Tíminn - 28.10.1970, Page 16

Tíminn - 28.10.1970, Page 16
Lesið um mál Sigurjón Ólafsson við tillöguna að minnismerki um stofnun týðveldis á íslandi, (Tímamynd G.E.) MINNISMERKI UM STOFNUN LÝÐVELDIS OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Sigurjón Ólafsson hefur ný- lokið við að gera tillögu að minnismerki um stofnun lýð- veldisins, að beiðni borgarráðs Reykjavíkur. Skoðuðu borgar- ráðsfulltrúar tillögu Sigurjóns í gær. Ekki er ákveðið hvort minnismerkið vcrði gert eftir tillögunni. Þau frumdrög sem Sigurjón gerði eru úr plasti, og eru það fimm súlur, mismunandi haar og hver með sínu lagi, en mynda eina heild. Gerir lista- maðurinn ráð fyrir að minnis- merkið verði gert úr eir, og ð hæð þess verði allt að sjö 1»;: WXy.f... metrar, en lægsta súlan fimm metrar. Sigurjón sagði Tíman- um, að hann gerði ekki ráð fyr ir að minnismerkið stæði á stalli, eins og venjulegast er með höggmyndir, heldur á .iafn sléttu og yrði gerð tjörn um- hverfis það. Sigurjón sagði að þetta væri ekki simbólskt \ crk, og hverjum og einurn leyfilegt að sjá út úr því sem sýndist, stuðla, stauta eða hvað annað sem andinn bl'æs áhorfendum í brjóst. Óráði'ð er um staðsetningu verksins, ef reist verður, en sjálfur segist Sigurjón hafa í huga Kringlumýrina, sunnan Miklubrautar, en hugmyndir eru uppi um að byggja þar upp ,,miðbæ“. Borgarráð fól Sigurjóni að gera tillögu að minnismerki um stofnun lýðveldisins á íslandi, á fyrra ári, og á að reisa minnis merkið í Reykjavík. Bandalag ísl. listamanna og Arkitektafé- lag íslands tilnefndu sitthvorn fulltrúann til að vera borgar- ráði til ráðuneytis um íram- kvæmdii- í málinu. Eins ög fyrr segir er ekki enn ráðið hvort minnismerkið verður gert eftir tillögunni, en nú er borgarráð búið að sjá tillöguna og væntan lega verður bráðlega ákveðið hvort minnismerkið verður reist eða ekki. I Cóð hörpudisksveiði við Stykk ishóim, en afíinn fíuttur suður OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Bátum, secn stunda hörpudisks- veiðar fyrir utan Stykkishólm fjölgar óðum og eru nú um 10 bátar sem stunda þessar veiðar, en af þeim aðeins tveir frá Stykk- ishólmi. Annar þeirra leggur upp hluta af aflanum þar. en annar hörpudiskur, sem veiðist þarna or fluttur til Reykjavíkur til vinnslu. Eru Hólmarar að vonum óánægð- ir með þessa tilhögun, því at- vinna er ekki of mikil í bænum, og væri vel þegið að bæta þar úr | og vinna hörpudiskinn fyrir vest-; an. Afli þeirra báta sem veiðarn-; er stunda er ágætur, 30 til 50 j tunnur á dag, en í hverri tunnu ; eru hátt í 100 'kíló. Er stutt á j miðin því hörpudiskurinn er I veiddur í og við höfnina í Stykk- ishólmi. Þar er aflanum skipað á land og ekið til Reykjavíkur. Þeir sem aflann kaupa segja að lítið verð fáist fyrir hörpudiskinn og sé rétt að vinnslan borgi sig. Yæri þá kannski ráð að spara svolítið og vinna hörpudiskinn vestra og lækka flutningskostnað. en þetta er liklega of einföld hagfræði til að þún fái staðizt. / Hörpudiskaveiðarnar við Stykk- ishólm hófust í haust og eru góð mið á ytri höfninni og þykir ekki ástæða til að sækja lengra meðan hægt er að moka hörpudisknum upp þar, en kunnugir telja að Framhald á ' 3 i SVALBARÐSKiRKJA FLUTT TIL AKUREYRAR SB—Reykjavík, þriðjudag. Verið er nú að flytja gömlu kirkjuna á Svalbarðseyri til Akureyrar, þar sem hún á að fara á minjasafnið. Steyptur hefur verið grunnur undir kirkj una á næstu lóð sunnan við Nonnahúsið, en þar stóð ein- mitt fyrsta Akureyrarkirkjan á sínurn tíma. Minjasafnið eign- aðist Svalbarðskirkju fyrir nokkrum árum, þegar ný kirkja var byggð þar. Gömlu kirkjunni var lyft af grunninum í mforgun me" tveim krönum og átti síðan að flytja hana til Akureyrar i björtu, en þegar til kom reyndist kirkjan allmiklu þyngri, en ráð hafli verið fyrir gert, og var ekki hægt að leggja af stað fyrr en um kl. 5 og er gert rá'ð ð kirkjan verði komin á áfanga- stað einhverntíma í nótt. Kirkja þessi er allgön tré- kirkja, og eignaðist Minjasafn Akureyrar hana, þegar ný kirkja var byggð á Svalbarðs- eyri fyrir nokkrum árum. Mi' ja safmið er til húsa í Kirkju- hvoli á Akureyri, en lóðin milli Kirkjuhvols og Nonnahússins hefur staðið auð og þar verður kii’kjan sett niður. í ráði er að flytja einnig á minjasafnið, gömlu smiðjuna á Skipalóni. sem er fornt í merkiiegt hús. HJÚKRUNARKONUR REIÐAR KENNURUM FB—Reykjavík, þriðjudag. Barnakennarar hafa í sambandi við launakröfur sínar