Tíminn - 29.10.1970, Síða 1
t-1 rj n f
gAó/ig/u^fetoA- h~£
RAFTÆKJADEILD, HAFHARSTRÆTl 23, SlW 18396
FHYSTIKISTUR *
FRYSTISKÁPAR *
*
*
*
*
*
*
*•
*
*
*
*
Cross
CROSS
TEKINN
AF LÍFI?
NTB-Montreal, miðvikudag.
Lögreglan í Montreal hefur
í dag lesið og rannsakað gaum
gæfilega þriggja blaðsíðna
langa tilkynningu frá Frelsis-
hreyfingu Quebec, sem hefur
b"ezka verzlunarfulltrúann Jam
es Cross í haldi. Samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar mun
ekkert að finna í tilkynning-
unni, hún inniheldur að mestu
pólitískan áróður.
Tilkynning þessi er það fyrsta
um langt skeið, sem fullvíst
þykir, að sé komið frá Frelsis-
hreyfingunni, en ýmis skila-
boð hafa borizt í hennar nafni,
en reynzt fölsk.
í gærkvöldi barst önnur til-
kynning, sem sögð var frá
Frelsishreyfingunni og í henni
stóð, að lík Cross væri að finna
á eyju nokkurri, um 10 km.
norðan við Montreal. Fjöi-j
mennt lögreglulið fór þegar ái
staðinn og leitaði vandlega um
alla eyjuna, en fann ekkert.
Cross var rænt 5. október,
og heyrðist síðast frá honum
og ræningjunum 18. október,
nokkrum klukkustundum eftir
að lik Laporte fannst. Frú
Harbara Cross hefur gegnum
útS'arpsstöð, farið þess á leit
við fæningja Cross, að hann
fái að skrifa henni bréf.
Ræningjarnir krefjast þess,
að 23 pólitískir fangar verði
’átnir lausir fyrir Cross og þar
að auki vilja þeir fá hálfa
Framhald á bls. 14
KARL GUDJÚNSSON SEGIR SIG ÖR
ÞINGFLOKKI ALÞfDUBANDALAGSINS
EB—Reykjavík, miðvikudag.
Karl Guðjóusson kvaddi sér í dag hljóðs ulan dagskrár í Sameinuðu
Alþingi, þar sem hann lýsti yfir, úrsögn sinni úr þingflokki Alþýðu-
bandalagsins, sem hann sagði ekki vera trúan því hlutverki sínu að efla
samvinnu vinstri manna í landinu. Væru þau öfl nú ráðandi innan
Alþýðubandalagsins, sem ynnu gegn þessu markmiði og gæti hann því
ekki verið í slíkum flokki lengur.
Kvaðst Karl hafa viljað að Al-
þýðubandalagið svaraði jákvætt
bréfi Alþýðuflokksins, þar sem
boðið var upp á viðræður um
stöðu vinstri hreyfingar á íslandi.
Bréfinu hefði verið svarað nei-
kvætt og hann hafi ekki verið hafð
ur með í ráðum þegar það bréf
var samið. Taldi Karl að þing-
maður sem svo sé lítilsvirtur í
þingflokki sínum, að ósk hans um
að jákvæð viðbrögð yrðu við slíku
boði sem Alþýðufl. hafi komið
með, væri ekki anzað, hafi ekki
heldur skyldur til að fara eftir
samþykktum þess sama þingflokks
og jafngilti þetta því brottvísun
þingmanns úr þingflokknum.
Lúðvík Jósefsson formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins kvað
sér ekki koma á óvart úrsögn
Karls, hefði hann verið í flokkn-
um um skeið með sérstökum hætti,
ritað gegn flokknum utan þings,
og neitað að vera í framboði fyrir
flokkinn. Væru bréfaskiptin milli
Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flokksins því aðeins tyllióstæða
Karls til að segja sig úr þingflokki
Alþýðubandalagsins. — Ennfrem-
ur tók Jónas Árnason til máls og
hanmaði það að jafn mætur mað-
ur og Karl skyldi segja sig úr
þingflokki Alþýðubandalagsins.
Kvað Jónas sér hafa verið ókunn-
j ugt um það sem til stóð. Hins veg-
ar væru líkur á því, að aðrir að-
jilar hafi vitað. um úrsögn Karls,
þar eð ljósmyndari Morgunblaðs-
ins hefði staðið í dyrum þingsal-
arins um leið og Karl stóð upp og
flutti mál sitt.
