Morgunblaðið - 27.11.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 37
Þið setjið foreldra ykkar áelliheimili, ekki satt? – Setjum þá? Ég veit núekki um það. Jú, jú, margir
fara vissulega á dvalarheimili fyrir
aldraða.
Ég tafsa og bít síðan í tunguna á
mér. Jú, á Íslandi setur fólk for-
eldra sína og ættingja almennt á
þessi heimili.
– Það myndi ég aldrei gera. Ég
ætti ekki annað eftir en að setja
móður mína og föður, sem komu
mér til manns, fæddu mig og
klæddu, út af heimilinu og í ein-
hverja svona geymslu.
Vinur minn í Katar horfir fast á
mig og finnst ég augljóslega bæði
stórskrýtin og kaldrifjuð að geta
séð mína eigin foreldra fyrir mér í
umræddri geymslu. Hann spyr
með þunga hvort mér finnist það
ekki ákveðin vanvirðing og veltir
fyrir sér hví íslenska stórfjölskyld-
an haldi ekki meira saman. Er ekki
einstaklingshyggjan þarna á Ís-
landi og á Vesturlöndum gengin út
í hálfgerðar öfgar?
Al-Jazeera og hryðjuverk
Samræður okkar eru truflaðar af
George W. Bush. Hann sveiflar sér
reyndar ekki inn á veitingastaðinn
þar sem við sitjum og drekkum te,
en fyllir skyndilega út í sjónvarps-
skjáinn á Al-Jazeera-sjónvarps-
stöðinni. Harðir bardagar geysa í
Fallujah í Írak. Þetta er fyrri stóri
bardaginn um borgina, háður í apr-
íl 2004. Bandamönnum gengur erf-
iðlega að ná henni. Bush horfir
djúpt í augu sjónvarpsáhorfenda
meðan hann fullyrðir að herinn
muni gera „hvað eina sem nauðsyn-
legt sé“ og það í þágu borgarbúa.
– „Ha, berst maður í borg í þágu
íbúa hennar? Koma skotárásir og
eyðilegging á mannvirkjum fólkinu
til góða?“ fnæsir gamall maður á
borðinu fyrir aftan og beinir orðum
sínum að mér.
– „Þessar aðgerðir í Írak eru svo
vitlausar að það eru engu lagi líkt,“
fullyrðir maðurinn við hliðina á
honum, áður en mér gefst ráðrúm
til að segja nokkuð.
„Svo halda þeir að það sé ekkert
mál að koma á nýrri stjórn. Þeir
eiga eftir að fá þetta laglega í haus-
inn á sér,“ bætir hann við, lítur á
mig og spyr hvass hvaðan ég sé.
Ég stama út úr mér að ég sé frá
Íslandi og þá er eins og honum sé
létt. Hann bætir glaður við að land
eins og Ísland taki náttúrlega eng-
an þátt í öðru eins.
Ég þegi bara, minnist ekki einu
orði á bandalag viljugra þjóða og
horfi hálfráðvillt á Bush. Það hafði
komið mér á óvart að maðurinn í
hótelafgreiðslunni sagði að lítil
lönd eins og Ísland hefðu líka stutt
innrásina.
Íraksstríðinu lýst frá Katar
Í Katar er aðalupplýsingamið-
stöð bandaríska hersins vegna að-
gerðanna í Írak. Þar er fjölmiðla-
fulltrúi hersins, þessi sem birtist á
sjónvarpsskjánum á daglegum
fréttamannafundum og segir
hvernig Íraksstríðinu miði. Frá
Katar er heimsbyggðinni sagt hver
sé framgangur stríðsins, nokkur
hundruð eða þúsund kílómetra í
burtu. Ég hafði ekki gert mér
grein fyrir að þessir fundir væru
ekki í Írak.
„Er mikið af glæpum á Íslandi?“
spyr vinur minn eftir að Bush
hverfur af skjánum. Ég hugsa mál-
ið og veit ekki hvernig ég á að
svara. „Það fer eftir því við hvað
þú miðar, held ég bara. Er það
ekki?“
Vinurinn segir hugsandi að morð
séu sjaldgæf í Katar. Ég panta
meira te og get ekki annað en velt
fyrir mér hversu marga sé búið að
myrða á Íslandi upp á síðkastið. Á
tveimur árum, fimm árum?
„Halda ekki voðalega margir að
Katar sé eitthvert Írak?“ hrekkur
skyndilega upp úr félaganum. Kat-
ar er friðsælt land, moldríkt, og
glæpatíðni afar lág.
„Jú, örugglega einhverjir. Eða
kannski margir. Það er að segja
þeir sem á annað borð þekkja nafn-
ið,“ svara ég á ensku og strýk mér
hálfvandræðaleg um höfuðið. Síðan
tauta ég á íslensku:
„Katar er náttúrlega í hinum
„hræðilegu“ Mið-Austurlöndum og
því hlýtur að vera hér bæði glæpa-
alda og algjör lögleysa.“ Ég glotti.
Bush bregður aftur fyrir á skján-
um og nú er talað yfir hann á arab-
ísku. Maðurinn í afgreiðslunni
krossleggur hendur á brjósti og
horfir annars hugar út um
gluggann. Karlmaðurinn fyrir aftan
rífst og skammast í nýjum kúnna.
Gamli maðurinn lýkur aftur aug-
unum og er stuttu seinna farinn að
hrjóta.
Út að borða með Bush
Morgunblaðið/Sigríður Víðis
Konur á gangi í borginni Doha í Katar. Katar er í Mið-Austurlöndum og á landamæri að Sádi-Arabíu og Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum og þar er aðalupplýsingamiðstöð bandaríska hersins vegna aðgerðanna í Írak.
sigridurv@mbl.is
Svipmynd frá Katar
Sigríður Víðis Jónsdóttir