Tíminn - 28.10.1970, Side 1
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
~=rrry „ frystikistur
njs FRYSTISKÁPAR
Zi/uájUxjVzAA€JLct/t* h..r
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
RAFTÆKJADEH.D, HAFHARSTRÆTI 23, SlHI 13386 %
Flóðlýstur kross
á Hallgrímskirkju
í gær var afhjúpaður hina end-
anlegi kross á turnspíra Hall-
grímskirkju á Skólavörðuhæð, og
er hann 2,5 rn. á hæð, steinsteypt-
ur. Krossinn verður flóðlýstur í
myrkri, en andvirði l.jósabúnaðar-
ins gaf á sínum tíma kona í Hall
grímssöfnuði, sem ekki óskar að
láta nafas síns getið.
„Kross þessi, sem gnæfir yfir
Reykjavik á hinum 70 metra háa
kirkjuturni, á í allri framtíð að
minna á og 'árétta bæn sr. Hall-
gríms í Passíusálmaversinu:
„Gefðu að móðurmálið mitt . . .
krossins orð þitt útbreiði . . . .
um landið hér til heiðurs þér“,
segir í fréttatilkynningu frá Hall-
grímskirkju. — Myndin var tekin
þegar krossinn var flóðlýstur í
gærkvöldi. (Tímam. — Gunnar).
Búnaðarfélagið, Stéttarsamband bænda, Landnám
MANNRÁN í
ECUADOR
NTB—Quito, þriðjudag.
Yfirmanni flughers Ecua-
dor, Sandoval hershöfðingja,
var rænt í Quito, höfuðborg
landsins í nótt. Sandoval var
nýbúinn að ræða við yfir-
mann breska flughersins, sir.
Charles Elsworthy, sem kom
inn var til Ecuador í tilefni
af hálfrar aldar afmæli flug-
hersins þar.
Þegar kunnugt varð um
Framhald á bls. 3
-------------------
-------------------------------------------
Enn vantar
bændur hey
Búið að selja um 30 þúsund hesta af heyi
nefndar yfir 15 þúsund hesta
af heyi, setn óskað væri eftir
flutningsstyirkjum á. Þar í eru
sveitir á Suðurlandi, eins og
t.d. Grímsnesið, þangað hefur
töluvert mikið magn af heyi
verið keypt. Agnar sagði,
að tiltölulega mest vantaði enn
af heyi í Strandasýslu, en þang
að vantar enn 16—1700 hesta.
Mest hefur verið selt af heyi
úr Austur-Skaftafellssýslu, en
þaðan var hey m.a. flutt sjó-
leiðis í Árneshrepp á Strönd-
um. Þá hefur mikið af heyi
verið selt í Rangárvallasýslu,
Framhald á bls. 14
KJ-Reyikjavík, þriðjudag.
— Búnaðarfélaginu eru alltaf
að berast óskir um hey, og
í dag vantar tvö til þrjú þús-
und hesta, svo hægt sé að full-
nægja beiðnum bænda um
hey, sagði Agnar Guðnason,
' ráðunautur hjá Búnaðarfélag-
inu, við Tímann í dag.
Agnar sagði, að reiknað væri
með að búið væri að selja um
30 þúsund hesta af heyi á öllu
landinu, og hefur sumt af því
farið í gegn um Búnaðarfélag-
ið, en annað ekki. Þá sagði Agn
ar, að skýrslur væru komnar
frá 26 oddvitum til harðæris-
Samið um hærra lágmarks-
verð á fiskfiökum tii Bretlands
— sem þó er lægra en núverandi markaSsverð
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Lágmarksverð á frosnitm fisk-
flökum sem flutt eru til Bfetlands
frá Norðurlöndum hækkar um
næstu áramót. Var þetta ákveðið
á fundi sem haldinn var í Bret-
landi í fyrri viku. Auk Breta
sátu fundinn fulltrúar frá íslandi,
Noregi, Danmörku og Svfþjóð.
Hækkar verðið talsvert frá því
sem nú er. En það er reyndar
lægra en miverandi markaðsverð.
