Morgunblaðið - 27.11.2005, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 59
MINNINGAR
Sólveig Sigurbjörns-
dóttir, sem í okkar
hópi var alltaf kölluð
Lóló frænka, er látin á
95. aldursári. Lóló var gift Birni Sig-
urðssyni lækni, föðurbróður okkar,
sem lést aðeins rúmlega fimmtugur
að aldri. Afar kært var með þeim
bræðrum. Þau Björn og Lóló áttu
fjögur börn, Hjördísi Gróu (Góu),
Sigurð, Elínu Þórdísi (Elludís) og
Sigurbjörn. Meðan hjónin lifðu bæði
SÓLVEIG SIGUR-
BJÖRNSDÓTTIR
✝ Sólveig Sigur-björnsdóttir
fæddist í Reykjavík
4. mars 1911. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Eir 12.
nóvember síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá
Hallgrímskirkju 18.
nóvember.
var afar náið samband
milli fjölskyldnanna
sem hélst eftir lát
Björns, sem var ekki
síst Lóló að þakka.
Við lát Lólóar kem-
ur fyrst upp í huga
okkar þakklæti fyrir
að hafa fengið að kynn-
ast henni. Hún var ein-
staklega ljúf, mann-
blendin, einkar
vakandi og vel gefin,
fylgdist vel með þjóð-
málum og menningu,
var tónelsk og bókelsk
og elsk að fjölskyldu sinni allri. Nut-
um við systkinin góðs af hugulsemi
hennar, enda fylgdist hún vel með lífi
okkar allra og barna okkar. Lóló var
sterk kona. En hún missti ástkæran
eiginmann sinn í blóma lífsins og nú í
hittiðfyrra dóttur sína Elludís, sem
varð henni þung raun.
Við systkinin vorum svo heppin að
öðru hverju sömdu foreldrarnir um
vistaskipti fyrir börn sín, eitt í senn,
og fengum við þá að dvelja á Mána-
götu 7 í Keflavík og síðar í Sörlaskjóli
og á Skólabraut. Nutum við þá
ómælds ástríkis þeirra Björns og
Lólóar. Tónlist var í hávegum höfð á
heimili þeirra og frændsystkini okkar
lærðu á ýmis hljóðfæri. Læknastofan
í kjallaranum á Mánagötu hafði alltaf
mikið aðdráttarafl fyrir okkur börn-
in. „Læknislyktin“ á stofunni var í
senn ógnvekjandi og spennandi. Þar
réð Gunna Teits ríkjum í fjarveru
Björns.
Við kynntumst líka líflegu félagslífi
krakkanna í Keflavík, knattspyrnu-
áhuga þeirra og vopnaburði ýmisleg-
um. Áttum við frændsystkinin marg-
ar góðar og eftirminnilegar stundir
saman.
Sérstakur ljómi fylgir minningu
Lólóar frænku. Seint mun gleymast
hennar jákvæða og hlýlega viðmót,
kímnin og þær góðu gáfur þeirra
Björns beggja sem börn þeirra hafa
hlotið í arf. Guð blessi minningu
þeirra hjóna.
Systkinin Ægisíðu 58.
Mig langar að minnast vinkonu
minnar Gyðu Erlingsdóttur sem fyr-
ir fimm árum kom hingað til Bíldu-
dals ásamt manni sínum Aðalsteini.
Og tilefnið var af því að ég var að
opna Íslenskt tónlistarsafn sem bar
upp á 17. júní 2000. Og hafði Gyða
fylgst með þessu í blöðum sem ég
var að vinna fyrir tónlistina í landinu.
Gyðu var tónlistin í blóð borin enda
stóðu að henni sterkir stofnar í þeim
geira. Faðir hennar var Erling
Ólafsson söngvari sem allt fólk sem
er komið til vits og ára þekkir og síð-
ast en ekki síst var hinn þjóðkunni
maður Svavar Gests náfrændi henn-
ar og uppeldisbróðir. Hafi Gyða
ævarandi þökk fyrir þennan góða
hug sem hún sýndi mér í orðum og
verki. Ég kveð hana hinstu kveðju
með minningarljóði sem Vilhjálmur
frá Skáholti orti um föður hennar er
hann lést langt um aldur fram. Frið-
ur Guðs hvíli yfir minningu þessarar
góðu konu:
Þú komst og fórst, með ást til alls, sem grætur,
á öllu slíku barstu nákvæm skil.
Þín sagá er ljós í lífi einnar nætur,
Eitt ljós sem þráði bará að vera til.
Ó, minning þín er minning hreinna ljóða,
er minning þess, sem veit hvað tárið er.
Við barm þinn greru blómstur alls þess góða.
Ég bið minn Guð að vaka yfir þér.
Jón Kr. Ólafsson, Reynimel.
GYÐA
ERLINGS-
DÓTTIR
✝ Gyða Erlingsdóttir fæddist íReykjavík 25. nóvember 1929.
Hún lést á LSH í Fossvogi 16. nóv-
ember síðastliðinn og var útför
hennar gerð frá Fríkirkjunni í
Reykjavík 25. nóvember.
Það sló okkur mjög
að sjá andlátsfregn
Lofts, erfitt að trúa því
að kallið væri komið,
svo stutt frá síðustu heimsókn í stól-
inn.
