Morgunblaðið - 27.11.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 27
sjái hvað við erum að gera. Auka
virðingu hönnuða á Íslandi. Hönn-
unardagar eru skref í rétta átt.“
Þættir í sjónvarpinu þar sem er
verið að stílísera og breyta híbýl-
um og fjalla um „hipp“ og „kúl“
lífsstíl gefa ekki rétta mynd af
hönnun sem fagi og valda misskiln-
ingi í hugum fólks um hvað hönnun
snýst og hvað hún er og hvaða
hugmyndafræði býr að baki.
Breiddin sem var í sýningunum í
bænum um helgina gefur okkur
góða hugmynd um hvað málið
snýst.
Styrkir íslenska hönnun
Önnur mjög áhugaverð sýning
sem var til húsa á Grettisgötunni
var sýning hönnunarhópsins
Slaufa G sem samanstendur af
þriðja árs nemum í vöruhönnun í
LHÍ.
„Við sýnum reglulega saman og
gerðum nýlega verkefni út frá hval
sem við sýndum á 100% Design a
Tokyo Design Week og svo á On/
Off Design-hönnunarsýningu í
Seul og fengum góðar viðtökur.
Við sýndum núna á hönnunardög-
um samtíning af hlutum sem við
höfum hannað síðustu 3 ár í bak-
húsi á Grettisgötu 51. Þar mátti
sjá til dæmis koll með bólstraðri
setu úr uppblásnum latexhönskum,
heklaða tölvukápu, ljósakrónu úr
hekluðu girni, húsgögn úr eining-
um sem búnar eru til út pizzaköss-
um og baðkar með sláttuvélamótor
og þvottavélatromlum.“
Aðspurð hvernig tekist hafi til
með íslenska hönnunardaga og
hvaða gildi þeir hafi segja þau
uppákomur sem þessar frábært
framtak. „Við vonum að þetta fest-
ist í sessi og styrki íslenska hönn-
un í framtíðinni. Svona hönnunar-
dagar eru haldnir út um víða
veröld og eru stórviðburðir. Það
hefur verið vakning um íslenska
hönnun í fjölmiðlum síðustu ár og
fólk almennt mjög opið fyrir nýrri
hönnun. Ef hönnunardagar verða
að árlegum atburði þá styrkir það
náttúrlega stöðu íslenskrar hönn-
unar.“
Um sýninguna í Laugardalshöll
segja þau: „Eflaust er þetta ágætis
blanda því almenningur vill sjá
vörur sem hann getur keypt úti í
búð. Það þarf að passa að þetta
verði ekki bara verslunarsýning
þar sem íslenskir hönnuðir týnast
á milli stórverslana.“
Hönnunardagar sjálfstæð sýning
Það er líka skemmtilegt að
skoða sýningu hjá íslenskum hönn-
uði sem lærði í Hollandi. Guðrún
Lilja lærði í Eindhoven og sýndi
hluti úr leyserskornum krossvið í
Glugganum hjá Sævari Karli í
Bankastræti. Hún er ánægð með
viðtökurnar sem sýningin hennar
fékk, segist enda hafa verið á góð-
um stað. Aðspurð um væntingar til
hönnunardagana segist hún ekki
hafa haft miklar væntingar. „Það
tekur alltaf tíma að gera svona við-
burði skilvirka. Það mætti vera
meiri umræða um hönnun og þá
alls konar hönnun.“
Guðrúnu Lilju finnst að hönn-
unardagar hefðu notið sín betur
sem sjálfstæð sýning. „Þeir köfn-
uðu í sýningunni í Laugardagshöll.
Að mínu mati á ekki að halda
þessa daga með öðrum viðburði í
Höllinni, frekar einbeita sér að
nokkrum stöðum í miðbænum eða
jafnvel á einu af listasöfnum mið-
bæjarins eins og er gert erlendis,“
segir Guðrún Lilja.
Fólki finnst misjafnlega hafa
tekist til síðustu helgi en það eru
allir mjög ánægðir með framtakið
sem slíkt. Íslenskir hönnunardagar
eru nauðsynlegir og sölukynningar
eins og voru í Höllinni um helgina
eiga rétt á sér líka, þetta er bara
spurning um hvort eigi að blanda
þessu tvennu saman. Ég held að
það sé varhugavert þegar mörkin í
huga fólks milli hönnunar og stíl-
íseringar eru ekki mjög skýr.
Höfundur er vöruhönnuður.
’Margt ungt fólk tókþátt í hönnunar-
dögunum því fagið
er ennþá ungt og
ómótað sem gerir
það jafnframt svo
spennandi. ‘
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Dalvegi 28 – Kópavogi
Sími 515 8700
BLIKKÁS –
mbl.is
smáauglýsingar
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband
á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið
maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á
reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Dagana 28. og 29. nóv. og 5. og 6. des. er tekið á móti
umsóknum vegna jólaúthlutunar.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sólvallagötu 48.
Sérferðir
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099 · Hafnarfjörður sími: 510 9500
2006
Búlgaría-Tyrkland
18.-25. maí
Frá kr. 98.910
Búlgaría-Grikkland
7.-21. september
Frá kr. 129.910
Norður-Spánn
Pílagrímaleiðin til
Santiago de Compóstela
31. ágúst - 12. september
Frá kr. 129.910
Gersemar Mið-Evrópu
Tékkland-Þýskaland-Austurríki
2.-12. október
Frá kr. 98.990
Króatía-Slóvenía-Ítalía
- ógleymanlega heillandi ferð
24. maí - 7. júní og
30. ágúst - 13. september
Frá kr. 119.910
Skútusigling um Adríahaf
– Gersemar Slóveníu og Króatíu,
á láði og legi
6.-20. september
Frá kr. 159.990
Fegurð Padovu
24.-31. maí
Frá kr. 98.990
Austurríki-Svartiskógur-Sviss
18.-29. júní
Frá kr. 119.910
Jólamarkaðir í Heidelberg
Aðventuferð
30. nóv. - 3. des.
Frá kr. 59.910
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
19
29
6
Terra Nova kynnir glæsilegar og fjölbreyttar Sérferðir fyrir árið
2006. Skemmtilegar nýjungar eru í boði nú sem fyrr. Nýjar af nálinni
eru m.a. sérstaklega spennandi ferðir til Búlgaríu, sem samofnar
eru ferðum til ýmist Tyrklands eða Grikklands. Önnur nýjung er
ævintýraleg skútusigling um Adríahafið ásamt því sem helstu perlur
Slóveníu og Króatíu eru kannaðar í einni og sömu ferð og margt
fleira.
Fararstjórar okkar hafa áralanga reynslu og eru fróðir um staði
og sögu.
Fáðu þér bækling og
kynntu þér hvað við
bjóðum og slástu í för
með okkur á árinu 2006.
Nessebar í Búlgaríu
Rila klaustrið í BúlgaríuSkútusigling um Adríahaf
Dubrovnik
Bled vatn
Frá Istanbúl
Þökkum viðtökurnar – margar ferðir að seljast upp!
Bókaðu n
úna!
www.terr
anova.is