Tíminn - 18.12.1970, Blaðsíða 13
FOSTUDAGUR 18. descmbcr 1970
■l-MW TÍMINN i ÍÞRÓTTIR
13
Dregið í Evrópukeppni meistaraliða í handknaitieik kvenna
Fram mætir Ferencvaros
frá Ungverjalandi í
8-liða úrslitum
Hp—Reykjavik.
fslandsmeistararnir í handknatt-
leik kvenna, Fram, sem sigruðu ís-
raelska liðið Maccabi í fyrstu um-
ferð Evrópukeppninnar í hand-
knattleik kvenna, fá sem mótherja
í 8-liða úrslitum ungversku meist-
arana Ferencvaros.
Dregið var um hvaða lið ættu að
mætast sl. þriðjudagsikvöld hjá for-
ráðamönnum keppninnar, sem eru
í Tékkóslóvakíu, og drógust þessi
lið saman:
Timisoara, Rúm. — HG, Danm.
Kiev, Rússl. — Krakow, Póll.
Ferencvaros, Ung. — Fram, fsl.
Hlorovic, Tékk. — Niimberg,
V.-Þýzkal.
Þetta er í fyrsta sinn, sem ís-
lenzkt kvennalið kemst í 8-liða úr-
slit í Evrópukeppni kvenna, en
hætt er við að lengra verði ekki
farið, a. m. k. ekki í þetta sinn, því
ungverska liðið er talið mjög gott.
Það er þó aldrei að vita. Fram-
stúlkurnar geta leikið mjög vei og
staðið fyrir sínu, og er ekki að efa,
að þær gera það móti hinum ung-
versku meisturum.
Ferencvaros á, samkvæmt drætt-
inum, að leika fyrri leikinn á
heimavelli sínum, og er það vinn-
ingur út af fyrir sig.
Ekki er vitað, hvað Fram ætlar
að gera í samibandi vi@ leikina, en
heyrzt hefur, að til tals hafi kom-
ið að gefa báða leikina, ef liðið
lenti á móti liði, sem 'angt væri
að heimsækja, eða bjóðast til að
leika báða leikina þar. Ástæðan
fyrir því er sú, a!S Fram tapaði
milli 150 og 200 þúsund krónum á
leikjunum við Maccabi. Fjárhagur
félagsins er það slæmur, að ekki
má bæta við hann meiri skuldum,
því það getur komið niður á ann-
arri starfsemi Handknattleiksdeild-
arinnar.
Lítið er vitað um styrkleika Fer-
encvaros, en þó er vitað, að ,lðið
er mjög svipað öðrum austur-
Halldóra GuSmundsdóttir, fyrirliSi Fram, skorar gegn ísraelska liSinu Mac-
cabi í Evrópukeppninni. —. Næsta verkefni hennar í þeirri keppni er að
stjórna liði sínu gegn ungversku meisturunum Ferencvaros.
evrópskum kvennaliðum — en
þau hafa til þessa borið af Vestur-
Evrópuliiðunum. Það eru aðeins v-
þýzku liðin, sem hafa getað staðið
í þeim, og þá helzt Núrnberg.
Ferencvaros hefur áður leikið
hér á landi í Evrópukepþni, en það
var 1966, en knattspyrnulið félags-
ins lék vi@ ÍBK í Evrópukeppni
deildarmeistara.
,BAMBUSMÚRINN'
OPNAST AFTURÍ
Síðan Mcnningarbyltingin hófst
í Kína og þar til nú fyrir skömmu.
hefur „Bambusmúrinn“ verið lok-
aður í öllum samskiputm kín-
verskra íþróttamanna við aðrar
þjóðir.
Sovétmenn reknir
úr Evrópukeppninni
Að vísu hefur aldrei verio' mik
ið um samskipti á milli Kína og
annarra landa, þar sem Kína hef-
ur ekki sótt um aðild að alþjóða
samtökum, Einu samskiptin eru i
borðtennis og badminton, en þar
eru Kínverjar framar öllum öðr-
um þjóðum.
Framhald á bls. 7.
Meðal þeirra liða, sem áttu að
mætast í 2. umferð í Evrópukeppni
meistaraliða i handknattleik karla,
sem á að vera lokið fyrir áramót,
voru rússnesku meistararnir og
portúgalska liðið Sporting.
Fyrri leikurinn átti að fara fram
Noregur vann
Sviss 17:11
Noregur sigraði Sviss í lands
leik í handknattleik karla, sem
fram fór í Osló í gærkveldi
17:11.