Það eru forréttindi okkar að hafa
kynnst þessum öðlingi, vandfundnir
menn eins og Loftur. Í yfir 25 ár hef-
ur hann verið okkar maður, annast
okkur af einskærri kostgæfni.
Það eru örugglega ekki margir sem
eru eins heppnir og við, að geta alltaf
hlakkað til að fara í heimsókn til tann-
læknisins. Á stofunni ríkti góður andi
og kom þar vel í ljós frábær húmor
Lofts og ekki má gleyma þeim Hrafn-
LOFTUR
ÓLAFSSON
✝ Loftur Ólafssonfæddist í Nes-
kaupstað 24. febr-
úar 1942. Hann lést
á Landspítalanum
við Hringbraut 17.
nóvember síðastlið-
inn og var útför
hans gerð frá Hall-
grímskirkju 24. nóv-
ember.
hildi og Sigríði sem
áttu sinn þátt í ánægju-
legri heimsókn.
Kæra fjölskylda,
missir ykkar er mikill,
við sendum ykkur okk-
ar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Megi friður ljóssins
vera með ykkur.
Þorgerður
Jóhannsdóttir,
Jóhann Leósson og
fjölskylda og Íris
Lena Leósdóttir.
Þegar dauðinn kveður dyra er
maður alveg varnarlaus, hann kemur
örugglega og ekki er hægt að hlaupa
frá honum. Það er samt hægt að
hugga sig við góðar minningar á slík-
um stundum, alltaf var gott og upp-
byggilegt að hitta Loft, það var hægt
að tala við hann um listina eða lífið,
húmorinn góður en alvaran aldrei
langt undan. Fjölskyldunni sendi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Daði Guðbjörnsson.
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eig-
inmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR STEFÁNSSONAR
frá Hrafnhóli,
Furulundi 7a,
Akureyri.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Skógar-
hlíðar, elliheimilinu Hlíð, Akureyri og séra Óskari Hafsteini Óskarssyni.
Fjóla Kristjánsdóttir Ísfeld,
Stefán Guðmundsson, Stella Auður Auðunsdóttir,
Jens Kristján Guðmundsson,
Júlía Rós Kjærnested, Harrý Kjærnested,
Svandís Guðmundsdóttir, Jose Manuel Garcia Lineiro,
Sæunn Guðmundsdóttir, Kristján Þorsteinsson,
Guðmundur Auðjón Guðmundsson, Hafdís Kristjana Sveinsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elsku mömmu okkar,
tengdamömmu, ömmu og systur,
MARGRÉTAR G. MARGEIRSDÓTTUR,
áður til heimilis
í Stífluseli 9.
Sérstakar þakkir fær Ólafur Samúelsson læknir,
hjúkrunar- og starfsfólk á 3. H.N. hjúkrunarheimilinu
Eir, fyrir góða umönnun.
Guðsblessun fylgi ykkur öllum.
Helga Ingibjörg Sigurðardóttir, Magnús E. Baldursson,
Helena Drífa Þorleifsdóttir, Atli H. Sæbjörnsson,
Þórarinn Fr. Þorleifsson, Hugrún Hrönn Þórisdóttir,
barnabörn og systkini.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐLAUGAR MAGNÚSDÓTTUR ARNDAL,
Vitastíg 12,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs, 3. hæð,
fyrir góða umönnun.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður
míns, tengdaföður, afa, bróður og mágs,
SIGURSVEINS KRISTINS MAGNÚSSONAR
ketil- og plötusmiðs,
Holtateigi 26, Akureyri,
áður til heimilis
að Sunnuhvoli, Glerárþorpi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á gjörgæsludeild Fjórðungsjúkrahússins
á Akureyri fyrir góða umönnun.
Halla Sveinsdóttir, Jón Ágúst Aðalsteinsson,
Andri Sveinn Jónsson, Guðrún Björnsdóttir,
Þóra Guðrún Jónsdóttir,
Sigurlína Guðný Jónsdóttir,
Jón Hilmar Magnússon, Sóley Jónsdóttir,
Júlíus Friðrik Magnússon,
Margrét Magnúsdóttir, Bogi Pétursson,
Kristbjörg Magnúsdóttir, Stefán Pétursson,
Jósefína Magnúsdóttir,
Inga Magnúsdóttir,
Rósa Magnúsdóttir, Jógvan Purkhus,
Skarphéðinn Magnússon, Sigríður Jónsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
ÁRNA SIGHVATSSONAR,
Dyngjuvegi 17,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og hjúkrunarfræðinga Karítas.
Guðrún Jónsdóttir,
Sighvatur Sævar Árnason, Þórhalla Arnljótsdóttir,
Ásta Árnadóttir, Gunnar Árni Ólason,
Kristín Árnadóttir, Hlynur Reimarsson,
afabörn og langafabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
FRIÐRIKS SÆMUNDSSONAR
múrarameistara,
Fífutjörn 3,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilis-
ins Ljósheima fyrir frábæra umönnun.
Margrét Valdimarsdóttir,
Valdimar Friðriksson, Jóhanna Valdórsdóttir,
Sæmundur Friðriksson, Hafdís Gunnarsdóttir,
Erna Friðriksdóttir, Bjarni Þorvaldsson,
Hrefna Friðriksdóttir
og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Minningargreinar