Hér fer svo á eftir ræða Karl
Framhald á bls. 14
Karl Guðjónsson
Þingsályktunartillaga Framsóknarmanna:
Gerö veröi áætlun um
iönþróun til ársins 1980
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Sex. þingmenn Framsóknar-
flokksins hafa flutt tillögu til
þingsályktunar um iðnþróunar-
áætlun fyrir næsta áratug. Er
Jiar skorað á ríkisstjórnina, „að
Helgi Bergs
láta gera áætlun um iðnþróun í
landinu fram til ársins 1980.
Áætlunina skal miða við að gera
grein fyrir, livernig skapa megi
sem arðbærust \iðfangsefni ört
vaxandi þjóð innan þeirra ramma,
sem auðlindir hennar og fram-
kvæmdageta leyfa“.
í tillögunni, sem Helgi Bergs,
Einar Ágústsson, Halldór E. Sig-
urðsson, Ingvar Gíslason, Þórar-
inn Þórarinsson og Ólafur Jó-
hannesson flytja, segir ennfrem-
ur:
„Til undirbúnings áætlunar-
gerðinni skal fara fram sérfræði-
leg, kerfisbundin könnun á því,
hvaða iðngreinar hafi beztan starfs
grundvöll og henti bezt aðstæð-
um í landinu yfirleitt og ein-
stökum landshlutum sérstaklega.
Einnig skulu dregnar saman nið-
urstöður þeirra athugana á mögu-
leikum til stóriðju (orkufreks iðn-
aðar),.sem fram hafa farið á veg-
um stjórnvalda, í því skyni að
skapa heildaryfirlit yfir þá mögu-
leika, sem fyrir hendi eru á því
sviði, og innbyrðis samhengi
þeirra.
Þá séu athugaðar og metnar
þær aðgerðir af hálfu löggjafans
og stjómvalda, sem til greina
koma til að efla iðnþróun og stýra
henni [ þær stefnur, sem hag-
kvæmastar teljast samkvæmt því
mati, sem í áætluninni felst.
Einnig skal höfð hliðsjón af þeim
aðferðum, sem aðrar þjóðir beita
í þessu skyni, og reynslunni af
þeim.
Iðnþróunaráætluain verði 16gð
fyrir Alþingi og birt þjóðinni, svo
fljótt sem verða má.“
í greinargerð er bent á, að
fyrir nokkrum árum „birti Efna-
hagsmálastofnunin áætlun um
fjölda atvinnufólks á næstu ára-
tugum, og var niðurstaða hennar
sú, að á árinu 1970 yrði fjöldi
Jæss 82 þúsund, 1980 yrði hann
100 þúsund, 1990 119 þúsuod og
árið 2000 146 þúsund. Á næsta
áratug má því gera ráð fyrir, að
á vinnmarkaðinn bætist um 18
þúsund manns, auk þess sem gera
verður ráð fyrir framleiðniaukn-
ingu í þeim atvinnugreinum, sem
nú eru stundaðar. Ný störf þurfa
því að verða til fyrir mifclu fleiri
en J>essi 18 þúsund.
Það ber því að fagna því, að
skilningur og samstaða virðist ríkja
um það meðal þjóðarinnar, að
hraða þurfi iðnþróuninni j land-
inu. Á hinn bóginn verður ekki
sagt, að sama samstaða ríki um
það, með hvaða hætti skuli að því
unnið. En við stöndum nú á tíma
mótum. Við höfum gerzt aðilar
að EFTA. Þegar sú aðild var til
umræðu, gagnrýndum við fram-
sóknarmenn það, að ekki skyldi
þá J>egar hafa verið gerð iðnþró-
unaráætlun af því tagi, sem hér
er lagt til að gera. Okkur virtist
eðlilegt að tengja þetta tvennt
saman, því að auðvitað er aðild
okkar að samtökum um fríverzl-
un með iðnaðarvörur meiningar-
leysa, ef hún miðar ekki að hraðri
iðnvæðingu landsins.
Bygging stórrar verksmiðju á
Framhald á bls. 14
Iðnaðarráðh. svarar bréfi Búnaðarfél., Stéttarsamb. bænda, Landnáms ríkisins, Veiðimálanefndar og Náttúrufræðistofnunar:
NEITAR AÐ STÖÐVA FRAMKVÆMDIR VIÐ
GLJÚFURVERSVIRKJUN 0G GAGNRÝNIR
ÝMSAR FULLYRÐINGAR BRÉFRITARANNA
Svarbréf ráðherra, og sáttatillaga sáttasemjara, er á bls. 3 í blaðinu í dag