Morgunblaðið - 27.11.2005, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vinsælasta barnadagbók í heimi
Hér er loksins komin vinsælasta
barnadagbók í heimi í íslenskri
þýðingu. Bókin hvetur foreldra
og aðstandendur til að varðveita
minningarnar. Í bókinni er að finna
fjöldann allan af gullfallegum
myndum eftir þekktasta
barnaljósmyndara heims,
Anne Geddes.
www.jpv.is
SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn og
Landsvirkjun hafa gert með sér
samning sem kveður á um að Lands-
virkjun styrki félagið. Markmiðið
með samstarfssamningnum er að
Landsvirkjun efli starf Hróksins við
að kynna skáklistina grunn-
skólabörnum.
Í tengslum við samninginn mun
Hrókurinn dreifa bókinni Skák og
mát til grunnskólanema undir slag-
orðinu „Virkjum framtíðina – börnin
eru dýrmætasta auðlind Íslands“.
Hrókurinn hefur undanfarin fjögur
ár fært þriðju bekkingum að gjöf
bókina Skák og mát frá Hróknum og
Eddu útgáfu, sem alls hefur gefið til
þess verkefnis 20.000 bækur. Þá mun
Hrókurinn halda fimm skákhátíðir
kenndar við Landsvirkjun fyrir börn
á grunnskólaaldri. Þrjár verða á vor-
önn 2006 og tvær haustið 2006. Sam-
kvæmt samningnum er framlag
Landsvirkjunar til Hróksins ein og
hálf milljón króna.
Skákskóli Hróksins
viðurkenndur
„Það eru viss tímamót að eiga sér
stað í íslensku skáklífi,“ segir Hrafn
Jökulsson, formaður Hróksins, og
bætir við að þetta samstarfsverkefni
sé honum afar dýrmætt. „Lands-
virkjun er að sýna í verki að fyr-
irtækið styður starf sem nær til allra
grunnskóla á Íslandi. Megintilgangur
Hróksins í framtíðinni verður að sjá
til þess að það sé líf og fjör í skákinni í
hverju einasta byggðarlagi landsins.
Við munum jafnframt standa að fjöl-
mörgum viðburðum í sameiningu og
skákhátíðum um allt land.“
Sjálfur stendur Hrafn nú á per-
sónulegum tímamótum. „Fyrsta jan-
úar næstkomandi mun ég láta af því
embætti sem ég hef gegnt með miklu
og vaxandi stolti síðustu sjö árin og
kraftmiklir vaskir menn munu taka
við Hróknum og sjá til þess að skák-
vakningin mikla haldi áfram,“ segir
Hrafn. „Áður en að því kemur þrái ég
þó fátt heitar en að sjá nokkur stór
mál í höfn. Þar ber hæst skák-
væðingu grunnskólakerfisins á Ís-
landi, því eins og erlendar rannsóknir
sýna bætir skákkunnátta árangur
nemenda í öllum öðrum náms-
greinum, allt frá lestri til stærðfræði.
Ég bind miklar vonir við skilning
ráðamanna á þessu framfaramáli sem
varðar æsku landsins og þar með
framtíðina svo miklu og tel að tíðinda
sé að vænta í þessum efnum. Vænst
þykir mér um að geta kvatt Hrókinn
þannig að hann njóti þeirrar við-
urkenningar að Skákskóli Hróksins
er nú kominn á fjárlög íslenska rík-
isins.“
Hrafn segir stuðning Alþingis við
Skákskóla Hróksins félagsmönnum
mikils virði sem viðurkenning á því
starfi sem unnið hefur verið. „En
hann verður þó fyrst og fremst hvatn-
ing til frekari dáða,“ segir Hrafn.
„Við erum líka stolt af því að stórfyr-
irtæki á borð við Íslandsbanka og
Bónus skuli hafa tekið að sér að ger-
ast bakhjarlar okkar starfs, eins og
Edda útgáfa og fjölmörg önnur fyr-
irtæki, félagasamtök, sveitarfélög og
einstaklingar. Þegar ég kveð Hrók-
inn finnst mér eins og á þessum sjö
árum hljóti ég að hafa leitað liðsinnis
upp undir allra Íslendinga og veit nú
að framtíð í íslensku skáklífi er björt;
Hrókurinn mun dafna og ólmast og
heimsækja skólana. Við munum
halda áfram starfi okkar með vinum
okkar, föngunum á Litla-Hrauni, með
krökkunum á barnaspítala Hringsins
og í Vin, athvarfi Rauða krossins fyrir
fólk með geðraskanir. Þá erum við
svo gæfusöm að hafa nú glæsilegasta
leiðtoga sem íslensk skákhreyfing
hefur eignast, Guðfríði Lilju Grét-
arsdóttur, forseta Skáksambandsins,
sem mun leiða lokasóknina að skák-
landinu Íslandi.“
Rækta vináttuna við
Grænlendinga
Þá er einn lykilmaður ótalinn, en
hann er danski stórmeistarinn Hen-
rik Danielsen, sem að sögn Hrafns
hefur unnið þrekvirki í íslensku sam-
félagi á undanförnum misserum.