Af hálfu íslendinga sat fund-
inn Stefán Gunnlaugsson, deild-
arstjóri í viðskiptamáiaráðuneyt-
inu. Sagði hann í dag, að endur-
skoðuð hafi verið þau lágmarks-
verð á freðfiski, sem samið var
um við Breta í ofet. 1989. Voru
lágmarksverðin hækkuð talsvert,
en þó ekki upp í það eem mark-
aðsverð er nú. Er nokkuð misjafnt
hve mikið lágmarkverðin hækk-
uðu eftir fisktegundum. Áður en
íslendingar gengu í EFTA var
greiddur 10% innflutningstollur
aif flrosnum ffiski, en um það
leyti sem tekin var ákvörðun um
þátttöku okkar i bandalaginu
ákvað brezka ríkisstjórnin að af-
nema tollfríðindi fyrir freðfisk,
sem önnur Norðurlönd fengu er
EFTA var stofnað. Var síðan unn-
Framhald á bls. 3
ríkisins, Veiðimálanefnd og Náttúrufræðist. ísl.
Biðja Jdhann Hafstein að stöðva
framkvæmdir við GljUfurversvirkjun
til að auðvelda sáttastörf og á meðan dómstólar fjalla um lögmæti virkjunaráforma
Sigurjón gerir tillögu aS
minnismerki um stofnun
lýðveldisins, fyrir Reykja-
víkurborg. — Sjá bls. 16
Púað á dómarann á Mela-
vellinum i gær, þar sem
skozku unglingarnir sigr-
uðu þá íslenzku 3:1. —
Sjá bls. 13.
AK, Rvík, þriðjudag. — Stjórn
Búnaðarfélags íslands og for-
menn Stéttarsambands bænda, Ný-
býlastjórnar ríkisins, Veiðimála-
nefndar og Náttúrufrae’ðistofmin-
ar ísiands, hafa sent iðnaðarmála-
ráðhcrra sameiginlega bréf með
álitsgerð um deilumál þingeyskra
bænda og Laxárvirkjunarstjórnar,
um Gljufurversvirkjun, og er þar
meðal annars skorað á iðnaðar-
máiaráðherr-a „að láta stöðva
framkvæmdir við 1. áfangn Gljúf-
urversvirkjunar, til þess að auð-
velda sáttastörl og á meðan dóm-
stólar fjalla um lögmæti virkjun-
aráforma“.
Halldór Pálsson, búnaðarmá'la-
stjóri, sendi blöðunum afrit af
bréfi þessu í gær, og er það svo-
hljóðandi:
„Ti! iðnaðarmálaráðherra
hr. Jóhanns Hafstein
Arnarhvoli.
Miðvikudaginn 9. sept. 1970 rit-
ar Hermóður Guðmundsson f.h.
stjúrnar Landeigendafélags Laxár
o.s Mývatns, sgmhljóða bréf. dags.
I Reykjavík, eftirgreindmm aðil-
um:
Stjórn Búnaðarfélags íslands
Stjorn Stéttarsambands *
bænda
Stjórn Landnáms ríkisins —
Nýbýlastjórn
Veiðimálanefnd
Náttúrufræðistofnun íslands.
Farið er fram á í bréfi þessu,
„eí samkomulag næst", að áður-
greindir aðilar skrifi iðnaðarmála-
ráðherra saoneiginlegt bréf, „þar
sem farið vrð’ fram á. að hann
stöðvi nú þegar þær framkvæmd-
ir, se.m hafnar éru við Laxá, þar
til farið hefur fram rannsókn hlut
lausra og hæfra vísinriamanna á
þeirri náttúrulífsáhættu, sem
þarna (við Laxá) er stofnað til
með virkjunum, eins oa þær eru
ráðgerðar". ,
Þessir aðilar hafa haldið nokkra
viðræðufundi um áðurgreint bréf
Landeigendafélagsins og ýmis
önnur atriði, er varða íjjrirhug-
aðar virkjunarframkvæmdir í
Laxá. Ennfremur um þær miklu
deilur, er nú eiga sér stað, eftir
að framkvæmdir voru hafnar við
1. áfanga Gljúfurversvirkjun s.l.
vor á vegum Laxárvirkjunarstjórn
ar, skipun sáttanefndar iðnaðar-
málaráðherra o.fl.
Þessar viðræður hafa leitt til
samkomulags um að senda iðnaðar-
málaráðherra eftirfarandi bréf:
1. Það er staðreynd, að deilur
þær, sem upp hafa risið út af
Framhald á bls. 14