Morgunblaðið - 27.11.2005, Síða 70
70 SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Michael Jackson hefur veriðkrafinn um afsökunarbeiðni
eftir að sjónvarpsstöð birti skila-
boð úr símsvara þar sem Jackson
á að hafa kallað gyðinga blóðsug-
ur. Upptakan er talin vera um
tveggja ára gömul og hefur hún
nú birst í tengslum við mál sem
hefur verið höfðuð gegn popp-
aranum. Þátturinn Good Morning
America birti hluta af skilaboðum
sem Jackson átti að hafa skilið
eftir á símsvara til fyrrum ráð-
gjafa síns, Dieter Wiesner, árið
2003. Að sögn talsmanns Jacksons
hefur hann ekkert viljað tjá sig
um málið.
Fólk folk@mbl.is
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Þetta var hið
fullkomna frí
þangað til
þau fundu
fjársjóðinn!
Sýnd kl. 5 og 8 B.i. 16 ára
Þau eru góðu vondu gæjarnir.
Frá höfundi Buffy the Vampire Slayer.
Ótrúlegar brellur og svöl átakaatriði.
H.J. Mbl.
V.J.V. topp5.is
BYGGÐ Á SÖNNUM
ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR
ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.45 B.i. 16 ára
Night Watch is
F***ING COOL!
Quentin Tarantino
Sýnd kl. 3.45
DREWBARRYMORE JIMMY FALLON
Hún fílar vinnuna,
hann íþróttir...
munu þau fíla hvort
annað?
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER
ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
kl. 2, 5, 8 og 10.40
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Miðasala opnar kl. 13.30
Sími 564 0000
Spennutryllir af bestu gerð með
edward burns og ben Kingsley.
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
I I I - I .
! I
Sýnd kl. 2 og10.40 B.i. 12
MBL
TOPP5.IS
Sýnd kl. 5.20 Sýnd kl. 2
Með
íslensku tali
450 kr-M.M.J. Kvikmyndir.com-H.J. Mbl.
-L.I.B.Topp5.is
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
ÁSGEIR Óskarsson er eflaust
þekktastur fyrir að vera Stuðmaður,
en þær eru reyndar fleiri sveitirnar
sem hann hefur spilað með og ótelj-
andi plötur sem hann hefur spilað
inn á, þar á meðal nokkrar plötur
sem hann hefur gert og gefið út
sjálfur. Fyrir stuttu kom út ný sóló-
skífa Ásgeirs sem heitir einfaldlega
Sól, en á henni er að finna lög án eig-
inlegs söngs. Sumir kannast vænt-
anlega við eitt stef af henni, sem
finna má í laginu Ferðalag, en það er
kynningarstef Kastljóssþátta Sjón-
varpsins.
Ásgeir gaf síðast út plötu 2003 og
segist hafa byrjað að huga að nýrri
plötu fljótlega eftir það. „Svo vannst
þetta rólega eftir það, enda var ég
ekki með neitt plan í huga, engan
ákveðinn útgáfudag eða neitt slíkt,
vann við plötuna í frítíma mínum.“
Án þess það hafi þó staðið til fór svo
að hann lék á öll hljóðfæri sjálfur á
plötunni, gítar, bassa, slagverk og
hljómborð. „Þetta gerðist bara ein-
hvern veginn, ég var alveg sáttur við
útkomuna, en sá það ekki fyrir að
þetta myndi fara svo.“ Ásgeir hefur
verið að semja tónlist síðan hann
lærði fyrsta gítargripið tólf eða
þrettán ára gamall og lagasafnið því
orðið mikið að vöxtum. Lögin á plöt-
unni nýju eru samin á nokkrum
tíma, enda semur hann aðallega
sönglög, „en svo kemur eitt og eitt
instrumental lag þangað til mér
fannst ég eiga nóg af þannig lögum
til að gera instrumental plötu“, segir
Ásgeir, en hann giskar á að elstu
lögin á plötunni séu sjö ára eða þar
um bil.
Eltir ekki stefnur
Þegar kom að upptökum segist
Ásgeir hafa reynt að láta lögin
hljóma vel saman þótt þau væru
samin á löngum tíma, reyndi að
tryggja áþekka áferð. „Þetta er mik-
il gítarplata, mikið af kassagíturum,
en svo söng ég líka mikið af slag-
verkinu, notaði röddina en ekki
hristur í sumum lögum, sem gaf
náttúrlega ákveðinn blæ.“ Ásgeir
notar líka tölvur við að búa til slag-
verk, segist ekki gera mikið af því,
hann noti bara það sem hentar
hverju sinni, hvort sem það er að
spila slagverk, syngja það eða töfra
fram með tölvu.
„Ég er ekki að elta neinar stefnur
í þessum málum, nota bara það sem
mér finnst passa best í hverju lagi,“
en ólíkt mörgum sem eru að taka
upp heima notar Ásgeir tölvuna eins
og hvert annað hljóðfæri en ekki
sem eina hljóðfærið. „Margir af
þeim sem eru að vinna við tónlist í
dag byrjuðu kannski í tölvu og hafa
aldrei tileinkað sér annað hljóðfæri,
þeir geta gert allt með tölvunni, en
ég ólst upp við þessi venjulegu hljóð-
færi.“
Um leið og hver plata er komin út
er Ásgeir farinn að spá í þá næstu,
hann segist vera með alls kyns pæl-
ingar í gangi. „Það er erfitt að
standa í eigin útgáfu, það kostar
mikla vinnu og peninga og ég tapa á
hverri einustu plötu enda er þetta
yfirleitt ekki músík sem hæfir
stórum hópi. Ég get bara ekki hætt
þessu, þetta er áhugamál sem ég er
heltekinn af.“
Tónlist | Sólóskífa frá Stuðmanni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ásgeir Óskarsson við tölvuna, eitt af hljóðfærum sínum.
Getur ekki hætt