Morgunblaðið - 27.11.2005, Page 68
68 SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
JÓLALÖG eru að flestra mati jafn ómissandi
þáttur í undirbúningi jólanna og smáköku-
bakstur og jólagjafainnkaup.
Plan B gefur út í samvinnu við Senu jóla-
plötuna Jólaskraut þar sem margir af þekkt-
ustu söngvurum þjóðarinnar taka jólalög sem
ættu að vera flestum kunn.
Jónsi syngur lögin „Jól alla daga“ og
„Gleðileg jól allir saman“ og Birgitta Hauk-
dal fetar í fótspor Helgu Möller og syngur
„Heima um jólin“. Nylon-flokkurinn syngur
tvö lög á plötunni, „Hátíðarskap“ og Wham-
slagarann „Last Christmas“ við nýjan ís-
lenskan texta úr smiðju Ölmu Guðmunds-
dóttur. Sveppi lætur ekki sitt eftir liggja og
tekur lögin „Snjókorn falla“ og „Rokkað út
um jólin“ sem Laddi söng svo eftirminnilega
hér um árið. Þau Aðalheiður Ólafsdóttir og
Friðrik Ómar Hjörleifsson syngja svo tvö lög
hvort á plötunni. Heiða syngur „Minn eini
jólasveinn“ og „Aðfangadagskvöld“ og Frið-
rik Ómar „Ég verð heima um jólin“ og „Allt
það sem ég óska“ sem er íslensk útgáfa af
laginu „All I Want for Christmas“ sem Mar-
iah Carey gerði vinsælt á sínum tíma.
Það ættu því allir að geta komist í ósvikið
jólaskap við að hlusta á Jólaskraut á aðvent-
unni, en platan kemur út í vikunni.
Þórir Úlfarsson stjórnaði upptökum á plöt-
unni ásamt Hafþóri Guðmundssyni. Umsjón
með upptökum hafði Einar Bárðarson.
Stjörnum prýtt jólaskraut
Tónlist | Ný jólaplata væntanleg í verslanir
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
FRESTUR TIL að skila inn lögum
vegna Söngvakeppni Sjónvarpsins
2006 rann út hinn 18. nóvember síð-
astliðinn. Að þessu sinni bárust 216
lög í keppnina, sem er um það bil
tvisvar sinnum fleiri lög en bárust til
Sjónvarpsins á síðasta ári.
Valnefnd skipuð fagfólki fær það
vandasama hlutverk að leggja mat á
innsend lög og velja 24 lög til þátt-
töku í undanúrslitum. Þegar þau lög
hafa verið valin verður haldinn
blaðamannafundur þar sem nöfn
laga- og textahöfunda verða opinber-
uð.
Fyrirkomulag keppninnar sjálfrar
verður með þeim hætti að haldnar
verða þrjár útsláttarkeppnir í beinni
útsendingu Sjónvarpsins laug-
ardagskvöldin 21. janúar, 28. janúar
og 4. febrúar á næsta ári. Í hverjum
þessara þriggja þátta verða flutt átta
lög og áhorfendur velja í símakosn-
ingu fjögur lög sem komast áfram í
lokakeppnina sem verður haldin 18.
febrúar. Það kvöld ræðst hvert
þeirra 12 laga sem keppa til úrslita
verður framlag Íslands í forkeppni
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva, sem fram fer í Aþenu í Grikk-
landi 18. maí næstkomandi.
Sjónvarpið hefur gengið til sam-
starfs við fyrirtækið BaseCamp, sem
mun sjá um allan undirbúning og
framkvæmd við Söngvakeppni Sjón-
varpsins 2006.
Sjónvarp | Forval fyrir Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva
Morgunblaðið/Sverrir
Selma Björnsdóttir var fulltrúi Íslands í Söngvakeppninni í fyrra.
Rúmlega 200
lög bárust
Hvað kemur þér í
jólaskap?
Jólatónlist og
jólaljós.
Uppáhalds-
jólalag?
„Heims um ból.“
Hvað langar þig
í í jólagjöf?
Persónulegar og
heimatilbúnar jóla-
gjafir.
