Morgunblaðið - 11.12.2005, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
fyrir krakka“
„Da Vinci lykillinn
Bók um óskýranlega hluti verður til að Petra og
Calder kynnast og undarlegir atburðir taka að gerast.
Ómetanlegt málverk eftir Vermeer hverfur. Áður
en þau vita af eru þessi tvö börn flækt í alþjóðlegt
listaverkahneyksli þar sem engir – hvorki nágrannar,
foreldrar né kennarar – eru hafnir yfir grun.
Þessi heillandi skáldsaga er dularfull
ráðgáta, búin ljóma ævintýris og sett fram
á listrænan hátt.
Bókin hefur hlotið afbragðsdóma
og viðurkenningar og selst í metupplögum.
Warner Bros. hefur keypt
kvikmyndaréttinn á sögunni.
Newsweek
www.jpv.is
HÁSKÓLINN í
Reykjavík, HR,
auglýsir í dag
samkeppni um
hönnun háskóla-
bygginga og
skipulags á svæði
skólans í Vatns-
mýrinni.
Svæðið er um
20 hektarar en
gert er ráð fyrir
að skólinn sjálfur verði á um 5–6
hektara svæði. Auk hans verða á lóð-
inni stúdentagarðar, rannsóknar-
stofnanir og ýmiss konar fyrirtæki
sem tengjast háskólasamfélaginu, að
sögn Þorkels Sigurlaugssonar, fram-
kvæmdastjóra nýsköpunar- og þró-
unarsviðs HR. Áætlað er að skólinn
taki til starfa á svæðinu í byrjun árs
2009.
„Nú eru 2.500 nemendur í skól-
anum en þegar nýju byggingarnar
verða teknar í notkun er búist við að
hann verði orðinn talsvert fjölmenn-
ari. Þarna gerum við ráð fyrir stúd-
entagörðum með 4–500 íbúðum, lík-
lega á svæði nálægt Hótel Loft-
leiðum,“ segir Þorkell.
Svæðið afmarkast af Nauthólsvík í
suðri, Öskjuhlíð í austri og Reykja-
víkurflugvelli í vestri. Þorkell segir
að áhersla sé lögð á að uppbygging á
háskólasvæðinu falli vel að umhverf-
inu, þetta sé glæsilegt svæði með fal-
legri náttúru. Einnig sé mikilvægt að
skipulagið falli vel að heildarskipu-
lagi Vatnsmýrarinnar sem eigi eftir
að byggjast upp.
Mikilvægt að sem flestir
fái að spreyta sig
Þorkell nefnir að undanfarna
mánuði hafi verið unnið að þarfa-
greiningu um uppbyggingu á svæð-
inu með innlendum og erlendum ráð-
gjöfum. Niðurstaðan hafi verið sú að
halda hugmyndasamkeppni á meðal
arkitekta. „Þetta er stórt verkefni og
mikilvægt að sem flestir fái að
spreyta sig og koma með hugmynd-
ir,“ segir hann.
„Í janúar verða valdir 3–5 aðilar
sem við teljum uppfylla þær kröfur
að geta tekist á við þetta verkefni.
Þeir fá þrjá mánuði til að skila til-
lögum og í maí munum við ganga til
samninga við þann aðila sem dóm-
nefnd telur vera með áhugaverðustu
hugmyndina.“
Við undirbúning keppninnar var
haft samráð við Arkitektafélag Ís-
lands og Reykjavíkurborg. Forvals-
gögn verða afhent frá 13. desember
hjá Línuhönnun hf.
Samkeppni um
hönnun HR
Þorkell
Sigurlaugsson
Skóli og stúdentagarðar á 20 hekturum
TÓNLISTARHÓPURINN
Andromeda, sem íslenski fiðluleik-
arinn Íma Þöll Jónsdóttir er hluti af,
hlýtur verðlaun í World-Fusion
flokki sjálfstæðu bandarísku tónlist-
arverðlaunanna (Independent Music
Awards) í ár. Verðlaunin eru veitt
fyrir lagið Norwegian Slip. Hópur-
inn komst jafnframt í úrslit í Am-
ericana-flokki með lagið Coach, en
keppt var í alls átján flokkum laga.
Ímu Þöll var tilkynnt á föstudag að
hópurinn hefði hlotið verðlaunin, en
hún segir þau hafa mjög mikla þýð-
ingu fyrir kynningu á tónlist hans.
„Þetta er mikill heiður og gott að
hafa þetta í farteskinu. Þetta gefur
okkur aukna möguleika á að fá að
spila á eftirsóttum stöðum,“ segir
Íma Þöll.
Hún segir að á næsta ári verði
ráðist í ýmiss konar kynningarher-
ferðir fyrir verðlaunahafana og slíkt
sé mjög mikilvægt fyrir sjálfstæða
tónlistarmenn sem reyni að koma
tónsmíðum sínum á framfæri í
Bandaríkjunum.
Tónlist IMA-verðlaunahafanna
verði kynnt í blöðum, í sjón- og út-
varpi og á netinu. Þá verði geisla-
plötum þeirra dreift í allar Borders
bóka- og plötuverslanir í Bandaríkj-
unum. Einnig verði vinningslögin
gefin út á sérstakri safnplötu sem
seld verði í Borders og að auki dreift
í 10.000 eintökum til fólks í tónlistar-
iðnaðinum á ráðstefnur, tónlistarhá-
tíðir og útvarpsstöðvar.