tekið til samanburðar m.a. hjúkrunarstétt- ina og laun hennar. í því tiiefni hefur Hjúkrunarfélag Islands sent frá sér athugasemd, þar sem m.a. er bent á, að kröfur þær, sem gerð ar eru til hjúkrunar, fari sívax- andi, ekki einungis að því er t k- ur til umfangs, heldur og til gæða, kröfur um meiri vísindalega þekk ingu og tæknilega hæfni. Þá er ennfremuir bent á, að allar hjúkrun arkonur hafa kennsluskyldu í starfi sínu, og sé því mun meiri ástæða til þess að þessir tveir starfshópar, kennarar og hjúkrumarfólk séu traustir samherjar. Atliugasemd Hjúkrunarfélagsins er á þessa leið: „Stjórn Sambands íslenzkra barnakennara boða'ði blaðamenn á sinn fund 19. okt s.l. og flutti þar, skv. blaðafréttum, óróður fyrir kjaramálum sínum, m.a. með sam- anburði við aðra starfshópa innan Bandalags starfsmanna ríkis cg bæja, þ.e.a.s. hjúkrunarkonur og lögregluþjóna. Nú eru framundan og standa raunar yfir samningaviðræður milli B.S.R.B. og forsvarsmanna ríkisins og bæjarfélaganna í land- inu. Innan B.S.R.B. er ætlazt til, að allir a'ðilar vinni saman að kjara- bótum og sýni þannig félagsleg- an þroska, en noti ekki samanburð- aráróður til þess að lyfta einum hópi á kostnað unnarra. Þar sem þetta er komið fram og hjúkrunarkonur teknar til saman- burðar, til þess að setja þær í óhagstæðari aðstöðu, verður ekki komizt hjá að gera athugasemd. Það er viðurkennt um allan heim að hjúkrunarkonur hafa verið vanmetnar til launa, enda er víð- ast mikill skortur á hjúkrunarkon- um, og svo er einnig hér á landi. Vegna þessa hefur Alþjóðavinnu- málastofnunin (ILO) í samnáði við Alþjóðaheilbrigðismálastofnun ina (WHO) og Alþjóðasambamd hjúkrunarkvenna tekið kjaramál hjúkL’una'r.stét.t'ni’innar til athug- unar. í ræðu er flutt var á fundi ráð- gjafanefndar Alþjóðavinnumála- stofnunarinnar, 8. des. 1967 var m.a. bent á að „Samtímis því, að umbætur á starfskjörum hafa ver- / FÉLL FYRIR" BORÐ 00 DRUKKNAOi SB—Reykjavík, þriðjudag. 23 ára gamall vélstjóri á tog- aranum Úranusi, Bjarni Hjalti Lýðsson, féll fyrir borð a fimmtu dasskvöldið og drukknaði Úranus var staddui vestur af Garðskaga. þegar slysið yarð og bar leit að manninum engan árangur. Bjarni var ókvæntur os var H h"imilis að Hvassaleiti 36 í Reyk.iavik. i® fáar og smávægilegar, hafa kröfur þær, sem gerðar eru til hjúfcrunar, farið sívaxandi, ekki einungis að því er tekur til um- fangs, heldur og til gæða,> — kröf- ur um meiri vísindalega þekkingu og tæknilega hæfni. Skorturinn á hjúkrunarkonum, jafnframt vexti og fjölgun hjúkr- unarstofnania hefur skapað mjög brýnt vandamál, svo sem bent var á af ýmsum fulltrúum á vinnu- málaráðstefnunni á þessu ári. Okk- ur ber öllum skylda til að reyna að finna leiðir út úr þeirri sjálf- heldu, sem hjúkrunarmálin hafa ratað í vegna úreltra hefða og slæmra starfsskilyrða. Ef ekki vegna hjúkrunarkvennanna sjálfra, þá a.m.k. vegna þess fólks, „em þarfnast þjónustu jieirra, verður að gera hjúkrunarstarfið eftirsókn arverðara sem atvinnugrein, bæði rir karla og konur. Þetta er jafnmikið hagsmutiamál fyrir vinnandi fólk, atvinnurekend- ur og ríkisstjórmir. Til að fram- leiðsla geti aukizt þarf heilsu- hrausta starfsmenn, til að efla heil- brigði þarf hjúkrunarkonur.“ Starf barnakennara er vanda- samt og ábyrgðarmikið og vonandi að það verði rétt metið til launa, en það virðist alltaf gengið fram- hjá því, a® allar hjúkrunarkonur hafa kennsluskyldu í sínu starfi, sem leiðbeinendur sjúklinga, við heilsuverndarstörf, og við að kenna hjúkrunarnemum og að- stoðarfólki við hjúkrunarstörf. Þeim mun meiri ástæða er fyrir þessa hópa að vera traustir sam- herjar.“ Njardvíkingar Framsóknarfélag Njarðvíkur heldur fund í anddyri Stapans, fimmtudaginn 29. okt. kl. 20.30. Dagskrá: Hreppsmálin og tvö önn- ur mál. — Stjórnin. RAUÐI BRONCOINN KOMINN í LEITIRNAR OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Maðurinn sem rannsóknar- lögreglan lýsti eftir í gær, og j verið hafði á rauðum Bronco á svipuðum slóðum og Viktor \ Hansen hvarf, sama daginn, gaf | sig fram við lögregluna í gær- kvöldi. Gat hann engar upplýs- ingar gefið um hvarf Viktort, hafði aldrei orðið var við haun. Ástæðan til að hann gaf sig j ekki strax fram voru að hatin fór úr bænum skömmu dftir að ! Viktor hvarf og fylgdist ekki með leit að hinum tínda né því að hann hafði verið nærrtaddur ; á þeim tíma rém Viktor hvarf.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.