
íram og rædd skýrsla stjórnar
um starfsemina á yfirstandandi
ari og framtíðarverkefni sam-
takanná.
A fundinum mæta formenn
allra héraðssambandanna og munu
milli 40 og 50 manns sitja fund
inn, að gestum meðtöldum.
ytra borði um verkalýðspólitík og
kynþáttavandamál, en undir niðri
um mannleg samskipti almennt.
Það hefur notið mikilla vinsælda
í Bretlandi og er að sögn mjög
aðgengilegt, raunsætt og mann-
eskjulegt að efni. En vandamálin,
sem tekin eru fyrir, eru ofarlega
á baugi í Bretlandi og víða ann
ars staðar.
Stefán Baldursson hefur þýtt
leikritið. Leikstjóri er Steindór
Hjörleifsson, sem nú stjórnar í
fyrsta skipti leikriti fyrir Leik
félag Reykjavíkur þótt hann sé
fyrir löngu reyndur leikstjóri. Jón
Þórisson er leikmyndateiknari.
Með hlutverk fara Jón Sigurbjörns
son, Sigriður Hagalín, Anna
Kristín Arngrimsdóttir, Jón Aðils,
Þorsteinn Gunnarsson, Margrét
Magnúsdóttir og Jón Hjartarson,
sem jafnframt er aðstoðarleik-
stjóri.
Næsta viðfangsefni LR er Veg
urinn til Rómar eftir Robert Sher
wood og verður Helgi Skúlason
leikstjóri.
Leikfélagið vinnur nú að
fræðslusýningum fyrir barna- og
gagnfræðaskóla, m. a. um meng
un og umferðarmenningu. Þá er
í ráði að efna til fræðslusýningar
um Reykjavík fyrir skóla og
almenning.
Féiagsmáiaskóiinn
settur á mánudaginn
Fól agsm álaskólli Fnamsólknar-
flokksins verður settur mánudag
ínn 26. október kl. 20,30 í Glaum
bæ, uppi. Formaður skólastjórnar,
Jónatan Þórmundsson, flytur
setningarávarp. Einar Ágústsson
varaformaður Framsóknarflokks
ins flytur stutita ræðu. Skólinn
verður í tveimur deildum í vet-
ur — undirbúningsdeild og fram-
haldsdeild. Væntanlegir þáttitak
endur ern beðnir að tilkynna þátt
íslendingum gengur
vel í Portúgal
NTB-Estoril, föstudag.
Eftir sjöundu umferð á Bridge
mótinu í Portúgal eru íslending
ar enn í þriðja sæti. Síðast spil
uðu þeir við Tyrki og unnu með
15:5t í sjöttu umferð spiluðu þeir
við Grifcki og unnu 18:2. f dag
spila fslendingarnir við Spán-
verja, sem hafa mínus 2, samtals
úr 7 umferðum, og við Líbanon,
sem hefur fengið 51 stig. ísland
er komið með 103 stig eftir sjö
umferðir.
Aðalfundur FUF
í Reykjavík
Aðalfundur FUF í Reykjavílc
verður haldinn laugardaginn 24
októher n.k. í Glaumbæ og hefst
.1. 2 e.h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar
störf. — Stjórnin.
FUF Kópavogi
Aðalfundur félagsins verður
haldinn sunnudaginn 1. nóv. kl.
1,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Dagskrá nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
KEFLAVÍK
Aðalfundur Félags ungra Fram
sóknarmanna í Keflavík verður
haldinn mánudaginn 26. okt. kl.
20,30 að Vífc, Dagskrá: venjuleg
aðalfundarstörf, Stjórn FUF.
töku sína á skrifstofu Framsóknar
flokksins, sími 24480, eða
til stiórnarmanna Félagsmálaskól
ans, en þeir eru Jónatan Þór-
mundsson, sími 17842 og 18460
Sveinn Herjólfsson, sími 14602 og
Gunnar Gunnarsson sími 35120.
Jónatan
Einar
Karl O. Runóifs-
son sjötugur
KJ—Reykjavík, föstudag.
Á morgun laugardaginn 24.
október verður hið góðkunna tón
skáld Karl Ottó Runólfsson sjö
tugur. Karl fæddist í Reykja-
vík og foreldrar hans voru þau
hjónin Runólfur Guðmundsson og
Guðlaug Margrét Guðmundsdóttir.
Karl lærðj prentiðn ög stundaði
hana fram til ánsins 1925, en
sneri sér þá að tónlistarnámi bæði
hér í Reykjavík og í Kaupmanna
höfn. Hann var í Lúðrasv. Reykja
víkur frá stofnun og stjórnandi
1941—42, hefur auk þess verið stj.
Framhald á/ bls. 14
Barbara Hutton borgar
danskar ríkisveizlur
SB—Reykjavík, föstudag.
Síðan árið 1956 hefur danska
utanríkisþjónustan átt sér
hauk í homi, þar sem er
„leynisjóðurinn“ svonefndi. Úr
þessum sjóði hefur utanríkis
þjónustan fengið allt að hálfri
fimmtu niilljón ísl. kióna ár-
lega og notað peningana til
að halda veizlur, kaupa mál-
verk handa sendiráðum og
flcira, sem danski ríkiskassinn
vill ekki borga. Nú er hins
vegar komið f ljós, hver stend
ur að baki „leynisjóðnum" og
það er cngin önnur en Wool-
worth-milljónafrúin Barbara
Hutlon. Nú eru danskir hrauld
ir um áð frúin hætti að senda
þeim peninga, því skilyrði var,
að nafni gefandans yrði haldið
leyndu.
Barbara Hutton giftist sjö
sinnum og einn eiginmanna
hennar var danskur greifi,
Reventlow að nafni og áttu þau
einn son saman. Barbara býr
nú í Tanger og ferðast á
dönsku vegabréfi.
Frúin stofnaði „leynisjóðinn''
í maí 1956, þegar H. C. Han-
sen var utanríkisráðherra. Síð
an hafa þeir Jens Otto Krag.
Ilans Tabor og Per Hækkerup
verið utanríkisráðherrar jg ei
álitið, að þeir hafi allir þekkt
uppruna sjóðsins.
I ákvæðum sjóðsins segir að
hann skuli notast til þeirra
hluta, sem utanrikisþjónustan
þarf á að halda, en ríkissjóður
borgar efcki. Eina skilyrðið var,
að nafni gefanda skyldj haldið
leyndu. Peningarnir hafa fram
til þessa verið notaðir til að
kaupa verðmæt málverk í
dönsk sendiráð, styrkja sendi-
ráðsfólk til frekara náms og
fleira.
Framhaid á bls. 14
Barbara Hutton me8 einum eig-
inmanna sinna, Michaei Kennie. i.