Morgunblaðið - 27.11.2005, Side 62
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
EF ÞESSI LJÓTA SOLLA
REYNIR AÐ SENDA ANNAN
MIÐA ÞÁ Á HÚN EFTIR AÐ
SJÁ EFTIR ÞVÍ
KALVIN, ERTU TIL
Í AÐ RÉTTA JÓNU
ÞENNAN MIÐA?
KENNARI! SOLLA ER
AÐ DREIFA MIÐUM!
ÞÚ ÆTTIR AÐ LESA HANN
UPPHÁTT FYRIR ALLAN
BEKKINN
KÆRA JÓNA,
VEISTU HVAÐ ÉG ÞOLI
EKKI VIÐ KALVIN? HANN
KLAGAR ALLTAF
SOLLA
SOLLA,
HRINGDU Í
TANNLÆKNI
Svínið mitt
© DARGAUD
GÓÐAN
DAG... HÆ, HVAÐ
VILT ÞÚ?
ÉG ER NÝJA
BARNFÓSTRAN
OG ÞÚ ERT EKKERT SMÁ
SKÍTUGUR. HVAR ER
MAMMA ÞÍN?
HÚN FÓR VEGNA ÞESS
AÐ VIÐ VILDUM EKKI
ÞVO OKKUR. ÞAÐ ERU 2
MÁNUÐIR SÍÐAN
VIÐ ERUM ÖLL
ÚTÖTUÐ Í FLÓM
OG SKÍT
OG ÉG ER
MEÐ LÝS
ÉG LÆT
ÞETTA SKO EKKI
VIÐGANGAST
LITLA
SYSTIR
MÍN PISSAR
ÚT UM
ALLT
LITLI ÓÞVERRI. ÉG SKAL SKO
SEGJA ÞÉR AÐ ÉG HEF TAMIÐ
VERRI KRAKKAORMA EN ÞIG!
SÍÐAST TÓK ÉG AÐ MÉR AÐ ALA
UPP HERMENN Í ÚTLENDINGA-
HERSVEITINNI. ÞEIR VORU VIÐBJÓÐSLEGIR
EN EFTIR VIKU VAR ALLT ORÐIÐ HREINT!
ÞETTA TÓKST MÉR MEÐ
HÖRKU OG OFBELDI!
ALLT Í
LAGI FRÚ
!
ÞETTA ERU EKKI BARA
SMÁBÖRN SEM...
GROIN!
HVA...
SVÍN!!
ÉG VERÐ
EKKI MÍNÚTU
LENGUR!
OG Í SÓFANUM Í
ÞOKKABÓT!
ÓGEÐSLEGT!
VIÐBJÓÐUR!
?
TAKK RÚNAR!
ÞAÐ MUNAÐI
LITLU AÐ ÞESSI
ENTIST
GROIN
ÁN ÞÍN VÆRUM
VIÐ BÚIN AÐ VERA
Dagbók
Í dag er sunnudagur 27. nóvember, 331. dagur ársins 2005
Víkverji er jólabarn,og hlakkar æv-
inlega jafn mikið til
þeirra. Hins vegar er
Víkverji ekki búða-
barn, og finnst fátt
leiðinlegra en að fara í
búðir. Hefur aldrei
skilið það fólk sem
hefur yndi af því að
fara í leiðangra með
fjölskyldunni um helg-
ar til að skoða hvað er
nýtt í mollunum. Þess
vegna er Víkverji allt-
af í vanda þegar búð-
irnar byrja að aug-
lýsa: „Jólin eru komin
til okkar.“ Á hann að láta freistast?
Bara fara og gá hvort þetta er satt?
Að fenginni reynslu ætlar Víkverji
ekki að láta blekkjast oftar af svona
plati, því auðvitað eru jólin ekkert
komin í búðirnar hversu liðugt sem
þær kríta. Jólin koma nefnilega ekki
fyrr en eftir vetrarsólstöður, 24. des-
ember. Þannig er það nú bara …
Allt tal um annað eru rótlaustar lyg-
ar og skrök.
En hvers vegna er verið að
skrökva þessu að manni?
Það skyldi þó ekki vera að tilgang-
urinn sé sá að plata Víkverja og öll
hin jólabörnin á eitthvert endemis
eyðsluflipp með þá lymsku að mark-
miði að láta þau halda
að með því að kaupa
eitthvað komi jólin í
þau?
Óekkí! Víkverji veit
að það gerist ekki. Jól-
in eru ekki þannig.
Þau verða ekki keypt,
verða ekki seld. Þau
eru nefnilega svo
hrikalega óáþreif-
anleg, hvorki sýnileg
né áþreifanleg. Múm-
ínmamma spurði: „Og
hvenær koma þau svo
þessi blessuðu jól?“ og
hélt að þau kæmu til
hennar í föstu formi
rétt eins og Morrinn. Svo uppgötv-
aði hún það þegar þau voru komin,
að þau höfðu sest að í hjartanu á
henni, án þess að hún hefði haft fyrir
því á nokkurn hátt, að öðru leyti en
því að rifa smágátt á hjartað. Gátt
eftirvæntingarinnar. Jólin komu á
sínum tíma. Þau komu þegar stress-
ið og lætin voru farin, og ekkert eftir
nema gáttin í hjartanu.
Víkverji veit líka vel eins og hún,
að þannig verður þetta einmitt í ár.
Jólin koma á sínum tíma hverju svo
sem búðasnápar reyna að halda
fram. Þess vegna freistast hann
helst til að sniðganga alveg slíka
lygalaupa.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Myndlist | Kúganga nokkur var farin um götur Mexíkóborgar á föstudag
og markaði hún upphafið að mikilli sýningu þessari merku skepnu til heiðurs.
Sýningin samanstendur af tvö hundruð kúm, sem hannaðar hafa verið og
málaðar af jafnmörgum listamönnum. Mun hún standa á götum borgarinnar
fram til 15. apríl á næsta ári.
Reuters
Kúganga í Mexíkóborg
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu og mig hólpinn leiða
inn í sitt himneska ríki. Honum sé dýrð um aldir alda! Amen. (Tím. 4, 18.)