Tíminn - 29.10.1970, Page 1

Tíminn - 29.10.1970, Page 1
t-1 rj n f gAó/ig/u^fetoA- h~£ RAFTÆKJADEILD, HAFHARSTRÆTl 23, SlW 18396 FHYSTIKISTUR * FRYSTISKÁPAR * * * * * * * *• * * * * Cross CROSS TEKINN AF LÍFI? NTB-Montreal, miðvikudag. Lögreglan í Montreal hefur í dag lesið og rannsakað gaum gæfilega þriggja blaðsíðna langa tilkynningu frá Frelsis- hreyfingu Quebec, sem hefur b"ezka verzlunarfulltrúann Jam es Cross í haldi. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar mun ekkert að finna í tilkynning- unni, hún inniheldur að mestu pólitískan áróður. Tilkynning þessi er það fyrsta um langt skeið, sem fullvíst þykir, að sé komið frá Frelsis- hreyfingunni, en ýmis skila- boð hafa borizt í hennar nafni, en reynzt fölsk. í gærkvöldi barst önnur til- kynning, sem sögð var frá Frelsishreyfingunni og í henni stóð, að lík Cross væri að finna á eyju nokkurri, um 10 km. norðan við Montreal. Fjöi-j mennt lögreglulið fór þegar ái staðinn og leitaði vandlega um alla eyjuna, en fann ekkert. Cross var rænt 5. október, og heyrðist síðast frá honum og ræningjunum 18. október, nokkrum klukkustundum eftir að lik Laporte fannst. Frú Harbara Cross hefur gegnum útS'arpsstöð, farið þess á leit við fæningja Cross, að hann fái að skrifa henni bréf. Ræningjarnir krefjast þess, að 23 pólitískir fangar verði ’átnir lausir fyrir Cross og þar að auki vilja þeir fá hálfa Framhald á bls. 14 KARL GUDJÚNSSON SEGIR SIG ÖR ÞINGFLOKKI ALÞfDUBANDALAGSINS EB—Reykjavík, miðvikudag. Karl Guðjóusson kvaddi sér í dag hljóðs ulan dagskrár í Sameinuðu Alþingi, þar sem hann lýsti yfir, úrsögn sinni úr þingflokki Alþýðu- bandalagsins, sem hann sagði ekki vera trúan því hlutverki sínu að efla samvinnu vinstri manna í landinu. Væru þau öfl nú ráðandi innan Alþýðubandalagsins, sem ynnu gegn þessu markmiði og gæti hann því ekki verið í slíkum flokki lengur. Kvaðst Karl hafa viljað að Al- þýðubandalagið svaraði jákvætt bréfi Alþýðuflokksins, þar sem boðið var upp á viðræður um stöðu vinstri hreyfingar á íslandi. Bréfinu hefði verið svarað nei- kvætt og hann hafi ekki verið hafð ur með í ráðum þegar það bréf var samið. Taldi Karl að þing- maður sem svo sé lítilsvirtur í þingflokki sínum, að ósk hans um að jákvæð viðbrögð yrðu við slíku boði sem Alþýðufl. hafi komið með, væri ekki anzað, hafi ekki heldur skyldur til að fara eftir samþykktum þess sama þingflokks og jafngilti þetta því brottvísun þingmanns úr þingflokknum. Lúðvík Jósefsson formaður þing- flokks Alþýðubandalagsins kvað sér ekki koma á óvart úrsögn Karls, hefði hann verið í flokkn- um um skeið með sérstökum hætti, ritað gegn flokknum utan þings, og neitað að vera í framboði fyrir flokkinn. Væru bréfaskiptin milli Alþýðubandalagsins og Alþýðu- flokksins því aðeins tyllióstæða Karls til að segja sig úr þingflokki Alþýðubandalagsins. — Ennfrem- ur tók Jónas Árnason til máls og hanmaði það að jafn mætur mað- ur og Karl skyldi segja sig úr þingflokki Alþýðubandalagsins. Kvað Jónas sér hafa verið ókunn- j ugt um það sem til stóð. Hins veg- ar væru líkur á því, að aðrir að- jilar hafi vitað. um úrsögn Karls, þar eð ljósmyndari Morgunblaðs- ins hefði staðið í dyrum þingsal- arins um leið og Karl stóð upp og flutti mál sitt. Hér fer svo á eftir