„Sem skólastjóri Hróksins hefur
hann heimsótt skóla um allt land, teflt
við og hrifið þúsundir barna auk þess
að taka þátt í ótal viðburðum og
heimsækja sjúkrahús, fangelsi, dval-
arheimili aldraðra og alla aðra þá
staði sem Hrókurinn hefur haft tíma
til að sinna á síðustu misserum,“ segir
Hrafn. „Það er einlæg von mín að við
njótum áfram starfskrafta þessa af-
reksmanns sem er nýkominn úr ferð
til Afríku á vegum Hróksins, Þróun-
arsamvinnustofnunar og Skák-
sambandsins, ásamt hinum knáa liðs-
manni okkar Kristian Guttesen.“
Dagana 4. til 11. desember nk.
munu Hróksmenn heimsækja Græn-
land, og færa 560 grænlenskum
grunnskólabörnum taflsett að gjöf.
Þessi ferð var fjármögnuð með skák-
maraþoni sem Hrókurinn stóð fyrir í
október. „Þetta er ferð lífs míns,“
segir Hrafn. „Vaskur hópur Hróks-
manna og vina okkar í Barnaheillum
á Íslandi, Kalak, vinafélagi Íslands og
Grænlands og Rauða krossins, hefur
unnið að skipulagningu þessarar
miklu ferðar. Tilgangurinn er að
fjölga ánægjustundum hjá okkar
næstu nágrönnum í þessum heimi, en
landnámið á Grænlandi er einn dýr-
mætasti ávöxturinn af starfi Hróks-
ins á liðnum árum. Stóri draumur
minn er sá að samband Íslendinga og
Grænlendinga stóreflist á næstu ár-
um og að þeir finni hressilega fyrir
því að þeir eigi vini í Íslendingum.
Margir leggja okkur lið við að gera
þessa ferð mögulega og ég er þeim
öllum óendanlega þakklátur.“
Nokkur mikilvæg mál eru enn eftir
á verkefnalista Hrafns og vill hann
vinna ötullega að þeim á næstu vik-
um. „Ég mun á næstu vikum leggja
allt í sölurnar til þess að nokkur mik-
ilvæg mál komist í höfn sem eiga að
tryggja að Ísland verði það skákland
sem við eigum skilið,“ segir Hrafn.
„Ég mun láta einskis ófreistað að eft-
irmenn mínir í Hróknum og okkar
glæsilegi forseti Skáksambandsins
geti starfað að uppbyggingu og út-
breiðslu skákarinnar meðal ungra
sem aldinna um ókomna framtíð.“
Skákfélagið Hrókurinn og Landsvirkjun gera með sér samning um grunnskólafræðslu
Morgunblaðið/Ómar
Hrafn Jökulsson og Friðrik Sophusson undirrita samning um samstarf Landsvirkjunar og Hróksins.
Tímamót í íslensku skáklífi
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
FULLTRÚAR Ljósmyndarafélags
Íslands hafa fundað með dómsmála-
ráðherra og dómsmálaráðuneytinu
vegna ljósmynda í nýja gerð vega-
bréfa. Gunnar Leifur Jónasson, for-
maður Ljósmyndarafélagsins, sagði
fundina hafa verið mjög upplýsandi
og taldi að komið yrði til móts við
óskir ljósmyndara um að eiga mögu-
leika á að taka áfram passamyndir.
Í nýju vegabréfunum verða tölvu-
lesanlegar upplýsingar um ýmis líf-
kenni handhafa vegabréfsins, þeirra
á meðal er andlitsmynd af umsækj-
anda. Ávallt verður tekin mynd af
umsækjanda hjá sýslumanni, sem
annast útgáfu bréfsins. Sú mynd
verður geymd þar ásamt öðrum per-
sónuupplýsingum.
Ströng skilyrði um myndirnar
Gunnar telur að sú niðurstaða
hafi fengist að umsækjendur um
nýju vegabréfin geti valið á milli
þess að í vegabréfinu sjálfu verði
myndin sem tekin var hjá sýslu-
manni eða mynd tekin á ljósmynda-
stofu. Myndin frá ljósmyndastof-
unni verður þó að uppfylla ýmis
skilyrði. Hún verður að vera á raf-
rænu formi og uppfylla strangar
kröfur um lýsingu og fleiri atriði.
Eitt þeirra er að tölvubúnaður, sem
les lífkenni úr vegabréfunum, skynji
að um sama einstakling sé að ræða á
báðum myndunum.
Gunnar telur að með þessu hafi
unnist áfangasigur, því það sé hagur
almennings að geta leitað til at-
vinnuljósmyndara um passamynda-
tökur.
„Ég tel að margir muni leita til
ljósmyndara til að fá almennilega
mynd af sér,“ sagði Gunnar. Hann
sagði reynsluna hafa sýnt að passa-
myndir séu dýrmætar heimildir. Oft
hafi það verið einu myndirnar sem
teknar voru af fólki. Lengi vel voru
passamyndirnar teknar á filmu og
framkallaðar á pappír. Í dag er mik-
ið leitað í þessi filmusöfn. Síðar kom
tímabil þar sem myndirnar fram-
kölluðust beint á pappír, án þess að
filma væri til eða neitt afrit af
myndinni. Nú sé farið að bera á að
myndir vanti af fólki frá þessum
tíma. Með tilkomu stafrænna
mynda og geymslu þeirra á tölvu-
tæku formi sé aftur hafin skráning á
andlitum heilu kynslóðanna.
Ljósmyndir í nýju vegabréfin
Umsækjendur um
vegabréf geti
valið um myndir