Tíminn - 28.10.1970, Side 7

Tíminn - 28.10.1970, Side 7
HIÐVIKUDAGUR 38. október 1970 TIMINN 7 Sovézkur hljðmsveitarstjóri stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni — á þriðju tónleikum hennar á þessu ári ÞrKSju tónleikar Sinfóníu- Mjómsveitar íslands á þessu starfsári, verða haldnir fimmtu daginn 39. október og hefjast ídL 21.00. Stjómandi tónleik- aima verður Makshn Sjostako- vitsj, og einleikari Karine Georgyan ceHóleikari, bæði frá Sovétríkj unum. Á efhisskrá er forleikurinn að óperunni Kov- antsína, eftir Mussorgsky, Rok- okko tilbrigðin op. 33 eftir Tjaikovsky og 5. sinfónía Beet- hovens. — Sovézkur hljómsveit arstjóri hefnr ekki stjórnað Sinfóníuhljómsveit íslands síð- an Katsjatúrían stjórnaði henni \ Þjóðleikhúsinu 1950—51. — Maksim Sjostakovitsj er sonur tónskáldsins fræga Dimitri Sjostakovitsj, og er fæddur 1938. Hér á eftir fer grein um Maksioi Sjostakovitsj, eftir Alexander Avdeenko, frétta- ritara APN: Við Maksím höfum þekkzt í finnntán ár og höfum margs að minnast. Við munum hvernig við byrjuðum, hvor hefur gert hvað, og hvaða gleði og sorgir hvorum okkar hafa fallið í skaut. Það er margt sem ég veit um hann. Ég veit, að hann getur rennt sér niðar fjallshlíð á einu skíði, snúið bifreið í 360 gráður á glerhái- um vegi, stungið sér til suads, þar sem félagar hans standa tvístígandi á bakkanucn. Ég veit líka að hann getur gert við segulbandstæki og yfirleitt allt sem teagt er rafmagni. Og auðvitað veit ég að af 32 áru«i ævi sinnar hefur hann fengi2t við téalist i 27 ár. Alla æfi hans hefur ljóminn af nafni föður hans Dmitri Sjostaovitsjar leikið um IVinn. Fyrir skömmu minntumst við á þetta og þá sagði hann: Úr því að þú þarft að skrifa þessa grein, þá bið ég þig um að skrifa um mig sem tónlistar- mann, en ekki sem son Sjo- stakovitsjar. En þar sem Dmitri Sjostako- vitsj var undrabarn í tóniist- inin, þroskaðist Maksím sonur hans aðeins smám saman í list inni. Maksím varð aldrei gefinn fyrir tónsmiðar, og kennslu- stundirnar í tónlist, æfingarnar og nótnalesturinn gerðu hana stundum leiðan — hann lang- Karine Georgyan, ceilóleikari Hijómsveitarstjórinn Maksim Sjostakovitsj aði ferkar til þess að fara út í fótbolta með jafnöldrum sín- um. Skilaingur og tóniistar- þroski hans komu smám sam- an, þó að kennarar hans teldu hann alltaf ótvíræðum hæfi- leikum húinn. Árin í tónlistarskólanum lið'u — hann hafði góða kennara, bjó að stórbrotnum hefðum í þessum fræga skóla. Á þessum tíma vantaði aðeins eitt — ful! vissu Maksíms um það, að leið isi sem hann hefði valið v'æri rétt. Á þeirri stundu, sem þetta rann sársaukafullt upp fyrir honum — þá hefur líklega i fyrsta sinni vaknað í hoaum listamaðurinn. Og listamaðurinn setti sér nýtt mark — stefndi út á ný lærdómsár. Hann hætti ekki námi í píanóleik, en fór jafn- framt að stunda nám í hljóm- sveitarstjórn. Hann stundaði nám í tónlistarskólaiuun í átta ár og úskriíaðist ekki aðeins þaðan með tveim prófskírtein- um en sem skapandi víðféðm- ur listamaður.' Eftir að. hafa haldið marga tónleika sem einlcikari varð hann aðstoðarmaður við sin- fóníuhljómsveitina í Moskvu. Síðar sótti hann um stöðu að- stoðarhljómsveitarstjóra Sin- fóníúhljómsveitar Sovélríkj- anna. Þegar þetta er skrifað hefur han unnið í fjögur ár mcð þeirri hljómsveit. Ég hef fylgzt með Maksím Sjostakovitsj á æfingum. Hljómsveitarmcnnirnir eru fólk, sem hefur leikið undir stjórn fjölmargra mikilhæfra stjórnenda, iólk sem finciur fyrr en nokkur gagnrýnandi' lyndis- Framhald á bls. 14 r-r--—----------------„-____~_________________________.