Mikil vinna fram undan
Íma Þöll segir að þrátt fyrir verð-
launin sé það að miklu leyti undir
meðlimum Andromedu komið að
fylgja þeim eftir og því heilmikil
vinna fram undan. „Við ætlum að
reyna að nota þetta tækifæri og
sækja um að fá að koma fram á stöð-
um sem við hefðum annars ekki átt
möguleika á að koma fram á,“ segir
hún.
Andromeda hefur spilað saman í
um fjögur ár. Auk Ímu eru í hópnum
þeir Evan Harlan á harmóniku,
Andrew Blickenderfer á kontra-
bassa og Adam Larrabee á banjó,
gítar og mandólín. Andromeda hefur
gefið út tvær geislaplötur.
Spurð um hvaða verkefni séu fram
undan hjá sveitinni segir Íma að
sveitin muni næst halda tónleika í
Boston í janúar. Svo standi til að
skipuleggja fleiri tónleika. „Okkur
langar að koma til Íslands í vor eða
næsta sumar,“ segir Íma en sveitin
hefur einu sinni haldið tónleika hér á
landi.
Íslensk-bandarískur tónlistarhópur fær IMA-verðlaun
Gott að hafa í farteskinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónlistarhópurinn Andromeda: Íma Þöll Jónsdóttir, Evan Harlan, Andy Blickenderfer og Adam Larrabee.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
SÓLARHRINGSOPNUN Konu-
kots, næturathvarfs fyrir heim-
ilislausar konur, verður væntan-
lega ekki að veruleika fyrr en um
jól eða áramót, allt eftir því hve-
nær tekst að ráða starfsfólk.
Notendur athvarfsins sem og
fagaðilar innan heilbrigðiskerfis-
ins, eru meðal þeirra sem bíða
eftir svörum um hvenær opnunin
verði lengd en velferðarráð
Reykjavíkurborgar samþykkti á
fundi sínum 23. nóvember sl. að
veita fé til Reykjavíkurdeildar
Rauða kross Íslands, sem rekur
Konukot, til að hafa opið allan
sólarhringinn.
Nú hefur hins vegar verið
ákveðið að Velferðarsvið borgar-
innar sjái alfarið um rekstur
Konukots að deginum en að
Reykjavíkurdeild RKÍ haldi sínu
striki og sjái um rekstur at-
hvarfsins frá 19 að kvöldi til 10
að morgni.
Tilraunaverkefni til 1. júní
„Allir hlutaðeigandi hafa
fundað og hist og er þetta þessi
rammi sem við erum öll sammála
um,“ segir Ellý Þorsteinsdóttir,
skrifstofustjóri hjá Velferðar-
sviði, sem falið var samkvæmt
bókun velferðarráðs að útfæra
ákvörðunina í samráði við Rauða
krossinn. Verið er að leita að
fólki til starfa en ekki hefur verið
ákveðið hvort auglýst verður sér-
staklega eftir því eða hvort leitað
verður að starfsfólki meðal
þeirra sem þegar starfa hjá Vel-
ferðarsviði borgarinnar.
Opnun í Konukoti að deginum
verður tilraunaverkefni til 1. júní
nk. Á þeim tíma verður, að sögn
Ellýjar, skoðað hverjir nýti að-
stöðuna og hverjar þarfir þeirra
fyrir þjónustu eru. Mun fé-
lagsráðgjafi verða vikulega til
viðtals í athvarfinu. Ellý segir
ekki enn hægt að segja nákvæm-
lega hvað opnun Konukots muni
kosta borgina. M.a. þurfi að taka
tillit til nýgerðra kjarasamninga.
Í frétt Morgunblaðsins frá 24.
nóvember sl. kom fram að vonast
væri til þess að hægt yrði að hafa
opið lengur „strax á næstu dög-
um“. Nú er hins vegar útlit fyrir
að breytingin nái ekki fram að
ganga fyrr en um jólin eða ára-
mótin og eiga erfiðleikar við
mönnun þar hlut að máli, að sögn
Ellýjar.
Notendur bíða svara
Brynhildur Barðadóttir, verk-
efnisstjóri Reykjavíkurdeildar
RKÍ, segir ekki enn liggja fyrir
hvenær Konukot verður lengur
opið en að unnið sé að því hjá
Velferðarsviði borgarinnar. Að-
spurð segir hún marga hafa
hringt og spurt hvenær opnunin
verði lengd og að notendur at-
hvarfsins sem og fagfólk í heil-
brigðisgeiranum sé meðal þeirra
sem bíði svara. Þeirra sé að
vænta frá borginni innan
skamms.
Konukot er tilraunaverkefni
Reykjavíkurdeildar Rauða
krossins til tveggja ára. Reykja-
víkurborg útvegaði húsnæðið en
allur rekstur er í dag alfarið í
höndum Rauða krossins. Hefur
athvarfið verið opið frá því í nóv-
ember á síðasta ári og er verk-
efnið því hálfnað. Að þeim tíma
liðnum verður tekin ákvörðun
um hvort og hverjir haldi rekstr-
inum áfram. Frá opnun Konu-
kots hafa 44 konur nýtt sér að-
stöðuna. 5–10 þeirra eru tíðir
notendur þjónustunnar.
Stefnt að lengri
opnun Konukots
fyrir áramót
Erfiðleikar við mönnun eiga þátt í
frestun frá því sem áður var stefnt að
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is