Tíminn - 27.10.1970, Side 2
2
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 27. oitóber 1970.
Tónskáldið heiðrað
Fjölmarglr vlnir og kunningjar helðruöu Karl Ottó Runólfsson tónskáld á sjötugsafmæli hans um heigina, og
hér eru myndir er teknar voru [ móttöku til heiðurs Karli í húsakynnum Tónskáldafélags íslands. Á myndinni
hér að ofan er dóttir Karis Guðlaug Sigríður leigst tii vinstrl, þá kona hans Helga Kristjánsdóttir, afmælisbarn-
ið, Áslaug Kristinsdóttir og dóttir Karls Lily. (Tímamynd Gunnar)
Jón Ásgeirsson formaður Tónskáldafélagsins ávarpar afmælisbarnið, en til vinstri á myndinni er Sæbjörn Jóns-
son gjaldkeri Lúðrasveitarinnar Svanur, þá Kristján Jónsson voraform. Sverrir Garðarsson hljómlistarmaður
og Sigurður Reynir Pétursson hrl. við hliðina á Karli.
Meðai margra gesta i móttökunni voru Brynjólfur Jóhannessor leikari og frú, sem eru að heílsa Karli og frú
í myndinni.
FUNDU 52 KG. AF HREINU HERÚÍNS
NTB-París, aiánudag. i 52 kíló af hreinu heróíni í ein-
Franska lögreglan tilkynnti í um bíl um helgina. Heróín þetta
dag, a3 hún hefði ásamt spönskum mun hafa átt að fara á Bandaríkja
og brezkum starfsmönnum sínum, markað og mun það vera um hálfs
fundið hvorki meira né minna en I annars tnilljarðs virði í ísl. kr.
Innanríkisráðherra Frakklands,
Reymond Marcellin, .sagði í dag,
að þetta væri mesta magn, sem
franska lögreglan hefði fundið í
Fratnhald á bls. 11.
MERKIFYRIR SELTJARN-
ARNESHREPP SÝNT
Á hreppsnefndarfundi hjá Sel-
tjarnarneshreppi síðast í ágúst var
ákveðið að boða til samkeppni
um merki fyrir hreppinn í sam-
ráði við félag íslenzkra teiknara.
Var samfeeppni þessi auglýst
skömmu síðar og skilafrestur veitt
ur til 5. október.
Veitt voru þrenn verðlaun, sam
tals kr. 40.000,00:
I. verðl. kr. 25.000,00
n. verðl. kr. 10.000,00
m. verðl. kr. 5.000,00
44 tillögur bárust og valdi nefad
skipu'o fulltrúum frá Fél. íslenzkra
teiknara og fulltrúum skipuð/im af
hreppsnefnd þrjár tillögur til verð
launa:
I. verðl. hlutu Gísli B. Björns-
son og Sigurþór Jakobsson.
n. verðl. hlaut Erna M. Ragnars
dóttir.
III. verðl. hlaut Magnús H. Ólafss.
Hreppsnefndin hefur nú ákveð-
ið að cfna til sýningar á tillögum
þeim er bárust, og fer hún fram
í anddyri íþróttahússins, laugardag
inn 31. okt. kl. 3—7 og sunnudag-
inn 1. nóv. kl. 2—6.
Samvinnuskóianemendur lýsa
stuðningi viö landeigendur
við Mývatn og Laxá
KJ—Reykjavík, mánudag.
Trúlega hafa náttúruverndar-
mál, virkjunarmál og stóriðjumál
verið til umræðu á mörgum mál-
fundum í skólum, nú í upphafi
skólaárs, eða þá nemendur eiga
eftir að ræða þessi mál á fundum
sínum í vetur. í dag barst Tíman-
um ályktun frá Samvinnuskólan-
um, þar sem lýst er stuðningi við
landeigendur við Mývatn og Laxá,
í aðgerðum og baráttu þeirra gegn
fyrirhuguðum virkjunarfram-
kvæmdum í Laxá.
Fe áTyktunin hér á eftir, en
hún var samþykkt á fundi í sfcóla-
félaginu 22. október.