______-_________ Þyrmið tekjustofni Styrktarsjóðs vangefinna var samtökunum „Hjarta- Þegar ég heyrði í þingfrétt- um, að Sigurvin Einarsson og Lngvar Gíslason hefðu borið fram á Alþingi frumvarp um námskostnaðarsjóð, fannst mér sem þar myndi aðeins vera um að ræða tillögur um úrlausn máls, sem sannarlega er tíma- bært að leysa, sem sé aðstöðu- mun unglinga til mennta eftir búsetu í landinu. Er það mál, sem mér hefur jafnan verið hugstætt og lengi óttazt þær afleiðingar, sem af myndu hljótast fyrir lands- byggðina, ef ekki yrði úr bætt. Hitt olli mér beiskum von- hrigðum að sjá í 3. gr. frv., að þar er lagt til, að sjóðurinn skuli að hluta myndaður af af gjaldi á selt öl og gosdrykki. Árið 1958 voru samþykkt á Alþingi lög um aðstoð við van gefið fólk og með þeim stofn- aður Styrktarsjóður vangef- inna, sem einungis hefur tekjur sínar af hundraðshluta af sölu á öli og gosdrykkjum. Síðar verad“ veitt hlutdeUd í þeim tekjum, sem fást á þennan hátt, en hundraðstalan þá um leið hækkuð, sem af söluverðinu er tekin, Ég geri mér í hugarlund, að flutningsmönnum frumvai’psins um námskostnaðarsjóð hafi af einhverjum ástæðum verið horf in úr huga þessi lagasetning, hver not hafa af henni orðið og hye óendanlega er brýn þörf 'fyrir að Styrktarsjóður vangef inna fái óáreittur að búa að þessum lekjustofni. Égget ekki stillt mig um að telja upp þær byggingar, sem risnar eru vegna tilvistar Styrktarsjóðs- i.ns: Á Kópavogshæli var fullgert elzta vistmannahúsið. reist starfsmannahús, vistmannahús fyrir 45 vistmenn, læknis- og stjórnunarbygging hælisins. sem einnig er notuð fyrir vinnu stofur að hluta. og nú hafin bygging barnadeildar. Á Sólheimahæli var styrkt bygging skóla og vistmanna- húss fyrir 12—14 vistmenn, mötaneyti með eldhúsi o.fl. Á Skálatúnshæli hefuv. verið reist starfsmannahús, nýtt vist heimili fyrir 30, og gért við gamalt hús, svo að í því er nú aðstaða fyrir 11 vistmenn. Styrkt hæli i Tjaldanesi í Mosfellssveit fyrir 10 vistmenn. Á Akureyri er nýtekið til starfa vist- og dagheimili, Sól- borg, sem rúmar 32 vistmenn og 10 dagheimilisgesti. Til dagheimilisins Lyngáss í Reykjavík veitti Styrktarsjóð- urinn 800 þúsund kr. og nú er Styrktarfélagið að brjótast í að reisa annað dagheimili í borg- inni. sem nauðsynlegt er að njóti fjár úr styrktarsjóði á næsta ári, því sjóðir félagsi;ns eru þrotnir. Lesendum kann að sýnast, að þessar framkvæmdir séu svo miklar að senn hljóti að vera lokið nauðsynlegri uppbygg- ingu þessara stofnana og því megi beina tekjulind þeirra til annarra verkefna. Því miður er sta'ðreyndin sú, að Kópavogs hæli, sem nú rúmar um 170 vistmenn, þarf að stækka svo, að þar sé rými fyrir um 400 vistmenn og það hið bráðasta, og þar á eftir verður að auka árlega vistrými á stoí'nunum fyrir vangefna, sem svarar fjölgun þeirra, en hún er talin vera 7—8 tilfelli á ári. Ég vil því biðja tekjustofni Styrktarfél. vangefinna griða. jafnvel þótt að kalli önnur veigamikii og fjárfrek mál. Þjóðin má ekki stíga spor aftur á bak á þeirri braut að búa vangefnu fólki góð skilyrði. Einnig á bvi sviði koma fram margar merkar vísindaniður- stöður og reynsla fæst fyrir þvi. að ýmiskonar meðferð get ir skilað mörgu af því fólki nær því að eignast eðlilega hlutdeild í hinu daglega Iífi, en nokkurn dreymdi um fyrir fáum áratugum. En það er óhjá kvæmilegt, að me'ðal ok-kar verður hópur fólks, sem án eig in tilverknaðai’ hefur hlotið þau örlög að skorta möguleika til að vera sjálfbjarga við venjuleg skilyirði hins daglega lífs. Ef við, sem heilhrigð er- um, sjáurn ekki sóma okkar í því að hlúa að þeim eftir mætti, þá er vansæmd okkar mikil. Og enn einu sinni vD ég minna menn á, að enginn veit fyrir- fram hvenær vandinn ber að hans dyrum, hvenær hann er sjálfur kvaddur til þess erfiða hlatverks að verða foreldri vangefins barns eða á annan hátt nákominn einstaklingi, sem er vangefinn. Því bið ég flytjendur þessa frumvarps og aðra alþingis- menn, að samþykkja ekki eða bera fram á Alþingi tillögur er skerði tekjur Styrktarsjóðs vangefinna. Því fé er vel varið. Sigríð'ur Thorlacíus.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.