Morgunblaðið - 27.11.2005, Page 21
wood“. „Þær eru í tvívídd og hafa
enga undirstöðu,“ segir hún.
Senad Slatina, stjórnmálaskýr-
andi í Sarajevo, er á sama máli.
„Þær eru svo veikar að þær
myndu hrynja ef spenna skapað-
ist.“
Árið 1995 þorðu þó fáir að vona
að svo mikill árangur næðist á ein-
um áratug. Slatina hefur ef til vill
á réttu að standa en nú er hafið
ferli ESB-samruna sem á að
tryggja að ekki verði aftur snúið
og skjóta styrkum stoðum undir
veikar stofnanir.
Þessu ferli er auðvitað ekki
hægt að ljúka án Radovans Karad-
zic og Ratkos Mladic, leiðtoga
Bosníu-Serba í stríðinu, en þeir
ganga enn lausir, áratug eftir að
stríðsglæpadómstóll ákærði þá.
Beiskjan kraumar enn undir yf-
irborðinu en Milos Solaja, yfirmað-
ur Alþjóðatengslastofnunarinnar í
Banja Luka í Lýðveldi Serba, seg-
ir réttilega: „Þetta er land, hvort
sem okkur líkar betur eða verr.
Við búum hérna og erum borgarar
Bosníu.“
Í Bosníu er það jafnvel framför
að segja þetta.
Ashdown pasja?
„Við í alþjóðasamfélaginu þurf-
um núna að láta af stórkarlalegum,
ágengum íhlutunum … og gegna
nýju hlutverki ráðgjafa, fortöl-
umeistara og félaga,“ segir Ash-
down lávarður. Hugmyndin er að
völd aðalfulltrúa alþjóðasamfélags-
ins í Bosníu verði skert, eða að
minnsta kosti notuð miklu sjaldnar
en síðustu árin, og gengið er út frá
því að besta leiðin til að færa
Bosníu í átt að Evrópusambandinu
og umbótum sé að setja skilyrði í
aðildarviðræðunum.
Þetta hljómar vel fræðilega en
komið hefur í ljós síðustu tíu árin
að Bosnía líður ekki aðeins fyrir
vægðarlaust stríð og eftirköst þess
heldur einnig rótgróna stjórnmála-
menningu sem erfitt verður að
breyta.
Nú, tíu árum eftir Dayton-samn-
inginn, telja margir Vestur-
landabúar að það stingi í stúf við
Evrópu nútímans að Ashdown lá-
varður skuli starfa sem nokkurs
konar landstjóri í Evrópulandi.
Þeir telja því að það sé orðið tíma-
bært að Bosníumenn axli sjálfir
fulla ábyrgð á stjórn eigin mála.
Margir Bosníumenn líta málið öðr-
um augum. Þeir líta svo á að það
sé nánast eðlilegt stjórnskipulag
að aðalfulltrúinn skipi leiðtogum
þeirra fyrir. Þannig hefur Bosníu
ekki aðeins verið stjórnað frá 1995
heldur frá því að Tyrkir lögðu
svæðið undir sig árið 1463.
Frá þeim tíma og til ársins 1878
var Bosnía undir stjórn embættis-
manns, svonefnds pasja, sem sol-
dáninn í Istanbúl sendi þangað. Á
árunum 1878–1918 var landið und-
ir stjórn fulltrúa Austurríkis-Ung-
verjalands og hann kom frá Vín.
Frá 1918 til 1992 voru lokaákvarð-
anirnar í málefnum Bosníu teknar
í Belgrad. Núna ræður Ashdown
ríkjum og skipanirnar eru gefnar í
Brussel.
Fyrir tveimur árum sagði Evr-
ópusambandið Bosníumönnum að
þeir þyrftu að koma sextán atrið-
um í verk áður en viðræður gætu
hafist um aðild þeirra að samband-
inu. Öllu var þessu lokið í síðasta
mánuði fyrir þjark og eftirgangs-
muni Ashdowns. Fáir telja að
nokkru hefði verið komið í fram-
kvæmd án hans. Bosnískir stjórn-
málamenn eru reyndar ánægðir
með hlutverkið sem aðalfulltrúinn
hefur gegnt vegna þess að það
þýðir að þeir þurfa aldrei að taka
óvinsælar ákvarðanir, sem eru lík-
legar til að minnka fylgi þeirra.
Þeir geta reitt sig á að aðalfulltrú-
inn geri það fyrir þá og þeir taka
síðan þátt í leiknum „skuldinni
skellt á Paddy“.
„Erfiðasta breytingin, sem gera
þarf í Bosníu áður en landið getur
gengið í Evrópusambandið, felst ef
til vill í því að breyta hugarfari
fólksins,“ sagði Paddy Ashdown.
er langt í land
Höfundur er blaðamaður og skrifaði
bækurnar Kosovo: War and Revenge og
The Serbs: History, Myth and Destruct-
ion of Yugoslavia, sem báðar komu út
hjá Yale University Press.
’Við í alþjóðasam-félaginu þurfum
núna að láta af stór-
karlalegum, ágeng-
um íhlutunum … og
gegna nýju hlutverki
ráðgjafa, fortölu-
meistara og félaga.‘
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 21
Heimsferðir bjóða þér frábært tækifæri til taka þér frí frá íslenskum hávetri
og láta sólina á Kanaríeyjum baka þig. Bókaðu janúarsólina á Kanarí
strax - slökunin mun svo sannarlega vera tímabær og söknuður eftir ís-
lenskum vetri í algjöru lágmarki.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Kanarísól
á frábæru verði
í janúar
frá kr. 28.295
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð frá kr.48.890
Hálft fæði Flug, skattar og gisting, m.v.
2 í herbergi á Eugenia Victoria - hálft
fæði, vikuferð, vikuferð, 3., 10. eða 17. janúar.
Netverð á mann.
Tryggðu þér síðustu sætin og besta verðið!
Verð frá kr.28.295
Flug, skattar og gisting, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára, á Paraiso Maspalomas, 3., 10.
eða 17. jan., vikuferð. Netverð á mann.
Verð frá kr.57.590
Hálft fæði Flug, skattar og gisting,
m.v. 2 í svítu á Suite Hotel Maspalomas Dunas
- hálft fæði, vikuferð, 3., 10. eða
17. janúar. Netverð á mann.
Verð frá kr.68.690
Allt innifalið Flug, skattar og gisting,
m.v. 2 í svítu á Suite Hotel Maspalomas Dunas
- allt innifalið, vikuferð, 3., 10. eða
17. janúar. Netverð á mann.