„Skólafélag Samvinnuskólans
lýsir hér með eindregnum stuðn-
ingi við ábúendur Mývatns og Lax-
ársvæðisins, í baráttu þeirra gegn
fyrirhuguðum virkjunarfram-
kvæmdum við Laxá í Þingeyja-
sýslu. Við krefjumst þess, að
stöðvaðar verði allar framkvæmd-
ir, þar til fyrir liggja óyggjandi
náttúrufræðiiegar rannsóknir á
skaðsemi» fyrirhugaðra virkjunar-
framkvæmda.“
ENN EKKI HÆGT AÐ
YFIRHEYRA PILTINN
OÓ-Reykjavík, mánudag.
Liðan piltsins, sem stunginn var
í kviðinn í síðustu viku, var held
ur skárri í gær, en var fyrir
helgina. Er hann þó ekki úr lífs-
hættu.
Lögreglan hefur enn ekfci fengið
að yfirheyra piltinn um mnlsatvik
er hann var stunginn. Vonazt er
til að hægt verði að yfirheyra
hann á morgun, þriðjudag. Mað-
Vasaþjófnaðir
í Reykjavík
OÓ-Reykjavík, mánudag.
Vasaþjófar eru nú farnir að
hafa sig í frammi í Reykjavík.
Aðfaranótt sunnudags s.l. var stol
ið veski úr vasa manns í Umferða-
miðstöðinni og um svipað leyti var
stolið veski af manni í miðbænum.
Maðurinn sem tapaði veski sínu
í Umferðamiðstöðinni varð ekki
var við, þegar það var hrifsað
úr vasa hans, en í veskinu voru
14 þúsund krónur. Maðurinn átti
crindi í Umferðamiðstöðina
skömmu eftir miðnætti. Var hann
þar stutta stund ,og ók síðan beint
heim. Þá saknaði hann veskis síns.
Taldi hann vart koma til mála
að hann hafi týnt veskinu, heldur
að það hafi verið tekið úr vasa
hans. Fyrr um kvöldið hærði mað
ur til lögreglunnar að veski hafi
verið stolið af sér í miðbænum.
Hann varð heldur ekki var við
þegar það var tekið. Eru þjófnað-
ir þessir enu óupplýstir.
urinn sem stakk piltinn situr í
gæzluvarðhaldi ,en hann heldur
fram, eins og skýrt var frá í Tím
anum, að pilturinn hafi ógnað sér
með hnífi og hafi hann því gripið
búrhníf sér til varnar og sá hnífur
hafi stungizt í piltinn er hatin
gerði árás.
, Ekkert er hægt að segja um
sannleiksgildi þessa framburðar
fyrr en hægt verður að yfirheyra
piltinn, sem er illa særður.
Fjögur leikrit í æfingu
í Þjóðleikhúsinu
Óvenju mikið annriki er hjá
Þjóðleikhúsinu um bessar mund-
ir. Fjögur leikrit eru æfð þar sam-
tímis og þrjú leikrit eru sýnd bar
á sviðinu í hverri viku
Leikritin, sem nú standa yfir
æfingar á eru: Söngleikurinn „Ég
vil, ég vil, sem verður frumsýnd-
ur n.k. laugardag og er Erifc Bid-
sted leikstjóri. Næsta leikrit, sem
frumsýnt verður um miðjan næsta
mánuð, er Sólness byggingarmeist
ari, eftir Ibsen. Leikstjóri er Gisli
Halldórsson. en Rúrik Haraldsson
fer með titilhlutverkið. Þá hóf-
ust, fyrir rúmri viku, æfingar á
Fást eftir Goethe, og stjórnar
Gísh Alfreðsson æfingum á leikn-
um en Fást verður jólasýning
Þióðleikhússins.
Ennfremur hófust æfingar fyr-
ir nokkru á barnaleiknum „Litli
Kláus og stóri Kláus“, en það leik-
rit verður frumsýnt í janúar. Leik-
stjóri er Klemenz Jónsson, en tit-
ilhlutverkin eru leikin af Þórhali
Sigurðssyni og Bessa BjamasynL