Morgunblaðið - 27.11.2005, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 69
ÞÓRSTEINN Jónsson fær oft á tíðum góðar
hugmyndir að heimildamyndum, einfaldar hið
ytra en fullskapaðar með litríku innihaldi. Við
erum gjörn á að einblína á hluti úti í fjarsk-
anum og gleymum að líta okkur nær og kanna
nánasta umhverfið, raunveruleikann.
Í Ómi af söng stiklar Þórsteinn með tökuvél-
ina inn fyrir dyrnar á stofnun sem við vitum
mjög vel af en gefum ekki of mikinn gaum í erli
dagsins, dvalarheimili eldri borgara, nánar til-
tekið Hrafnistu í Hafnarfirði. Tímaklukkan
byrjar ótrauð að telja niður við fæðingu, eng-
inn veit hvað bíður hans almennt og yfir höfuð
í lífinu, enn minna um það eina sem mætir okk-
ur með vissu, dauðann. Það er eðlilegt að kin-
oka sér við að kortleggja ellina og kvíða komu
hennar í hófi, því er forvitnilegt og fræðandi að
fá tækifæri til að sjá hvað er að gerast í innan-
hússmálum á slíkum dvalarheimilum og kom-
ast að því að það er engin katastrófa. Þar gilda
bersýnilega sömu lögmál og í heiminum að
baki útidyrum stofnananna: Að vera jákvæður
og reyna að halda góða skapinu á hverju sem
gengur.
Gott dæmi um það er Guðný Þórðardóttir,
Norðfirðingur á tíræðisaldri. Hún er fædd
prinsessa, þessi austfirska almúgakona sem
segir okkur á skemmtilegan og ljóslifandi hátt
af ævintýrunum í lífi sínu; manni og börnum,
jafnt sem aflahrotum úti á firðinum þar sem
atgangurinn var slíkur að hún var næstum
hrokkin fyrir borð, kúnni sinni, rottunum sem
átu úr hendi hennar, fiðurfénu, þessum
skemmtilegu, hversdagslegu hlutum sem við
tökum sem sjálfsagða – þangað til okkur er
ljóst hversu verðmætir þeir eru.
Hún segir líka frá draumum sínum á leik-
sviðinu, á öðrum stað og tíma er ekki að vita
nema þar hefði hennar frami legið, ekki vantar
áhugann og Þórsteinn gefur henni tækifæri
sem Guðnýju er meðfætt að höndla af kúnst.
Guðný, sem er meginviðmælandi Þórsteins,
hefur elst á eftirsóknarverðan hátt, árin hafa
farið vel með hana og öfugt. Hún heldur reisn
sinni og kúltíveraðri framkomu sem hún hefur
fengið í vöggugjöf og mun fylgja henni til graf-
ar. Það kemur ekki á óvart að hennar mottó er:
„Það er gaman að lifa.“
Heilt mannlífsgallerí er í bakgrunninum,
þeir hafa sig misjafnlega mikið í frammi, halda
áfram að vera það sem þeir eru þótt umgjörðin
sé breytt. Einhverjir halda sig í eigin land-
helgi. Mikið sungið, spilað, dansað og ferðast.
Margir sakna að sjálfsögðu heimila sinna, þar
sem vistmennirnir voru kóngar í eigin ríki, en
þeir kunna að laga sig að aðstæðum, það er
galdurinn.
Það er gam-
an að lifa
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó
Heimildamynd. Leikstjórn, klipping, kvikmyndataka,
handrit, framleiðsla: Þórsteinn Jónsson. M.a. koma
fram: Guðný Þórðardóttir, Klara Tryggvason, Leifur
Eiríksson o.fl. Kvikmynd hf. Styrkt af Kvikmynda-
miðstöð. 58 mín. Ísland. 2005.
Ómur af söng Sæbjörn Valdimarsson
„Hún er fædd prinsessa, þessi austfirska al-
múgakona sem segir okkur á skemmtilegan
og ljóslifanndi hátt af ævintýrunum í lífi sínu,“
segir gagnrýnandi meðal ananrs um aðal-
persónu Óms af söng, Guðnýju Þórðardóttur.
GEISLAPLATAN Gamlar myndir
markar endi á löngum ferli tónlist-
armanns sem þó náði ekki háum
aldri. Pétur Kristjánsson lést áður
en hann lauk við
gerð plötunnar
en vinir hans og
samstarfsmenn
náðu með lagni
og yfirlegu að
raða saman
fimmtán laga plötu með því að nota
m.a. upptökur sem Pétur raulaði í
sófa meðan upptökur á tónlistinni
fóru fram.
Viðfangsefni plötunnar eru lög
eftir erkidanann Kim Larsen sem
varð sextugur fyrir skemmstu, þar
er ekki ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur. Textar hafa verið
þýddir af Kristjáni Hreinssyni,
sumir staðfærðir og Pétur syngur
lögin flest en sex þeirra tóku aðrir
að sér.
Það fer Pétri vel að fara með
þessi lög, og raunar ólíklegt að aðrir
kæmust upp með að gefa út plötu
sem þessa, flutningurinn er afslapp-
aður og tilgerðarlaus, röddin fellur
vel að tónlistinni og áhuginn greini-
legur. Lögin sem Pétur syngur
sjálfur koma enda best út þrátt fyr-
ir tæknilega vankanta sem helgast
af aðstæðum. Vel hljómar t.d. slag-
arinn Papirsklip eða Gamlar myndir
eins og það útleggst á íslensku, líka
fyrsta lag plötunnar, Blómabörn,
þar sem fortíðin og kynslóð Péturs
og Kim er tekin fyrir (líkt og í fleiri
lögum reyndar). Aðrir söngvarar
standa sig vel enda valinkunnir
menn, Eiríkur Hauksson fer vel
með Ungu sætu sálirnar (De
smukke unge mennesker) og Berg-
sveinn Árelíusarson með Wood-
stock.
Það er helst lagið Midt om natten
sem tekst illa, lagið fjallaði í flutn-
ingi Kim Larsen um róstur sem
snertu aldrei Íslendinga og því ekki
um annað að ræða en að semja nýj-
an texta, sem svo aftur eiginlega
virkar ekki því textinn upprunalegi
er samofinn laginu. Þýðingar eru
annars nokkuð vel heppnaðar.
Öll vinna í kringum plötuna er
fagmannleg og hugsuð, en vissulega
hrjáir það Gamlar myndir að flytj-
andinn er ekki til staðar í mörgum
lögum plötunnar og að annars stað-
ar þurftu prufuupptökur að duga.
Þó aldrei svo að heildin gangi ekki
upp, og eiga hlutaðeigandi hrós skil-
ið fyrir að hafa komið því í kring að
þetta síðasta verkefni Péturs hlaut
útgáfu.
Afslappað
TÓNLIST
Geisladiskur
Gamlar myndir, lög eftir Kim Larsen í
flutningi Péturs Kristjánssonar. Auk Pét-
urs koma fram á plötunni Björgvin Ploder,
Eyjólfur Kristjánsson, Rúnar Þór, Eiríkur
Hauksson, Bergsveinn Árilíusarson, Stef-
án Hilmarsson, Magnús Kjartansson,
Þórir Úlfarsson, Fróði Ploder, Jón Kjell
Seljeseth, Gunnlaugur Briem, Tryggvi
Hübner, Jóhann Ásmundsson o.fl. Upp-
tökur fóru fram í stúdíói Magnúsar Kjart-
anssonar og Stúdíói Stöðinni. Wigelund
ehf. gefur út en Sena dreifir.
Pétur Kristjánsson – Gamlar myndir
Gísli Árnason