í hálfleik hafði Noregur 6
marka forskot 10:4. Sviss tókst að
minnka bilið í 3 mörk 12:9, en
Norðmenn náðu að rétta úr kútn
um og sigra með 6 marka mun
17:11.
Jon Reinertsen lék í þessum
leik 50. landsleik sinn fyrir
Noreg.
í Portúgal, en þegar til kom neit-
uðu Sovétmenn að mæta til leiks —
vegna óeirðanna í Guinea!!! Fyrir
það hefur þeim nú verið vísað úr
keppninni, og Sporting talið sigur-
ari í báðum lcikjunum.
Nær öllum fyrri leikjunum í
annarri umferð er nú lokið, og það
óvenjulega hefur gerzt í fjórum
þeirra, að heimai’iðið hefur tapað.
Úrslit þeirra leikja hafa orðið
þessi:
OS, Noregi—Steaua, Rúm. 14:30,
Dimitrov, Búlg.—Hellas, Svíþjóð
10:16 (Hellas sigraði einnig í síð-
ari leiknum 15:11), Sittaed, Holl.
—Magdenburg, A-Þýzkal. 21:30,
Gu mm ersb ach, V-Þýzk.—Göpp i n g-
en, V-Þýzk. 20:12, Granoles, Spáni
—US Ivry, Frakkl. 24:22 og ísra-
ei'sku meistararnir töpuðu á heima
velli fyrir júgóslavnesku meistur-
unum
Einu liðin, sem eiga eftir að
mætast í fyrri leiknum í þessari
umferð eru Dukla, Tékkóslóvakíu
og HG, Danmörku, en þau leika á
sunnudaginn í Prag. —klp—
23!
Parks
☆ Fyrri leikirnir í undanúrslit-
um deildarbikarkeppninnar í
j landi voru leiknir í fyrrakvöld, o;
lauk báðum lerkjunum með jafn-
tefli, 1:1.
Bristol City—Tottenham 1:1 o,
Manchester United—Aston Villi
1:1. Síðari leikirnir fara fram
desember, og fer þá fyrrnefnd:
,’eikurin.n fram á White Hart Lan
en sá síðarnefndi á Villa
Sigurvegararnir úr þessum leikju
mætast síðan í úrslitaleiknum.
☆ Arsenal vann sér rétt til þáttl
töku í 8-liða úrslitum í BorgaJ
keppni Evrópu, með þvi að ger;
jafntefli, 0:0, við belgíska liði
Beveren Waas í síðari leik liðann
sem fram fór í Be’giu. Arsenaj
sigraði í fyrri leiknum 4:0.
í sö-mu keppni vann FC Twente
frá Hollandi einnig rétt í 8-lið,
úrslit, með því að sigra Dynamo fr
Júgóslavíu 1:0. Fyrri leik liðann
sem fram fór í Júgóslavíu la
rneð jafntefli 2:2.
FRAM - F.H. 23:23
f gærkveldi Iéku í 1. deild
karla í íslandsmótinu í hand-
knattleik, Fram og FH. Var
leikurinn mjög skemmtilegur
og spennandi, en lauk með
jafntefli 23:23.
f hálfleik hafði FH yfir 11:
10. Þegar 7 mín. voru til leiks
loka höfðu þeir yfir 22:19, en
Fram tókst að jafna 22:22 þeg
ar 3 mín voru eftir en þá skor
aði Geir Hallsteinsson úr víti,
en Pálmi Pálmason jafnaði á
siðustu sek. leiksins.
Leikurinn var geysilega harð
ur, og var 7 mönnum visað af
leikvelli í 2 mín., 4 úr Fram
og þrem úr FH, og ein 14
víti voru dæmd í leiknum.
Þegar blaðið fór í prentun,
var síðari leiknum milli ÍR og
Víkings ekki lokið, en leiknum
í 2. deild, milli Ármanns og
Breiðabliks lauk með sigri Ár-
manns 16:9
ELDHÚS- OG STEIKARSETT
ÚR RYÐFRÍU STÁLI
EMELERAÐIR POTTAR
PÖNNUR OG TEKATLAR
ALUMINIUMPOTTAR
8, 12, 16 og 24 LÍTRA
EINNIG TEFLONHÚÐAÐAR
STEIKARPÖNNUR
ELDHÚSVASKAR, ÞVOTTAHÚS-
VASKAR, BLÖNDUNARTÆKI
OG HILLUBÚNAÐUR
Ódýra sænska harð-j
plastið frá Perstorp
aðeins 1055.oo kr.
piatan
Smiðjubúðin
Einholti 10 — Sími 2-12-22