Tíminn - 27.10.1970, Page 4
4
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 27. október 1970.
LKL ORUGGUR AKSTUR:
Frá Austur - Skaítf ellingum
Stjórn klúbbsins var endurkjörin í fimmta sinn, og hér á myndinni eru
stjórnarmenn f. v.: Kjartan Árnason, héraðslæknir, Gísli Björnsson, raf-
veitustjóri og Hafsteinn Jónsson, vegaverkstjóri, formaöur.
Síðasliðinn laugardag, 17.
okt. hélt klubburinn Öruggur
akstur í Austur-Skaftafellssýslu
aðalfutnd sinn á þessu ári að
Hótel Höfn.
Af skýrslu formanns klúbbs-
v ins, Hafsteins Jónssonar, kom
fram. að auk afskipta af al-
mennum umferðaröryggismál-
um í héraöinu hafði klúbburinn
á árinu beitt sér fyrir, í annað
sinn, skipulagniogu þrifa í öll-
um hreppum sýslunnar, undir-
búið og tekið í notkun tjald-
stæði fyrir fenðafólk, og hald-
ið aðalfund og árshátíð. Áður
hafði klúbburinn sjálfur verð-
launað ökumenn fyrir athyglis-
verða og gótöa framkomu í um-
ferðinni og gefið út í 2. útg.
vinsæla leiðarlýsingu á þjóð-
leiðinni vestur úr Öræfum
austur til Egilsstaða, Er viður
kennt, að klúbbur þeirra Aust-
ur-Skaftfellinga hafi frá upp-
hafi verið einn allra athafna-
samasti og hugkvæmasti umferð
arklúbbur landsins og verið
öðrum til mikillar fyrirmyndar
á flestum sviðum.
Stjórn klúbbsins Öruggur
akstur í Austur-Skaftafellssýslu
var öll endurkjörin — nú í
fimmta sinn — og skipa hana
þessir: Hafsteinn Jónsson, vega
verkstjóri, formaður — Kjartan
Árnason héraðslæknir og Gísli
Björnsson, rafveitustjóri.
Samþykkt var áskorun til
Sjónvarpsins um að taka upp
umferðarfræðislu sem allra
fyrst.
Á laugardagskvöldið hélt svo
klúbburinn árshátíð sína á sama
stað, og sóttu hana um eða yfir
hundrað manns; klúbbfélagar
og gestir þeirra. Þar fór m.a.
fram afhending verðlauna Sam-
vinnutrygginga 1969 til austur-
skaftfellskra bifreiðaeigenda
fyrir öruggan akstur. Önnuðust
hana félagsmálafulltrúi þeirra
og Ásgeir Gunnarsson umboðs-
maður á vegum KASK. Hafa
samtals fengið 5 ára viðurkenn-
ingu 305 og 10 ára verðlaun
129 í báðum sýslunum. Aðal-
ræður kvöldsins fluttu þeir
Stefán Jasonarson frá Vorsa-
bæk formaður LandssamtRka
Klúbbanna Öruggur akstur og
Baldvin Þ. Kristjánsson, : n
báðir voru heiðursgestir árs-
hátiðarinnar og höfðu tr.I"(5 á
aðalfundinum fyrir um daginn.
Séra Skarphéðinn Pétursson
prófastur í Bjarnarnesi las
kvæði, og sungið var undir
stjórn Eyjólfs Stefánssonar
söngkennara. Að lokum var
dansað fram á nótt, og skemmtu
menn sér hið bezta.
Rómuðu allir a'ðbúnað og
þjónustu hótelsins, sem er mjög
vinsælt og eykur nú við þegár
of knöpp húsakynni sín.
A surmudag fóru þeir Bald-
vin og Stefán svo vestur í Öræfi
og héldu þar fund um kvöldið
með heimamönnum í samkomu-
húsinu á Hofi. Fundinum stjórn
aði Oddur Jónsson verzlunar-
stjóri Kaupfélags Austur-Skaft-
fellinga á Fagurhólsmýri. Rætt
var um tryggingar og öryggis-
mál, og höfðu þeir félagar fram
sögu, en nokkrir heimamanra
tóku til máls.
Á þennan Öræfa-fund komu
flestir karlmenn af nálega öll-
um bæjum hreppsins, og ein
stúlka. Þótti þetta hin bezta
samkoma og góð tilbreyting í
fásinni afskekkts byggðarlags.
Sveitavinna
14—15 ára piltur óskast í
sveit á Suðurlandi. Upplýs-
ingar í síma 99-5873 milli
kl. 2—4 næstu þrjá daga.
Á flugveilinum viS Hornafjörð. F. v. Hafsteinn Jónsson, Baldvin Þ. Krist-
jánsson og Stefán Jasonarson.
HREINSUM ,
púskinnsjakka
rúskinnskápur á
sérstök meöhörídlun.
EFNALAUGIN BJÖRG
Háaleílisbraul 58-60. Sfmi 31380
Barmahliö 6. Sfmi 23337
■
Tegund „Kultura" er
mikið og sérstætt sófa-
sett, sem framleitt er
úr svampi, gúmmíi
og „dacron“-ló. Grind
dökk sem palisander.
Þetta sett er mjog
fallegt í skinnlíkinu
Lancina, eins og á
myndinni sést. Einnig
er íiægt að fá þetta
sett bólstrað úr ekta
leðr1 með gæsadún í
púðum.
Laugaveg 26
ATVINNA
- SVEIT
Vetrarmann vantar nú þeg-
ar á stórt bú á Suð-Vestur-
landi. Þarf að vera vanur
vélum. Uppl. gefur Ráðn-
mgarstofa landbúnaðarins,
sími 19200.
— PÓSTSENDUM —
BIBLÍAN er Bókin
handa fermingarbaminu
Fast nð (nýju, fallego bflndi
i miúlgdlu hji:
• Mkavinlunun
• krhtllegu félögunura
• Biblíufélaglno
HÍÐ ÍSLENZXA BIBllUEÍUG
gu66ran&00fofu
HoHgrfimkirkJu • ReykjitíV
Sími17805