ræða Karl Framhald á bls. 14 Karl Guðjónsson Þingsályktunartillaga Framsóknarmanna: Gerö veröi áætlun um iönþróun til ársins 1980 EJ—Reykjavík, miðvikudag. Sex. þingmenn Framsóknar- flokksins hafa flutt tillögu til þingsályktunar um iðnþróunar- áætlun fyrir næsta áratug. Er Jiar skorað á ríkisstjórnina, „að Helgi Bergs láta gera áætlun um iðnþróun í landinu fram til ársins 1980. Áætlunina skal miða við að gera grein fyrir, livernig skapa megi sem arðbærust \iðfangsefni ört vaxandi þjóð innan þeirra ramma, sem auðlindir hennar og fram- kvæmdageta leyfa“. í tillögunni, sem Helgi Bergs, Einar Ágústsson, Halldór E. Sig- urðsson, Ingvar Gíslason, Þórar- inn Þórarinsson og Ólafur Jó- hannesson flytja, segir ennfrem- ur: „Til undirbúnings áætlunar- gerðinni skal fara fram sérfræði- leg, kerfisbundin könnun á því, hvaða iðngreinar hafi beztan starfs grundvöll og henti bezt aðstæð- um í landinu yfirleitt og ein- stökum landshlutum sérstaklega. Einnig skulu dregnar saman nið- urstöður þeirra athugana á mögu- leikum til stóriðju (orkufreks iðn- aðar),.sem fram hafa farið á veg- um stjórnvalda, í því skyni að skapa heildaryfirlit yfir þá mögu- leika, sem fyrir hendi eru á því sviði, og innbyrðis samhengi þeirra. Þá séu athugaðar og metnar þær aðgerðir af hálfu löggjafans og stjómvalda, sem til greina koma til að efla iðnþróun og stýra henni [ þær stefnur, sem hag- kvæmastar teljast samkvæmt því mati, sem í áætluninni felst. Einnig skal höfð hliðsjón af þeim aðferðum, sem aðrar þjóðir beita í þessu skyni, og reynslunni af þeim. Iðnþróunaráætluain verði 16gð fyrir Alþingi og birt þjóðinni, svo fljótt sem verða má.“ í greinargerð er bent á, að fyrir nokkrum árum „birti Efna- hagsmálastofnunin áætlun um fjölda atvinnufólks á næstu ára- tugum, og var niðurstaða hennar sú, að á árinu 1970 yrði fjöldi Jæss 82 þúsund, 1980 yrði hann 100 þúsund, 1990 119 þúsuod og árið 2000 146 þúsund. Á næsta áratug má því gera ráð fyrir, að á vinnmarkaðinn bætist um 18 þúsund manns, auk þess sem gera verður ráð fyrir framleiðniaukn- ingu í þeim atvinnugreinum, sem nú eru stundaðar. Ný störf þurfa því að verða til fyrir mifclu fleiri en J>essi 18 þúsund. Það ber því að fagna því, að skilningur og samstaða virðist ríkja um það meðal þjóðarinnar, að hraða þurfi iðnþróuninni j land- inu. Á hinn bóginn verður ekki sagt, að sama samstaða ríki um það, með hvaða hætti skuli að því unnið. En við stöndum nú á tíma mótum. Við höfum gerzt aðilar að EFTA. Þegar sú aðild var til umræðu, gagnrýndum við fram- sóknarmenn það, að ekki skyldi þá J>egar hafa verið gerð iðnþró- unaráætlun af því tagi, sem hér er lagt til að gera. Okkur virtist eðlilegt að tengja þetta tvennt saman, því að auðvitað er aðild okkar að samtökum um fríverzl- un með iðnaðarvörur meiningar- leysa, ef hún miðar ekki að hraðri iðnvæðingu landsins. Bygging stórrar verksmiðju á Framhald á bls. 14 Iðnaðarráðh. svarar bréfi Búnaðarfél., Stéttarsamb. bænda, Landnáms ríkisins, Veiðimálanefndar og Náttúrufræðistofnunar: NEITAR AÐ STÖÐVA FRAMKVÆMDIR VIÐ GLJÚFURVERSVIRKJUN 0G GAGNRÝNIR ÝMSAR FULLYRÐINGAR BRÉFRITARANNA Svarbréf ráðherra, og sáttatillaga sáttasemjara, er á bls. 3 í blaðinu í dag

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.