Hvað borðar þú
á jólunum?
Herbalife … nei, nei. Svínakjöt og mikið af
nammi!
Hvað er ómissandi á jólunum?
Kertaljós og klæðin rauð og auðvitað að
vera með fjölskyldunni og vinum.
Friðrik
Ómar
Hvað kemur þér í
jólaskap?
Ég kemst í ákaf-
lega mikið jólaskap
í byrjun aðvent-
unnar þegar ég
sest niður með jóla-
glögg og pip-
arkökur og horfi á
myndina Miracle
on 34th street.
Þegar því er lokið
getur jólaundirbúningurinn byrjað fyrir al-
vöru.
Uppáhaldsjólalag?
„Hin fyrstu jól“ eftir Ingibjörgu Þorbergs
í flutningi hennar sjálfrar er heimsins jóla-
legasta jólalag. Svo er ég líka alltaf veikur
fyrir „The Christmas Song“.
Hvað langar þig í í jólagjöf?
Ég er alltaf rosalega óviss um það hvað
mig langar í í jólagjöf. Eftir að maður eign-
ast börn snýst þetta líka miklu meira um að
gefa gjafir og fylgjast með þeim rífa utan af
pökkunum. En ég segi ekki að ég hafi ekki
gaman af því þegar fjölskylda og vinir hitta
í mark og gefa manni eitthvað sem maður
vissi ekki einu sinni að mann langaði rosa-
lega í!
Hvað borðar þú á jólunum?
7 kg jólakalkún þangað til ég get ekki
hreyft mig, jólaöl, möndlugraut, heila glás
af heimagerðu jólakonfekti og 3 kg af Mac-
intoshi mínus bláu molana með kókosgums-
inu. Hver borðar bláu molana?
Hvað er ómissandi á jólunum?
Það er einfaldlega að vera nálægt þeim
sem maður elskar, konan mín og börnin mín
eru ómissandi.
Jónsi
Hvað kemur þér í
jólaskap?
Stór snjókorn,
sem falla létt á jörð á
aðfangadag.
Uppáhalds-
jólalag?
Lagið með Pálma
Gunnars sem ég
man ekki hvað heitir
en er einhvern veg-
inn svona: „Biðjum
fyrir öllum þeim sem
eiga bágt og þjást,
víða mætti vera meira um kærleika og ást,
bráðum koma jólin, bíða gjafirnar, lalall-
llaalalala...“
Hvað langar þig í í jólagjöf?
Lyklakippu sem er ekki hægt að týna.
Hvað borðar þú á jólunum?
Tilraunaforrétti og rjúpur.
Hvað er ómissandi á jólunum?
Rjúpur og messan kl. 18.00 í útvarpinu.
Sveppi
Hvað kemur þér
í jólaskap?
Bara jólastúss
yfir höfuð. Köku-
lykt, jólaljós og
jólastemning. Ég
er alveg forfallið
jólabarn og hef
alltaf verið. Svo
dett ég reyndar
alltaf í aðal-
jólagírinn þegar
ég kem til
Hólmavíkur fyrir
jólin þar sem ég
eyði alltaf jól-
unum með mömmu og pabba og ættingj-
unum.
Uppáhaldsjólalag?
„Einmana á jólanótt“ með Brunaliðinu.
Diddú syngur þetta lag svo yndislega fal-
lega og öll jólaplatan með Brunaliðinu er
alveg frábær og ómissandi partur af jóla-
haldinu hjá minni fjölskyldu.
Hvað langar þig í í jólagjöf?
Ég bara veit það ekki, hef ekkert pælt í
því. Mig vanhagar ekki um neitt þegar allir
eru heilir heilsu og glaðir og ánægðir í
kringum mig.
Hvað borðar þú á jólunum?
Á aðfangadag borða ég alltaf hamborg-
arhrygg. Svo náttúrulega er skatan ómiss-
andi og hangikjötið og allt þetta dæmi-
gerða.
Hvað er ómissandi á jólunum? Að vera
með mömmu og pabba og að fara í messu
klukkan 18 í Hólmavíkurkirkju.
Heiða